Fleiri Færeyingar á leiðinni í Kópavog? Það er nóg um að vera á skrifstofu Íslandsmeistara Breiðabliks en félagið er nú orðað við færeyska landsliðsmanninn Klæmint Olsen sem leikur með NSÍ Runavík í heimalandinu. Íslenski boltinn 7. desember 2022 18:31
Ágúst snýr aftur í Smárann Ágúst Eðvald Hlynsson er genginn í raðir Breiðabliks frá Horsens í Danmörku. Hann skrifaði undir þriggja ára samning við Íslandsmeistarana. Íslenski boltinn 7. desember 2022 15:30
Breiðablik heldur áfram að sækja leikmenn Mikaela Nótt Pétursdóttir hefur samið við Breiðablik og mun leika með liðinu í Bestu deild kvenna á næstu leiktíð. Hún kemur frá Haukum en var í láni hjá Íslandsmeisturum Vals á síðustu leiktíð. Íslenski boltinn 5. desember 2022 22:30
Fjölskyldan flutt frá Eyjum og Andri Rúnar líklegast ekki með ÍBV Framherjinn Andri Rúnar Bjarnason hefur líklega spilað sinn síðasta leik með Eyjamönnum en fjölskylda hans er flutt á höfuðborgarsvæðið. Íslenski boltinn 5. desember 2022 15:13
Adam Örn í Fram Bakvörðurinn Adam Örn Arnarson hefur gert tveggja ára samning við Fram. Félagið greindi frá þessu í kvöld. Íslenski boltinn 2. desember 2022 22:00
Elfar Freyr skrifar undir tveggja ára samning á Hlíðarenda Valur hefur staðfest komu miðvarðarins Elfars Freys Helgasonar. Hann skrifar undir tveggja ára samning við liðið. Íslenski boltinn 2. desember 2022 19:35
Óskar Örn ekki búinn að ákveða hvort hann beygi til vinstri eða hægri á Reykjanesbrautinni Óskar Örn Hauksson er ekki búinn að semja við nýtt lið eftir að hann yfirgaf Stjörnuna að loknu tímabilinu í Bestu deildinni. Hann viðurkennir að tíminn hjá Stjörnunni hafi verið vonbrigði. Íslenski boltinn 2. desember 2022 07:00
Ekki meir Geir hjá ÍA Geir Þorsteinsson hættir sem framkvæmdastjóri ÍA á næstunni. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. Íslenski boltinn 30. nóvember 2022 13:32
„Er bara 27 ára gamall og hungraður í að sýna öllum hér heima hvað ég get“ Adam Örn Arnarson spilaði í Bestu deild karla í sumar eftir að hafa spilað til fjölda ára sem atvinnumaður. Hann er án félags í dag en stefnir á að láta að sér kveða í sumar og sýna fólki hér á landi að hann sé enn sami leikmaður og spilaði við góðan orðstír í atvinnumennsku í öll þessi ár. Íslenski boltinn 30. nóvember 2022 09:00
Glenn tekur tvær knattspyrnukonur með sér úr Eyjum Keflavík hefur samið við tvo nýja erlenda leikmenn sem báðar fylgja nýjum þjálfara liðsins úr Eyjum. Íslenski boltinn 30. nóvember 2022 08:46
Ingunn úr Vesturbænum í Laugardalinn Ingunn Haraldsdóttir, fyrrverandi fyrirliði KR, er gengin í raðir Þróttar og mun leika með liðinu í Bestu deild kvenna á næstu leiktíð. Ingunn var samningslaus og því þarf Þróttur ekki að greiða fyrir miðvörðinn öfluga. Íslenski boltinn 28. nóvember 2022 19:30
Arnór Sveinn aftur heim Íslandsmeistarar Breiðabliks halda áfram að þétta raðirnar og hafa fengið Arnór Svein Aðalsteinsson aftur heim frá KR. Íslenski boltinn 25. nóvember 2022 15:59
Einar Karl til Grindavíkur Grindavík hefur fengið góðan liðsstyrk í Lengjudeild karla því Einar Karl Ingvarsson er genginn í raðir liðsins. Íslenski boltinn 25. nóvember 2022 14:29
Matthías vildi finna gleðina aftur í fótboltanum: Sóknarbolti Víkings heillaði Ein af stærstu félagsskiptunum eftir tímabilið var þegar Víkingar kræktu í reynsluboltann og fyrirliða FH-liðsins, Matthías Vilhjálmsson. Íslenski boltinn 25. nóvember 2022 08:01
Blikar kræktu í góðan bita úr Laugardal Breiðablik hefur fengið til sín hina nítján ára gömlu Andreu Rut Bjarnadóttur frá Þrótti R., sem þrátt fyrir ungan aldur var að ljúka sinni þriðju heilu leiktíð í efstu deild. Íslenski boltinn 24. nóvember 2022 09:46
Patrik til meistaranna Færeyski fótboltamaðurinn Patrik Johannesen er genginn í raðir Breiðabliks frá Keflavík. Hann skrifaði undir þriggja ára samning við Íslandsmeistaranna. Íslenski boltinn 23. nóvember 2022 09:26
Nýliðar FH tilkynna tvo nýja leikmenn FH leikur í Bestu deild kvenna í fótbolta á næstu leiktíð og hefur þegar hafið að styrkja leikmannahóp sinn fyrir komandi átök. Í dag tilkynnti liðið að tveir ungir og efnilegir leikmenn hefðu samið við FH. Íslenski boltinn 21. nóvember 2022 22:01
Sneri aftur eftir að hafa greinst með krabbamein: „Varð að vera sterk og komast yfir þessa hindrun“ Samira Suleman, leikmaður ÍA, greindist með æxli í maga fyrir nokkrum árum. Þá lék hún með Víkingi Ólafsvík og fótboltasamfélagið á Snæfellsnesi tók höndum saman og hjálpaði henni í þessari erfiðu baráttu. Samira stóð uppi sem sigurvegari, sneri aftur á völlinn og varð fyrr á þessu ári fyrsta konan frá Gana til að útskrifast með UEFA B þjálfararéttindi. Íslenski boltinn 20. nóvember 2022 22:31
U19 beið lægri hlut fyrir firnasterku liði Frakka Íslenska unglingalandsliðið í fótbolta, skipað leikmönnum 19 ára og yngri á ágætis möguleika á að komast áfram úr undanriðli fyrir EM 2023, þrátt fyrir tap gegn Frökkum í gær. Fótbolti 20. nóvember 2022 11:31
Hannes Þór um endinn á Hlíðarenda: „Ég fékk aldrei neinar skýringar á þessu“ Hannes Þór Halldórsson, einn besti markvörður Íslandssögunnar, lagði hanskana nokkuð óvænt á hilluna fyrr á þessu ári. Hann fór yfir endalok ferilsins, sem fór með hann frá Breiðholti til Aserbaísjan, í hlaðvarpsþættinum Chat After Dark, áður Chess After Dark. Íslenski boltinn 19. nóvember 2022 08:01
Hjólhestaspyrnumarkið draumur sem rættist Samira Suleman, sem er eina konan frá Gana sem er með UEFA B þjálfararéttindi, segir að það styttist í annan endann á leikmannaferlinum. Hún skoraði eitt af flottustu mörkum síðasta sumars. Íslenski boltinn 18. nóvember 2022 10:01
FH endurheimtir markaskorara Shaina Ashouri mun spila með FH-ingum á nýjan leik á næstu leiktíð, að þessu sinni í Bestu deildinni eftir að liðið vann sig upp úr Lengjudeild í sumar. Íslenski boltinn 17. nóvember 2022 16:00
Stelpurnar mættu mun betur og fengu gullskóinn, gullhanskann og gullboltann Íslenskur Toppfótbolti gerði upp fyrstu Bestu deildina með nýjum verðlaunum og þau voru afhent á dögunum. Íslenski boltinn 16. nóvember 2022 15:00
Sindri ver mark FH næstu þrjú árin Markvörðurinn Sindri Kristinn Ólafsson er genginn í raðir FH frá uppeldisfélagi sínu Keflavík eftir góða frammistöðu með Keflvíkingum í sumar. Íslenski boltinn 16. nóvember 2022 12:53
„Markmiðið er að þjálfa landsliðið mitt“ Samira Suleman, leikmaður ÍA, varð fyrsta konan frá Gana til að útskrifast með UEFA B þjálfarapróf. Hún er búin að festa rætur á Íslandi en draumurinn er að þjálfa landslið heimalandsins. Íslenski boltinn 16. nóvember 2022 09:01
„Erfitt að kveðja en þetta er nýr kafli og ég er til í slaginn“ „Ég er mjög ánægð og spennt fyrir þessu verkefni. Búið að hafa sinn aðdraganda en ég er mjög spennt og hlakka til,“ sagði Katrín Ásbjörnsdóttir, nýjasti leikmaður Breiðabliks, viðtali við Stöð 2 og Vísi. Íslenski boltinn 14. nóvember 2022 20:01
Katrín Ásbjörnsdóttir í Breiðablik Sóknarmaðurinn Katrín Ásbjörnsdóttir hefur samið við Breiðablik og mun leika meið liðinu næstu tvö tímabil í Bestu deild kvenna. Katrín kemur frá Stjörnunni, silfurliði Bestur deildarinnar í sumar. Íslenski boltinn 13. nóvember 2022 14:56
Birgir aftur í KA eftir að Valur íhugaði að fá hann Bakvörðurinn Birgir Baldvinsson mun spila með KA í Bestu deild karla í fótbolta næsta sumar en það virtist nær frágengið að hann myndi enda í Val. Hinn 21 árs gamli Birgir hefur leikið með Leikni Reykjavík á láni undanfarin þrjú tímabil en ávallt verið samningsbundinn uppeldisfélagi sínu KA. Íslenski boltinn 12. nóvember 2022 10:31
Andri Adolphsson í Stjörnuna Andri Adolphsson hefur samið við Stjörnuna og mun því leika með liðinu í Bestu deild karla í fótbolta á næstu leiktíð. Ekki kemur fram hvað samningurinn er langur og þá er Andri enn skráður í lið Vals á vef Knattspyrnusambands Íslands. Fótbolti 11. nóvember 2022 18:30
Perry tekur við kvennaliði KR KR hefur samið við Perry Mclachlan um að taka við sem aðalþjálfari meistaraflokks kvenna í KR en liðið spilar í Lengjudeildinni næsta sumar. KR segir frá þessu á heimasíðu sinni. Íslenski boltinn 11. nóvember 2022 15:11