Tyrkland Segir Tyrki hafa fellt leiðtoga ISIS Recep Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands, segir tyrknesku leyniþjónustuna hafa fellt Abu Hussein al-Qurashi, sem sagður er hafa tekið við stjórn Íslamska ríkisins eftir að Abu Ibrahim al-Qurayshi lést í árás Bandaríkjamanna á heimili hans í febrúar í fyrra. Erlent 30.4.2023 22:39 Íslenskar björgunarsveitir fengu viðurkenningu frá Erdogan Tyrkir héldu í dag athöfn til að þakka erlendum og tyrkneskum björgunarsveitum sem sinntu björgunarstarfsemi í kjölfar jarðskjálftanna sem riðu yfir í Tyrklandi sjötta febrúar. Fulltrúi íslenskra björgunarsveita var meðal þeirra sem tóku við heiðursorðu frá Tyrklandsforseta á athöfninni. Innlent 25.4.2023 19:01 110 grunaðir PKK-liðar handteknir í Tyrklandi Lögregla í Tyrklandi hefur handtekið á annað hundrað manns vegna gruns um að tengjast kúrdíska verkamannaflokknum PKK sem stjórnvöld í Tyrklandi skilgreina sem hryðjuverkasamtök. Um þrjár vikur eru nú til kosninga í landinu. Erlent 25.4.2023 07:46 Tyrkland leggur blessun sína yfir umsókn Finnlands Finnland og Svíþjóð óskuðu eftir því að ganga inn í Atlantshafsbandalagið, NATO, á síðasta ári í kjölfar innrásar Rússlands í Úkraínu. Umsóknin hefur strandað á Tyrklandi en nú hefur tyrkneska þingið samþykkt umsóknina. Öll aðildarríki bandalagsins hafa því nú samþykkt inngöngu Finnlands. Erlent 30.3.2023 22:16 Erdogan segist styðja aðild Finna að NATO Recep Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands, sagði í dag að tyrkneska þingið myndi greiða atkvæði um að samþykkja umsókn Finnlands um aðild að Atlantshafsbandalaginu. Ekki stendur til að samþykkja aðild Svía að svo stöddu og eru auknar líkur á því að Finnar gangi einir í NATO í bili. Erlent 17.3.2023 16:13 Tyrkir sagðir ætla að samþykkja umsókn Finna Útlit er fyrir að yfirvöld í Tyrklandi ætli að samþykkja aðildarumsókn Finna í Atlantshafsbandalagið á næstu vikum en forseti Finnlands mun fara til Tyrklands á morgun. Tyrkir ætla þó ekki að samþykkja umsókn Svía að svo stöddu. Erlent 15.3.2023 16:48 Stjórnarandstaðan sameinast um mótframbjóðanda gegn Erdogan Sex stjórnarandstöðuflokkar í Tyrklandi, sem jafnan hafa verið sundraðir í sínum störfum, hafa náð saman um forsetaframbjóðanda sem þeir vonast til að muni ná að koma Recep Tayyip Erdogan af forsetastóli í kosningunum sem fram fara í landinu í maí. Erlent 7.3.2023 11:57 Þrír látnir í Tyrklandi eftir skjálfta gærdagsins Björgunarsveitir í Tyrklandi leita nú aftur að fólki í rústum húsa eftir að tveir öflugir skjálftar riðu þar yfir í gær. Erlent 21.2.2023 06:32 Annar öflugur skjálfti á landamærum Tyrklands og Sýrlands Jarðskjálfti af stærðinni 6,4 reið yfir á landamærum Tyrklands og Sýrlands fyrir skömmu. Aðeins tvær vikur eru frá því að skjálfti af stærðinni 7,8 skók svæðið með þeim afleiðingum að 47.000 hafa látist og gríðarlegur fjöldi mannvirkja jafnaðist við jörðu. Erlent 20.2.2023 18:30 Vilja aftur funda með Svíum um NATO-aðild Tyrknesk stjórnvöld hafa tilkynnt að til standi að halda fleiri fundi með fulltrúum sænskra og finnskra stjórnvalda um NATO-aðild þeirra. Mevlüt Cavusoglu, utanríkisráðherra Tyrklands, greindi frá þessu í morgun. Erlent 20.2.2023 10:12 Atsu fannst látinn í rústum Ganverski knattspyrnumaðurinn Christian Atsu hefur fundist látinn í rústum heimilis síns í Tyrklandi. Hans hafði verið saknað frá því að jarðskjálfti skók stóran hluta Tyrklands og Sýrlands þann 6. febrúar síðastliðinn. Fótbolti 18.2.2023 08:48 Tala látinna komin í 45 þúsund Tala látinna eftir jarðskjálftann í Tyrklandi og Sýrlandi er komin í 45 þúsund og óttast er að hún hækki. 264 þúsund íbúðarhús hrundu í Tyrklandi en síðast í gær var þremur bjargað úr rústum þar í landi. Stríðsátök eru hafin á ný í Sýrlandi, sem hamlar björgunarstarfi. Erlent 18.2.2023 08:05 „Þetta var miklu, miklu stærri atburður en við höfðum æft“ Seinni hluti íslenska hópsins sem var við störf á jarðskjálftasvæðinu í Tyrklandi kom heim til Íslands í dag. Teymisstjóri hópsins segir frábært að geta hjálpað en að sama skapi sé gott að vera komin heim. Innlent 17.2.2023 18:48 Færði heimsbyggðinni þakkir fyrir aðstoðina Mevlut Cavusoglu, utanríkisráðherra Tyrklands, þakkaði í dag öllum þeim ríkjum sem hafa boðið fram aðstoð sína eftir skjálftana mannskæðu í síðustu viku en að hans sögn hafa hundrað ríki boðist til að aðstoða og eru björgunarsveitir frá 76 löndum núna í Tyrklandi. Erlent 15.2.2023 19:59 Erfitt að fara heim frá hamfarasvæðinu í Tyrklandi Hluti íslenska hópsins sem fór út til Tyrklands til aðstoðar vegna jarðskjálfanna kom heim í dag og fékk höfðingjalegar mótttökur. Hópstjóri segir að það hafi verið erfitt að yfirgefa landið þegar hörmungarnar standa enn yfir en það eigi eftir að koma í ljós hvernig þær hafi áhrif á íslenska hópinn. Innlent 14.2.2023 23:31 Fyrirliði tyrkneska landsliðsins og fimm ára sonur hans létust í jarðskjálftanum Þær sorglegu fréttir hafa borist frá Tyrklandi að fyrirliði handboltalandsliðsins og fimm ára sonur hans hafi látist í jarðskjálftanum mikla þar í landi. Handbolti 14.2.2023 11:27 Fundu fólk á lífi eftir átta daga Björgunarsveitarmenn, hermenn og aðrir leitarmenn í Tyrklandi fundu í morgun fólk á lífi í rústum húsa sem hrundu fyrir átta dögum síðan. Minnst þrír fundust á lífi í rústum húsa en leitað er í þremur héruðum Tyrklands. Sérfræðingar segja litlar líkur á því að margir muni finnast á lífi. Erlent 14.2.2023 10:20 Fannst lifandi eftir 174 klukkustundir en vonir um að finna fleiri dvína Sífellt færri finnast nú lifandi í rústunum í Tyrklandi en vika er liðin frá mannskæðustu jarðskjálftum á svæðinu í áratugi. Kona fannst í dag lifandi eftir 174 klukkustundir en vonir fara dvínandi og spjótin beinast að gölluðum mannvirkjum. Íslenskt sérfræðingateymi stýrir enn aðgerðum rústabjörgunarsveita en færði sig um set í gær. Erlent 13.2.2023 12:50 Sýrlendingar örvæntingarfullir og enn berst lítil aðstoð Sýrlendingar sem lifðu tvo stóra jarðskjálfta, sem riðu yfir norðurhluta Sýrlands og suðurhluta Tyrklands í síðustu viku, af eru örvæntingarfullir. Lítil aðstoð hefur borist, enda landsvæði þeirra undir stjórn uppreisnarmanna, en þeir sem lifðu hryllinginn af glíma nú við sult og kulda. Erlent 13.2.2023 08:18 Óttast að dánartalan tvöfaldist Yfir þrjátíu þúsund eru nú látin eftir gríðarlegan jarðskjálfta í Tyrklandi og Sýrlandi fyrir tæpri viku. Sameinuðu þjóðirnar óttast að dánartalan muni tvöfaldast. Tyrkir eru nú byrjaðir að handtaka verktaka vegna húsa sem hrundu en umdeilt er hvar ábyrgðin raunverulega liggur. Neyðarsöfnun Rauða kross Íslands hefur gengið vel og verða 30 milljónir sendar til Rauða krossins í Tyrklandi og Sýrlandi. Erlent 12.2.2023 23:50 Bandaríkjamenn óskuðu eftir frekari aðstoð íslenska hópsins Stjórnstöð íslenska hópsins sem sinnir björgunarstarfi á jarðskjálftasvæðum í Tyrklandi var í dag flutt að ósk Bandaríkjamanna, frá borginni Antakya til Adiyaman. Óskað var eftir því að Íslendingar myndu fylgja með til að tryggja áfram samfellu í störfum alþjóðlegra björgunarsveita. Fjórir aðgerðarstjórnendur voru því sóttir af þyrlu bandaríska hópsins en hinn hluti hópsins hefur lagt af stað heim til Íslands. Erlent 12.2.2023 20:07 Íslenski hópurinn í Tyrklandi: „Þetta er mjög slæmt ástand“ Erlendur Birgisson verkfræðingur, meðlimur íslenska hópsins í Antayka í Tyrklandi, aðstoðaði svissnesku björgunarsveitina fyrir helgi við leit að einstakling í rústum í borginni. Fregnir höfðu borist af því að heyrst hefði í manni í rústunum en leit bar ekki árangur. Sjúkraflutningamaður segir ástandið mjög slæmt. Erlent 12.2.2023 10:24 Bara tvö eftir Fimm manna fjölskylda og sextán ára piltur eru á meðal þeirra sem fundust á lífi í Tyrklandi í dag, heilum fimm dögum eftir gríðarlegan jarðskjálfta á mánudag. Þúsundir barna hafa orðið munaðarlaus í hamförunum, þar á meðal sýrlensk systkini sem upplifðu ólýsanlegan hrylling. Erlent 11.2.2023 20:01 Færri bjargað í dag og eyðileggingin algjör Ríflega 22 þúsund eru nú sagðir látnir eftir skjálftana í Tyrklandi og Sýrlandi en einhverjum hefur verið bjargað úr rústum bygginga í dag eftir meira en hundrað klukkustundir. Björgunarstarf er þó að renna út á tíma en aðgerðarstjórnandi íslenska teymisins segir töluvert færri finnast á lífi. Erlent 10.2.2023 16:56 Tíu daga barni bjargað úr rústunum Björgunarsveitir í Tyrklandi björguðu í dag tíu daga gömlu barni og móður þess úr rústum húsnæðis sem hrundi í jarðskjálftunum miklu í vikunni. Erlent 10.2.2023 14:12 Rúmlega tuttugu og eitt þúsund látnir Opinberar tölur yfir dauðsföll í jarðskjálftunum í Tyrklandi og Sýrlandi standa nú í 21.719 og fjölgaði í hópi látinna um 668 í nótt. Erlent 10.2.2023 06:52 Íslenski hópurinn tekur til hendinni í Tyrklandi Hópur björgunarsveitarmanna frá Íslandi lenti í Tyrklandi í gærnótt. Hópurinn er nú búinn að koma sér fyrir við Hatay Expo svæðið í Antakya borg, þar sem yfirstjórn aðgerða á svæðinu er. Erlent 9.2.2023 10:57 Litlar líkur á að fleiri finnist á lífi Tala látinna í Tyrklandi og í Sýrlandi eftir jarðskjálftana sem þar riðu yfir nálgast nú sextán þúsund manns óðfluga. Erlent 9.2.2023 07:15 Stjórnvöld harðlega gagnrýnd fyrir hæg viðbrögð Tyrknesk stjórnvöld hafa verið harðlega gagnrýnd fyrir að bregðast of hægt við afleiðingum jarðskjálftanna á mánudag. Nú er talið að yfir ellefu þúsund hafi farist í skjálftunum. Íslenskt björgunarfólk er komið á hamfarasvæðið í Tyrklandi. Við vörum við myndefni í þessari frétt. Erlent 8.2.2023 19:00 Umboðsmaðurinn segir Atsu ófundinn Umboðsmaður ganverska fótboltamannsins Christian Atsu segir að hann hafi ekki enn fundist á lífi. Fótbolti 8.2.2023 14:51 « ‹ 1 2 3 4 5 6 7 8 … 15 ›
Segir Tyrki hafa fellt leiðtoga ISIS Recep Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands, segir tyrknesku leyniþjónustuna hafa fellt Abu Hussein al-Qurashi, sem sagður er hafa tekið við stjórn Íslamska ríkisins eftir að Abu Ibrahim al-Qurayshi lést í árás Bandaríkjamanna á heimili hans í febrúar í fyrra. Erlent 30.4.2023 22:39
Íslenskar björgunarsveitir fengu viðurkenningu frá Erdogan Tyrkir héldu í dag athöfn til að þakka erlendum og tyrkneskum björgunarsveitum sem sinntu björgunarstarfsemi í kjölfar jarðskjálftanna sem riðu yfir í Tyrklandi sjötta febrúar. Fulltrúi íslenskra björgunarsveita var meðal þeirra sem tóku við heiðursorðu frá Tyrklandsforseta á athöfninni. Innlent 25.4.2023 19:01
110 grunaðir PKK-liðar handteknir í Tyrklandi Lögregla í Tyrklandi hefur handtekið á annað hundrað manns vegna gruns um að tengjast kúrdíska verkamannaflokknum PKK sem stjórnvöld í Tyrklandi skilgreina sem hryðjuverkasamtök. Um þrjár vikur eru nú til kosninga í landinu. Erlent 25.4.2023 07:46
Tyrkland leggur blessun sína yfir umsókn Finnlands Finnland og Svíþjóð óskuðu eftir því að ganga inn í Atlantshafsbandalagið, NATO, á síðasta ári í kjölfar innrásar Rússlands í Úkraínu. Umsóknin hefur strandað á Tyrklandi en nú hefur tyrkneska þingið samþykkt umsóknina. Öll aðildarríki bandalagsins hafa því nú samþykkt inngöngu Finnlands. Erlent 30.3.2023 22:16
Erdogan segist styðja aðild Finna að NATO Recep Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands, sagði í dag að tyrkneska þingið myndi greiða atkvæði um að samþykkja umsókn Finnlands um aðild að Atlantshafsbandalaginu. Ekki stendur til að samþykkja aðild Svía að svo stöddu og eru auknar líkur á því að Finnar gangi einir í NATO í bili. Erlent 17.3.2023 16:13
Tyrkir sagðir ætla að samþykkja umsókn Finna Útlit er fyrir að yfirvöld í Tyrklandi ætli að samþykkja aðildarumsókn Finna í Atlantshafsbandalagið á næstu vikum en forseti Finnlands mun fara til Tyrklands á morgun. Tyrkir ætla þó ekki að samþykkja umsókn Svía að svo stöddu. Erlent 15.3.2023 16:48
Stjórnarandstaðan sameinast um mótframbjóðanda gegn Erdogan Sex stjórnarandstöðuflokkar í Tyrklandi, sem jafnan hafa verið sundraðir í sínum störfum, hafa náð saman um forsetaframbjóðanda sem þeir vonast til að muni ná að koma Recep Tayyip Erdogan af forsetastóli í kosningunum sem fram fara í landinu í maí. Erlent 7.3.2023 11:57
Þrír látnir í Tyrklandi eftir skjálfta gærdagsins Björgunarsveitir í Tyrklandi leita nú aftur að fólki í rústum húsa eftir að tveir öflugir skjálftar riðu þar yfir í gær. Erlent 21.2.2023 06:32
Annar öflugur skjálfti á landamærum Tyrklands og Sýrlands Jarðskjálfti af stærðinni 6,4 reið yfir á landamærum Tyrklands og Sýrlands fyrir skömmu. Aðeins tvær vikur eru frá því að skjálfti af stærðinni 7,8 skók svæðið með þeim afleiðingum að 47.000 hafa látist og gríðarlegur fjöldi mannvirkja jafnaðist við jörðu. Erlent 20.2.2023 18:30
Vilja aftur funda með Svíum um NATO-aðild Tyrknesk stjórnvöld hafa tilkynnt að til standi að halda fleiri fundi með fulltrúum sænskra og finnskra stjórnvalda um NATO-aðild þeirra. Mevlüt Cavusoglu, utanríkisráðherra Tyrklands, greindi frá þessu í morgun. Erlent 20.2.2023 10:12
Atsu fannst látinn í rústum Ganverski knattspyrnumaðurinn Christian Atsu hefur fundist látinn í rústum heimilis síns í Tyrklandi. Hans hafði verið saknað frá því að jarðskjálfti skók stóran hluta Tyrklands og Sýrlands þann 6. febrúar síðastliðinn. Fótbolti 18.2.2023 08:48
Tala látinna komin í 45 þúsund Tala látinna eftir jarðskjálftann í Tyrklandi og Sýrlandi er komin í 45 þúsund og óttast er að hún hækki. 264 þúsund íbúðarhús hrundu í Tyrklandi en síðast í gær var þremur bjargað úr rústum þar í landi. Stríðsátök eru hafin á ný í Sýrlandi, sem hamlar björgunarstarfi. Erlent 18.2.2023 08:05
„Þetta var miklu, miklu stærri atburður en við höfðum æft“ Seinni hluti íslenska hópsins sem var við störf á jarðskjálftasvæðinu í Tyrklandi kom heim til Íslands í dag. Teymisstjóri hópsins segir frábært að geta hjálpað en að sama skapi sé gott að vera komin heim. Innlent 17.2.2023 18:48
Færði heimsbyggðinni þakkir fyrir aðstoðina Mevlut Cavusoglu, utanríkisráðherra Tyrklands, þakkaði í dag öllum þeim ríkjum sem hafa boðið fram aðstoð sína eftir skjálftana mannskæðu í síðustu viku en að hans sögn hafa hundrað ríki boðist til að aðstoða og eru björgunarsveitir frá 76 löndum núna í Tyrklandi. Erlent 15.2.2023 19:59
Erfitt að fara heim frá hamfarasvæðinu í Tyrklandi Hluti íslenska hópsins sem fór út til Tyrklands til aðstoðar vegna jarðskjálfanna kom heim í dag og fékk höfðingjalegar mótttökur. Hópstjóri segir að það hafi verið erfitt að yfirgefa landið þegar hörmungarnar standa enn yfir en það eigi eftir að koma í ljós hvernig þær hafi áhrif á íslenska hópinn. Innlent 14.2.2023 23:31
Fyrirliði tyrkneska landsliðsins og fimm ára sonur hans létust í jarðskjálftanum Þær sorglegu fréttir hafa borist frá Tyrklandi að fyrirliði handboltalandsliðsins og fimm ára sonur hans hafi látist í jarðskjálftanum mikla þar í landi. Handbolti 14.2.2023 11:27
Fundu fólk á lífi eftir átta daga Björgunarsveitarmenn, hermenn og aðrir leitarmenn í Tyrklandi fundu í morgun fólk á lífi í rústum húsa sem hrundu fyrir átta dögum síðan. Minnst þrír fundust á lífi í rústum húsa en leitað er í þremur héruðum Tyrklands. Sérfræðingar segja litlar líkur á því að margir muni finnast á lífi. Erlent 14.2.2023 10:20
Fannst lifandi eftir 174 klukkustundir en vonir um að finna fleiri dvína Sífellt færri finnast nú lifandi í rústunum í Tyrklandi en vika er liðin frá mannskæðustu jarðskjálftum á svæðinu í áratugi. Kona fannst í dag lifandi eftir 174 klukkustundir en vonir fara dvínandi og spjótin beinast að gölluðum mannvirkjum. Íslenskt sérfræðingateymi stýrir enn aðgerðum rústabjörgunarsveita en færði sig um set í gær. Erlent 13.2.2023 12:50
Sýrlendingar örvæntingarfullir og enn berst lítil aðstoð Sýrlendingar sem lifðu tvo stóra jarðskjálfta, sem riðu yfir norðurhluta Sýrlands og suðurhluta Tyrklands í síðustu viku, af eru örvæntingarfullir. Lítil aðstoð hefur borist, enda landsvæði þeirra undir stjórn uppreisnarmanna, en þeir sem lifðu hryllinginn af glíma nú við sult og kulda. Erlent 13.2.2023 08:18
Óttast að dánartalan tvöfaldist Yfir þrjátíu þúsund eru nú látin eftir gríðarlegan jarðskjálfta í Tyrklandi og Sýrlandi fyrir tæpri viku. Sameinuðu þjóðirnar óttast að dánartalan muni tvöfaldast. Tyrkir eru nú byrjaðir að handtaka verktaka vegna húsa sem hrundu en umdeilt er hvar ábyrgðin raunverulega liggur. Neyðarsöfnun Rauða kross Íslands hefur gengið vel og verða 30 milljónir sendar til Rauða krossins í Tyrklandi og Sýrlandi. Erlent 12.2.2023 23:50
Bandaríkjamenn óskuðu eftir frekari aðstoð íslenska hópsins Stjórnstöð íslenska hópsins sem sinnir björgunarstarfi á jarðskjálftasvæðum í Tyrklandi var í dag flutt að ósk Bandaríkjamanna, frá borginni Antakya til Adiyaman. Óskað var eftir því að Íslendingar myndu fylgja með til að tryggja áfram samfellu í störfum alþjóðlegra björgunarsveita. Fjórir aðgerðarstjórnendur voru því sóttir af þyrlu bandaríska hópsins en hinn hluti hópsins hefur lagt af stað heim til Íslands. Erlent 12.2.2023 20:07
Íslenski hópurinn í Tyrklandi: „Þetta er mjög slæmt ástand“ Erlendur Birgisson verkfræðingur, meðlimur íslenska hópsins í Antayka í Tyrklandi, aðstoðaði svissnesku björgunarsveitina fyrir helgi við leit að einstakling í rústum í borginni. Fregnir höfðu borist af því að heyrst hefði í manni í rústunum en leit bar ekki árangur. Sjúkraflutningamaður segir ástandið mjög slæmt. Erlent 12.2.2023 10:24
Bara tvö eftir Fimm manna fjölskylda og sextán ára piltur eru á meðal þeirra sem fundust á lífi í Tyrklandi í dag, heilum fimm dögum eftir gríðarlegan jarðskjálfta á mánudag. Þúsundir barna hafa orðið munaðarlaus í hamförunum, þar á meðal sýrlensk systkini sem upplifðu ólýsanlegan hrylling. Erlent 11.2.2023 20:01
Færri bjargað í dag og eyðileggingin algjör Ríflega 22 þúsund eru nú sagðir látnir eftir skjálftana í Tyrklandi og Sýrlandi en einhverjum hefur verið bjargað úr rústum bygginga í dag eftir meira en hundrað klukkustundir. Björgunarstarf er þó að renna út á tíma en aðgerðarstjórnandi íslenska teymisins segir töluvert færri finnast á lífi. Erlent 10.2.2023 16:56
Tíu daga barni bjargað úr rústunum Björgunarsveitir í Tyrklandi björguðu í dag tíu daga gömlu barni og móður þess úr rústum húsnæðis sem hrundi í jarðskjálftunum miklu í vikunni. Erlent 10.2.2023 14:12
Rúmlega tuttugu og eitt þúsund látnir Opinberar tölur yfir dauðsföll í jarðskjálftunum í Tyrklandi og Sýrlandi standa nú í 21.719 og fjölgaði í hópi látinna um 668 í nótt. Erlent 10.2.2023 06:52
Íslenski hópurinn tekur til hendinni í Tyrklandi Hópur björgunarsveitarmanna frá Íslandi lenti í Tyrklandi í gærnótt. Hópurinn er nú búinn að koma sér fyrir við Hatay Expo svæðið í Antakya borg, þar sem yfirstjórn aðgerða á svæðinu er. Erlent 9.2.2023 10:57
Litlar líkur á að fleiri finnist á lífi Tala látinna í Tyrklandi og í Sýrlandi eftir jarðskjálftana sem þar riðu yfir nálgast nú sextán þúsund manns óðfluga. Erlent 9.2.2023 07:15
Stjórnvöld harðlega gagnrýnd fyrir hæg viðbrögð Tyrknesk stjórnvöld hafa verið harðlega gagnrýnd fyrir að bregðast of hægt við afleiðingum jarðskjálftanna á mánudag. Nú er talið að yfir ellefu þúsund hafi farist í skjálftunum. Íslenskt björgunarfólk er komið á hamfarasvæðið í Tyrklandi. Við vörum við myndefni í þessari frétt. Erlent 8.2.2023 19:00
Umboðsmaðurinn segir Atsu ófundinn Umboðsmaður ganverska fótboltamannsins Christian Atsu segir að hann hafi ekki enn fundist á lífi. Fótbolti 8.2.2023 14:51