Matthías frá Arion banka til Héðins Matthías Stephensen hefur verið ráðinn fjármálastjóri Héðins. Hann kemur frá Arion banka þar sem hann hefur starað frá 2011, síðast sem forstöðumaður rekstrar og sölu á viðskiptabankasviði, ásamt því að vera innlánastjóri bankans. Viðskipti innlent 8. september 2022 10:09
Akta og Stapi keyptu fyrir um tvo milljarða í útboði Kaldalóns Fjórir fjárfestar, lífeyrissjóðir og sjóðastýringarfyrirtæki, keyptu mikinn meirihluta allra þeirra hluta sem voru seldir í lokuðu útboði Kaldalóns undir lok síðasta mánaðar þegar fasteignafélagið sótti sér nýtt hlutafé að fjárhæð samtals fjögurra milljarða króna. Innherji 8. september 2022 09:25
Ásta ráðin forstjóri Festi Ásta Sigríður Fjeldsted hefur verið ráðin forstjóri Festi og tekur við starfinu frá og með deginum í dag. Hún hefur verið framkvæmdastjóri Krónunnar frá árinu 2020 og mun sinna því starfi samhliða forstjórastöðunni fyrst um sinn. Viðskipti innlent 7. september 2022 17:35
Rúmlega hundrað þúsund farþegar flugu með Play Flugfélagið Play flutti tæplega 109 þúsund farþega í ágúst. Um er að ræða sambærilegan fjölda og í júlí en félagið segist hafa styrkt stöðu sína á mörkuðum með afgerandi hætti í sumar. Viðskipti innlent 7. september 2022 15:39
Íslenskir gullgrafarar hafa fundið tíu tonn af gulli Íslenskir gullgrafarar í Grænlandi hafa staðfest mun meira gullmagn í námu sinni en áður hafði fundist. Heildarsöluverðmæti gullsins er nú áttatíu milljarðar króna en forstjórinn er viss um að mun meira gull leynist í námunni. Viðskipti innlent 7. september 2022 11:53
Júlía tekur við stöðunni af Margréti hjá Ölgerðinni Júlía Eyfjörð Jónsdóttir hefur verið ráðin nýr framkvæmdastjóri framleiðslu- og tæknisviðs Ölgerðarinnar. Viðskipti innlent 7. september 2022 09:24
Margrét hættir hjá Ölgerðinni Margrét Arnardóttir hefur óskað að láta af störfum sem framkvæmdastjóri framleiðslu- og tæknisviðs Ölgerðarinnar og samið um starfslok sín. Viðskipti innlent 7. september 2022 07:48
Krónan gefur eftir samhliða auknum gjaldeyriskaupum lífeyrissjóða Eftir nánast samfellt styrkingarskeið um langt skeið hefur gengi krónunnar gefið talsvert eftir yfir sumarmánuðina og lækkað um rúmlega fimm prósent. Auknar erlendar fjárfestingar lífeyrissjóðanna eru meðal annars taldar skýra veikinguna og þá hefur gjaldeyrismiðlun Landsbankans staðið að talsverðum gjaldeyriskaupum fyrir viðskiptavini á síðustu vikum, að sögn sérfræðinga á markaði. Innherji 6. september 2022 18:54
Hildur segir sig úr stjórn til að fyrirbyggja hagsmunaárekstra Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn, hefur fært sig úr stjórn Orkuveitu Reykjavíkur yfir í stjórn Faxaflóahafna. Ástæðan er kjör eiginmanns hennar í stjórn Sýnar og mögulegir hagsmunaárekstrar sem því fylgja. Innlent 6. september 2022 18:41
Rúmlega hálf milljón farþega ferðaðist með Icelandair í ágúst Alls flutti Icelandair 514 þúsund farþega í ágústmánuði en sætanýting var 89 prósent. Farþegafjöldinn tæplega tvöfaldaðist en í ágúst í fyrra voru þeir 264 þúsund talsins. Viðskipti innlent 6. september 2022 16:09
Hlutdeildarfélag Marels komið í greiðsluþrot Stranda Prolog, norskur framleiðandi hátæknilausna fyrir laxaiðnað sem Marel á 40 prósenta hlut í, hefur lýst sig gjaldþrota, samkvæmt frétt á heimasíðu íslenska tæknifyrirtækisins. Innherji 6. september 2022 16:06
Stjórnsýsluúttekt á lokametrunum sem muni „vekja athygli“ Úttekt ríkisendurskoðunar á sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka er á lokametrunum og styttist mjög í að hún fari í umsagnarferli. Guðmundur Björgvin Helgason, ríkisendurskoðandi, treysti sér ekki til að nefna dagsetningu í þessu samhengi en sagði ljóst að úttektin verði tilbúin fyrir lok þessa mánaðar. Innlent 6. september 2022 15:37
Innviðakaup Ljósleiðarans kunna að vekja blendnar tilfinningar hjá Ardian Sýn og Ljósleiðarinn tilkynntu í gær um að náðst hefði samkomulag um einkaviðræður sem lúta að sölu á stofnneti Sýnar til Ljósleiðarans. Samið hefur verið um kaupverð að fjárhæð 3 milljarðar króna og gert er ráð fyrir 10 ára þjónustusamningi á milli fyrirtækjanna. Klinkið 6. september 2022 14:21
Eimskip fær ekki að áfrýja til Hæstaréttar Hæstiréttur hefur hafnað áfrýjunarbeiðni Eimskipafélags Íslands í CFC-málinu svokallaða. Félagið tilkynnti í gær að málinu væri þar með lokið og að niðurstaðan hefði engin áhrif til gjalda eða greiðslu. Innlent 6. september 2022 07:38
Ljósleiðarinn kaupir stofnnet Sýnar á þrjá milljarða króna Sýn og Ljósleiðarinn undirrituðu í dag samkomulag einkaviðræður og helstu skilmála samninga sem lúta annars vegar að sölu á stofnneti Sýnar til Ljósleiðarans og hins vegar að þjónustusamningi milli aðila til tíu ára. Kaupverðið er þrír milljarðar króna. Viðskipti innlent 5. september 2022 19:37
Halda sínu striki og stefna á að leysa úr athugasemdum FDA Íslenska líftæknifyrirtækið Alvotech tilkynnti í dag um samskipti við Matvæla- og lyfjaeftirlit Bandaríkjanna, FDA, sem varða úttekt á framleiðsluaðstöðu fyrirtækisins í Reykjavík, í kjölfar leyfisumsóknar Alvotech fyrir líftæknilyfjahliðstæðuna AVT02. Viðskipti innlent 5. september 2022 16:35
Sjóðir Akta stækka stöðu sína í SKEL á meðan Jakob Valgeir selur Sjóðir í stýringu Akta meira en tvöfölduðu eignarhlut sinn í SKEL í liðnum mánuði og fara núna með að lágmarki um 2,3 prósenta eignarhlut í fjárfestingafélaginu. Samanlagður hlutur Akta, sem kom fyrst inn í hluthafahóp SKEL í júní síðastliðnum, gerir sjóðastýringarfyrirtækið að sjöunda stærsta hluthafa félagsins. Innherji 5. september 2022 16:30
Arion banki og Íslandsbanki hækka vextina Arion banki hefur tilkynnt um hækkun inn- og útlánavaxta bankans sem taka gildi í dag, en vaxtahækkanir hjá Íslandsbanka munu taka gildi á föstudaginn. Tilkynnt er um hækkunina í kjölfar stýrivaxtahækkunar Seðlabankans 24. ágúst síðastliðinn. Viðskipti innlent 5. september 2022 10:53
Skýrslan um söluna á Íslandsbanka á lokametrunum Skýrsla ríkisendurskoðunar um afar umdeilda sölu ríkisins á hluta sínum í Íslandsbanka, er væntanleg innan tíðar. Mikil eftirvænting ríkir innan sem utan þings vegna skýrslunnar. Viðskipti innlent 5. september 2022 10:42
Jón Þór ráðgjafi við úttekt á sölunni á Íslandsbanka Jón Þór Sturluson, forseti viðskiptadeildar Háskólans í Reykjavík og fyrrverandi aðstoðarforstjóri Fjármálaeftirlitsins, er sérstakur ráðgjafi Ríkisendurskoðunar við vinnu stofnunarinnar að stjórnsýsluúttekt á sölu ríkissjóðs á 22,5 prósenta eignarhlut í Íslandsbanka í útboði til fagfjárfesta í mars á þessu ári. Innherji 5. september 2022 10:01
Heilbrigðiseftirlitið kallað til vegna olíuleka eftir að flutningabíll valt Flutningabíll frá Eimskip fór á hliðina á Suðurlandsvegi á vatnsverndarsvæði. Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu og fulltrúar frá Heilbrigðiseftirlitinu eru mættir á vettvang. Innlent 4. september 2022 16:33
Fátt um svör eftir margra ára töf á uppbyggingu í Vesturbugt Ekkert bólar á uppbyggingu tæplega tvö hundruð íbúða í Vesturbugt á slippsvæðinu í Reykjavík þótt tilkynnt hafi verið með athöfn fyrir fimm árum að framkvæmdir ættu að hefjast innan átján mánaða. Deilur verktaka við borgina virðast tefja verkið en í vor hótaði borgarstjóri að lóðin yrði dregin til baka. Innlent 2. september 2022 20:23
Eignir í stýringu Akta lækka um þriðjung, miklar innlausnir í stærstu sjóðunum Mikill samdráttur einkenndi rekstur og afkomu sjóðastýringarfyrirtækisins Akta, sem hefur vaxið mjög hratt á skömmum tíma, á fyrri helmingi þessa árs samhliða erfiðum aðstæðum á fjármálamörkuðum. Akta hagnaðist aðeins um 2,5 milljónir, borið saman við 1,3 milljarða hagnað á sama tíma fyrir ári, og margra milljarða króna útflæði var úr helstu fjárfestingarsjóðum í stýringu félagsins. Innherji 2. september 2022 12:16
Fresta vaxtahækkunum þar sem gleymdist að tilkynna viðskiptavinum Arion banki hefur ákveðið að vaxtahækkun óverðtryggðra neytendalána með breytilegum vöxtum sem taka átti gildi 29. júlí síðastliðinn muni ekki taka gildi fyrr en 25. september næstkomandi. Þetta sé vegna þess að bankanum hafi misfarist að tilkynna viðskiptavinum um breytinguna með beinum hætti. Viðskipti innlent 2. september 2022 12:02
Afla upplýsinga vegna atviksins á Keflavíkurflugvelli Rannsóknarnefnd samgönguslysa hefur hafið upplýsingaöflun vegna flugatviks sem varð á Keflavíkurflugvelli í fyrradag, þegar hætt var við lendingu flugvélar Icelandair á leið frá München í Þýskalandi. Innlent 2. september 2022 11:11
Telja ólíklegt að „svört“ verðbólguspá Seðlabankans muni ganga eftir Nýjustu hagtölur sem sýna að verðbólgan er tekin að hjaðna og hagvöxtur reyndist minni á árinu en Seðlabankinn var áður búinn að spá gefur væntingar um að peningastefnunefnd muni ekki fara í aðra skarpa vaxtahækkun. Ólíklegt er að „svört“ spá Seðlabankans um nærri 11 prósenta verðbólgu í í lok árs muni ganga eftir, að mati sérfræðinga á fjármálamarkaði. Innherji 2. september 2022 09:51
Flugvél á flugbraut þegar önnur vél átti að lenda Flugvél á vegum Icelandair þurfti að hætta við lendingu á Keflavíkurflugvelli í gær þar sem önnur vél var á flugbrautinni. Atvikið er til skoðunar hjá rannsóknarnefnd samgönguslysa. Innlent 1. september 2022 22:39
Halla ráðin yfirmaður eignastýringar LSR Halla Kristjánsdóttir hefur verið ráðin sem nýr forstöðumaður eignastýringar Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins (LSR), stærsta lífeyrissjóði landsins, samkvæmt heimildum Innherja. Klinkið 1. september 2022 20:32
Mountain Dew í dósum snýr aftur Mountain Dew í dósum er komið aftur í búðir eftir fimm ára fjarveru. Fyrstu dósirnar lentu í verslunum í vikunni og það er aldrei að vita hvort fleiri nýjungar séu væntanlegar á næstu mánuðum. Viðskipti innlent 1. september 2022 18:21
Fjárfestakynning gaf eftirlitinu ástæðu til íhlutunar Samkeppniseftirlitið telur að matarpakkafélagið Eldum rétt sé mögulegur keppinautur Haga á dagvörumarkaði og sömuleiðis að Hagar séu mögulegur keppinautur á markaðinum fyrir samsetta matarpakka. Þessi ályktun, sem helgast meðal annars af atriðum í fjárfestakynningu frá því í október 2021, kemur fram í frummati Samkeppniseftirlitsins á samruna fyrirtækjanna tveggja. Innherji 1. september 2022 15:47