Guðríður Haraldsdóttir kveður Birtíng Guðríður Haraldsdóttir blaðamaður og prófarkalesari lauk sínum síðasta vinnudegi hjá Birtíngi í dag, hún segist kveðja með trega og þakklæti eftir tuttugu og tvö ár hjá fyrirtækinu. Innlent 29. júlí 2022 19:15
Björg tekur við af Flosa hjá Starfsgreinasambandinu Björg Bjarnadóttir hefur verið ráðin nýr framkvæmdastjóri Starfsgreinasambands Íslands og mun hefja störf 1. október næstkomandi. Alls bárust þrettán umsóknir um stöðu framkvmædastjóra. Björg tekur við starfinu af Flosa Eiríkssyni, sem hefur sinnt starfinu frá árinu 2018. Innlent 27. júlí 2022 15:53
Sesselja Lind ráðin hjúkrunardeildarstjóri Sesselja Lind Magnúsdóttir hefur verið ráðin hjúkrunardeildarstjóri á útskriftardeild aldraðra L2 á Landakoti. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Landspítala. Innlent 27. júlí 2022 11:03
Helga ráðin hjúkrunardeildarstjóri á göngu- og samfélagsdeild á Landakoti Helga Atladóttir hefur verið ráðin hjúkrunardeildarstjóri á göngu- og samfélagsdeild á Landakoti. Á deildinni fer fram greining, meðferð, ráðgjöf, eftirlit og vísindarannsóknir en eldra fólki sem glímir við langvarandi heilsubrest og versnandi færni er vísað á deildina. Innlent 26. júlí 2022 13:35
Örn Arnar nýr sparisjóðsstjóri Suður-Þingeyinga Örn Arnar Óskarsson hefur verið ráðinn sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Suður-Þingeyinga. Örn þekkir vel til á starfssvæðinu en hann ólst upp á Kópaskeri. Viðskipti innlent 25. júlí 2022 15:03
Heiðar selur allt í Sýn fyrir 2,2 milljarða og hættir sem forstjóri Heiðar Guðjónsson, forstjóri Sýnar, hefur selt allan 12,7 prósenta hlut sinn í fjarskipta- og fjölmiðlafyrirtækinu fyrir tæplega 2,2 milljarða króna. Samhliða sölunni mun Heiðar láta af störfum sem forstjóri félagsins um mánaðarmótin. Innherji 25. júlí 2022 09:40
Heiðar hættir sem forstjóri Sýnar Heiðar Guðjónsson hefur sagt upp sem forstjóri Sýnar og mun uppsögnin taka gildi fyrir lok þessa mánaðar. Heiðar gekk um helgina frá sölu á öllum 12,72 prósenta hlut sínum í fyrirtækinu. Þetta kemur fram í tilkynningum til Kauphallar. Viðskipti innlent 25. júlí 2022 09:34
Framkvæmdastjóri Volkswagen Group hættir Herbert Diess, framkvæmdastjóri Volkswagen samsteypunnar hefur sagt starfi sínu lausu og mun láta af því 1. september næstkomandi. Næsti framkvæmdastjóri Volkswagen samsteypunnar verður Oliver Blume, núverandi framkvæmdastjóri Porsche. Bílar 23. júlí 2022 07:00
Magnús Kr. Ingason tekur við sem forstjóri Festi Stjórn Festi hefur ráðið Magnús Kr. Ingason, framkvæmdastjóra fjármálasviðs Festi, sem forstjóra félagsins frá næstu mánaðarmótum, þar til nýr forstjóri hefur verið ráðinn. Viðskipti innlent 22. júlí 2022 09:12
Þórdís Sif Sigurðardóttir nýr bæjarstjóri Vesturbyggðar Tillaga um ráðningu Þórdísar Sifjar Sigurðardóttur sem bæjarstjóra Vesturbyggðar verður lögð fram á næsta fundi bæjarráðs Vesturbyggðar. Ráðningin tekur formlega gildi þegar hún hefur verið staðfest á fundinum. Innlent 21. júlí 2022 15:30
Óskar ráðinn framkvæmdastjóri Smyril line Óskar Sveinn Friðriksson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Smyril Line Cargo á Íslandi og tekur við starfinu af Lindu Gunnlaugsdóttir. Viðskipti innlent 20. júlí 2022 09:13
Erna og Soffía ráðnar til Matvælastofnunar Erna Reynisdóttir og Soffía Sveinsdóttir hafa verið ráðnar sem sviðsstjórar hjá Matvælastofnun (MAST). Erna tekur við hjá sviði upplýsingatækni og reksturs og Soffía hjá sviði vettvangseftirlits. Innlent 19. júlí 2022 10:37
Sigríður ráðin bæjarstjóri Fjallabyggðar Sigríður Ingvarsdóttir hefur verið ráðin bæjarstjóri Fjallabyggðar. Innlent 15. júlí 2022 16:43
Geir Sveinsson nýr bæjarstjóri í Hveragerði Meirihlutinn í Hveragerðisbæ mun leggja fram tillögu um að Geir Sveinsson verði ráðinn sem bæjarstjóri á næsta bæjarstjórnarfundi. Geir mun hefja störf í upphafi ágústmánaðar. Innlent 14. júlí 2022 20:57
Kolfinna Jóhannesdóttir nýr skólameistari Kvennaskólans Kolfinna Jóhannesdóttir er nýr skólameistari Kvennaskólans. Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra,skipaði Kolfinnu Jóhannesdóttur í embætti skólameistara Kvennaskólans í Reykjavík til fimm ára frá 1. ágúst. Innlent 13. júlí 2022 09:45
Sólveig Guðrún er nýr rektor MR Sólveig Guðrún Hannesdóttir er nýr rektor Menntaskólans í Reykjavík. Sólveig var skipuð í embætti rektors af Ásmundi Einari Daðasyni, mennta- og barnamálaráðherra, til fimm ára frá 1. ágúst. Innlent 13. júlí 2022 08:36
Karl Frímannsson nýr skólameistari MA Karl Frímannsson er nýr skólameistari Menntaskólans á Akureyri. Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra skipaði Karl Frímannsson í embætti skólameistara til fimm ára frá 1. ágúst. Innlent 13. júlí 2022 08:23
Rebekka og Karen til liðs við Hér & Nú Rebekka Líf Albertsdóttir og Karen Sigurlaugsdóttir hafa slegist í hóp starfsmanna Hér & Nú, samskiptastofu. Gengið var frá ráðningu þeirra fyrir skemmstu. Rebekka Líf bætist í teymi grafískra hönnuða fyrirtækisins og Karen mun gegna nýrri stöðu birtingaráðgjafa. Viðskipti innlent 12. júlí 2022 13:24
Guðný Arna frá Kviku til Össurar Guðný Arna Sveinsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri fjármálasviðs Össurar og mun hefja störf í september. Viðskipti innlent 11. júlí 2022 11:29
Regína verður bæjarstjóri Mosfellsbæjar Regína Ásvaldsdóttir hefur verið ráðin bæjarstjóri í Mosfellsbæ. Hún mun gegna starfinu til 2026 en hún er fyrir sviðsstjóri velferðarsviðs Reykjavíkurborgar og hefur unnið þar í fimm ár. Fyrir það var hún bæjarstjóri Akraneskaupstaðar. Innlent 11. júlí 2022 10:26
Katrín nýr sveitarstjóri í Norðurþingi Katrín Sigurjónsdóttir hefur verið ráðin í starf sveitarstjóra Norðurþings. Alls voru sautján sem sóttu um stöðuna. Innlent 8. júlí 2022 09:02
Sigurður Jökull ráðinn markaðsstjóri Faxaflóahafna Faxaflóahafnir sf. hafa ráðið Sigurð Jökul Ólafsson í stöðu markaðsstjóra og tók hann við starfinu þann 1. júlí síðastliðinn. Viðskipti innlent 7. júlí 2022 16:25
Hákon ráðinn nýr þjóðgarðsvörður Hákon Ásgeirsson hefur verið ráðinn þjóðgarðsvörður í Þjóðgarðinn Snæfellsjökul. Innlent 7. júlí 2022 06:52
Iða Marsibil nýr sveitarstjóri Grímsnes- og Grafningshrepps Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkti samhljóða á fundi sínum í morgun að ráða Iðu Marsibil Jónsdóttur í starf sveitarstjóra. Innlent 6. júlí 2022 11:57
Arnar nýr framkvæmdastjóri Sæplasts í Evrópu Arnar Már Snorrason hefur verið ráðinn sem framkvæmdastjóri Sæplasts í Evrópu með aðsetur á Dalvík, en Arnar tekur við starfinu af Daða Valdimarssyni sem mun færa sig í starf forstjóra Rotovia, nýstofnaðs móðurfélags Sæplasts. Undir Sæplasti í Evrópu tilheyrir starfsemi félagsins á Íslandi, Spáni og Noregi ásamt söluskrifstofum félagsins í Evrópu, Afríku og Asíu. Viðskipti innlent 6. júlí 2022 09:13
Unnur Valborg ráðin sveitarstjóri í Húnaþingi vestra Sveitarstjórn Húnaþings vestra hefur ráðið Unni Valborgu Hilmarsdóttur í starf sveitarstjóra til næstu fjögurra ára. Innlent 5. júlí 2022 13:40
Margrét ráðin aðstoðardagskrárstjóri RÚV Margrét Jónasdóttir hefur verið ráðin aðstoðardagskrárstjóri RÚV. Hún mun hafa faglega umsjón með innkaupum og framleiðslu á heimildaefni. Jafnframt mun hún leiða, í samstarfi við dagskrárstjóra,hugmyndavinnu, þróun, framleiðslu, kaup, stefnumótun, gæðamat og gæðeftirlit með öllu heimildaefni fyrir sjónvarp. Viðskipti innlent 5. júlí 2022 12:55
Innri endurskoðandi Kviku ráðinn yfir til Arion banka Anna Sif Jónsdóttir, sem hefur verið innri endurskoðandi Kviku banka í nærri áratug, hefur söðlað um og ráðið sig yfir til Arion banka. Þar mun hún gegna starfi forstöðumanns innri endurskoðunar Arion banka, samkvæmt upplýsingum Innherja. Klinkið 4. júlí 2022 19:49
Fjögur ráðin til Orkustofnunar Orkustofnun hefur gengið frá frá ráðningum í fjórar stöður til að efla miðlun og vinnslu gagna, en um er að ræða tvær stöður sérfræðinga í greiningum og gögnum, auk ráðningu nýs þróunarstjóra gagna og verkefnastjóra Orkuseturs. Viðskipti innlent 4. júlí 2022 08:44
Flosi hættir hjá Starfsgreinasambandinu Flosi Eiríksson, sem hefur verið framkvæmdastjóri Starfsgreinasambands Íslands (SGS) frá árinu 2018, lætur af störfum hjá samtökunum skömmu áður en formlegar viðræður við Samtök atvinnulífsins um nýja kjarasamninga á almennum vinnumarkaði hefjast en þeir verða lausir 1. nóvember næstkomandi. Innherji 3. júlí 2022 12:27