Viðskipti Óska endurupptöku samrunamáls Forsvarsmenn Og fjarskipta, sem meðal annars eiga 365 ljósvakamiðla, ætla að óska eftir því við samkeppnisyfirvöld að mál vegna samruna annars vegar Og fjarskipta og 365 ljósvakamiðla og hins vegar Landsíma Íslands og íslenska sjónvarpsfélagsins verði tekið upp aftur. Ástæðan er sögð vera sú að ekki hafi verið gætt samræmis milli félagsins og Landssímans þegar skilyrði fyrir sameiningu hafi verið sett. Viðskipti innlent 13.10.2005 18:58 40 um hverja Lambaselslóð Alls eru 40 umsóknir um hverja lóð í Lambaseli í Breiðholti. Borginni hafa borist um 1200 umsóknir um einbýlishúsalóðirnar þrjátíu. Viðskipti innlent 13.10.2005 18:58 Íhuga hækkun hlutafjár Stjórn Actavis leggur til að veitt verði heimild til að auka hlutafé í félaginu um 450 milljónir króna að nafnvirði. Aðalfundur félagsins er á fimmtudag. Viðskipti innlent 13.10.2005 18:58 Ekki jafnræði milli fyrirtækja Samkeppnisráð mismunar fjarskipta- og fjölmiðlasamsteypum Og Fjarskipta og Landssímans með ólíkum skilyrðum um dreifingu sjónvarpsefnis þeirra, segir Skarphéðinn B. Steinarsson stjórnarformaður Og Fjarskipta sem á Og Vodafone og 365. Viðskipti innlent 13.10.2005 18:58 Krónan veiktist um tæp 2% í dag Markaðir brugðust skarpt við 0,25 prósenta stýrivaxtahækkun Seðlabankans sem tilkynnt var um í gær og tekur gildi á þriðjudaginn. Fram kemur á Vegvísi greiningardeildar Landsbankans að skammtímavaxtamunur við útlönd hafi aukist lítillega í kjölfar hækkunarinnar. Krónan hefur veikst um tæp 2 prósent í töluverðum viðskiptum í dag en mikil viðbrögð voru á gjaldeyrismarkaði. Viðskipti innlent 13.10.2005 18:57 Kannar starfslokasamning Fjármálaeftirlitið hefur óskað eftir upplýsingum um samninga sem fyrrverandi stjórn Sameinaða lífeyrissjóðsins gerði við Jóhannes Siggeirsson, framkvæmdastjóra sjóðsins, árið 2002. Þeir kostuðu sjóðinn 43 milljónir króna þegar Jóhannes var látinn hætta í síðasta mánuði. Viðskipti innlent 13.10.2005 18:57 Skilyrði til að tryggja jafnræði Samkeppnisráð hefur sett víðtæk skilyrði fyrir samruna á fjarskipta- og fjölmiðlamörkuðum. Er það gert til að samkeppni við fyrirtækjablokkir Símans og Og Vodafone verði ekki útilokuð og til að tryggja hag neytenda. Viðskipti innlent 13.10.2005 18:57 Stríð á sjálfsafgreiðslustöðvum Stóru olíufélögin og dótturfélög þeirra hafa öll aukið afslátt á sjálfsafgreiðslubensíni eftir að Atlantsolía opnaði fyrstu bensínstöð sína í Reykjavík fyrir mánuði. Viðskipti innlent 13.10.2005 18:57 Sáttur við skilyrði samkeppnisráðs Samkeppnisráð hefur sett ítarleg skilyrði fyrir samruna Landssímans og Skjás eins, og samruna Og Vodafone og 365 ljósvakamiðla, sem meðal annars reka Stöð 2 og Sýn. Stjórnarformaður fjarskiptafyrirtækisins Hive segist sáttur við skilyrði samkeppnisráðs. Viðskipti innlent 13.10.2005 18:57 17 þúsund íbúðir til 2024 Hátt í 17 þúsund íbúðir verða byggðar í Reykjavík á árunum 2001-2024. Stærstu hverfin verða í landi Úlfarsfells þar sem 2.000 íbúðir verða byggðar, í Gufunesi þar sem 3.000 íbúðir verða byggðar og á þéttingasvæði vestan Elliðaáa. Viðskipti innlent 13.10.2005 18:57 Setur skilyrði við samruna Samkeppnisráð hefur sett ítarleg skilyrði fyrir annars vegar samruna Landssíma Íslands og Íslenska sjónvarpsfélagsins, sem rekur Skjá einn og hins vegar samruna Og fjarskipta og 356 ljósvakamiðla, sem reka meðal annars Stöð 2 og Sýn. Fyrirtækin hafa sæst á að una skilyrðunum að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá Samkeppnisstofnun. Viðskipti innlent 13.10.2005 18:57 Uppbygging á Arnarneshálsi Tæplega 500 íbúðir munu rísa á nýju byggingarlandi á Arnarneshálsi í Garðabæ á næstu þremur árum. Samningur þess efnis var undirritaður fyrir helgi af Ásdísi Höllu Bragadóttur bæjarstjóra, Ágústi Kr. Björnssyni framkvæmdastjóra Akralands og Sigurði Ragnarssyni framkvæmdastjóra Arnarlands en fyrirtækin tvö eiga lóðirnar. Viðskipti innlent 13.10.2005 18:57 Gengið lækkar Töluverður órói hefur verið á gjaldeyrismarkaði síðustu daga í aðdraganda og kjölfar vaxtaákvörðunar Seðlabankans. Fjárfestar bjuggust við meiri vaxtahækkun og það hefur orðið til þess að gengi krónunnar hefur lækkað. Viðskipti innlent 13.10.2005 18:57 Reyndi að selja sjálfum sér Essó Óheilbrigðir viðskiptahættir Ólafs Ólafssonar, aðaleiganda Kers, og tilraun hans til að ná meirihluta í félaginu varð til þess að traustið á milli stærstu hluthafa Kers brast um mitt síðasta ár, segir Páll Þór Magnússon framkvæmdastjóri Sunds. Viðskipti innlent 13.10.2005 18:57 Farþegum fjölgar áfram Farþegum í millilandaflugi Icelandair fjölgaði um 6,7% í febrúar í ár í samanburði við febrúar á síðasta ári. Þetta kemur fram í frétta á heimasíðu Kauphallar Íslands. Farþegar í febrúar voru rúmlega 70 þúsund í ár en tæp 66 þúsund í fyrra. Sætanýting var einnig 2 prósentustigum betri, framboð var 5 prósentum meira, en sala 8,6 prósentum meiri. Viðskipti innlent 13.10.2005 18:57 Brugðist við verðbólguógn Seðlabankinn ætlar að hækka stýrivexti sína um 0,25 prósentustig á þriðjudaginn eftir páska. Þá verða vextirnir komnir í níu prósent en í maí í fyrra voru þeir 5,3 prósent. Innlent 13.10.2005 18:57 Fjármálaeftirlitið vill upplýsingar um starfslokasamning sjóðsstjóra Fjármálaeftirlitið hefur óskað eftir upplýsingum um samninga sem fyrrverandi stjórn Sameinaða lífeyrissjóðsins gerði við Jóhannes Siggeirsson, framkvæmdastjóra sjóðsins í maí 2000 og um starfslok hans í febrúar síðastliðnum. Viðskipti innlent 13.10.2005 18:57 Actavis kaupir tékkneskt fyrirtæki Actavis hefur undirritað samning um kaup á tékkneska lyfjafyrirtækinu Pharma Avalanche, 30 manna fyrirtæki með höfuðstöðvar í Prag. Pharma Avalanche, sem var stofnað árið 2000, hefur aðallega lagt áherslu á sölu og markaðssetningu á samheitalyfjum í Tékklandi og Slóvakíu. Viðskipti innlent 17.10.2005 23:41 Áframhaldandi slagur í Keri Slagur Ólafs Ólafssonar, aðaleiganda Kers, við sameigendur sína í félaginu heldur áfram. Stjórn Festingar sem á og rekur meðal annars fasteignir félaga í eigu Kers ákvað á fundi sínum að auka hlutafé og var nýja hlutaféð selt einkahlutafélagi í eigu framkvæmdastjóra félagsins. Viðskipti innlent 13.10.2005 18:57 Halldór gagnrýnir Seðlabankann Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra gagnrýnir Seðlabankann harðlega fyrir að hækka stýrivexti og segist óttast að krónan styrkist enn frekar á kostnað útflutnings- og samkeppnisgreina. Halldór vill draga úr vægi húsnæðisverðs í vísitölunni en því er seðlabankastjóri ósammála. Viðskipti innlent 13.10.2005 18:57 Enn óvissa um sölu Símans Þeir sem áttu von á að ríkisstjórnin ákveddi fyrir páska hvernig staðið verður að sölu Símans mega bíða enn. Á fjármálamarkaði er mikið rætt um það hverjir munu bjóða í Símann. Því er haldið fram ítrekað að Finnur Ingólfsson, forstjóri VÍS, segi kaupin í höfn svo lengi sem nægilega breiður hópur fjárfesta sameinist um tilboð. Innlent 13.10.2005 18:57 Spá allar hækkun stýrivaxta Greiningadeildir bankanna spá allar að Seðlabankinn muni hækka stýrivexti í dag um 0,25 til 0,75 prósent en Landsbankinn spáir þó að hækkuninn verði ekki nema 0,50 prósent. Bankinn muni gera þetta í ljósi 4,7 prósenta verðbólgu þegar til tólf mánaða sé litið. Viðskipti innlent 13.10.2005 18:57 Spron hækkar vexti um 0,25% Í framhaldi af hækkun stýrivaxta Seðlabanka Íslands sem tilkynnt var í dag, hefur SPRON ákveðið að hækka vexti óverðtryggðra innlána og útlána um allt að 0,25%. Vaxtahækkunin tekur gildi 1. apríl næstmkomandi. Viðskipti innlent 13.10.2005 18:57 Seðlabankinn hækkar vexti um 0,25% Bankastjórn Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka stýrivexti bankans um 0,25 prósentur frá og með 29. mars n.k. í 9%. Seðlabankinn hefur þá hækkað stýrivexti sína um 3,7 prósentur síðan í maí sl. Viðskipti innlent 13.10.2005 18:57 Örfá atriði ófrágengin "Það voru nokkur atriði sem talin var ástæða til að skoða betur," segir Jón Sveinsson, formaður einkavæðinganefndar, spurður um ástæður þess að söluferli Símans verður ekki kynnt fyrir páska eins og til stóð. Hann vill ekki tilgreina nánar hvaða atriði þurfi nánari skoðunar við. Innlent 13.10.2005 18:57 Vilja rannsókn á viðskiptum banka Þingmenn Vinstri-grænna vilja rannsókn á viðskiptum bankanna með lóðir og fasteignir - og hvort þeir brjóti lög með því að hafa byggingarverktaka á sínum snærum. Viðskiptaráðherra ætlar ekki að krefjast þess að bankarnir láti í té upplýsingar um fasteigna- og lóðakaup sín. Innlent 13.10.2005 18:57 Hagnaður MP 1.013 milljónir Hagnaður MP Fjárfestingarbanka hf. var 1.013 milljónir króna árið 2004. Viðskipti innlent 13.10.2005 18:57 Dollarinn hækkar gagnvart evru Gengi dollarsins hefur hækkað gagnvart evrunni og er hækkunin rakin til þess að búist er við vaxtahækkunum vestanhafs í dag. Síðasta skráða meðalgengi Seðlabankans var 58,69 krónur. Viðskipti erlent 13.10.2005 18:56 Bankastjóramálin rædd í vikunni Fjármálaráðherrar Evrópusambandsríkjanna ætla að ræða bankastjóramál Alþjóðabankans á fundi sínum í Brüssel í þessari viku. Bush Bandaríkjaforseti tilnefndi í síðustu viku Paul Wolfowitz aðstoðarvarnarmálaráðherra sem bankastjóraefni. Erlent 13.10.2005 18:56 Bann við dreifingu á Kristal Plús var óheimilt Úrskurðarnefnd hollustuhátta- og mengunarmála hefur kveðið upp þann úrskurð að Umhverfis- og heilbrigðisstofu Reykjavíkur, UHR, hafi verið óheimilt að setja dreifingarbann á drykkinn Kristal Plús sem Ölgerðin Egill Skallagrímsson ehf. setti á markað um áramót.Ölgerðin íhugar að krefjast skaðabóta vegna þessa. Viðskipti innlent 13.10.2005 18:57 « ‹ 193 194 195 196 197 198 199 200 201 … 223 ›
Óska endurupptöku samrunamáls Forsvarsmenn Og fjarskipta, sem meðal annars eiga 365 ljósvakamiðla, ætla að óska eftir því við samkeppnisyfirvöld að mál vegna samruna annars vegar Og fjarskipta og 365 ljósvakamiðla og hins vegar Landsíma Íslands og íslenska sjónvarpsfélagsins verði tekið upp aftur. Ástæðan er sögð vera sú að ekki hafi verið gætt samræmis milli félagsins og Landssímans þegar skilyrði fyrir sameiningu hafi verið sett. Viðskipti innlent 13.10.2005 18:58
40 um hverja Lambaselslóð Alls eru 40 umsóknir um hverja lóð í Lambaseli í Breiðholti. Borginni hafa borist um 1200 umsóknir um einbýlishúsalóðirnar þrjátíu. Viðskipti innlent 13.10.2005 18:58
Íhuga hækkun hlutafjár Stjórn Actavis leggur til að veitt verði heimild til að auka hlutafé í félaginu um 450 milljónir króna að nafnvirði. Aðalfundur félagsins er á fimmtudag. Viðskipti innlent 13.10.2005 18:58
Ekki jafnræði milli fyrirtækja Samkeppnisráð mismunar fjarskipta- og fjölmiðlasamsteypum Og Fjarskipta og Landssímans með ólíkum skilyrðum um dreifingu sjónvarpsefnis þeirra, segir Skarphéðinn B. Steinarsson stjórnarformaður Og Fjarskipta sem á Og Vodafone og 365. Viðskipti innlent 13.10.2005 18:58
Krónan veiktist um tæp 2% í dag Markaðir brugðust skarpt við 0,25 prósenta stýrivaxtahækkun Seðlabankans sem tilkynnt var um í gær og tekur gildi á þriðjudaginn. Fram kemur á Vegvísi greiningardeildar Landsbankans að skammtímavaxtamunur við útlönd hafi aukist lítillega í kjölfar hækkunarinnar. Krónan hefur veikst um tæp 2 prósent í töluverðum viðskiptum í dag en mikil viðbrögð voru á gjaldeyrismarkaði. Viðskipti innlent 13.10.2005 18:57
Kannar starfslokasamning Fjármálaeftirlitið hefur óskað eftir upplýsingum um samninga sem fyrrverandi stjórn Sameinaða lífeyrissjóðsins gerði við Jóhannes Siggeirsson, framkvæmdastjóra sjóðsins, árið 2002. Þeir kostuðu sjóðinn 43 milljónir króna þegar Jóhannes var látinn hætta í síðasta mánuði. Viðskipti innlent 13.10.2005 18:57
Skilyrði til að tryggja jafnræði Samkeppnisráð hefur sett víðtæk skilyrði fyrir samruna á fjarskipta- og fjölmiðlamörkuðum. Er það gert til að samkeppni við fyrirtækjablokkir Símans og Og Vodafone verði ekki útilokuð og til að tryggja hag neytenda. Viðskipti innlent 13.10.2005 18:57
Stríð á sjálfsafgreiðslustöðvum Stóru olíufélögin og dótturfélög þeirra hafa öll aukið afslátt á sjálfsafgreiðslubensíni eftir að Atlantsolía opnaði fyrstu bensínstöð sína í Reykjavík fyrir mánuði. Viðskipti innlent 13.10.2005 18:57
Sáttur við skilyrði samkeppnisráðs Samkeppnisráð hefur sett ítarleg skilyrði fyrir samruna Landssímans og Skjás eins, og samruna Og Vodafone og 365 ljósvakamiðla, sem meðal annars reka Stöð 2 og Sýn. Stjórnarformaður fjarskiptafyrirtækisins Hive segist sáttur við skilyrði samkeppnisráðs. Viðskipti innlent 13.10.2005 18:57
17 þúsund íbúðir til 2024 Hátt í 17 þúsund íbúðir verða byggðar í Reykjavík á árunum 2001-2024. Stærstu hverfin verða í landi Úlfarsfells þar sem 2.000 íbúðir verða byggðar, í Gufunesi þar sem 3.000 íbúðir verða byggðar og á þéttingasvæði vestan Elliðaáa. Viðskipti innlent 13.10.2005 18:57
Setur skilyrði við samruna Samkeppnisráð hefur sett ítarleg skilyrði fyrir annars vegar samruna Landssíma Íslands og Íslenska sjónvarpsfélagsins, sem rekur Skjá einn og hins vegar samruna Og fjarskipta og 356 ljósvakamiðla, sem reka meðal annars Stöð 2 og Sýn. Fyrirtækin hafa sæst á að una skilyrðunum að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá Samkeppnisstofnun. Viðskipti innlent 13.10.2005 18:57
Uppbygging á Arnarneshálsi Tæplega 500 íbúðir munu rísa á nýju byggingarlandi á Arnarneshálsi í Garðabæ á næstu þremur árum. Samningur þess efnis var undirritaður fyrir helgi af Ásdísi Höllu Bragadóttur bæjarstjóra, Ágústi Kr. Björnssyni framkvæmdastjóra Akralands og Sigurði Ragnarssyni framkvæmdastjóra Arnarlands en fyrirtækin tvö eiga lóðirnar. Viðskipti innlent 13.10.2005 18:57
Gengið lækkar Töluverður órói hefur verið á gjaldeyrismarkaði síðustu daga í aðdraganda og kjölfar vaxtaákvörðunar Seðlabankans. Fjárfestar bjuggust við meiri vaxtahækkun og það hefur orðið til þess að gengi krónunnar hefur lækkað. Viðskipti innlent 13.10.2005 18:57
Reyndi að selja sjálfum sér Essó Óheilbrigðir viðskiptahættir Ólafs Ólafssonar, aðaleiganda Kers, og tilraun hans til að ná meirihluta í félaginu varð til þess að traustið á milli stærstu hluthafa Kers brast um mitt síðasta ár, segir Páll Þór Magnússon framkvæmdastjóri Sunds. Viðskipti innlent 13.10.2005 18:57
Farþegum fjölgar áfram Farþegum í millilandaflugi Icelandair fjölgaði um 6,7% í febrúar í ár í samanburði við febrúar á síðasta ári. Þetta kemur fram í frétta á heimasíðu Kauphallar Íslands. Farþegar í febrúar voru rúmlega 70 þúsund í ár en tæp 66 þúsund í fyrra. Sætanýting var einnig 2 prósentustigum betri, framboð var 5 prósentum meira, en sala 8,6 prósentum meiri. Viðskipti innlent 13.10.2005 18:57
Brugðist við verðbólguógn Seðlabankinn ætlar að hækka stýrivexti sína um 0,25 prósentustig á þriðjudaginn eftir páska. Þá verða vextirnir komnir í níu prósent en í maí í fyrra voru þeir 5,3 prósent. Innlent 13.10.2005 18:57
Fjármálaeftirlitið vill upplýsingar um starfslokasamning sjóðsstjóra Fjármálaeftirlitið hefur óskað eftir upplýsingum um samninga sem fyrrverandi stjórn Sameinaða lífeyrissjóðsins gerði við Jóhannes Siggeirsson, framkvæmdastjóra sjóðsins í maí 2000 og um starfslok hans í febrúar síðastliðnum. Viðskipti innlent 13.10.2005 18:57
Actavis kaupir tékkneskt fyrirtæki Actavis hefur undirritað samning um kaup á tékkneska lyfjafyrirtækinu Pharma Avalanche, 30 manna fyrirtæki með höfuðstöðvar í Prag. Pharma Avalanche, sem var stofnað árið 2000, hefur aðallega lagt áherslu á sölu og markaðssetningu á samheitalyfjum í Tékklandi og Slóvakíu. Viðskipti innlent 17.10.2005 23:41
Áframhaldandi slagur í Keri Slagur Ólafs Ólafssonar, aðaleiganda Kers, við sameigendur sína í félaginu heldur áfram. Stjórn Festingar sem á og rekur meðal annars fasteignir félaga í eigu Kers ákvað á fundi sínum að auka hlutafé og var nýja hlutaféð selt einkahlutafélagi í eigu framkvæmdastjóra félagsins. Viðskipti innlent 13.10.2005 18:57
Halldór gagnrýnir Seðlabankann Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra gagnrýnir Seðlabankann harðlega fyrir að hækka stýrivexti og segist óttast að krónan styrkist enn frekar á kostnað útflutnings- og samkeppnisgreina. Halldór vill draga úr vægi húsnæðisverðs í vísitölunni en því er seðlabankastjóri ósammála. Viðskipti innlent 13.10.2005 18:57
Enn óvissa um sölu Símans Þeir sem áttu von á að ríkisstjórnin ákveddi fyrir páska hvernig staðið verður að sölu Símans mega bíða enn. Á fjármálamarkaði er mikið rætt um það hverjir munu bjóða í Símann. Því er haldið fram ítrekað að Finnur Ingólfsson, forstjóri VÍS, segi kaupin í höfn svo lengi sem nægilega breiður hópur fjárfesta sameinist um tilboð. Innlent 13.10.2005 18:57
Spá allar hækkun stýrivaxta Greiningadeildir bankanna spá allar að Seðlabankinn muni hækka stýrivexti í dag um 0,25 til 0,75 prósent en Landsbankinn spáir þó að hækkuninn verði ekki nema 0,50 prósent. Bankinn muni gera þetta í ljósi 4,7 prósenta verðbólgu þegar til tólf mánaða sé litið. Viðskipti innlent 13.10.2005 18:57
Spron hækkar vexti um 0,25% Í framhaldi af hækkun stýrivaxta Seðlabanka Íslands sem tilkynnt var í dag, hefur SPRON ákveðið að hækka vexti óverðtryggðra innlána og útlána um allt að 0,25%. Vaxtahækkunin tekur gildi 1. apríl næstmkomandi. Viðskipti innlent 13.10.2005 18:57
Seðlabankinn hækkar vexti um 0,25% Bankastjórn Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka stýrivexti bankans um 0,25 prósentur frá og með 29. mars n.k. í 9%. Seðlabankinn hefur þá hækkað stýrivexti sína um 3,7 prósentur síðan í maí sl. Viðskipti innlent 13.10.2005 18:57
Örfá atriði ófrágengin "Það voru nokkur atriði sem talin var ástæða til að skoða betur," segir Jón Sveinsson, formaður einkavæðinganefndar, spurður um ástæður þess að söluferli Símans verður ekki kynnt fyrir páska eins og til stóð. Hann vill ekki tilgreina nánar hvaða atriði þurfi nánari skoðunar við. Innlent 13.10.2005 18:57
Vilja rannsókn á viðskiptum banka Þingmenn Vinstri-grænna vilja rannsókn á viðskiptum bankanna með lóðir og fasteignir - og hvort þeir brjóti lög með því að hafa byggingarverktaka á sínum snærum. Viðskiptaráðherra ætlar ekki að krefjast þess að bankarnir láti í té upplýsingar um fasteigna- og lóðakaup sín. Innlent 13.10.2005 18:57
Hagnaður MP 1.013 milljónir Hagnaður MP Fjárfestingarbanka hf. var 1.013 milljónir króna árið 2004. Viðskipti innlent 13.10.2005 18:57
Dollarinn hækkar gagnvart evru Gengi dollarsins hefur hækkað gagnvart evrunni og er hækkunin rakin til þess að búist er við vaxtahækkunum vestanhafs í dag. Síðasta skráða meðalgengi Seðlabankans var 58,69 krónur. Viðskipti erlent 13.10.2005 18:56
Bankastjóramálin rædd í vikunni Fjármálaráðherrar Evrópusambandsríkjanna ætla að ræða bankastjóramál Alþjóðabankans á fundi sínum í Brüssel í þessari viku. Bush Bandaríkjaforseti tilnefndi í síðustu viku Paul Wolfowitz aðstoðarvarnarmálaráðherra sem bankastjóraefni. Erlent 13.10.2005 18:56
Bann við dreifingu á Kristal Plús var óheimilt Úrskurðarnefnd hollustuhátta- og mengunarmála hefur kveðið upp þann úrskurð að Umhverfis- og heilbrigðisstofu Reykjavíkur, UHR, hafi verið óheimilt að setja dreifingarbann á drykkinn Kristal Plús sem Ölgerðin Egill Skallagrímsson ehf. setti á markað um áramót.Ölgerðin íhugar að krefjast skaðabóta vegna þessa. Viðskipti innlent 13.10.2005 18:57