Verður fjórði heilbrigðisráðherrann á einu ári Hjartalæknirinn Marcelo Queiroga mun taka við embætti heilbrigðisráðherra Brasilíu og verður hann sá fjórði til að gegna embættinu á einu ári. Ekki hafa jafnmargir látist frá upphafi faraldursins og í síðustu viku Erlent 16. mars 2021 07:33
Hittast á fundi og ræða bóluefni AstraZeneca Sérfræðingar Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar ætla að hittast í dag til að ræða bóluefnið frá Oxford-AstraZeneca, sem mörg Evrópuríki hafa ákveðið að hætta að nota tímabundið vegna fregna um að fólk hafi verið að fá blóðtappa í kjölfar sprautunnar. Erlent 16. mars 2021 07:04
Ræða möguleikann á annarri ferðagjöf Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, segir í samtali við Fréttablaðið í dag að til greina komi að gefa landsmönnum aðra ferðagjöf í sumar. Innlent 16. mars 2021 07:01
Kynna hugsanleg næstu skref á fimmtudag Sérfræðinganefnd Lyfjastofnunar Evrópu (EMA) mun á fimmtudag ræða niðurstöður athugunar á mögulegum aukaverkunum bóluefnis AstraZeneca við Covid-19 og ræða hugsanleg næstu skref. Erlent 15. mars 2021 19:52
Öll plön virkjuð og klár fyrir fermingarnar Mikil eftirvænting er fyrir fermingum sem munu að óbreyttu fara fram á næstu vikum. Prestarnir eru ekki síður spenntir en þeir ætla að gera allt sem í þeirra valdi stendur til þess að koma krökkunum í fullorðinna manna tölu. Þeir eru tilbúnir með plan B, C og jafnvel D. Innlent 15. mars 2021 19:30
Þriðja bylgjan skellur á Noregi á ofsahraða Yfirvöld í Osló kynntu í kvöld hörðustu takmarkanirnar á svæðinu frá upphafi kórónuveirufaraldursins. Íslensk kona í Osló segir óraunverulegt að þriðja bylgja faraldursins skelli nú á Norðmönnum á ofsahraða. Erlent 15. mars 2021 19:30
Bætist í hóp þeirra sem hætta tímabundið notkun bóluefnis AstraZeneca Þýskaland, Frakkland, Ítalía og Holland bættust í dag við hóp þeirra landa sem hafa ákveðið að hætta tímabundið notkun á bóluefni AstraZeneca vegna á fjórða tug tilkynninga sem hafa borist um blóðtappa eftir notkun efnisins í Evrópu í síðustu viku. Erlent 15. mars 2021 17:11
Þakkar Íslendingum fyrir ómetanlegan stuðning eftir andlát unnustans Unnusta ástralsks ferðamanns, sem lést á Húsavík í mars í fyrra eftir að hafa smitast af Covid-19, færir Íslendingum kærar þakkir fyrir ómetanlegan stuðning meðan á dvöl hennar stóð. Hún segist jafnframt staðráðin í því að snúa aftur til Íslands og klára fríið sem unnusta hennar auðnaðist ekki að ljúka. Innlent 15. mars 2021 15:15
Tilslakanir ekki í kortunum: „Við njótum mjög mikils frjálsræðis núna” Tilslakanir á sóttvarnaaðgerðum innanlands eru ekki í kortunum, að sögn Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis. Þórólfur hefur skilað heilbrigðisráðherra tillögum sínum um næstu aðgerðir en vill ekki gefa upp hvað nákvæmlega felst í þeim fyrir utan það að litlar breytingar verði innanlands. Innlent 15. mars 2021 12:22
Einn greindist innanlands í gær en enginn dagana á undan Einn greindist með kórónuveiruna í gær 14. mars og var sá í sóttkví. Dagana tvo á undan, 12. og 13. mars, greindist enginn með veiruna. Þetta kemur fram í nýuppfærðum tölum eftir helgina á Covid.is. Innlent 15. mars 2021 10:55
Þýskir gjörgæslulæknar vilja hertar sóttvarnaaðgerðir Yfirmaður samtaka gjörgæslulækna í Þýskalandi kallaði í morgun eftir því að samkomubanni yrði aftur komið á í landinu. Þannig væri hægt að koma í veg fyrir að þriðja bylgja faraldurs nýju kórónuveirunnar verði of öflug þar í landi. Erlent 15. mars 2021 10:37
„Hljómar undarlega“ að taka aðeins Schengen-vottorð gild Sóttvarnalæknir telur það skjóta skökku við að taka aðeins gild bólusetningar- og mótefnavottorð frá Schengen-ríkjum á landamærum. Hann bendir á að stjórnvöld ráði þessum málum. Innlent 15. mars 2021 10:14
Þórólfur hefur skilað minnisblaði til ráðherra Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, hefur skilað tillögum að nýjum sóttvarnareglum til Svandísar Svavarsdóttur, heilbrigðisráðherra. Núverandi reglugerð gildir til og með 17. mars og nýjar reglur eiga því að taka gildi á fimmtudag. Innlent 15. mars 2021 07:59
Hollendingar gera hlé á notkun bóluefnis AstraZeneca Hollendingar hafa ákveðið að fara sömu leið og fleiri þjóðir, Íslendingar þar á meðal, og gera hlé á notkun bólefnis frá AstraZeneca gegn kórónuveirunni. Erlent 15. mars 2021 06:42
Beittu vatnsþrýstidælum á mótmælendur Lögreglan í Hollandi beitti vatnsþrýstidælum á mótmælendur ríkisstjórnarinnar, og sóttvarnaaðgerðum þeirra, í almenningsgarði í Haag í dag. Um tvö þúsund manns voru saman komin í miðborginni til að mótmæla sóttvarnaaðgerðum og öðrum stefnumálum ríkisstjórnarinnar. Erlent 14. mars 2021 23:13
Covid-tölur gærdagsins „gleðilegar“ Tölur um fjölda þeirra sem greindust með kórónuveiruna hér á landi eru „gleðilegar“ að sögn samskiptastjóra almannavarna. Almannavarnir veita ekki upplýsingar um tölur varðandi framgang kórónuveirufaraldursins hér á landi um helgar. Innlent 14. mars 2021 11:55
Ítalir stefna á að hraða bólusetningum til muna Ítölsk stjórnvöld hyggjast vera búin að bólusetja minnst áttatíu prósent ítölsku þjóðarinnar við kórónuveirunni fyrir septemberlok á þessu ári. Stjórnvöld hafa mátt þola gagnrýni fyrir hægan gang bólusetninga í landinu, sem er eitt þeirra Evrópuríkja sem verst hefur orðið fyrir kórónuveirufaraldrinum. Erlent 14. mars 2021 09:39
Segja aðgerðir lögreglu á minningarsamkomu hafa verið nauðsynlegar Aðstoðarlögreglustjóri lögreglunnar í London segir að aðgerðir lögreglu gegn konum sem söfnuðust saman til að minnast ungrar konu sem var myrt í borginni hafi verið nauðsynlegar. Borgarstjóri London og innanríkisráðherra Bretlands eru á meðal þeirra sem hafa krafið lögregluna skýringa á framgöngu hennar gegn konunum. Erlent 14. mars 2021 08:40
Enginn greindist í gær og á annað hundrað losna úr sóttkví Enginn greindist með kórónuveiruna innanlands í gær, að því er fram kemur í bráðabirgðatölum sem fréttastofa hefur fengið frá almannavörnum. Innlent 13. mars 2021 10:56
Ítalir herða tökin aftur af ótta við nýja bylgju faraldursins Verslunum, veitingastöðum og skólum verður lokað víðast hver á Ítalíu á mánudag vegna fjölgunar smitaðra undanfarna daga. Mario Draghi, forsætisráðherra, varar við því að ný bylgja kórónuveirufaraldursins sé í uppsiglingu. Erlent 13. mars 2021 08:32
Sóttvarnarlög brotin á veitingastað í Kópavogi Lögreglumenn höfðu afskipti af veitingastað í Kópavogi vegna brota á lögum um sóttvarnir og veitingahús í nótt. Forráðamenn staðarins virtu ekki reglur um lokunartíma og þá var lítið um sóttvarnir á staðnum. Innlent 13. mars 2021 07:54
Skapa sjö þúsund ný störf með fimm milljarða innspýtingu Stjórnvöld hyggjast verja allt að fimm milljörðum til að skapa sjö þúsund ný tímabundin störf hér á landi. Félagsmálaráðherra segir mikilvægt að koma fólki í vinnu og virkja atvinnulíf til að skapa ný tækifæri. Innlent 12. mars 2021 20:08
Börn verði skimuð á landamærunum Sóttvarnalæknir hyggst leggja til að öll börn þurfi að undirgangast skimun við Covid-19 við komu þeirra til landsins. Hann mun skila af sér tillögum um næstu sóttvarnaaðgerðir á næstu dögum. Innlent 12. mars 2021 19:16
Biden til þjóðarinnar: „Ég þarfnast ykkar“ Joe Biden Bandaríkjaforseti hefur vakið mikla athygli fyrir ávarp til bandarísku þjóðarinnar í gær, þar sem umfjöllunarefnið var kórónuveirufaraldurinn. Keppast menn nú við að bera saman nýjan tón Biden við það stef sem hefur glumið síðustu ár. Erlent 12. mars 2021 16:55
WHO: Ekki ástæða til að hætta að nota bóluefni AstraZeneca Alþjóðaheilbrigðisstofnunin (WHO) telur ekki ástæðu fyrir lönd að hætta að nota bóluefni AstraZeneca gegn kórónuveirunni. Ekkert bendi til þess að bóluefnið geti valdið blóðtappa. Ísland er á meðal þeirra ríkja sem hafa stöðvað bólusetningar með efninu tímabundið í öryggisskyni. Erlent 12. mars 2021 16:48
Bólusetningaráætlun færist aftur um mánuð vegna seinkunar hjá AstraZeneca Tafir verða á afhendingu bóluefnis frá AstraZeneca til allra landa í samstarfi Evrópuþjóða um kaup á bólefni, þar á meðal Íslands. Vegna þessa er gert ráð fyrir því að tímaáætlanir um bólusetningar færist aftur um um það bil fjórar vikur. Innlent 12. mars 2021 15:39
Ný herferð um sanngjarna dreifingu bóluefna Herferð Sameinuðu þjóðanna undirstrikar þörfina fyrir alþjóðlega samstöðu um jafnan aðgang allra að bóluefnum. Heimsmarkmiðin 12. mars 2021 12:32
94 prósent hafa þegið eða segjast munu þiggja bólusetningu 94 prósent landsmanna hafa þegið eða hyggjast þiggja bólusetningu gegn kórónuveirunni COVID-19. Af þeim sem höfðu eða hugðust afþakka bólusetningu voru fimm prósent sem sögðust afþakka bólusetningu með bóluefni AstraZeneca ef þeim yrði boðin bólusetning með bóluefninu. Innlent 12. mars 2021 11:04
Búið að útfæra 970 milljóna króna greiðslur til bænda vegna Covid-19 970 milljónir króna verða greiddar út til sauðfjár- og nautgripabænda til að mæta áhrifum heimsfaraldurs Covid-19. Veiting fjármunanna var samþykkt í fjárlögum ársins 2021 en Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur nú lokið við útfærslu á ráðstöfun þeirra. Innlent 12. mars 2021 10:43
Enginn greindist innanlands í gær Enginn greindist með kórónuveiruna innanlands í gær. Tveir greindust á landamærunum í seinni landamæraskimun. Innlent 12. mars 2021 10:41