Árborg Ferðin yfir nýja Ölfusárbrú mun kosta 400 til 700 krónur Framkvæmdir við nýja brú yfir Ölfusá verða boðnar út fyrir áramót og hefjast á fyrri hluta næsta árs. Þetta segir Sigurður Ingi Jóhannsson samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra. Innlent 24.8.2021 06:50 17 þúsund fermetrar í viðbót við nýja miðbæinn á Selfossi Nýi miðbærinn á Selfossi hefur fengið miklu betri viðtökur en forsvarsmenn verkefnisins áttu nokkurn tíma von á. Framkvæmdir hefjast fljótlega við annan áfanga miðbæjarins, sem verður um 17 þúsund fermetrar með mörgum sögufrægum húsum og fleiri veitingastöðum og verslunum. Innlent 23.8.2021 20:02 Blómstrandi atvinnulíf á Suðurlandi Atvinnuástand á Suðurlandi hefur sjaldan eða aldrei verið eins gott og um þessar mundir. Víða vantar þó fólk til starfa eins og í ferðaþjónustu og við byggingaframkvæmdir. Innlent 21.8.2021 13:13 Ölfusárbrú lokuð í kvöld og nótt vegna malbikunar Ölfusárbrú verður lokuð í kvöld og í nótt þegar stefnt er að því að malbika veginn yfir brúna. Innlent 19.8.2021 09:51 Hólmfríður Magnúsdóttir leggur skóna á hilluna Hólmfríður Magnúsdóttir, ein reyndasta knattspyrnukona Íslandssögunnar, hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna eftir 20 ára feril. Íslenski boltinn 17.8.2021 22:55 Fjórtán ára með þrjátíu sláttugarða í áskrift á Selfossi Fjórtán ára strákur á Selfossi hefur haft nóg að gera í sumar við að slá garða fyrir íbúa bæjarins. Hann fer á milli húsa á vespunni sinni með sláttuvélina á kerru aftan í. Mikil ánægja er með þjónustu stráksins. Innlent 17.8.2021 20:11 Tálgað á Selfossi – kindur, kisur, karlar og fuglar Fuglar, kindur, kisur, fiskar, slaufur og mannfólk er meðal þess sem nokkrir eldri borgarar á Selfossi tálga um leið og þau njóta félagsskaparins við hvort annað. Nú stendur yfir sýning á verkum hópsins á bókasafninu á Selfossi þar sem margt forvitnilegt er að sjá. Innlent 14.8.2021 20:15 Tveir sjúkraflutningamenn í sóttkví á Selfossi Tveir sjúkraflutningamenn hjá Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi voru sendir í sóttkví fyrr í vikunni eftir að hafa verið í samskiptum við sjúkling sem reyndist svo smitaður af Covid-19. Innlent 13.8.2021 12:59 Líkfundur á Selfossi Íslenskur karlmaður á fimmtugsaldri fannst látinn á bak við verslunarhúsnæði á Selfossi fyrr í vikunni. Frá þessu er greint í færslu á Facebook-síðu lögreglunnar á Suðurlandi. Innlent 13.8.2021 10:08 Leituðu við Ölfusá vegna bakpoka sem fannst við ána Vegfarandi fann bakpoka við Ölfusá, rétt ofan við Ölfusárbrú og skilaði honum inn til Lögreglunnar á Suðurlandi. Bakpokinn var þá búinn að liggja á árbakkanum í yfir klukkustund að sögn tilkynnanda. Mikið af útivistarbúnaði var í bakpokanum en ekkert sem gaf vísbendingar um hver væri eigandi hans. Þetta segir í tilkynningu frá Lögreglunni á Suðurlandi. Innlent 9.8.2021 22:19 Haukur bílasali sem ferðast um á dráttarvél „Við verðum að viðhalda sveitastemmingunni“ segir bílasali á Selfossi og aðdáandi dráttarvéla en hann fer meira og minna allar sínar ferðir á Massey Ferguson dráttarvél. Bílasalinn segir ökumenn mjög tillitssama þegar hann er á dráttarvélinni. Innlent 8.8.2021 20:06 Heilbrigðisstofnun Suðurlands hleypur undir bagga með Landspítalanum Þrátt fyrir mikið álag á Heilbrigðisstofnun Suðurlands verða sjúklingar á Landspítalanum meðal annars fluttir á sjúkrahúsið á Selfossi til að létta á álagi á spítalanum. Tíu til fimmtán auka rúmum verður komið fyrir, meðal annars á fæðingardeildinni. Innlent 7.8.2021 13:55 Komin með sín eigin „pálmatré“ á Selfossi Filipe Carvalho Cintra frá Brasilíu, sem býr á Selfossi dó ekki ráðlaus þegar hann fór að sakna pálmatrjánna úr heimalandi sínum því hann brá á það ráð að breyta tólf metra háum grenitrjám í garðinum sínum í sín eigin pálmatré. Hann hleypur nú upp og niður trén berfættur eins og klifurköttur. Innlent 6.8.2021 21:05 Lögreglan lýsir eftir Guðbrandi Ólafssyni Lögreglan á Suðurlandi lýsir eftir Guðbrandi Ólafssyni. Síðast er vitað um ferðir hans í nágrenni við Selfoss seinni partinn í gær. Var hann þá á bifreiðinni YB-720, KIA SORENTO blá að lit. Innlent 5.8.2021 13:21 Spilar golf með vinstri en er rétthent Kylfingar standa orðlausir þegar þeir sjá Alexöndru Eir Grétarsdóttur frá Stokkseyri spila á völlum landsins því hún slær höggin sín með vinstri hendi þrátt fyrir að vera rétthent. Innlent 2.8.2021 21:11 „Mikil vinna orðin að engu – annað árið í röð“ Unglingalandsmóti Íslands, ein fjölmennasta hátíð sem haldin er um verslunarmannahelgi ár hvert hefur verið frestað. Geysileg vonbrigði segir formaður framkvæmdanefndar mótsins. Mótið átti að vera haldið á Selfossi í ár. Innlent 23.7.2021 22:12 Dýrmætar minningar í fjölskyldualbúmið á landsmóti Skráning er í fullum gangi á Unglingalandsmót UMFÍ sem fram fer á Selfossi um verslunarmannahelgina. Lífið samstarf 21.7.2021 10:29 Þétt umferð á milli Reykjavíkur og Selfoss Mikil umferðarteppa er á þjóðveginum úr Reykjavík og yfir Hellisheiði. Frá miðnætti hafa meira en sex þúsund bílar keyrt yfir Hellisheiðina og rúmlega sjö þúsund keyrt um Sandskeið á sama tíma. Innlent 17.7.2021 14:42 Kótelettugestur í öndunarstopp í fangaklefa á Selfossi Lögreglan á Suðurlandi telur að lögregluþjónar og hjúkrunarfræðingur hafi bjargað lífi karlmanns sem handtekinn var á Selfossi um helgina fyrir óspektir. Greint er frá þessu í tilkynningu frá lögreglu. Innlent 12.7.2021 13:57 Nýr miðbær á Selfossi: Eldra fólk með tár á hvarmi Nýr miðbær opnaði á Selfossi í dag með pompi og prakt. Svæðið er sagt vera lyftistöng fyrir atvinnulífið á staðnum og Selfoss breyttur bær. Opnun miðbæjarins, grillhátíð og hjólakeppni leiddu til þess að örtröð myndaðist í bænum í dag, þrátt fyrir tilraunir til þess að koma í veg fyrir það. Innlent 10.7.2021 19:08 Örtröð við Selfoss Umferð á veginum frá Hveragerði til Selfoss hefur þyngst mikið og er nú komin biðröð frá Selfossi að Ingólfshvoli. Innlent 10.7.2021 15:02 Sigurður Ingi og Bjarni Ben grilla ofan í gesti Kótelettunnar Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, og Sigurður Ingi Jóhannsson, samgönguráðherra, munu grilla ofan í gesti Kótelettunnar á Selfossi á laugardaginn. Þá verða þau Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, Oddný Harðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar og Guðni Ágústsson, fyrrverandi ráðherra, sérstakir aðstoðargrillarar. BBQ kóngurinn sjálfur, Alfreð Fannar Björnsson, mun vera þeim til halds og trausts. Lífið 8.7.2021 19:04 Tryggvi Ingólfsson er látinn Tryggvi Ingólfsson, fyrrverandi verktaki á Hvolsvelli, er látinn, 71 árs að aldri. Tryggvi stofnaði verktakafyrirtækið Jón og Tryggvi ehf. með Jóni Óskarssyni árið 1980 og starfaði félagið til ársins 2006. Innlent 7.7.2021 06:47 Fæddi næstum því barn á bílastæði með annað barn í bílnum Fyrir algera tilviljun leit kona á Selfossi inn í bíl á bílastæði í vikunni og kom þar auga á konu sem var augljóslega í nokkrum vandræðum. Hún áttaði sig ekki strax á því hvað amaði að en ákvað að kanna málið. Við nánari athugun kom í ljós að konan í bílnum var við það að fæða barn, með annað hjálparlaust tveggja ára barn í bílnum. Innlent 4.7.2021 14:12 Samið um starfsemi í gamla Landsbankahúsinu á Selfossi Samningur var í dag undirritaður um rekstur vinnustofu í gamla Landsbankahúsinu á Selfossi, sem Sigtún Þróunarfélag keypti í vor. Bankinn Vinnustofa opnar í lok sumars. Viðskipti innlent 1.7.2021 14:16 Störf án staðsetningar: næsta skref Í dag skrifaði ég undir samning við Sigtún – Þróunarfélag um mikilvægt tilraunaverkefni sem felst í því að byggja upp vinnustofu, einskonar klasa, í gamla Landsbankahúsinu á Selfossi. Skoðun 1.7.2021 14:01 Hjólaði 400 kílómetra með höndunum á sólarhring Arnar Helgi Lárusson, sem er lamaður fyrir neðan brjóst lauk hjólaferð sinni nú í kvöld á Selfoss eftir að hafa hjólað með höndunum fjögur hundruð kílómetra leið á sólarhring með fram suðurströndinni. Innlent 23.6.2021 20:08 Segir Eyjamenn hafa hótað að opna ekki kosningamiðstöð ef Páll yrði í heiðurssæti Gunnar Egilsson, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Árborg, segir Sjálfstæðismenn í Vestmannaeyjum hafa hótað að opna ekki kosningaskrifstofu í Eyjum fyrir komandi þingkosningar og draga sig úr kosningabaráttu fyrir flokkinn ef Páll Magnússon, núverandi oddviti flokksins í Suðurkjördæmi, yrði í heiðurssæti. Innlent 22.6.2021 07:01 Opna 45 kílómetra gönguleið milli Knarrarós- og Selvogsvita Vitaleiðin, ný göngu- og hjólaleið við suðurströndina, verður formlega opnuð á laugardaginn. Leiðin er um 45 kílómetrar að lengd og liggur milli Knarrarósvita, austur af Stokkseyri, og Selvogsvita, vestur af Þorlákshöfn. Lífið 8.6.2021 13:34 Sigurður Ingi lofar nýrri Ölfusárbrú í lok árs 2023 eða 2024 Sigurður Ingi Jóhannsson, samgönguráðherra lofar nýrri brú yfir Ölfusá við Selfoss í lok ársins 2023 eða árið 2024 en framkvæmdir við brúna verða boðnar út um næstu áramót. Brúin mun kosta um sex og hálfan milljarða króna og innheimtur verður vegatollur yfir hana. Innlent 6.6.2021 12:18 « ‹ 18 19 20 21 22 23 24 25 26 … 35 ›
Ferðin yfir nýja Ölfusárbrú mun kosta 400 til 700 krónur Framkvæmdir við nýja brú yfir Ölfusá verða boðnar út fyrir áramót og hefjast á fyrri hluta næsta árs. Þetta segir Sigurður Ingi Jóhannsson samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra. Innlent 24.8.2021 06:50
17 þúsund fermetrar í viðbót við nýja miðbæinn á Selfossi Nýi miðbærinn á Selfossi hefur fengið miklu betri viðtökur en forsvarsmenn verkefnisins áttu nokkurn tíma von á. Framkvæmdir hefjast fljótlega við annan áfanga miðbæjarins, sem verður um 17 þúsund fermetrar með mörgum sögufrægum húsum og fleiri veitingastöðum og verslunum. Innlent 23.8.2021 20:02
Blómstrandi atvinnulíf á Suðurlandi Atvinnuástand á Suðurlandi hefur sjaldan eða aldrei verið eins gott og um þessar mundir. Víða vantar þó fólk til starfa eins og í ferðaþjónustu og við byggingaframkvæmdir. Innlent 21.8.2021 13:13
Ölfusárbrú lokuð í kvöld og nótt vegna malbikunar Ölfusárbrú verður lokuð í kvöld og í nótt þegar stefnt er að því að malbika veginn yfir brúna. Innlent 19.8.2021 09:51
Hólmfríður Magnúsdóttir leggur skóna á hilluna Hólmfríður Magnúsdóttir, ein reyndasta knattspyrnukona Íslandssögunnar, hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna eftir 20 ára feril. Íslenski boltinn 17.8.2021 22:55
Fjórtán ára með þrjátíu sláttugarða í áskrift á Selfossi Fjórtán ára strákur á Selfossi hefur haft nóg að gera í sumar við að slá garða fyrir íbúa bæjarins. Hann fer á milli húsa á vespunni sinni með sláttuvélina á kerru aftan í. Mikil ánægja er með þjónustu stráksins. Innlent 17.8.2021 20:11
Tálgað á Selfossi – kindur, kisur, karlar og fuglar Fuglar, kindur, kisur, fiskar, slaufur og mannfólk er meðal þess sem nokkrir eldri borgarar á Selfossi tálga um leið og þau njóta félagsskaparins við hvort annað. Nú stendur yfir sýning á verkum hópsins á bókasafninu á Selfossi þar sem margt forvitnilegt er að sjá. Innlent 14.8.2021 20:15
Tveir sjúkraflutningamenn í sóttkví á Selfossi Tveir sjúkraflutningamenn hjá Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi voru sendir í sóttkví fyrr í vikunni eftir að hafa verið í samskiptum við sjúkling sem reyndist svo smitaður af Covid-19. Innlent 13.8.2021 12:59
Líkfundur á Selfossi Íslenskur karlmaður á fimmtugsaldri fannst látinn á bak við verslunarhúsnæði á Selfossi fyrr í vikunni. Frá þessu er greint í færslu á Facebook-síðu lögreglunnar á Suðurlandi. Innlent 13.8.2021 10:08
Leituðu við Ölfusá vegna bakpoka sem fannst við ána Vegfarandi fann bakpoka við Ölfusá, rétt ofan við Ölfusárbrú og skilaði honum inn til Lögreglunnar á Suðurlandi. Bakpokinn var þá búinn að liggja á árbakkanum í yfir klukkustund að sögn tilkynnanda. Mikið af útivistarbúnaði var í bakpokanum en ekkert sem gaf vísbendingar um hver væri eigandi hans. Þetta segir í tilkynningu frá Lögreglunni á Suðurlandi. Innlent 9.8.2021 22:19
Haukur bílasali sem ferðast um á dráttarvél „Við verðum að viðhalda sveitastemmingunni“ segir bílasali á Selfossi og aðdáandi dráttarvéla en hann fer meira og minna allar sínar ferðir á Massey Ferguson dráttarvél. Bílasalinn segir ökumenn mjög tillitssama þegar hann er á dráttarvélinni. Innlent 8.8.2021 20:06
Heilbrigðisstofnun Suðurlands hleypur undir bagga með Landspítalanum Þrátt fyrir mikið álag á Heilbrigðisstofnun Suðurlands verða sjúklingar á Landspítalanum meðal annars fluttir á sjúkrahúsið á Selfossi til að létta á álagi á spítalanum. Tíu til fimmtán auka rúmum verður komið fyrir, meðal annars á fæðingardeildinni. Innlent 7.8.2021 13:55
Komin með sín eigin „pálmatré“ á Selfossi Filipe Carvalho Cintra frá Brasilíu, sem býr á Selfossi dó ekki ráðlaus þegar hann fór að sakna pálmatrjánna úr heimalandi sínum því hann brá á það ráð að breyta tólf metra háum grenitrjám í garðinum sínum í sín eigin pálmatré. Hann hleypur nú upp og niður trén berfættur eins og klifurköttur. Innlent 6.8.2021 21:05
Lögreglan lýsir eftir Guðbrandi Ólafssyni Lögreglan á Suðurlandi lýsir eftir Guðbrandi Ólafssyni. Síðast er vitað um ferðir hans í nágrenni við Selfoss seinni partinn í gær. Var hann þá á bifreiðinni YB-720, KIA SORENTO blá að lit. Innlent 5.8.2021 13:21
Spilar golf með vinstri en er rétthent Kylfingar standa orðlausir þegar þeir sjá Alexöndru Eir Grétarsdóttur frá Stokkseyri spila á völlum landsins því hún slær höggin sín með vinstri hendi þrátt fyrir að vera rétthent. Innlent 2.8.2021 21:11
„Mikil vinna orðin að engu – annað árið í röð“ Unglingalandsmóti Íslands, ein fjölmennasta hátíð sem haldin er um verslunarmannahelgi ár hvert hefur verið frestað. Geysileg vonbrigði segir formaður framkvæmdanefndar mótsins. Mótið átti að vera haldið á Selfossi í ár. Innlent 23.7.2021 22:12
Dýrmætar minningar í fjölskyldualbúmið á landsmóti Skráning er í fullum gangi á Unglingalandsmót UMFÍ sem fram fer á Selfossi um verslunarmannahelgina. Lífið samstarf 21.7.2021 10:29
Þétt umferð á milli Reykjavíkur og Selfoss Mikil umferðarteppa er á þjóðveginum úr Reykjavík og yfir Hellisheiði. Frá miðnætti hafa meira en sex þúsund bílar keyrt yfir Hellisheiðina og rúmlega sjö þúsund keyrt um Sandskeið á sama tíma. Innlent 17.7.2021 14:42
Kótelettugestur í öndunarstopp í fangaklefa á Selfossi Lögreglan á Suðurlandi telur að lögregluþjónar og hjúkrunarfræðingur hafi bjargað lífi karlmanns sem handtekinn var á Selfossi um helgina fyrir óspektir. Greint er frá þessu í tilkynningu frá lögreglu. Innlent 12.7.2021 13:57
Nýr miðbær á Selfossi: Eldra fólk með tár á hvarmi Nýr miðbær opnaði á Selfossi í dag með pompi og prakt. Svæðið er sagt vera lyftistöng fyrir atvinnulífið á staðnum og Selfoss breyttur bær. Opnun miðbæjarins, grillhátíð og hjólakeppni leiddu til þess að örtröð myndaðist í bænum í dag, þrátt fyrir tilraunir til þess að koma í veg fyrir það. Innlent 10.7.2021 19:08
Örtröð við Selfoss Umferð á veginum frá Hveragerði til Selfoss hefur þyngst mikið og er nú komin biðröð frá Selfossi að Ingólfshvoli. Innlent 10.7.2021 15:02
Sigurður Ingi og Bjarni Ben grilla ofan í gesti Kótelettunnar Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, og Sigurður Ingi Jóhannsson, samgönguráðherra, munu grilla ofan í gesti Kótelettunnar á Selfossi á laugardaginn. Þá verða þau Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, Oddný Harðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar og Guðni Ágústsson, fyrrverandi ráðherra, sérstakir aðstoðargrillarar. BBQ kóngurinn sjálfur, Alfreð Fannar Björnsson, mun vera þeim til halds og trausts. Lífið 8.7.2021 19:04
Tryggvi Ingólfsson er látinn Tryggvi Ingólfsson, fyrrverandi verktaki á Hvolsvelli, er látinn, 71 árs að aldri. Tryggvi stofnaði verktakafyrirtækið Jón og Tryggvi ehf. með Jóni Óskarssyni árið 1980 og starfaði félagið til ársins 2006. Innlent 7.7.2021 06:47
Fæddi næstum því barn á bílastæði með annað barn í bílnum Fyrir algera tilviljun leit kona á Selfossi inn í bíl á bílastæði í vikunni og kom þar auga á konu sem var augljóslega í nokkrum vandræðum. Hún áttaði sig ekki strax á því hvað amaði að en ákvað að kanna málið. Við nánari athugun kom í ljós að konan í bílnum var við það að fæða barn, með annað hjálparlaust tveggja ára barn í bílnum. Innlent 4.7.2021 14:12
Samið um starfsemi í gamla Landsbankahúsinu á Selfossi Samningur var í dag undirritaður um rekstur vinnustofu í gamla Landsbankahúsinu á Selfossi, sem Sigtún Þróunarfélag keypti í vor. Bankinn Vinnustofa opnar í lok sumars. Viðskipti innlent 1.7.2021 14:16
Störf án staðsetningar: næsta skref Í dag skrifaði ég undir samning við Sigtún – Þróunarfélag um mikilvægt tilraunaverkefni sem felst í því að byggja upp vinnustofu, einskonar klasa, í gamla Landsbankahúsinu á Selfossi. Skoðun 1.7.2021 14:01
Hjólaði 400 kílómetra með höndunum á sólarhring Arnar Helgi Lárusson, sem er lamaður fyrir neðan brjóst lauk hjólaferð sinni nú í kvöld á Selfoss eftir að hafa hjólað með höndunum fjögur hundruð kílómetra leið á sólarhring með fram suðurströndinni. Innlent 23.6.2021 20:08
Segir Eyjamenn hafa hótað að opna ekki kosningamiðstöð ef Páll yrði í heiðurssæti Gunnar Egilsson, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Árborg, segir Sjálfstæðismenn í Vestmannaeyjum hafa hótað að opna ekki kosningaskrifstofu í Eyjum fyrir komandi þingkosningar og draga sig úr kosningabaráttu fyrir flokkinn ef Páll Magnússon, núverandi oddviti flokksins í Suðurkjördæmi, yrði í heiðurssæti. Innlent 22.6.2021 07:01
Opna 45 kílómetra gönguleið milli Knarrarós- og Selvogsvita Vitaleiðin, ný göngu- og hjólaleið við suðurströndina, verður formlega opnuð á laugardaginn. Leiðin er um 45 kílómetrar að lengd og liggur milli Knarrarósvita, austur af Stokkseyri, og Selvogsvita, vestur af Þorlákshöfn. Lífið 8.6.2021 13:34
Sigurður Ingi lofar nýrri Ölfusárbrú í lok árs 2023 eða 2024 Sigurður Ingi Jóhannsson, samgönguráðherra lofar nýrri brú yfir Ölfusá við Selfoss í lok ársins 2023 eða árið 2024 en framkvæmdir við brúna verða boðnar út um næstu áramót. Brúin mun kosta um sex og hálfan milljarða króna og innheimtur verður vegatollur yfir hana. Innlent 6.6.2021 12:18