Árborg Hart tekist á um netaveiði í Ölfusá Þeir sem bera hag Norður-Atlantshafslaxins fyrir brjósti biðla nú til þeirra sem enn stunda netaveiði í Ölfusá að hlífa því sem eftir lifir stofns í stærsta ferskvatnakerfi í Evrópu. Þeir segja þetta ljótan blett á orðspori Íslands og laxinn sé í útrýmingarhættu. Sveitin er klofin. Jörundur Gauksson lögmaður, formaður í Veiðifélagi Árnessýslu, stendur hins vegar fastur fyrir og á sínu. Innlent 19.9.2024 12:57 Banaslys á byggingarsvæði í Árborg Banaslys varð á byggingarsvæði í Árborg fyrr í dag. Karlmaður um fimmtugt lést þegar hann féll niður af nýbyggingu. Innlent 17.9.2024 18:51 Ein öflugasta hraðhleðslustöð landsins opnuð á Selfossi Ein öflugasta hraðhleðslustöð landsins hefur verið opnuð á Selfossi en þar geta tuttugu og sex bílar af öllum stærðum og gerðum hlaðið í einu allan sólarhringinn. Það er hópferðafyrirtæki Guðmundar Tyrfingssonar, sem á heiðurinn af hleðslustöðinni með samstarfsaðilum sínum. Innlent 15.9.2024 20:07 Hinn grunaði í Selfossmálinu er látinn Karlmaður á þrítugsaldri sem grunaður var um að hafa orðið Sofiu Sarmite Kolsenikovu að bana á Selfossi í apríl í fyrra lést í vikunni. Rannsókn málsins verður lokið þrátt fyrir að ljóst sé að ákæra verði ekki gefin út í því. Innlent 10.9.2024 11:30 Rannsóknarleit Selfossveitna heldur áfram að skila árangri Sveitarfélagið Árborg er ört stækkandi samfélag sem hefur tekist á við talsverðar áskoranir á undanförnum árum. Selfossveitur sjá sveitarfélaginu fyrir heitu vatni og hafa svo sannarlega fundið fyrir vextinum. Skoðun 9.9.2024 09:31 Sundlauginni lokað vegna alvarlegrar bilunar Sundlaugasvæði Sundahallar Selfoss verður lokað næstu daga vegna alvarlegrar bilunar í klórframleiðslukerfi. Unnið er að viðgerð. Innlent 7.9.2024 22:49 Nýtt fimleikahús óskast á Selfossi Yfirþjálfari fimleikadeildarinnar á Selfossi skorar á bæjaryfirvöld í Árborg að byggja nýtt fimleikahús þar sem núverandi hús sé orðið allt of lítið og lélegt fyrir deildina. Níu stelpur úr fimleikunum er á leiðinni til Azerbaijan til að taka þátt í Evrópumótinu í hópfimleikum. Innlent 6.9.2024 20:05 Stefnan er skýr - höldum ótrauð áfram Í stóru samfélagi er að mörgu að hyggja. Það veldur óneitanlega áhyggjum þegar fréttir af auknum vopnaburði og ofbeldi barna koma í fjölmiðlum. Við þurfum öll að bregðast við með yfirveguðum hætti með það að markmiði að gera samfélagið okkar öruggara. Skoðun 6.9.2024 12:31 Sakaður um kynferðisáreitni en mögulega farinn úr landi Rúmlega fertugur karlmaður frá Litháen hefur verið ákærður fyrir kynferðislega áreitni á salerni skemmtistaðarins Miðbarnum á Selfossi í ágúst 2022. Ekki hefur tekist að birta viðkomandi ákæruna og er hún því birt opinberlega í Lögbirtingablaðinu. Innlent 3.9.2024 09:49 Unglingaslagsmál á Selfossi á borði lögreglu Lögreglan á Suðurlandi hefur til rannsóknar slagsmál unglinga undir Ölfusárbrú á Selfossi í gærkvöldi. Íbúi í bænum fullyrðir að fjórir til fimm grímuklæddir hafi ráðist að einum. Innlent 2.9.2024 10:10 Fyrsti Hjallastefnuleikskólinn á Selfossi Mikil ánægja er á Selfossi með nýjan leikskóla en það er Hjallastefnuleikskóli, sá fyrsti í bæjarfélaginu. Hefðbundin leiktæki, sem voru á lóðinni hafa öll verið fjarlægð en í staðinn hefur lóðinni verið breytt í opinn efnivið og náttúrulegt umhverfi barna eins og tíðkast í Hjallastefnuleikskólum. Innlent 31.8.2024 14:04 Niðurstöðu um smíði nýrrar brúar yfir Ölfusá vænst á næstu dögum Niðurstöðu um smíði nýrrar Ölfusárbrúar er vænst á næstu dögum, að sögn Sigurðar Inga Jóhannssonar fjármálaráðherra. Standist það gætu framkvæmdir hafist í haust og ný brú verið tilbúin eftir rúm þrjú ár. Innlent 27.8.2024 20:40 Altjón á vélaskemmu í bruna við Stokkseyri Vélaskemma á jörðinni Hoftúni II rétt norðan við Stokkseyri varð eldi að bráð nú síðdegis. Enn er unnið að því að slökkva í glæðum en slökkviliðsstjóri segir töluvert af búnaði hafi brunnið inni, þar á meðal ferðaþjónustubifreið sem verið var að gera við. Innlent 22.8.2024 18:31 Ólympíufara fagnað á Selfossi Ólympíufari Selfyssinga, Hákon Þór Svavarsson, sem keppti í skotfimi á Ólympíuleikunum í París fékk góðar móttökur hjá heimamönnum þegar hann kom heim af leikunum. Hann stefnir ótrauður á að keppa líka á næstu Ólympíuleikum eftir fjögur ár, sem verða í Los Angeles í Bandaríkjunum. Innlent 21.8.2024 20:06 Byrjaði í smábrotum en vatt svo upp á sig Berglind Fríða Viggósdóttir missti tvo elstu syni sína með sex ára millibili. Þann 5. maí árið 2018 var Viggó Emil bráðkvaddur á Spáni. Ingvi Hrafn féll fyrir eigin hendi í klefa sínum á Litla Hrauni, á dánardegi bróður síns þann 5. maí síðastliðinn. Bræðurnir áttu það sameiginlegt að hafa árum saman barist við eiturlyfjafíkn og voru þeir báðir í afplánun á einhverjum tímapunkti í lífi sínu. Lífið 17.8.2024 08:01 Neitaði að borga heita vatnið og slapp með skrekkinn Kona í Árborg komst upp með að borga ekki heitavatnsreikninga frá Selfossveitum vegna þess að vatnið var ekki nógu heitt. Reikningar konunnar vegna húshitunar voru meira en tvöfalt hærri en í sambærilegum fasteignum í sveitarfélaginu, af því vatnið var gallað og inntakshiti þess ekki nógu mikill. Innlent 16.8.2024 21:56 Margverðlaunaður garður með sólskini allan daginn Hjónin Agnes Ósk Snorradóttir og Björgvin Guðmundsson hafa nostrað við verðlaunagarð í kringum húsið sitt á Selfossi undanfarin ár. Þau hafa skipulagt hann þannig að hægt er að njóta sólar í garðinum allan daginn frá því snemma á morgnana og langt fram á kvöld en Vala Matt kíkti í heimsókn í Íslandi í dag. Lífið 16.8.2024 14:45 Makaði tómatsósu á útidyrahurð nágranna sinna Rawad Nouman vissi ekki hvaðan á sig stóð veðrið þegar nágranni hans á Selfossi hafði uppi hótanir við hann og litla bróður hans, og makaði svo tómatsósu á hurðina að íbúð þeirra. Rawad segist ekkert hafa á móti manninum en vill vera látinn í friði. Innlent 12.8.2024 16:36 Aspir fjarlægðar á Selfossi vegna umferðaröryggis Nú er búið að saga niður flestar aspirnar við þjóðveg númer eitt þegar ekið er í gegnum Selfoss en í staðin á að gróðursetja nýja tegund trjáa við veginn og setja upp öryggisgirðingu. Innlent 13.7.2024 20:04 Grillmeistari Íslands krýndur um helgina Von er á tíu til fimmtán þúsund manns á Selfoss um helgina þar sem Kótelettan fer fram. Grillmeistari Íslands verður krýndur í bænum og stórskotalið tónlistarfólks stígur á svið. Lífið 10.7.2024 12:01 Íbúum í Árborg fjölgar um 600 til 700 á ári Íbúum í Sveitarfélaginu Árborg heldur áfram að fjölga og fjölga en nú er íbúatalan komin yfir tólf þúsund. Að sögn bæjarstjóra er nýjum íbúum að fjölga um sex til sjö hundruð á ári. Innlent 7.7.2024 13:07 Sveitastrákur mætir með byssuna sína á Ólympíuleikana Smiður á Selfossi gerir lítið annað þessa dagana en að skjóta úr byssu og þá marga klukkutíma á dag. Ástæðan er einföld. Hann er að fara að keppa fyrir hönd Íslands á Ólympíuleikunum í París en hann mun keppa í haglabyssuskotfimi. Innlent 3.7.2024 21:05 Gjaldþrot Jötunn véla upp á 1,7 milljarða Gjaldþrot vinnuvélafyrirtækisins Jötunn véla á Selfossi sem varð gjaldþrota árið 2020 nam rúmum 1660 milljónum króna. Samþykktar kröfur námu 426 milljónum króna en ekkert fékkst greitt upp í almennar kröfur. Viðskipti innlent 3.7.2024 17:12 Skúffukaka og mjólk vegna pirrings út af töppum Eins og landsmenn hafa tekið eftir þá eru komnir áfastir tappar á drykkjarfernur frá Mjólkursamsölunni vegna nýrrar Evróputilskipunar. Einhverjir láta tappana fara í taugarnar á sér og segja þá þvælast fyrir en því fólki er boðið í mjólk og skúffuköku hjá Mjólkursamsölunni til að fara yfir hvernig nýju tapparnir virka. Innlent 30.6.2024 20:06 Stórir viðburðir í hættu þegar miðbærinn stækkar Viðburðarhaldari á Selfossi segir að fyrirhugaðar framkvæmdir við stækkun nýja miðbæjarins á Selfossi muni ógna árlegum hátíðum í bænum. Honum blöskrar hversu langt eigi að byggja inn á tún við miðbæinn. Innlent 28.6.2024 21:00 Flestar íbúðir seljist undir eða á auglýstu verði Páll Pálsson fasteignasali segir enga dramatík á fasteignamarkaði eins og er. Það sé um 30 prósent meiri sala en í fyrra, á sama tíma, en síðasta ár hafi verið lélegt. Hann segir að það hafi orðið um 8,4 prósenta hækkun á fasteignaverði síðasta árið en að stór hluti hækkunarinnar sé tilkomin á þessu ári. Viðskipti innlent 28.6.2024 08:50 Veittu leyfi fyrir umdeilda girðingu á Selfossi Bæjarstjórn Árborgar samþykkti í dag tillögu skipulagsnefndar um veitingu framkvæmdaleyfis vegna girðingar á skipulagssvæði miðbæjarins. Áhyggjur eru uppi um að girðingin hindri aðgang að svæðum sem hafa verið notuð til hátíðarhalda á útihátíðum á sumrin. Gert er ráð fyrir því að girðingin nái utan um svæði sem notað hefur verið til brekkusöngs. Innlent 26.6.2024 22:01 Gera úttekt á mat í skólum Árborgar: Gjörunnin matvæli þrisvar í viku Foreldrar og kennarar í Árborg hafa mörg miklar áhyggjur af matnum sem nú er boðið upp á í grunn- og leikskólum bæjarfélagsins. Til stendur að gera úttekt á innihaldi og næringu matarins en um ár er síðan matráðum leikskólanna var sagt upp í hagræðingarskyni. Þá þurfti sveitarfélagið að gera ýmsar ráðstafanir vegna bágrar fjárhagsstöðu. Innlent 26.6.2024 14:00 Bíður eftir gögnum til að ljúka rannsókn í manndrápsmáli á Selfossi Héraðssaksóknari bíður enn eftir gögnum til að geta lokið rannsókn sinni á andláti Sofiu Sarmite Kolsenikovu. Sofia fannst látin í heimahúsi á Selfossi í lok apríl í fyrra. Málið var sent frá lögreglunni á Suðurlandi til héraðssaksóknara í desember síðastliðnum. Innlent 20.6.2024 06:45 Pylsuvagninn á Selfossi er 40 ára í dag: Fríar pylsur og kók Íbúar á Selfossi og næsta nágrenni þurfa ekki að hafa áhyggjur af því að verða svangir í dag því Pylsuvagninn býður upp á fríar pylsur og kók frá klukkan 14:00 til 16:00. Ástæðan er 40 ára afmæli pylsuvagnsins, sem hefur verið með um eitt þúsund starfsmenn í þessi 40 ára. Viðskipti innlent 9.6.2024 12:15 « ‹ 1 2 3 4 5 6 7 … 35 ›
Hart tekist á um netaveiði í Ölfusá Þeir sem bera hag Norður-Atlantshafslaxins fyrir brjósti biðla nú til þeirra sem enn stunda netaveiði í Ölfusá að hlífa því sem eftir lifir stofns í stærsta ferskvatnakerfi í Evrópu. Þeir segja þetta ljótan blett á orðspori Íslands og laxinn sé í útrýmingarhættu. Sveitin er klofin. Jörundur Gauksson lögmaður, formaður í Veiðifélagi Árnessýslu, stendur hins vegar fastur fyrir og á sínu. Innlent 19.9.2024 12:57
Banaslys á byggingarsvæði í Árborg Banaslys varð á byggingarsvæði í Árborg fyrr í dag. Karlmaður um fimmtugt lést þegar hann féll niður af nýbyggingu. Innlent 17.9.2024 18:51
Ein öflugasta hraðhleðslustöð landsins opnuð á Selfossi Ein öflugasta hraðhleðslustöð landsins hefur verið opnuð á Selfossi en þar geta tuttugu og sex bílar af öllum stærðum og gerðum hlaðið í einu allan sólarhringinn. Það er hópferðafyrirtæki Guðmundar Tyrfingssonar, sem á heiðurinn af hleðslustöðinni með samstarfsaðilum sínum. Innlent 15.9.2024 20:07
Hinn grunaði í Selfossmálinu er látinn Karlmaður á þrítugsaldri sem grunaður var um að hafa orðið Sofiu Sarmite Kolsenikovu að bana á Selfossi í apríl í fyrra lést í vikunni. Rannsókn málsins verður lokið þrátt fyrir að ljóst sé að ákæra verði ekki gefin út í því. Innlent 10.9.2024 11:30
Rannsóknarleit Selfossveitna heldur áfram að skila árangri Sveitarfélagið Árborg er ört stækkandi samfélag sem hefur tekist á við talsverðar áskoranir á undanförnum árum. Selfossveitur sjá sveitarfélaginu fyrir heitu vatni og hafa svo sannarlega fundið fyrir vextinum. Skoðun 9.9.2024 09:31
Sundlauginni lokað vegna alvarlegrar bilunar Sundlaugasvæði Sundahallar Selfoss verður lokað næstu daga vegna alvarlegrar bilunar í klórframleiðslukerfi. Unnið er að viðgerð. Innlent 7.9.2024 22:49
Nýtt fimleikahús óskast á Selfossi Yfirþjálfari fimleikadeildarinnar á Selfossi skorar á bæjaryfirvöld í Árborg að byggja nýtt fimleikahús þar sem núverandi hús sé orðið allt of lítið og lélegt fyrir deildina. Níu stelpur úr fimleikunum er á leiðinni til Azerbaijan til að taka þátt í Evrópumótinu í hópfimleikum. Innlent 6.9.2024 20:05
Stefnan er skýr - höldum ótrauð áfram Í stóru samfélagi er að mörgu að hyggja. Það veldur óneitanlega áhyggjum þegar fréttir af auknum vopnaburði og ofbeldi barna koma í fjölmiðlum. Við þurfum öll að bregðast við með yfirveguðum hætti með það að markmiði að gera samfélagið okkar öruggara. Skoðun 6.9.2024 12:31
Sakaður um kynferðisáreitni en mögulega farinn úr landi Rúmlega fertugur karlmaður frá Litháen hefur verið ákærður fyrir kynferðislega áreitni á salerni skemmtistaðarins Miðbarnum á Selfossi í ágúst 2022. Ekki hefur tekist að birta viðkomandi ákæruna og er hún því birt opinberlega í Lögbirtingablaðinu. Innlent 3.9.2024 09:49
Unglingaslagsmál á Selfossi á borði lögreglu Lögreglan á Suðurlandi hefur til rannsóknar slagsmál unglinga undir Ölfusárbrú á Selfossi í gærkvöldi. Íbúi í bænum fullyrðir að fjórir til fimm grímuklæddir hafi ráðist að einum. Innlent 2.9.2024 10:10
Fyrsti Hjallastefnuleikskólinn á Selfossi Mikil ánægja er á Selfossi með nýjan leikskóla en það er Hjallastefnuleikskóli, sá fyrsti í bæjarfélaginu. Hefðbundin leiktæki, sem voru á lóðinni hafa öll verið fjarlægð en í staðinn hefur lóðinni verið breytt í opinn efnivið og náttúrulegt umhverfi barna eins og tíðkast í Hjallastefnuleikskólum. Innlent 31.8.2024 14:04
Niðurstöðu um smíði nýrrar brúar yfir Ölfusá vænst á næstu dögum Niðurstöðu um smíði nýrrar Ölfusárbrúar er vænst á næstu dögum, að sögn Sigurðar Inga Jóhannssonar fjármálaráðherra. Standist það gætu framkvæmdir hafist í haust og ný brú verið tilbúin eftir rúm þrjú ár. Innlent 27.8.2024 20:40
Altjón á vélaskemmu í bruna við Stokkseyri Vélaskemma á jörðinni Hoftúni II rétt norðan við Stokkseyri varð eldi að bráð nú síðdegis. Enn er unnið að því að slökkva í glæðum en slökkviliðsstjóri segir töluvert af búnaði hafi brunnið inni, þar á meðal ferðaþjónustubifreið sem verið var að gera við. Innlent 22.8.2024 18:31
Ólympíufara fagnað á Selfossi Ólympíufari Selfyssinga, Hákon Þór Svavarsson, sem keppti í skotfimi á Ólympíuleikunum í París fékk góðar móttökur hjá heimamönnum þegar hann kom heim af leikunum. Hann stefnir ótrauður á að keppa líka á næstu Ólympíuleikum eftir fjögur ár, sem verða í Los Angeles í Bandaríkjunum. Innlent 21.8.2024 20:06
Byrjaði í smábrotum en vatt svo upp á sig Berglind Fríða Viggósdóttir missti tvo elstu syni sína með sex ára millibili. Þann 5. maí árið 2018 var Viggó Emil bráðkvaddur á Spáni. Ingvi Hrafn féll fyrir eigin hendi í klefa sínum á Litla Hrauni, á dánardegi bróður síns þann 5. maí síðastliðinn. Bræðurnir áttu það sameiginlegt að hafa árum saman barist við eiturlyfjafíkn og voru þeir báðir í afplánun á einhverjum tímapunkti í lífi sínu. Lífið 17.8.2024 08:01
Neitaði að borga heita vatnið og slapp með skrekkinn Kona í Árborg komst upp með að borga ekki heitavatnsreikninga frá Selfossveitum vegna þess að vatnið var ekki nógu heitt. Reikningar konunnar vegna húshitunar voru meira en tvöfalt hærri en í sambærilegum fasteignum í sveitarfélaginu, af því vatnið var gallað og inntakshiti þess ekki nógu mikill. Innlent 16.8.2024 21:56
Margverðlaunaður garður með sólskini allan daginn Hjónin Agnes Ósk Snorradóttir og Björgvin Guðmundsson hafa nostrað við verðlaunagarð í kringum húsið sitt á Selfossi undanfarin ár. Þau hafa skipulagt hann þannig að hægt er að njóta sólar í garðinum allan daginn frá því snemma á morgnana og langt fram á kvöld en Vala Matt kíkti í heimsókn í Íslandi í dag. Lífið 16.8.2024 14:45
Makaði tómatsósu á útidyrahurð nágranna sinna Rawad Nouman vissi ekki hvaðan á sig stóð veðrið þegar nágranni hans á Selfossi hafði uppi hótanir við hann og litla bróður hans, og makaði svo tómatsósu á hurðina að íbúð þeirra. Rawad segist ekkert hafa á móti manninum en vill vera látinn í friði. Innlent 12.8.2024 16:36
Aspir fjarlægðar á Selfossi vegna umferðaröryggis Nú er búið að saga niður flestar aspirnar við þjóðveg númer eitt þegar ekið er í gegnum Selfoss en í staðin á að gróðursetja nýja tegund trjáa við veginn og setja upp öryggisgirðingu. Innlent 13.7.2024 20:04
Grillmeistari Íslands krýndur um helgina Von er á tíu til fimmtán þúsund manns á Selfoss um helgina þar sem Kótelettan fer fram. Grillmeistari Íslands verður krýndur í bænum og stórskotalið tónlistarfólks stígur á svið. Lífið 10.7.2024 12:01
Íbúum í Árborg fjölgar um 600 til 700 á ári Íbúum í Sveitarfélaginu Árborg heldur áfram að fjölga og fjölga en nú er íbúatalan komin yfir tólf þúsund. Að sögn bæjarstjóra er nýjum íbúum að fjölga um sex til sjö hundruð á ári. Innlent 7.7.2024 13:07
Sveitastrákur mætir með byssuna sína á Ólympíuleikana Smiður á Selfossi gerir lítið annað þessa dagana en að skjóta úr byssu og þá marga klukkutíma á dag. Ástæðan er einföld. Hann er að fara að keppa fyrir hönd Íslands á Ólympíuleikunum í París en hann mun keppa í haglabyssuskotfimi. Innlent 3.7.2024 21:05
Gjaldþrot Jötunn véla upp á 1,7 milljarða Gjaldþrot vinnuvélafyrirtækisins Jötunn véla á Selfossi sem varð gjaldþrota árið 2020 nam rúmum 1660 milljónum króna. Samþykktar kröfur námu 426 milljónum króna en ekkert fékkst greitt upp í almennar kröfur. Viðskipti innlent 3.7.2024 17:12
Skúffukaka og mjólk vegna pirrings út af töppum Eins og landsmenn hafa tekið eftir þá eru komnir áfastir tappar á drykkjarfernur frá Mjólkursamsölunni vegna nýrrar Evróputilskipunar. Einhverjir láta tappana fara í taugarnar á sér og segja þá þvælast fyrir en því fólki er boðið í mjólk og skúffuköku hjá Mjólkursamsölunni til að fara yfir hvernig nýju tapparnir virka. Innlent 30.6.2024 20:06
Stórir viðburðir í hættu þegar miðbærinn stækkar Viðburðarhaldari á Selfossi segir að fyrirhugaðar framkvæmdir við stækkun nýja miðbæjarins á Selfossi muni ógna árlegum hátíðum í bænum. Honum blöskrar hversu langt eigi að byggja inn á tún við miðbæinn. Innlent 28.6.2024 21:00
Flestar íbúðir seljist undir eða á auglýstu verði Páll Pálsson fasteignasali segir enga dramatík á fasteignamarkaði eins og er. Það sé um 30 prósent meiri sala en í fyrra, á sama tíma, en síðasta ár hafi verið lélegt. Hann segir að það hafi orðið um 8,4 prósenta hækkun á fasteignaverði síðasta árið en að stór hluti hækkunarinnar sé tilkomin á þessu ári. Viðskipti innlent 28.6.2024 08:50
Veittu leyfi fyrir umdeilda girðingu á Selfossi Bæjarstjórn Árborgar samþykkti í dag tillögu skipulagsnefndar um veitingu framkvæmdaleyfis vegna girðingar á skipulagssvæði miðbæjarins. Áhyggjur eru uppi um að girðingin hindri aðgang að svæðum sem hafa verið notuð til hátíðarhalda á útihátíðum á sumrin. Gert er ráð fyrir því að girðingin nái utan um svæði sem notað hefur verið til brekkusöngs. Innlent 26.6.2024 22:01
Gera úttekt á mat í skólum Árborgar: Gjörunnin matvæli þrisvar í viku Foreldrar og kennarar í Árborg hafa mörg miklar áhyggjur af matnum sem nú er boðið upp á í grunn- og leikskólum bæjarfélagsins. Til stendur að gera úttekt á innihaldi og næringu matarins en um ár er síðan matráðum leikskólanna var sagt upp í hagræðingarskyni. Þá þurfti sveitarfélagið að gera ýmsar ráðstafanir vegna bágrar fjárhagsstöðu. Innlent 26.6.2024 14:00
Bíður eftir gögnum til að ljúka rannsókn í manndrápsmáli á Selfossi Héraðssaksóknari bíður enn eftir gögnum til að geta lokið rannsókn sinni á andláti Sofiu Sarmite Kolsenikovu. Sofia fannst látin í heimahúsi á Selfossi í lok apríl í fyrra. Málið var sent frá lögreglunni á Suðurlandi til héraðssaksóknara í desember síðastliðnum. Innlent 20.6.2024 06:45
Pylsuvagninn á Selfossi er 40 ára í dag: Fríar pylsur og kók Íbúar á Selfossi og næsta nágrenni þurfa ekki að hafa áhyggjur af því að verða svangir í dag því Pylsuvagninn býður upp á fríar pylsur og kók frá klukkan 14:00 til 16:00. Ástæðan er 40 ára afmæli pylsuvagnsins, sem hefur verið með um eitt þúsund starfsmenn í þessi 40 ára. Viðskipti innlent 9.6.2024 12:15