Keflavíkurflugvöllur Önnur lota verkfallsaðgerða flugumferðarstjóra hafin Önnur lota verkfallsaðgerða flugumferðarstjóra hófst klukkan fjögur í nótt, en aðgerðirnar hafa áhrif á ferðir þúsunda ferðalanga. Aðgerðirnar nú standa líkt og á þriðjudag til klukkan 10. Innlent 14.12.2023 06:36 Verkfallið hefur áhrif á ríflega átta þúsund farþega Icelandair Boðaðar verkfallsaðgerðir Félags flugumferðarstjóra frá klukkan 04 í nótt til klukkan 10 í fyrramálið munu hafa áhrif á um sextíu flugferðir og 8.300 farþega Icelandair. Viðskipti innlent 13.12.2023 13:10 Þvertekur fyrir kröfu um 25 prósenta launahækkun Arnar Hjálmsson, formaður Félags íslenskra flugumferðarstjórar, segir ekkert til í því að flugumferðarstjórar krefjist 25 prósenta launahækkunar í kjaraviðræðum sínum við Isavia og Samtök atvinnulífsins. Almenningsálitið hafi aldrei verið með flugumferðarstjórum í liði og meðallaun komi kjaraviðræðum ekkert við. Innlent 13.12.2023 10:54 Telur að stjórnvöld ættu að stíga inn í deiluna Flugsamgöngur lömuðust þegar flugumferðarstjórar lögðu niður störf í morgun. Frekari verkfallsaðgerðir eru fyrirhugaðar á fimmtudag og í næstu viku. Fundi var slitið nú síðdegis án þess að samningar næðust. Forstjóri Play segir furðulegt að svo lítill hópur geti sett svo mikið úr skorðum og telur að stjórnvöld ættu að stíga inn í deiluna. Innlent 12.12.2023 20:52 Fundi lauk án árangurs og verkfall á fimmtudag Samningafundi Félags flugumferðarstjóra og Samtaka atvinnulífsins, fyrir hönd Isavia, lauk um fimmleytið án árangurs. Næsti fundur í kjaradeilunni verður á fimmtudag klukkan tvö. Það er því ljóst að sú vinnustöðvun sem boðuð hefur verið næsta fimmtudag kemur til framkvæmda. Innlent 12.12.2023 17:26 Furðuleg og ósanngjörn staða Icelandair og Play skoða réttarstöðu sína vegna verkfallsaðgerða flugumferðastjóra sem hafa valdið félögunum miklu tjóni. Ferðaplön þúsunda farþega röskuðust þegar verkfallið skall á í nótt. Boðað hefur verið til fundar hjá ríkissáttasemjara klukkan þrjú í dag. Viðskipti innlent 12.12.2023 12:53 Engar bætur vegna seinkunar vélar sem varð fyrir eldingu Viðskiptavinir Play fá engar bætur vegna aflýsingar á flugi flugfélagsins frá Keflavíkurflugvelli til Alicante í desember á síðasta ári eftir að eldingu hafði lostið niður í vélina. Neytendur 12.12.2023 08:54 Skoða að sækja bætur til Isavia vegna verkfallsaðgerðanna Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, segir að félagið muni skoða það hvort það geti sótt bætur til Isavia vegna verkfalls flugumferðarstjóra. Viðskipti innlent 12.12.2023 08:43 Verkfall flugumferðarstjóra skollið á Verkfall flugumferðarstjóra skall á klukkan fjögur í nótt eftir að fundi samninganefnda Félags íslenskra flugumferðarstjóra og Samtaka atvinnulífsins lauk án samnings í gærkvöldi. Vinnustöðvunin raskar flugi þúsunda ferðalanga. Innlent 12.12.2023 06:24 Verkfallsaðgerðir raski plönum mörg þúsund farþega Flugumferðarstjórar hafa samþykkt verkfallsaðgerðir á tveimur dögum í næstu viku til viðbótar við aðgerðir á morgun og næsta fimmtudag. Enn er fundað í Karphúsinu og bendir því allt til að það verði af fyrirhugaðri vinnustöðvun í nótt sem mun hafa áhrif á mörg þúsund farþega. Innlent 11.12.2023 20:10 Stefnir í mikla röskun á millilanda- og innanlandsflugi á morgun Komur og brottfarir rúmlega fjörutíu flugvéla raskast á Keflavíkurflugvelli og allt innanlandsflug liggur niðri frá klukkan fjögur í fyrrramálið til klukkan tíu, náist ekki samningar í kjaradeilu flugumferðarstjóra við Ísavia í dag. Formaður Félags íslenskra flugumferðarstjóra segir frekari aðgerðir í undirbúningi. Innlent 11.12.2023 11:49 Enn reynt að ná utan um lausa þræði Flugumferðarstjórar munu enn að óbreyttu leggja niður störf á þriðjudag og fimmtudag í næstu viku. Samninganefndir Félags flugumferðarstjóra og Samtaka atvinnulífsins funduðu í tvo klukkutíma hjá ríkissáttasemjara í gær en samtökin fara með samningsumboð Isavia í deilunni. Innlent 9.12.2023 11:01 Kartöfluummælin hjálpi lítið: „Þú getur rétt ímyndað þér hvernig fólk tekur þessu“ Arnar Hjálmsson, formaður Félags flugumferðarstjóra, gefur lítið fyrir ummæli Sigríðar Margrétar Oddsdóttur, framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins, sem sagði að ef hún væri jólasveinninn þá myndi hún gefa flugumferðarstjórum kartöflu í skóinn. Hann segist ekki vita hver meðallaun flugumferðarstjóra séu og að hann láti hækkunina sem farið sé fram á liggja á samningsborðinu. Innlent 7.12.2023 20:49 Gæfi flugumferðarstjórum kartöflu í skóinn Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir fráleitt að flugumferðarstjórar boði nú til þriðja verkfallsins á fimm árum á meðan unnið sé að gerð nýrrar þjóðarsáttar á meðal allra aðila vinnumarkaðarins. Innlent 7.12.2023 12:18 Milljónasekt fyrir lyfjasmygl Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt karlmann til að greiða tæplega 1,1 milljón króna í sekt fyrir að hafa staðið að ólöglegu lyfjasmygli með því að flytja á annað hundrað töflur af ávana- og fíknilyfinu Alprazolam Krka til landsins með flugi. Innlent 7.12.2023 08:25 Enn fjölgar Bæjarins beztu á flugvellinum Pylsuvagnar Bæjarins beztu pylsna eru orðnir þrír á Keflavíkurflugvelli eftir opnun nýs staðar í síðustu viku. Viðskipti innlent 6.12.2023 07:01 Rútubílstjóri Airport Direct fékk áfallahjálp eftir slysið Framkvæmdastjóri Airport Direct segir rútubílstjóra fyrirtækisins, sem keyrði á erlendan ferðamann fyrir utan Leifsstöð í gærmorgun, í áfalli eftir atvikið. Erfiðar aðstæður hafi verið þegar slysið varð í ljósaskiptum. Innlent 5.12.2023 13:29 Lá föst undir rútu á Keflavíkurflugvelli Rúta ók á ferðamann fyrir utan Leifsstöð í gærmorgun. Að sögn lögreglustjórans á Suðurnesjum er líðan ferðamannsins eftir atvikum góð. Innlent 5.12.2023 09:26 Vélinni snúið við á miðri leið Flugvél Icelandair á leið til Þýskalands var snúið við vegna veðurs í morgun. Innlent 2.12.2023 12:07 ChangeGroup leysir Arion banka af hólmi Alþjóðlega fyrirtækið ChangeGroup átti hagkvæmasta tilboðið í samkeppni um fjármálaþjónustu á Keflavíkurflugvelli og snýr því aftur í flugstöðina í byrjun febrúar 2024. Fyrirtækið verður með tvær gjaldeyrisskiptastöðvar á flugvellinum, eitt rými fyrir endurgreiðslu virðisaukaskatts og gjaldeyrishraðbanka víða um flugstöðina eftir þörfum. Viðskipti innlent 28.11.2023 17:15 Svona var lífið hjá setuliðinu í Keflavík árið 1955 Fyrir nokkrum árum rakst Einar Óskar Sigurðsson fyrir tilviljun á ljósmyndasafn til sölu á Ebay. Hluti myndanna reyndust vera frá Íslandi á árunum eftir seinna stríð og voru teknar af óþekktum bandarískum manni sem gegndi herþjónustu hér á landi á sjötta áratugnum. Lífið 26.11.2023 13:20 Isavia sýknað af milljarðakröfu í deilu um rútustæði Isavia ohf. var í gær sýknað af öllum kröfum Airport Direct ehf. og Hópbíla ehf. í máli sem sneri að deilum um rútustæði við Keflavíkurflugvöll. Airport Direct krafðist greiðslu upp á tæplega milljarð króna og Hópbílar 170 milljóna króna og helmingunar á gjaldi sem fyrirtækið greiðir fyrir notkun svokallaðra nærstæða. Viðskipti innlent 23.11.2023 07:00 Eldgos líkt Surtsey gæti lokað Keflavíkurflugvelli Haraldur Sigurðsson eldfjallafræðingur segir að neðansjávargos undan Reykjanesi í líkingu við Surtseyjargosið gæti lokað Keflavíkurflugvelli. Innlent 22.11.2023 11:55 Strandaglópar ýmist öskureiðir eða sultuslakir Veður hefur leikið íbúa á suðvesturhorninu og víðar grátt í dag. Ferðamenn hafa ekki heldur farið varhluta af veðrinu, og einhverjir þeirra orðið fyrir því að flugferðum þeirra var frestað eða þær felldar niður. Þeir eru misánægðir með gang mála. Innlent 21.11.2023 20:27 Fjölda flugferða aflýst eða flýtt Miklum fjölda flugferða sem var á áætlun til og frá Keflavíkurflugvelli í dag hefur verið aflýst vegna veðurs. Innlent 21.11.2023 13:27 Út og suður um samgöngur Í ljósi eldsumbrotanna á Reykjanesi sést enn betur en áður að fjárfesting í nýjum flugvelli í Hvassahrauni er hæpin í meira lagi. Ofan á aðrar efasemdir bætist að Reykjanesið verður að mati vísindamanna virkt eldsumbrota svæði næstu áratugi og jafnvel árhundruð og ekki er gott að hafa báða aðal flugvelli landsmanna á eldvirku nesi, sömu megin við Höfuðborgarsvæðið. Skoðun 16.11.2023 14:02 Mjúk lending í karlaríkinu á Keflavíkurflugvelli Í áratugi var það þannig að karlar réðu lögum og lofum hér við viðhald flugvéla hjá Icelandair. Það er nú svosem þannig enn þá í dag en nú eru þeir að minnsta kosti ekki aleinir um hituna. Konur eru í auknum mæli að sækja inn á svið flugvirkjunar og nú er svo komið að aldrei hafa fleiri kvenkyns flugvirkjar verið starfandi hjá félaginu. Lífið 16.11.2023 10:31 Íslenska verður á undan ensku á Keflavíkurflugvelli Stjórn Isavia hefur tekið ákvörðun um að íslenskan verði á undan öðrum tungumálum á öllum leiðbeiningarskiltum fyrir árslok 2024. Í tilefni af Degi íslensrar tungu hefur verið hleypt af stokkunum átakinu Höldum íslenskunni á lofti. Innlent 16.11.2023 10:12 Þrjár varaaflstöðvar tilbúnar á Keflavíkurflugvelli Þrjár varaaflsstöðvar eru til taks fyrir Keflavíkurflugvöll ef rafmagn fer af svæðinu vegna mögulegs eldgoss. Guðjón Helgason upplýsingafulltrúi Isavia segir neyðarstjórn Isavia fylgjast vel með þróun mála vegna jarðhræringanna á Reykjanesi. Innlent 10.11.2023 23:57 Fjölgun um 68 prósent hjá Play Farþegum hjá Play fjölgaði um 68 prósent í október, samanborið við október í fyrra. Fjölgunin hjá Icelandair á sama tímabili var níu prósent. Viðskipti innlent 7.11.2023 19:46 « ‹ 5 6 7 8 9 10 11 12 13 … 43 ›
Önnur lota verkfallsaðgerða flugumferðarstjóra hafin Önnur lota verkfallsaðgerða flugumferðarstjóra hófst klukkan fjögur í nótt, en aðgerðirnar hafa áhrif á ferðir þúsunda ferðalanga. Aðgerðirnar nú standa líkt og á þriðjudag til klukkan 10. Innlent 14.12.2023 06:36
Verkfallið hefur áhrif á ríflega átta þúsund farþega Icelandair Boðaðar verkfallsaðgerðir Félags flugumferðarstjóra frá klukkan 04 í nótt til klukkan 10 í fyrramálið munu hafa áhrif á um sextíu flugferðir og 8.300 farþega Icelandair. Viðskipti innlent 13.12.2023 13:10
Þvertekur fyrir kröfu um 25 prósenta launahækkun Arnar Hjálmsson, formaður Félags íslenskra flugumferðarstjórar, segir ekkert til í því að flugumferðarstjórar krefjist 25 prósenta launahækkunar í kjaraviðræðum sínum við Isavia og Samtök atvinnulífsins. Almenningsálitið hafi aldrei verið með flugumferðarstjórum í liði og meðallaun komi kjaraviðræðum ekkert við. Innlent 13.12.2023 10:54
Telur að stjórnvöld ættu að stíga inn í deiluna Flugsamgöngur lömuðust þegar flugumferðarstjórar lögðu niður störf í morgun. Frekari verkfallsaðgerðir eru fyrirhugaðar á fimmtudag og í næstu viku. Fundi var slitið nú síðdegis án þess að samningar næðust. Forstjóri Play segir furðulegt að svo lítill hópur geti sett svo mikið úr skorðum og telur að stjórnvöld ættu að stíga inn í deiluna. Innlent 12.12.2023 20:52
Fundi lauk án árangurs og verkfall á fimmtudag Samningafundi Félags flugumferðarstjóra og Samtaka atvinnulífsins, fyrir hönd Isavia, lauk um fimmleytið án árangurs. Næsti fundur í kjaradeilunni verður á fimmtudag klukkan tvö. Það er því ljóst að sú vinnustöðvun sem boðuð hefur verið næsta fimmtudag kemur til framkvæmda. Innlent 12.12.2023 17:26
Furðuleg og ósanngjörn staða Icelandair og Play skoða réttarstöðu sína vegna verkfallsaðgerða flugumferðastjóra sem hafa valdið félögunum miklu tjóni. Ferðaplön þúsunda farþega röskuðust þegar verkfallið skall á í nótt. Boðað hefur verið til fundar hjá ríkissáttasemjara klukkan þrjú í dag. Viðskipti innlent 12.12.2023 12:53
Engar bætur vegna seinkunar vélar sem varð fyrir eldingu Viðskiptavinir Play fá engar bætur vegna aflýsingar á flugi flugfélagsins frá Keflavíkurflugvelli til Alicante í desember á síðasta ári eftir að eldingu hafði lostið niður í vélina. Neytendur 12.12.2023 08:54
Skoða að sækja bætur til Isavia vegna verkfallsaðgerðanna Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, segir að félagið muni skoða það hvort það geti sótt bætur til Isavia vegna verkfalls flugumferðarstjóra. Viðskipti innlent 12.12.2023 08:43
Verkfall flugumferðarstjóra skollið á Verkfall flugumferðarstjóra skall á klukkan fjögur í nótt eftir að fundi samninganefnda Félags íslenskra flugumferðarstjóra og Samtaka atvinnulífsins lauk án samnings í gærkvöldi. Vinnustöðvunin raskar flugi þúsunda ferðalanga. Innlent 12.12.2023 06:24
Verkfallsaðgerðir raski plönum mörg þúsund farþega Flugumferðarstjórar hafa samþykkt verkfallsaðgerðir á tveimur dögum í næstu viku til viðbótar við aðgerðir á morgun og næsta fimmtudag. Enn er fundað í Karphúsinu og bendir því allt til að það verði af fyrirhugaðri vinnustöðvun í nótt sem mun hafa áhrif á mörg þúsund farþega. Innlent 11.12.2023 20:10
Stefnir í mikla röskun á millilanda- og innanlandsflugi á morgun Komur og brottfarir rúmlega fjörutíu flugvéla raskast á Keflavíkurflugvelli og allt innanlandsflug liggur niðri frá klukkan fjögur í fyrrramálið til klukkan tíu, náist ekki samningar í kjaradeilu flugumferðarstjóra við Ísavia í dag. Formaður Félags íslenskra flugumferðarstjóra segir frekari aðgerðir í undirbúningi. Innlent 11.12.2023 11:49
Enn reynt að ná utan um lausa þræði Flugumferðarstjórar munu enn að óbreyttu leggja niður störf á þriðjudag og fimmtudag í næstu viku. Samninganefndir Félags flugumferðarstjóra og Samtaka atvinnulífsins funduðu í tvo klukkutíma hjá ríkissáttasemjara í gær en samtökin fara með samningsumboð Isavia í deilunni. Innlent 9.12.2023 11:01
Kartöfluummælin hjálpi lítið: „Þú getur rétt ímyndað þér hvernig fólk tekur þessu“ Arnar Hjálmsson, formaður Félags flugumferðarstjóra, gefur lítið fyrir ummæli Sigríðar Margrétar Oddsdóttur, framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins, sem sagði að ef hún væri jólasveinninn þá myndi hún gefa flugumferðarstjórum kartöflu í skóinn. Hann segist ekki vita hver meðallaun flugumferðarstjóra séu og að hann láti hækkunina sem farið sé fram á liggja á samningsborðinu. Innlent 7.12.2023 20:49
Gæfi flugumferðarstjórum kartöflu í skóinn Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir fráleitt að flugumferðarstjórar boði nú til þriðja verkfallsins á fimm árum á meðan unnið sé að gerð nýrrar þjóðarsáttar á meðal allra aðila vinnumarkaðarins. Innlent 7.12.2023 12:18
Milljónasekt fyrir lyfjasmygl Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt karlmann til að greiða tæplega 1,1 milljón króna í sekt fyrir að hafa staðið að ólöglegu lyfjasmygli með því að flytja á annað hundrað töflur af ávana- og fíknilyfinu Alprazolam Krka til landsins með flugi. Innlent 7.12.2023 08:25
Enn fjölgar Bæjarins beztu á flugvellinum Pylsuvagnar Bæjarins beztu pylsna eru orðnir þrír á Keflavíkurflugvelli eftir opnun nýs staðar í síðustu viku. Viðskipti innlent 6.12.2023 07:01
Rútubílstjóri Airport Direct fékk áfallahjálp eftir slysið Framkvæmdastjóri Airport Direct segir rútubílstjóra fyrirtækisins, sem keyrði á erlendan ferðamann fyrir utan Leifsstöð í gærmorgun, í áfalli eftir atvikið. Erfiðar aðstæður hafi verið þegar slysið varð í ljósaskiptum. Innlent 5.12.2023 13:29
Lá föst undir rútu á Keflavíkurflugvelli Rúta ók á ferðamann fyrir utan Leifsstöð í gærmorgun. Að sögn lögreglustjórans á Suðurnesjum er líðan ferðamannsins eftir atvikum góð. Innlent 5.12.2023 09:26
Vélinni snúið við á miðri leið Flugvél Icelandair á leið til Þýskalands var snúið við vegna veðurs í morgun. Innlent 2.12.2023 12:07
ChangeGroup leysir Arion banka af hólmi Alþjóðlega fyrirtækið ChangeGroup átti hagkvæmasta tilboðið í samkeppni um fjármálaþjónustu á Keflavíkurflugvelli og snýr því aftur í flugstöðina í byrjun febrúar 2024. Fyrirtækið verður með tvær gjaldeyrisskiptastöðvar á flugvellinum, eitt rými fyrir endurgreiðslu virðisaukaskatts og gjaldeyrishraðbanka víða um flugstöðina eftir þörfum. Viðskipti innlent 28.11.2023 17:15
Svona var lífið hjá setuliðinu í Keflavík árið 1955 Fyrir nokkrum árum rakst Einar Óskar Sigurðsson fyrir tilviljun á ljósmyndasafn til sölu á Ebay. Hluti myndanna reyndust vera frá Íslandi á árunum eftir seinna stríð og voru teknar af óþekktum bandarískum manni sem gegndi herþjónustu hér á landi á sjötta áratugnum. Lífið 26.11.2023 13:20
Isavia sýknað af milljarðakröfu í deilu um rútustæði Isavia ohf. var í gær sýknað af öllum kröfum Airport Direct ehf. og Hópbíla ehf. í máli sem sneri að deilum um rútustæði við Keflavíkurflugvöll. Airport Direct krafðist greiðslu upp á tæplega milljarð króna og Hópbílar 170 milljóna króna og helmingunar á gjaldi sem fyrirtækið greiðir fyrir notkun svokallaðra nærstæða. Viðskipti innlent 23.11.2023 07:00
Eldgos líkt Surtsey gæti lokað Keflavíkurflugvelli Haraldur Sigurðsson eldfjallafræðingur segir að neðansjávargos undan Reykjanesi í líkingu við Surtseyjargosið gæti lokað Keflavíkurflugvelli. Innlent 22.11.2023 11:55
Strandaglópar ýmist öskureiðir eða sultuslakir Veður hefur leikið íbúa á suðvesturhorninu og víðar grátt í dag. Ferðamenn hafa ekki heldur farið varhluta af veðrinu, og einhverjir þeirra orðið fyrir því að flugferðum þeirra var frestað eða þær felldar niður. Þeir eru misánægðir með gang mála. Innlent 21.11.2023 20:27
Fjölda flugferða aflýst eða flýtt Miklum fjölda flugferða sem var á áætlun til og frá Keflavíkurflugvelli í dag hefur verið aflýst vegna veðurs. Innlent 21.11.2023 13:27
Út og suður um samgöngur Í ljósi eldsumbrotanna á Reykjanesi sést enn betur en áður að fjárfesting í nýjum flugvelli í Hvassahrauni er hæpin í meira lagi. Ofan á aðrar efasemdir bætist að Reykjanesið verður að mati vísindamanna virkt eldsumbrota svæði næstu áratugi og jafnvel árhundruð og ekki er gott að hafa báða aðal flugvelli landsmanna á eldvirku nesi, sömu megin við Höfuðborgarsvæðið. Skoðun 16.11.2023 14:02
Mjúk lending í karlaríkinu á Keflavíkurflugvelli Í áratugi var það þannig að karlar réðu lögum og lofum hér við viðhald flugvéla hjá Icelandair. Það er nú svosem þannig enn þá í dag en nú eru þeir að minnsta kosti ekki aleinir um hituna. Konur eru í auknum mæli að sækja inn á svið flugvirkjunar og nú er svo komið að aldrei hafa fleiri kvenkyns flugvirkjar verið starfandi hjá félaginu. Lífið 16.11.2023 10:31
Íslenska verður á undan ensku á Keflavíkurflugvelli Stjórn Isavia hefur tekið ákvörðun um að íslenskan verði á undan öðrum tungumálum á öllum leiðbeiningarskiltum fyrir árslok 2024. Í tilefni af Degi íslensrar tungu hefur verið hleypt af stokkunum átakinu Höldum íslenskunni á lofti. Innlent 16.11.2023 10:12
Þrjár varaaflstöðvar tilbúnar á Keflavíkurflugvelli Þrjár varaaflsstöðvar eru til taks fyrir Keflavíkurflugvöll ef rafmagn fer af svæðinu vegna mögulegs eldgoss. Guðjón Helgason upplýsingafulltrúi Isavia segir neyðarstjórn Isavia fylgjast vel með þróun mála vegna jarðhræringanna á Reykjanesi. Innlent 10.11.2023 23:57
Fjölgun um 68 prósent hjá Play Farþegum hjá Play fjölgaði um 68 prósent í október, samanborið við október í fyrra. Fjölgunin hjá Icelandair á sama tímabili var níu prósent. Viðskipti innlent 7.11.2023 19:46