Norðlæg átt og úrkoma á víð á dreif Veðurstofan spáir norðlægri átt, þremur til átta metrum á sekúndu, og skýjað að mestu með dálítilli úrkomu á víð og dreif. Veður 20. júní 2022 07:15
Allt að 22 stiga hiti í dag Í dag er spáð suðvestanátt, átta til fimmtán metrum á sekúndu, hvassast norðvestanlands. Gert er ráð fyrir rigningu með köflum í flestum landshlutum. Byrjar fyrst að rigna vestantil fyrir hádegi en ekki fyrr en síðdegis austanlands. Hiti tíu til 22 stig, en hlýjast fyrir austan. Veður 19. júní 2022 07:22
Milljónir manna heimilislaus eftir gríðarleg flóð Milljónir manna eru heimilislaus og 18 látnir eftir gríðarmikil flóð í Bangladess og norðausturhluta Indlands. Herir beggja landa hafa verið kallaðir út til að hjálpa fólki sem er strandað vegna flóðanna. Búist er við því að rigningin haldi áfram út helgina. Erlent 18. júní 2022 23:26
Gular viðvaranir í gildi vegna hvassviðris og lítið ferðaveður Gular veðurviðvaranir eru í gildi á Suðurlandi, Austfjörðum og Suðausturlandi vegna hvassviðris. Ekkert ferðaveður er fyrir ökutæki og tengivagna sem taka á sig mikinn vind. Veður 18. júní 2022 08:09
Gul veðurviðvörun á Suðurlandi og Austfjörðum og blautur þjóðhátíðardagur Gul veðurviðvörun tekur gildi fyrir Suðurland, Suðausturland og Austfirði í kvöld og verður í gildi þar til annað kvöld. Búast má við norðvestan hvassviðri eða stormi á svæðinu og varað er við óþarfa ferðalögum. Veður 17. júní 2022 07:40
Gular viðvaranir á 17. júní Veðurstofan hefur gefið út gular viðvaranir fyrir Suðurland, Suðausturland og Austfirði vegna hvassviðris og taka þær gildi annað kvöld og eru í tildi fram á morgun eða kvöld á laugardag. Veður 16. júní 2022 15:19
Lægð nálgast úr suðri og fer að rigna í nótt Veðurstofan spáir sunnan golu eða kalda og skúrum í dag, en yfirleitt bjartviðri á norðaustanverðu landinu. Veður 16. júní 2022 07:15
Suðlæg átt og hiti að átján stigum norðaustantil Veðurstofan spáir suðlægri átt, þremur til tíu metrum á sekúndu, með skúrum í dag, einkum sunnan- og vestanlands. Veður 15. júní 2022 07:16
„Ekkert sérstakt veður“ á þjóðhátíðardaginn Útlit er fyrir blautt veður býsna víða á landinu á þjóðhátíðardaginn 17. júní sem haldinn verður hátíðlegur næsta föstudag. Óli Þór Árnason, veðurfræðingur hjá Veðurstofunni segir allt benda til þess að ekkert sérstakt veður muni leika við landsmenn á föstudag. Innlent 14. júní 2022 19:23
Ekki útlit fyrir sólbjartan þjóðhátíðardag Í dag er spáð suðlægri átt, fimm til tíu metrum á sekúndu og má gera ráð fyrir að það verði skýjað með köflum og skúrir, einkum sunnan- og vestanlands. Þurrt að kalla norðvestantil framan af degi en þar einnig stöku skúrir seinnipartinn. Veður 14. júní 2022 08:26
Blíðviðri og ekkert lúsmý Sólin kemur til með að leika við Austfirðinga næstu dagana ef veðurspár ganga eftir. Blíðu á Austurlandi fylgja jafnan margir gestir á tjaldsvæðum á svæðinu og er því undirbúningur á fullu á tjaldsvæðunum í Atlavík og Höfðavík. Innlent 13. júní 2022 10:44
Væta um landið sunnan- og vestanvert en þurrt norðaustantil Veðurstofan spáir suðlægum áttum og vætu um landið sunnan- og vestanvert, en þurrt norðaustantil. Veður 13. júní 2022 07:13
Von á viðsnúningi í veðri Í dag stefnir í sæmilegasta veður til að halda upp á sjómannadaginn. Veðrið verður heldur skárra sunnanlands en norðan. Þetta mun þó snúast við á morgun. Innlent 12. júní 2022 07:37
Allt að átján stiga hiti í dag Veðrinu verður nokkuð misskipt í dag, ef marka má veðurspá. Spáð er svölu verði fyrir norðan en allt að átján stiga hita sunnan heiða. Veður 11. júní 2022 07:35
Leifar af hvassviðri gærdagsins enn með suðurströnd landsins Leifar af hvassviðri gærdagsins eru enn með suðurströnd landsins og eru gular viðvaranir í gildi þar fram á eftirmiðdag, til klukkan 14 á Suðurlandi og klukkan 16 á Suðausturlandi. Veður 10. júní 2022 07:15
Mælt gegn ferðum með tengivagna á Suðurlandi Veðurfræðingur mælir gegn ferðalögum með tengivagna í hvassviðrinu á Suðurlandi næsta rúma sólarhringinn þar sem gul viðvörun er í gildi. Mótstjóri TM-mótsins sem stendur yfir í Eyjum hefur litlar áhyggjur af rokinu og segir Eyjamenn hafa séð það verra. Innlent 9. júní 2022 11:51
Gular viðvaranir í gildi til miðnættis Gular veðurviðvaranir hafa verið gefnar út fyrir Suður- og Suðausturland í dag sem gilda til miðnættis. Ástæðan er hvassviðri og varhugavert ferðaveður fyrir ökutæki og tengivagna sem taka á sig mikinn vind. Veður 9. júní 2022 07:06
Gular viðvaranir á suður- og suðausturlandi á morgun Veðurstofan hefur gefið út gular viðvaranir á suður- og suðausturlandi á morgun, fimmtudag. Innlent 8. júní 2022 13:53
Víða skúrir á landinu eftir hádegi Veðurstofan gerir ráð fyrir austlægri eða breytilegri átt í dag, yfirleitt þremur til tíu metrum á sekúndu. Sums staðar verður þoka við norður- og austurströndina, en víða skúrir á landinu eftir hádegi. Veður 8. júní 2022 07:18
Allvíða síðdegisskúrir og hiti að sautján stigum Veðurstofan spáir austlægri eða breytilegri átt átt í dag, yfirleitt þremur til tíu metrum á sekúndu, síðdegisskúrum allvíða. Veður 7. júní 2022 07:19
Hlýjast á Austurlandi í dag Von er á ágætis verðri í dag en samkvæmt spá Veðurstofunnar verður hlýjast á Austurlandi. Innlent 5. júní 2022 07:50
Sólríkt víðast hvar á landinu í dag Fínasta veður er í kortunum í dag og sólríkt víða á landinu. Vestan og norðvestan 3-8 í dag og léttir víða til, en 5-10 og lítilsháttar væta á Norðausturlandi fyrir hádegi. Hiti frá 6 stigum við norðurströndina, upp í 16 stig á Suðausturlandi. Innlent 4. júní 2022 08:00
Snjór og varasöm hálka á Öxnadalsheiði í nótt Nú er regnsvæði á leið yfir landið frá vestri til austurs og því rignir um tíma í dag í flestum landshlutum. Í kvöld kemur kalt loft úr vestri og fer hratt yfir. Á Öxnadalsheiði og eflaust víðar á fjallvegum norðanlands gerir seint í kvöld og nótt snjó eða krapa með varasamri hálku. Veður 3. júní 2022 07:30
Hiti um tíu stig, víða skýjað og dálítil væta Útlit er fyrir suðvestan golu á landinu í dag. Víða verður skýjað veður og dálítil væta öðru hvoru, hitinn um eða undir tíu stigum. Veður 2. júní 2022 07:30
Víða vætusamt og svalt veður Veðurstofan reiknar með suðlægum áttum í dag þar sem víða verður vætusamt og fremur svalt veður. Þó verður úrkomulítið og heldur hlýrra norðaustanlands. Veður 1. júní 2022 07:27
Sökk vegna fannfergis í miklu snjóveðri Talið er að báturinn Sigursæll KÓ 8 hafi sokkið í Hafnarfjarðarhöfn í febrúar vegna mikils fannfergis. Innlent 31. maí 2022 14:40
Sólskinsveðrinu lokið í bili og vætutíð framundan Nú er sólskinsveðrinu lokið, í bili að minnsta kosti, og vætutíð framundan sunnan- og vestanlands. Veður 31. maí 2022 07:13
Þyrlan send til Eyja vegna þoku í Reykjavík Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var kölluð út í nótt til að annast sjúkraflutning frá Vestmannaeyjum þar sem flugvél gat ekki sinnt útkallinu vegna þokunnar sem lá yfir Reykjavík í nótt. Innlent 30. maí 2022 23:13
Blíðviðrið senn úr sögunni Eftir langan blíðviðriskafla virðist veður á höfuðborgarsvæðinu ætla að versna á næstu dögum. Veður 30. maí 2022 19:22
Hiti að átján stigum og líkur á þokulofti víða Veðurstofan gerir ráð fyrir hægri breytilegri átt eða hafgolu í dag og léttskýjuðu. Allvíða séu líkur á þokulofti við suðvestur- og vesturströndina, og einnig austurströndina þegar líður á daginn. Veður 30. maí 2022 07:32