Samgönguslys Ók of nærri næsta bíl og sveigði yfir á rangan vegarhelming Karlmaður á tíræðisaldri sem lést í kjölfar umferðarslyss í Hrunamannahreppi sumarið 2020 ók bíl sínum of nálægt næsta bíl á undan. Hann gætti ekki að því þegar bíllinn á undan honum hægði á sér, ók yfir á öfugan vegarhelming og í veg fyrir bifreið sem ekið var úr gagnstæðri átt. Innlent 6.12.2021 13:16 Tafir á umferð víða um höfuðborgarsvæðið eftir hádegið Töluverðar umferðartafir hafa orðið á umferð í höfuðborginni eftir hádegi vegna umferðarslysa. Engir sjúkraflutningar eru þó skráðir hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu. Innlent 1.12.2021 14:38 Talinn hafa axlarbrotnað er lítil rúta valt Talið er einn farþegi í lítilli rútu hafi beinbrotnað er rútan rann út af veginum og valt á þjóðvegi 1 skammt frá Vík í Mýrdal. Innlent 30.11.2021 15:15 „Ábyrgðinni er einhvern veginn alltaf skellt á þau sem ekki stjórna tækjunum“ Reykvíkingur, sem fer flestra sinna ferða gangandi eða hjólandi, telur lögreglu skella skuldinni á gangandi vegfarendur frekar en ökumenn með tali um endurskinsmerki og slæm birtuskilyrði eftir fjölda umferðarslysa síðustu daga. Innlent 29.11.2021 20:00 Bíll við bíl í snjókomunni í Reykjavík og árekstur tefur umferð Árekstur tveggja bíla varð á Hafnarfjarðarvegi nærri Arnarnesbrúnni síðdegis. Vinna stendur yfir á vettvangi og gengur umferð afar hægt frá Reykjavík til Kópavogs, Garðabæjar og Hafnarfjarðar af þessum sökum. Árekstur.is segist hafa sinnt á annan tug árekstra síðdegis og hafi komið á óvart hve margir séu á sumardekkjum. Innlent 29.11.2021 16:54 Enn ekið á gangandi og fólk á rafhlaupahjóli Ekið var á gangandi vegfaranda í Hlíðarbergi í Hafnarfirði á sjöunda tímanum í kvöld. Töluvert var um umferðaróhöpp á höfuðborgarsvæðinu í dag og fólk flutt á slysadeild. Þetta kemur fram í skeyti lögreglu til fjölmiðla í kvöld. Innlent 28.11.2021 23:11 Enginn alvarlega slasaður eftir fimm bíla umferðaróhapp Tólf manns í fimm bifreiðum lentu í umferðaróhappi um tuttugu kílómetra austur af Vík í Mýrdal klukkan rúmlega fjögur í dag. Allir eru flokkaðir „grænir“ að sögn Lögreglunnar á Suðurlandi. Innlent 27.11.2021 17:34 „Það virðist sem fólk sjái ekki hvert annað“ Of mörg alvarleg umferðarslys hafa orðið á höfuðborgarsvæðinu í mánuðinum, að mati yfirlögregluþjóns. Skammdegið skapi hættuástand. Innlent 27.11.2021 13:44 Ekið á mann við Sprengisand Ekið var á mann á miðri götu á við Sprengisand rétt í þessu. Innlent 26.11.2021 20:03 Hringveginum við Bifröst lokað vegna slyss Hringveginum var lokað við Bifröst vegna bílslyss sem varð um klukkan fimm í dag. Engin slys urðu á fólki að sögn Slökkviliðs Borgarbyggðar. Innlent 26.11.2021 17:36 Hin látna í Vogunum á sjötugsaldri Konan sem lést þegar strætisvagni var ekið á hana við gatnamót Gnoðarvogs og Skeiðarvogs í gær var á sjötugsaldri, af erlendum uppruna og búsett hér á landi. Innlent 26.11.2021 12:14 Konan lést eftir að hafa orðið fyrir strætisvagni Konan sem lést í umferðarslysinu á gatnamótum Gnoðarvogs og Skeiðarvogs á níunda tímanum í morgun varð fyrir strætisvagni. Þetta fékk fréttastofa staðfest frá Strætó bs. Innlent 25.11.2021 18:39 Kona lést í umferðarslysi í Reykjavík í morgun Kona lést í umferðarslysi á gatnamótum Gnoðavogs og Skeiðarvogs á níunda tímanum í morgun. Málið er til rannsóknar hjá lögreglu og Rannsóknarnefnd samgönguslysa. Innlent 25.11.2021 14:33 Kona flutt á slysadeild eftir að ekið var á hana Ekið var á gangandi vegfaranda á nærri gatnamótum Skeiðarvogs og Gnoðarvogs í Reykjavík skömmu eftir klukkan 8:30 í morgun. Innlent 25.11.2021 08:56 Þriggja bíla árekstur við Sæbraut Þriggja bíla árekstur varð við gatnamót Sæbrautar og Dalbrautar í Reykjavík fyrir stuttu. Þetta staðfestir slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu við fréttastofu. Innlent 22.11.2021 13:13 Guðna blöskrar óþarfa framúrakstur: „Hvað er fólk að pæla?“ Tólf létust að meðaltali árlega í umferðarslysum á Íslandi á síðasta áratug samanborið við 20 áratuginn á undan. Á sama tíma liggur þó fyrir að 25.000 Íslendingar nota ekki bílbelti. Alþjóðlegur minningardagur þeirra sem látist hafa í umferðarslysum er í dag. Innlent 21.11.2021 20:19 Tuttugu og fimm þúsund Íslendingar nota ekki belti Um 25.000 Íslendingar nota ekki bílbelti í umferðinni, sem setur Ísland í 17. sæti á lista Evrópuþjóða í þeim efnum. Fórnarlamba umferðarslysa er minnst á alþjóðlegum minningardegi í dag. Innlent 21.11.2021 11:53 Þrengslunum lokað eftir að flutningabíll fór út af Þrengslavegi var lokað rétt fyrir klukkan tvö í dag eftir að vöruflutningabíll fór út af veginum. Unnið er að því að ná honum aftur upp á veg. Innlent 20.11.2021 17:54 Óska eftir vitnum að umferðaróhappi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur óskað eftir vitnum að umferðaróhappi sem varð á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Háaleitisbrautar miðvikudagsmorguninn 10. nóvember. Tilkynning um slysið barst lögreglu klukkan 7:12. Innlent 19.11.2021 13:35 1.592 látist í umferðarslysum á Íslandi frá 1915 Frá því að fyrsta banaslysið í umferðinni var skráð á Íslandi árið 1915 hafa 1.592 látist í umferðinni, til og með 16. nóvember síðastliðnum. Sjö einstaklingar hafa látist það sem af er þessu ári. Innlent 18.11.2021 09:08 Talinn hafa flogið inn Barkárdalinn án nægilegrar aðgæslu Héraðsdómur Reykjavíkur metur það svo að Arngrímur Jóhannsson flugstjóri hafi ekki sýnt nægilega aðgæslu vegna yfirvofandi hættu á blöndungsísingu, er hann hagaði flugi inn Barkárdal á Tröllaskaga í ágúst 2015, með þeim afleiðingum að kanadíski flugmaðurinn Arthur Grant Wagstaff fórst. Innlent 15.11.2021 20:45 Slysið við Látravatn sjöunda andlátið í umferðinni á árinu Sjö hafa látist í umferðinni hér á landi það sem af er ári. Slysið á Örlygshafnarvegi, skammt frá Látravatni við utanverðan Patreksfjörð, um helgina var sjötta umferðarslysið á árinu þar sem maður lést. Innlent 15.11.2021 11:32 Fannst látinn í bifreið skammt frá Látravatni Ökumaður fannst látinn í bifreið skammt frá Látravatni við Patreksfjörð á ellefta tímanum í morgun. Vegfarandi kom að bifreiðinni sem hafði oltið út af Örlygshafnarvegi. Ökumaðurinn var einsamall í bílnum. Innlent 14.11.2021 17:45 Ökumaður rafhlaupahjólsins látinn og hinn á gjörgæslu Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og rannsóknarnefnd samgönguslysa hafa til rannsóknar hvort átt hafi verið við innsigli á rafhlaupahjóli og vespu, sem rákust á í morgun, svo hægt væri að aka hraðar á þeim. Innlent 10.11.2021 15:52 Ökumaður rafhlaupahjólsins lést í slysinu við Sæbraut Banaslys varð norðan gatnamóta Kringlumýrarbrautar og Sæbrautar á níunda tímanum í morgun þegar rafmagnshlaupahjól og létt bifhjól rákust þar saman. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu. Innlent 10.11.2021 13:37 Skoða hvort átt hafi verið við hjólin Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu mun við rannsókn sína á alvarlegu slysi við Sæbraut í morgun skoða hvort átt hafi verið við farartækin að því leyti að hægt væri að aka um á þeim yfir leyfilegum hámarkshraða. Innlent 10.11.2021 13:03 Mjög alvarlegt slys á göngustíg við Sæbraut Tveir voru fluttir slasaðir á slysadeild Landspítalans eftir árekstur tveggja farartækja á göngustíg við gatnamót Kringlumýrarbrautar og Sæbrautar á níunda tímanum í morgun. Þetta staðfestir varðstjóri hjá slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu. Innlent 10.11.2021 10:13 Annar ökumaðurinn alvarlega slasaður Ökumaður annars bílsins í árekstri á Moldhaugnahálsi í Eyjafirði upp úr hádegi í gær er töluvert slasaður. Aðstoðaryfirlögregluþjónn staðfestir þetta í samtali við Mbl.is. Innlent 9.11.2021 16:48 Þjóðveginum lokað fyrir norðan vegna alvarlegs umferðarslyss Tilkynnt var um tvö umferðarslys á sama tíma í umdæmi lögreglunnar á Norðurlandi eystra skömmu fyrir klukkan eitt í dag. Þrír voru fluttir á sjúkrahús vegna alvarlegs slyss á Moldhaugnahálsi. Innlent 8.11.2021 13:53 Karlmaður á fertugsaldri lést í umferðarslysi í Kjós í gær Karlmaður á fertugsaldri lést í umferðarslysi á Hvalfjarðarvegi síðdegis í gær. Innlent 4.11.2021 12:21 « ‹ 20 21 22 23 24 25 26 27 28 … 43 ›
Ók of nærri næsta bíl og sveigði yfir á rangan vegarhelming Karlmaður á tíræðisaldri sem lést í kjölfar umferðarslyss í Hrunamannahreppi sumarið 2020 ók bíl sínum of nálægt næsta bíl á undan. Hann gætti ekki að því þegar bíllinn á undan honum hægði á sér, ók yfir á öfugan vegarhelming og í veg fyrir bifreið sem ekið var úr gagnstæðri átt. Innlent 6.12.2021 13:16
Tafir á umferð víða um höfuðborgarsvæðið eftir hádegið Töluverðar umferðartafir hafa orðið á umferð í höfuðborginni eftir hádegi vegna umferðarslysa. Engir sjúkraflutningar eru þó skráðir hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu. Innlent 1.12.2021 14:38
Talinn hafa axlarbrotnað er lítil rúta valt Talið er einn farþegi í lítilli rútu hafi beinbrotnað er rútan rann út af veginum og valt á þjóðvegi 1 skammt frá Vík í Mýrdal. Innlent 30.11.2021 15:15
„Ábyrgðinni er einhvern veginn alltaf skellt á þau sem ekki stjórna tækjunum“ Reykvíkingur, sem fer flestra sinna ferða gangandi eða hjólandi, telur lögreglu skella skuldinni á gangandi vegfarendur frekar en ökumenn með tali um endurskinsmerki og slæm birtuskilyrði eftir fjölda umferðarslysa síðustu daga. Innlent 29.11.2021 20:00
Bíll við bíl í snjókomunni í Reykjavík og árekstur tefur umferð Árekstur tveggja bíla varð á Hafnarfjarðarvegi nærri Arnarnesbrúnni síðdegis. Vinna stendur yfir á vettvangi og gengur umferð afar hægt frá Reykjavík til Kópavogs, Garðabæjar og Hafnarfjarðar af þessum sökum. Árekstur.is segist hafa sinnt á annan tug árekstra síðdegis og hafi komið á óvart hve margir séu á sumardekkjum. Innlent 29.11.2021 16:54
Enn ekið á gangandi og fólk á rafhlaupahjóli Ekið var á gangandi vegfaranda í Hlíðarbergi í Hafnarfirði á sjöunda tímanum í kvöld. Töluvert var um umferðaróhöpp á höfuðborgarsvæðinu í dag og fólk flutt á slysadeild. Þetta kemur fram í skeyti lögreglu til fjölmiðla í kvöld. Innlent 28.11.2021 23:11
Enginn alvarlega slasaður eftir fimm bíla umferðaróhapp Tólf manns í fimm bifreiðum lentu í umferðaróhappi um tuttugu kílómetra austur af Vík í Mýrdal klukkan rúmlega fjögur í dag. Allir eru flokkaðir „grænir“ að sögn Lögreglunnar á Suðurlandi. Innlent 27.11.2021 17:34
„Það virðist sem fólk sjái ekki hvert annað“ Of mörg alvarleg umferðarslys hafa orðið á höfuðborgarsvæðinu í mánuðinum, að mati yfirlögregluþjóns. Skammdegið skapi hættuástand. Innlent 27.11.2021 13:44
Ekið á mann við Sprengisand Ekið var á mann á miðri götu á við Sprengisand rétt í þessu. Innlent 26.11.2021 20:03
Hringveginum við Bifröst lokað vegna slyss Hringveginum var lokað við Bifröst vegna bílslyss sem varð um klukkan fimm í dag. Engin slys urðu á fólki að sögn Slökkviliðs Borgarbyggðar. Innlent 26.11.2021 17:36
Hin látna í Vogunum á sjötugsaldri Konan sem lést þegar strætisvagni var ekið á hana við gatnamót Gnoðarvogs og Skeiðarvogs í gær var á sjötugsaldri, af erlendum uppruna og búsett hér á landi. Innlent 26.11.2021 12:14
Konan lést eftir að hafa orðið fyrir strætisvagni Konan sem lést í umferðarslysinu á gatnamótum Gnoðarvogs og Skeiðarvogs á níunda tímanum í morgun varð fyrir strætisvagni. Þetta fékk fréttastofa staðfest frá Strætó bs. Innlent 25.11.2021 18:39
Kona lést í umferðarslysi í Reykjavík í morgun Kona lést í umferðarslysi á gatnamótum Gnoðavogs og Skeiðarvogs á níunda tímanum í morgun. Málið er til rannsóknar hjá lögreglu og Rannsóknarnefnd samgönguslysa. Innlent 25.11.2021 14:33
Kona flutt á slysadeild eftir að ekið var á hana Ekið var á gangandi vegfaranda á nærri gatnamótum Skeiðarvogs og Gnoðarvogs í Reykjavík skömmu eftir klukkan 8:30 í morgun. Innlent 25.11.2021 08:56
Þriggja bíla árekstur við Sæbraut Þriggja bíla árekstur varð við gatnamót Sæbrautar og Dalbrautar í Reykjavík fyrir stuttu. Þetta staðfestir slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu við fréttastofu. Innlent 22.11.2021 13:13
Guðna blöskrar óþarfa framúrakstur: „Hvað er fólk að pæla?“ Tólf létust að meðaltali árlega í umferðarslysum á Íslandi á síðasta áratug samanborið við 20 áratuginn á undan. Á sama tíma liggur þó fyrir að 25.000 Íslendingar nota ekki bílbelti. Alþjóðlegur minningardagur þeirra sem látist hafa í umferðarslysum er í dag. Innlent 21.11.2021 20:19
Tuttugu og fimm þúsund Íslendingar nota ekki belti Um 25.000 Íslendingar nota ekki bílbelti í umferðinni, sem setur Ísland í 17. sæti á lista Evrópuþjóða í þeim efnum. Fórnarlamba umferðarslysa er minnst á alþjóðlegum minningardegi í dag. Innlent 21.11.2021 11:53
Þrengslunum lokað eftir að flutningabíll fór út af Þrengslavegi var lokað rétt fyrir klukkan tvö í dag eftir að vöruflutningabíll fór út af veginum. Unnið er að því að ná honum aftur upp á veg. Innlent 20.11.2021 17:54
Óska eftir vitnum að umferðaróhappi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur óskað eftir vitnum að umferðaróhappi sem varð á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Háaleitisbrautar miðvikudagsmorguninn 10. nóvember. Tilkynning um slysið barst lögreglu klukkan 7:12. Innlent 19.11.2021 13:35
1.592 látist í umferðarslysum á Íslandi frá 1915 Frá því að fyrsta banaslysið í umferðinni var skráð á Íslandi árið 1915 hafa 1.592 látist í umferðinni, til og með 16. nóvember síðastliðnum. Sjö einstaklingar hafa látist það sem af er þessu ári. Innlent 18.11.2021 09:08
Talinn hafa flogið inn Barkárdalinn án nægilegrar aðgæslu Héraðsdómur Reykjavíkur metur það svo að Arngrímur Jóhannsson flugstjóri hafi ekki sýnt nægilega aðgæslu vegna yfirvofandi hættu á blöndungsísingu, er hann hagaði flugi inn Barkárdal á Tröllaskaga í ágúst 2015, með þeim afleiðingum að kanadíski flugmaðurinn Arthur Grant Wagstaff fórst. Innlent 15.11.2021 20:45
Slysið við Látravatn sjöunda andlátið í umferðinni á árinu Sjö hafa látist í umferðinni hér á landi það sem af er ári. Slysið á Örlygshafnarvegi, skammt frá Látravatni við utanverðan Patreksfjörð, um helgina var sjötta umferðarslysið á árinu þar sem maður lést. Innlent 15.11.2021 11:32
Fannst látinn í bifreið skammt frá Látravatni Ökumaður fannst látinn í bifreið skammt frá Látravatni við Patreksfjörð á ellefta tímanum í morgun. Vegfarandi kom að bifreiðinni sem hafði oltið út af Örlygshafnarvegi. Ökumaðurinn var einsamall í bílnum. Innlent 14.11.2021 17:45
Ökumaður rafhlaupahjólsins látinn og hinn á gjörgæslu Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og rannsóknarnefnd samgönguslysa hafa til rannsóknar hvort átt hafi verið við innsigli á rafhlaupahjóli og vespu, sem rákust á í morgun, svo hægt væri að aka hraðar á þeim. Innlent 10.11.2021 15:52
Ökumaður rafhlaupahjólsins lést í slysinu við Sæbraut Banaslys varð norðan gatnamóta Kringlumýrarbrautar og Sæbrautar á níunda tímanum í morgun þegar rafmagnshlaupahjól og létt bifhjól rákust þar saman. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu. Innlent 10.11.2021 13:37
Skoða hvort átt hafi verið við hjólin Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu mun við rannsókn sína á alvarlegu slysi við Sæbraut í morgun skoða hvort átt hafi verið við farartækin að því leyti að hægt væri að aka um á þeim yfir leyfilegum hámarkshraða. Innlent 10.11.2021 13:03
Mjög alvarlegt slys á göngustíg við Sæbraut Tveir voru fluttir slasaðir á slysadeild Landspítalans eftir árekstur tveggja farartækja á göngustíg við gatnamót Kringlumýrarbrautar og Sæbrautar á níunda tímanum í morgun. Þetta staðfestir varðstjóri hjá slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu. Innlent 10.11.2021 10:13
Annar ökumaðurinn alvarlega slasaður Ökumaður annars bílsins í árekstri á Moldhaugnahálsi í Eyjafirði upp úr hádegi í gær er töluvert slasaður. Aðstoðaryfirlögregluþjónn staðfestir þetta í samtali við Mbl.is. Innlent 9.11.2021 16:48
Þjóðveginum lokað fyrir norðan vegna alvarlegs umferðarslyss Tilkynnt var um tvö umferðarslys á sama tíma í umdæmi lögreglunnar á Norðurlandi eystra skömmu fyrir klukkan eitt í dag. Þrír voru fluttir á sjúkrahús vegna alvarlegs slyss á Moldhaugnahálsi. Innlent 8.11.2021 13:53
Karlmaður á fertugsaldri lést í umferðarslysi í Kjós í gær Karlmaður á fertugsaldri lést í umferðarslysi á Hvalfjarðarvegi síðdegis í gær. Innlent 4.11.2021 12:21