Viðskipti Eigendaskipti á Heklu Eigendaskipti urðu á bílaumboðinu Heklu í dag. KB banki, Straumur og Tryggingamiðstöðin voru keypt út úr fyrirtækinu af Tryggva Jónssyni, forstjóra Heklu, Hjörleifi Jakobssyni, forstjóra Esso, Frosta Bergssyni, fyrrverandi stjórnarformanni Opinna kerfa, og Agli Ágústssyni, forstjóra Íslensk-Ameríska. Viðskipti innlent 13.10.2005 18:47 Góður hagnaður hjá Símanum Rúmlega þriggja milljarða króna hagnaður varð af rekstri ríkishlutafélagsins Símans í fyrra, sem er um það bil einum milljarði króna meiri hagnaður en árið þar áður. Stjórn Símans ákvað í gær að leggja til við aðalfund að greiddur verði 90 prósenta arður af nafnvirði hlutafjár eða 3,3 milljarðar króna sem ríkissjóður fær í sinn hlut þar sem ríkið á Símann. Viðskipti innlent 13.10.2005 18:47 Reynt að skýra verkaskiptingu Gerð er tilraun til að draga úr óvissu um verkaskiptingu í eftirliti með verðbréfamarkaði með sameiginlegri yfirlýsingu Fjármálaeftirlitsins og Kauphallar Íslands. Yfirlýsingunni er ætlað að skýra betur verkaskiptinguna á milli þessarra tveggja stofnana og auka skilvirkni. Viðskipti innlent 13.10.2005 18:47 Auknar heimildir til rannsóknar Fjármálaeftirlitið fær auknar heimildir til að rannsaka mál samkvæmt nýju lagafrumvarpi um verðbréfaviðskipti, þar á meðal til að kyrrsetja gögn og fá aðgang að gögnum um símtöl og fjarskipti. Má segja að með þessu sé verið að taka hálft skref því á meðan heimild til að beita sektum er enn takmörkuð er hætta á árekstrum við lögreglu. Viðskipti innlent 13.10.2005 18:47 Hvatt til aukins aðhalds Efnahags- og framfarastofnunin, OECD, hvetur íslensk stjórnvöld til að stuðla að vaxtahækkunum og auka aðhald í peningamálum til að sporna við þenslu. Viðskipti innlent 13.10.2005 18:47 Uppgjör Marels og Atorku í dag Tvö stór félög birta í dag uppgjör fyrir árið 2004. Marel og Atorka eru bæði í Úrvalsvísitölu hlutabréfa. Viðskipti innlent 13.10.2005 18:47 Meðalinnstæðan 250 þúsund Heildarfjöldi reikninga einstaklinga í viðskiptabönkum og sparisjóðum var 1,1 milljón og var meðalinnstæðan tæpar 250 þúsund krónur. Viðskipti innlent 13.10.2005 18:47 250 milljónir bíða eigenda Samtals 250 milljónir liggja nú hjá Íbúðalánasjóði og bíða þess að eigendur vitji þeirra. Þetta eru húsbréf sem búið er að draga út en eigendur hafa ekki innleyst, að sögn sviðsstjóra Íbúðalánasjóðs. </font /></b /> Viðskipti innlent 13.10.2005 18:47 Síminn seldur kjölfestufjárfesti Allt útlit er fyrir að meirihluti Símans verði seldur kjölfestufjárfesti. Í það minnsta tveir hópar innlendra fjárfesta eru taldir hafa áhuga en hann byggist á því að þeir geti keypt meirihluta í fyrirtækinu. Viðskipti innlent 13.10.2005 18:47 Stofna líftæknifyrirtæki á Íslandi Bandarískt líftæknifyrirtæki er að setja á stofn rannsóknar- og þróunarfyrirtæki í stofnfrumurannsóknum á Íslandi. Fyrirtækið hyggst fjárfesta hér á landi á næstu mánuðum og ráða til sín nokkra starfsmenn. Fyrirtækið heitir Xytos og er verið að leggja lokahönd á hlutafjárútboð félagsins í Bandaríkjunum og skráningu á Nasdaq-markaðinn. Viðskipti innlent 13.10.2005 18:47 Viðunandi hagnaður sjávarútvegs Sjávarútvegur er rekinn með viðunandi hagnaði, bæði á þessu ári og því síðasta, að mati fjármálaráðuneytisins. Það spáir því að tekjur greinarinnar í ár verði tuttugu milljörðum króna hærri en útgjöldin. Viðskipti innlent 13.10.2005 18:46 Iceland endurskoði umsóknina Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra hefur óskað eftir því að breska verslanakeðjan Iceland endurskoði umsókn sína um að fá einkaleyfi á vörumerkinu Iceland. Formlegt erindi þessa efnist barst stjórnarfomanni Iceland í dag, eða sama dag og Baugur tók við stjórnartaumum í fyrirtækinu. Viðskipti innlent 13.10.2005 15:32 23 milljarða sambankalán Norðurál hefur gert samning við Landsbankann og KB banka um endurfjármögnun fyrirtækisins og fjármögnun framkvæmdanna við stækkun álversins á Grundartanga. Bankarnir tveir undirrituðu samning um alþjóðlegt sambankalán til Norðuráls að upphæð 365 milljónir Bandaríkjadala, eða 23 milljarða íslenskra króna. Viðskipti innlent 13.10.2005 15:32 Somerfield á stórinnkaupalistann Baugur tekur við völdum í Big Food Group í dag. Þar með hefst vinna við að skipta upp félögunum innan samstæðunnar og endurskipuleggja rekstur Iceland-keðjunnar. Þar er mikið verk óunnið. Baugur lætur ekki þar við sitja. Félagið hefur gert tilboð í verslunarkeðjuna Somerfield, sem rekur á þrettánda hundrað verslana undir merkjum Somerfield og Kwik Save Viðskipti innlent 13.10.2005 15:32 Verðbólga yfir efri þolmörk Verðbólga síðustu tólf mánuði er nú komin vel yfir fjögur prósent og þar með yfir efri þolmörk sem Seðlabankinn setti sér um verðbólgu. Bankanum ber því að gera ríkisstjórninni grein fyrir stöðunni og væntanlegum aðgerðum. Viðskipti erlent 13.10.2005 18:46 Deilt um áhrif sterkari krónu Deilt er um hvort styrking krónunnar að undanförnu hafi haft áhrif á verðlag hér á landi. Greiningardeild Landsbankans telur að það taki að jafnaði þrjá mánuði fyrir gengisbreytingar að koma fram í verði innfluttra mat- og drykkjarvara. Þannig megi ætla að haldi krónan áfram að vera sterk fari það að hafa áhrif á verðbólguna. Viðskipti innlent 13.10.2005 18:46 Deilt um áhrif krónu á efnahagslíf Verðbólgan hefur rofið efri þolmörk peningastefnu Seðlabankans sem eru fjögur prósent. Miðað við verðbreytingar síðustu tólf mánaða telst verðbólgan nú vera 4,5 prósent. Deilt var um hátt gengi krónunnar og áhrif þess á efnahagslífið á Alþingi í dag. Viðskipti innlent 13.10.2005 18:46 Skutu Bretum ref fyrir rass Yfirmaður breska fjárfestingafélagsins Wise Speke segir að íslensku víkingarnir hafi skotið breskum fjármálasérfræðingum ref fyrir rass með því að sjá rakið viðskiptatækifæri í breska viðskiptaheiminum sem þeir bresku sáu ekki. Viðskipti innlent 13.10.2005 18:46 Vilja sameina lífeyrissjóði Stjórnir Lífeyrissjóðs lækna og Almenna lífeyrissjóðsins hafa undirritað viljayfirlýsingu um sameiningu sjóðanna frá og með 1. júní næstkomandi. Tilgangurinn með sameiningunni er að lækka kostnað og auka áhættudreifingu, eftir því sem fram kemur í fréttatilkynningu frá sjóðunum. Þar segir einnig að með þessu geti sjóðirnir betur staðið við markmið sín. Viðskipti erlent 13.10.2005 18:46 Sprengidagur í Kauphöllinni í gær Sprengidagur var í Kauphöllinni í gær, eins og sérfræðingar KB banka orða það, þar sem úrvalsvísitalan hækkaði um 2,5 prósent á einum degi í miklum viðskiptum. Úrvalsvísitalan hefur því hækkað um heil 15 prósent frá áramótum og ef litið er tólf mánuði aftur í tímann hefur hún hækkað um rösklega 64 prósent. Viðskipti innlent 13.10.2005 18:46 Flugleiðir kaupa Bláfugl Flugleiðir hafa gert samning um kaup á fraktflugfélaginu Bláfugli og flutningsmiðlunarfyrirtækinu Flugflutningum ehf.. Í frétt frá Flugleiðum segir að þetta sé liður í markaðri stefnu fyrirtækisins að vaxa á alþjóðlegum fraktflutningamarkaði þar sem langmestur hluti af starfsemi Bláfugls fer fram. Viðskipti innlent 13.10.2005 18:45 KB banki selur Lýsingu KB-banki hefur selt Vátryggingafélagi Íslands dótturfélag sitt, Lýsingu, fyrir 6,1 milljarð króna en áætlaður söluhagnaður er 3 milljarðar. Lýsing er annað tveggja stærstu fjármögnunarfyrirtækja landsins og eru starfsmenn þess 40 talsins. Viðskipti innlent 13.10.2005 18:46 Actavis kaupir indverskt fyrirtæki Lyfjafyrirtækið Actavis hefur fest kaup á lyfjarannsóknafyrirtækinu Lotus á Indlandi. Kaupverðið er um 1,6 milljarðar íslenskra króna og gert er ráð fyrir að gengið verði frá kaupsamningi á næstu vikum. Viðskipti innlent 13.10.2005 18:45 Lánssamningur upp á 6,3 milljarða Fulltrúar IFP Holdings Ltd., sem er eignarhaldsfélag um fjárfestingar SH í Bretlandi, Íslandsbanki og Landsbanki Íslands hafa undirritað sambankalánssamning að fjárhæð 53 milljónir punda, eða tæpir 6,3 milljarðar íslenkar krónur. Viðskipti innlent 17.10.2005 23:41 Samskip hyggja á landvinninga Gríðarlegur vöxtur hefur verið í starfsemi Samskipa erlendis og jókst veltan um fjörutíu prósent á síðasta ári. Félagið hyggur á frekari landvinninga, meðal annars langt inn í Rússland og í Asíu. Viðskipti innlent 13.10.2005 15:32 Kaupa hlut í Húsasmiðjunni Saxhóll, Fjárfestingarfélagið Prímus og Byggingarfélag Gylfa og Gunnars hafa eignast sinn 18,3 prósenta hlutinn hvert í Húsasmiðjunni. Þau 45 prósent sem eftir standa eru enn í eigu Baugs. Eignarhaldsfélag Húsasmiðjunnar hefur keypt hlutafé Baugs í Húsasmiðjunni og þar með eignast allt hlutafé félagsins. Viðskipti innlent 13.10.2005 15:31 Markaðsvirði aldrei verið meira Heildarmarkaðsvirði skráðra félaga í Kauphöll Íslands hefur aldrei verið meira en það var nú í byrjun febrúar. Það jókst um 105 milljarða króna í janúar og nam því tæplega tólf hundruð milljörðum í lok mánaðarins að sögn greiningardeildar KB banka. Viðskipti innlent 13.10.2005 15:31 Útrásin heldur áfram Bresku tískuverslanakeðjurnar Principles and Warehouse eru komnar að hluta til í íslenskar hendur. Önnur keðja, Shoe Studio, keypti keðjurnar í gær fyrir hundrað og fjörutíu milljónir punda, eða sem nemur 16,2 milljörðum króna. Shoe Studio er að stórum hluta í eigu Baugs samkvæmt fréttasíðu BBC. Viðskipti innlent 13.10.2005 15:30 Baugur hefur ekki tekið afstöðu Baugur hefur ekki tekið afstöðu til þess hvort haldið verði fast við það að breska fyrirtækið Iceland fái einkarétt á Iceland sem vörumerki í allri Evrópu. Viðskipti innlent 13.10.2005 18:45 Bretar fjalla um Landsbankann Breskir fjölmiðlar fjalla talsvert um yfirtökutilboð Landsbankans í verðbréfafyrirtækið Teather og Greenwood og þykir tilboðið í þetta smáfyrirtæki vera rausnarlegt. <em>Financial Times</em> segir til dæmis að strandhögg víkinga séu nú ekki svipur hjá sjón. Þeir fari ekki lengur með báli og brandi heldur komi þeir í jakkafötum, berandi rausnarlegar gjafir. Viðskipti innlent 13.10.2005 18:45 « ‹ 199 200 201 202 203 204 205 206 207 … 223 ›
Eigendaskipti á Heklu Eigendaskipti urðu á bílaumboðinu Heklu í dag. KB banki, Straumur og Tryggingamiðstöðin voru keypt út úr fyrirtækinu af Tryggva Jónssyni, forstjóra Heklu, Hjörleifi Jakobssyni, forstjóra Esso, Frosta Bergssyni, fyrrverandi stjórnarformanni Opinna kerfa, og Agli Ágústssyni, forstjóra Íslensk-Ameríska. Viðskipti innlent 13.10.2005 18:47
Góður hagnaður hjá Símanum Rúmlega þriggja milljarða króna hagnaður varð af rekstri ríkishlutafélagsins Símans í fyrra, sem er um það bil einum milljarði króna meiri hagnaður en árið þar áður. Stjórn Símans ákvað í gær að leggja til við aðalfund að greiddur verði 90 prósenta arður af nafnvirði hlutafjár eða 3,3 milljarðar króna sem ríkissjóður fær í sinn hlut þar sem ríkið á Símann. Viðskipti innlent 13.10.2005 18:47
Reynt að skýra verkaskiptingu Gerð er tilraun til að draga úr óvissu um verkaskiptingu í eftirliti með verðbréfamarkaði með sameiginlegri yfirlýsingu Fjármálaeftirlitsins og Kauphallar Íslands. Yfirlýsingunni er ætlað að skýra betur verkaskiptinguna á milli þessarra tveggja stofnana og auka skilvirkni. Viðskipti innlent 13.10.2005 18:47
Auknar heimildir til rannsóknar Fjármálaeftirlitið fær auknar heimildir til að rannsaka mál samkvæmt nýju lagafrumvarpi um verðbréfaviðskipti, þar á meðal til að kyrrsetja gögn og fá aðgang að gögnum um símtöl og fjarskipti. Má segja að með þessu sé verið að taka hálft skref því á meðan heimild til að beita sektum er enn takmörkuð er hætta á árekstrum við lögreglu. Viðskipti innlent 13.10.2005 18:47
Hvatt til aukins aðhalds Efnahags- og framfarastofnunin, OECD, hvetur íslensk stjórnvöld til að stuðla að vaxtahækkunum og auka aðhald í peningamálum til að sporna við þenslu. Viðskipti innlent 13.10.2005 18:47
Uppgjör Marels og Atorku í dag Tvö stór félög birta í dag uppgjör fyrir árið 2004. Marel og Atorka eru bæði í Úrvalsvísitölu hlutabréfa. Viðskipti innlent 13.10.2005 18:47
Meðalinnstæðan 250 þúsund Heildarfjöldi reikninga einstaklinga í viðskiptabönkum og sparisjóðum var 1,1 milljón og var meðalinnstæðan tæpar 250 þúsund krónur. Viðskipti innlent 13.10.2005 18:47
250 milljónir bíða eigenda Samtals 250 milljónir liggja nú hjá Íbúðalánasjóði og bíða þess að eigendur vitji þeirra. Þetta eru húsbréf sem búið er að draga út en eigendur hafa ekki innleyst, að sögn sviðsstjóra Íbúðalánasjóðs. </font /></b /> Viðskipti innlent 13.10.2005 18:47
Síminn seldur kjölfestufjárfesti Allt útlit er fyrir að meirihluti Símans verði seldur kjölfestufjárfesti. Í það minnsta tveir hópar innlendra fjárfesta eru taldir hafa áhuga en hann byggist á því að þeir geti keypt meirihluta í fyrirtækinu. Viðskipti innlent 13.10.2005 18:47
Stofna líftæknifyrirtæki á Íslandi Bandarískt líftæknifyrirtæki er að setja á stofn rannsóknar- og þróunarfyrirtæki í stofnfrumurannsóknum á Íslandi. Fyrirtækið hyggst fjárfesta hér á landi á næstu mánuðum og ráða til sín nokkra starfsmenn. Fyrirtækið heitir Xytos og er verið að leggja lokahönd á hlutafjárútboð félagsins í Bandaríkjunum og skráningu á Nasdaq-markaðinn. Viðskipti innlent 13.10.2005 18:47
Viðunandi hagnaður sjávarútvegs Sjávarútvegur er rekinn með viðunandi hagnaði, bæði á þessu ári og því síðasta, að mati fjármálaráðuneytisins. Það spáir því að tekjur greinarinnar í ár verði tuttugu milljörðum króna hærri en útgjöldin. Viðskipti innlent 13.10.2005 18:46
Iceland endurskoði umsóknina Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra hefur óskað eftir því að breska verslanakeðjan Iceland endurskoði umsókn sína um að fá einkaleyfi á vörumerkinu Iceland. Formlegt erindi þessa efnist barst stjórnarfomanni Iceland í dag, eða sama dag og Baugur tók við stjórnartaumum í fyrirtækinu. Viðskipti innlent 13.10.2005 15:32
23 milljarða sambankalán Norðurál hefur gert samning við Landsbankann og KB banka um endurfjármögnun fyrirtækisins og fjármögnun framkvæmdanna við stækkun álversins á Grundartanga. Bankarnir tveir undirrituðu samning um alþjóðlegt sambankalán til Norðuráls að upphæð 365 milljónir Bandaríkjadala, eða 23 milljarða íslenskra króna. Viðskipti innlent 13.10.2005 15:32
Somerfield á stórinnkaupalistann Baugur tekur við völdum í Big Food Group í dag. Þar með hefst vinna við að skipta upp félögunum innan samstæðunnar og endurskipuleggja rekstur Iceland-keðjunnar. Þar er mikið verk óunnið. Baugur lætur ekki þar við sitja. Félagið hefur gert tilboð í verslunarkeðjuna Somerfield, sem rekur á þrettánda hundrað verslana undir merkjum Somerfield og Kwik Save Viðskipti innlent 13.10.2005 15:32
Verðbólga yfir efri þolmörk Verðbólga síðustu tólf mánuði er nú komin vel yfir fjögur prósent og þar með yfir efri þolmörk sem Seðlabankinn setti sér um verðbólgu. Bankanum ber því að gera ríkisstjórninni grein fyrir stöðunni og væntanlegum aðgerðum. Viðskipti erlent 13.10.2005 18:46
Deilt um áhrif sterkari krónu Deilt er um hvort styrking krónunnar að undanförnu hafi haft áhrif á verðlag hér á landi. Greiningardeild Landsbankans telur að það taki að jafnaði þrjá mánuði fyrir gengisbreytingar að koma fram í verði innfluttra mat- og drykkjarvara. Þannig megi ætla að haldi krónan áfram að vera sterk fari það að hafa áhrif á verðbólguna. Viðskipti innlent 13.10.2005 18:46
Deilt um áhrif krónu á efnahagslíf Verðbólgan hefur rofið efri þolmörk peningastefnu Seðlabankans sem eru fjögur prósent. Miðað við verðbreytingar síðustu tólf mánaða telst verðbólgan nú vera 4,5 prósent. Deilt var um hátt gengi krónunnar og áhrif þess á efnahagslífið á Alþingi í dag. Viðskipti innlent 13.10.2005 18:46
Skutu Bretum ref fyrir rass Yfirmaður breska fjárfestingafélagsins Wise Speke segir að íslensku víkingarnir hafi skotið breskum fjármálasérfræðingum ref fyrir rass með því að sjá rakið viðskiptatækifæri í breska viðskiptaheiminum sem þeir bresku sáu ekki. Viðskipti innlent 13.10.2005 18:46
Vilja sameina lífeyrissjóði Stjórnir Lífeyrissjóðs lækna og Almenna lífeyrissjóðsins hafa undirritað viljayfirlýsingu um sameiningu sjóðanna frá og með 1. júní næstkomandi. Tilgangurinn með sameiningunni er að lækka kostnað og auka áhættudreifingu, eftir því sem fram kemur í fréttatilkynningu frá sjóðunum. Þar segir einnig að með þessu geti sjóðirnir betur staðið við markmið sín. Viðskipti erlent 13.10.2005 18:46
Sprengidagur í Kauphöllinni í gær Sprengidagur var í Kauphöllinni í gær, eins og sérfræðingar KB banka orða það, þar sem úrvalsvísitalan hækkaði um 2,5 prósent á einum degi í miklum viðskiptum. Úrvalsvísitalan hefur því hækkað um heil 15 prósent frá áramótum og ef litið er tólf mánuði aftur í tímann hefur hún hækkað um rösklega 64 prósent. Viðskipti innlent 13.10.2005 18:46
Flugleiðir kaupa Bláfugl Flugleiðir hafa gert samning um kaup á fraktflugfélaginu Bláfugli og flutningsmiðlunarfyrirtækinu Flugflutningum ehf.. Í frétt frá Flugleiðum segir að þetta sé liður í markaðri stefnu fyrirtækisins að vaxa á alþjóðlegum fraktflutningamarkaði þar sem langmestur hluti af starfsemi Bláfugls fer fram. Viðskipti innlent 13.10.2005 18:45
KB banki selur Lýsingu KB-banki hefur selt Vátryggingafélagi Íslands dótturfélag sitt, Lýsingu, fyrir 6,1 milljarð króna en áætlaður söluhagnaður er 3 milljarðar. Lýsing er annað tveggja stærstu fjármögnunarfyrirtækja landsins og eru starfsmenn þess 40 talsins. Viðskipti innlent 13.10.2005 18:46
Actavis kaupir indverskt fyrirtæki Lyfjafyrirtækið Actavis hefur fest kaup á lyfjarannsóknafyrirtækinu Lotus á Indlandi. Kaupverðið er um 1,6 milljarðar íslenskra króna og gert er ráð fyrir að gengið verði frá kaupsamningi á næstu vikum. Viðskipti innlent 13.10.2005 18:45
Lánssamningur upp á 6,3 milljarða Fulltrúar IFP Holdings Ltd., sem er eignarhaldsfélag um fjárfestingar SH í Bretlandi, Íslandsbanki og Landsbanki Íslands hafa undirritað sambankalánssamning að fjárhæð 53 milljónir punda, eða tæpir 6,3 milljarðar íslenkar krónur. Viðskipti innlent 17.10.2005 23:41
Samskip hyggja á landvinninga Gríðarlegur vöxtur hefur verið í starfsemi Samskipa erlendis og jókst veltan um fjörutíu prósent á síðasta ári. Félagið hyggur á frekari landvinninga, meðal annars langt inn í Rússland og í Asíu. Viðskipti innlent 13.10.2005 15:32
Kaupa hlut í Húsasmiðjunni Saxhóll, Fjárfestingarfélagið Prímus og Byggingarfélag Gylfa og Gunnars hafa eignast sinn 18,3 prósenta hlutinn hvert í Húsasmiðjunni. Þau 45 prósent sem eftir standa eru enn í eigu Baugs. Eignarhaldsfélag Húsasmiðjunnar hefur keypt hlutafé Baugs í Húsasmiðjunni og þar með eignast allt hlutafé félagsins. Viðskipti innlent 13.10.2005 15:31
Markaðsvirði aldrei verið meira Heildarmarkaðsvirði skráðra félaga í Kauphöll Íslands hefur aldrei verið meira en það var nú í byrjun febrúar. Það jókst um 105 milljarða króna í janúar og nam því tæplega tólf hundruð milljörðum í lok mánaðarins að sögn greiningardeildar KB banka. Viðskipti innlent 13.10.2005 15:31
Útrásin heldur áfram Bresku tískuverslanakeðjurnar Principles and Warehouse eru komnar að hluta til í íslenskar hendur. Önnur keðja, Shoe Studio, keypti keðjurnar í gær fyrir hundrað og fjörutíu milljónir punda, eða sem nemur 16,2 milljörðum króna. Shoe Studio er að stórum hluta í eigu Baugs samkvæmt fréttasíðu BBC. Viðskipti innlent 13.10.2005 15:30
Baugur hefur ekki tekið afstöðu Baugur hefur ekki tekið afstöðu til þess hvort haldið verði fast við það að breska fyrirtækið Iceland fái einkarétt á Iceland sem vörumerki í allri Evrópu. Viðskipti innlent 13.10.2005 18:45
Bretar fjalla um Landsbankann Breskir fjölmiðlar fjalla talsvert um yfirtökutilboð Landsbankans í verðbréfafyrirtækið Teather og Greenwood og þykir tilboðið í þetta smáfyrirtæki vera rausnarlegt. <em>Financial Times</em> segir til dæmis að strandhögg víkinga séu nú ekki svipur hjá sjón. Þeir fari ekki lengur með báli og brandi heldur komi þeir í jakkafötum, berandi rausnarlegar gjafir. Viðskipti innlent 13.10.2005 18:45