Úkraína stendur í þakkarskuld við Wales Oleksandr Petrakov, þjálfari úkraínska landsliðsins, bað þjóð sína afsökunar og segir Úkraínumenn standa í þakkarskuld við Wales á tilfinningaþrungnum fréttamannafundi eftir 1-0 tap Úkraínu í Wales í gær. Fótbolti 6. júní 2022 23:31
Enn einn rússneskur herforingi felldur Roman Kutuzov, rússneskur undirhershöfðingi, er sagður hafa verið felldur í árás á Donbas sem hann fór fyrir frá Donetsk-héraði. Rússneskir ríkismiðlar greina frá falli herforingjans og úkraínski herinn hefur einnig staðfest fall hans. Erlent 6. júní 2022 12:44
Selenskí að vígstöðvunum á meðan harðir bardagar geisa Harðir bardagar geisa nú við borgina Severodonetsk í austurhluta Úkraínu. Volodímír Selenskí, forseti Úkraínu, heimsótti hermenn á austurvígstöðvunum til að stappa í þá stálinu í gær. Erlent 6. júní 2022 09:16
Lavrov kemst ekki til Serbíu eftir að nágrannaríkin lokuðu lofthelgi sinni Fyrirhugaðri ferð Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, til Serbíu hefur verið aflýst eftir að nágrannaríki Serbíu bönnuðu flugvél hans að ferðast um lofthelgi sína. Erlent 5. júní 2022 23:11
Pútín hótar Vesturlöndum með nýjum skotmörkum Vladimir Pútín Rússlandsforesti hótar að Rússir geri árásir á ný skotmörk innan Úkraínu ef Bandaríkin útvega Úkraínu langdrægar eldflaugar, segir í ríkismiðli Rússlands. Erlent 5. júní 2022 13:24
Rússar beina sjónum sínum að Kænugarði Einn særðist eftir eldflaugaárás Rússa á Kænugarð í morgun, segir Vitali Klitschko, borgarstjóri höfuðborgarinnar. Þá er hart barist í borginni Sjevjeródonetsk þar sem þúsundir almennra borgara hafa leitað sér skjóls í kjöllurum. Erlent 5. júní 2022 10:01
Vaktin: Hundruðir flýja Slóvíansk daglega Hundruðir manna flýja borgina Slóvíansk í austur Úkraínu daglega og tölur brottfluttra hafa næstum tvöfaldast í þessari viku. Loftárás sem drap þrjár manneskjur í borginni á þriðjudag hefur valdið þessum aukna fólksflótta, segir Vadym Lyakh, yfirmaður herstjórnar í Slóvíansk. Erlent 4. júní 2022 08:53
Rússar skilja eftir sig 100 daga slóð dauða og eyðileggingar Rússneska innrásarliðið í Úkraínu hefur skilið eftir sig dauða og eyðileggingu í norður-, austur- og suðurhluta landsins á þeim hundrað dögum sem liðnir eru frá því innrásin hófst. Síðustu daga og vikur hafa Rússar látið stórskotum og eldflaugum rigna yfir borgir og bæi í Donbashéraði. Erlent 3. júní 2022 19:12
Steingrímur J. leiðir „spretthóp“ Svandísar Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra, hefur ákveðið að skipa þriggja manna „spretthóp“ sem skila skal ráðherra tillögum og valkostagreiningu vegna alvarlegrar stöðu í matvælaframleiðslu á Íslandi. Steingrímur J. Sigfússon, fyrrverandi þingmaður, mun leiða vinnu hópsins. Innlent 3. júní 2022 11:16
Vaktin: „Við höfum varið Úkraínu í 100 daga. Við munum vinna sigur,“ segir Selenskí á 100. degi stríðsins Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti birti í morgun myndskeið sem er tekið á nákvæmlega sama stað og annað myndskeið var tekið fyrir 99 dögum, degi eftir að innrás Rússa hófst. Þá lét forsetinn þau fleygu orð falla að hann þyrfti ekki brottflutning frá Kænugarði, heldur vopn. Í myndskeiðinu frá því í dag sagði forsetinn „Við höfum varið Úkraínu í 100 daga. Við munum vinna sigur. Dýrð sé Úkraínu!“. Erlent 3. júní 2022 07:37
Alvarlegir gallar á rússneska hernum Rússneski herinn er ekki uppbyggður fyrir þau verkefni sem hann átti að leysa af hólmi í Úkraínu. Frá upphafi stríðsins hefur herinn átt í basli og frammistaða hans verið langt undir væntingunum, ef svo má að orði komast. Erlent 2. júní 2022 19:32
Bjartsýn á að Tyrkjum snúist hugur Umræða um staðfestingu á viðbótarsamningi Atlantshafsbandalagsins um inngöngu Svíþjóðar og Finnlands í bandalagið hófst á Alþingi í gær. Yfirgnæfandi stuðningur var við málið á þinginu, þvert á flokka. Innlent 2. júní 2022 10:23
Vaktin: Fórna landsvæði fyrir tíma Vólódímir Selenskí Úkraínuforseti segir að Rússar stjórni um fimmtungi Úkraínu. Hart er barist víða um landið en langmest í austurhluta þess. Erlent 2. júní 2022 06:33
Danir greiða atkvæði um þátttöku í evrópsku varnarsamstarfi Danir greiða í dag atkvæði um það hvort að ríkið eigi að taka fullan þátt í varnarsamstarfi Evrópusambandsríkja. Ellefu af fjórtán flokkum á danska þinginu eru fylgjandi því að Danmörk hefji þátttöku í samstarfinu af fullum þunga. Sömuleiðis benda skoðanakannanir til þess að almenningur sé nú fylgjandi þátttöku, en talið er að kjörsókn muni ráða miklu um niðurstöðuna. Erlent 1. júní 2022 11:19
Vaktin: Segja Úkraínumenn hafa lofað að skjóta ekki á skotmörk í Rússlandi Bandaríkjamenn munu verða við óskum Úkraínumanna og senda þeim háþróuð og langdræg eldflaugakerfi en aðeins eldflaugar með miðlungs drægi. Joe Biden Bandaríkjaforseti segist vilja styðja við Úkraínu án þess að stigmagna átökin. Erlent 1. júní 2022 07:30
Tárvotur Zinchenko lofaði að gera úkraínsku þjóðina stolta Úkraínski landsliðsmaðurinn Oleksandr Zinchenko brast í grát á blaðamannafundi fyrir leik liðsins gegn Skotlandi í umspili um laust sæti á HM sem fram fer í kvöld. Hann lofaði að gera úkraínsku þjóðina stolta. Fótbolti 1. júní 2022 07:01
Bandaríkin sjá Úkraínu fyrir háþróuðum eldflaugakerfum New York Times birti í gær grein eftir Joe Biden Bandaríkjaforseta þar sem hann útlistar hvað Bandaríkjamenn muni og hvað þeir muni ekki gera í Úkraínu. Markmiðið sé skýrt; að tryggja lýðræðislega, fullvalda og stönduga Úkraínu. Erlent 1. júní 2022 06:56
Olíuverð tekur kipp eftir innflutningsbann ESB Tunnan af olíu hækkaði um þrjú prósent og kostar nú nærri því 120 dollara eftir að Evrópusambandríki náðu samkomulagi um að banna innflutning á nær allri olíu frá Rússlandi vegna stríðsins í Úkraínu. Olíuverð hefur þegar hækkað um sextíu prósent á þessu ári. Viðskipti erlent 31. maí 2022 13:19
ESB leitar leiða til að koma milljónum tonna af korni frá Úkraínu Leiðtogar Evrópusambandsins reyna í dag að finna leiðir til að koma rúmlega tuttugu milljón tonnum af korni frá Úkraínu sem Rússar hafa komið í veg fyrir að flutt yrðu út. Í gær náðist samkomulag um að Evrópusambandsríkin drægju úr innflutningi á olíu frá Rússlandi um 90 prósent fyrir áramót. Erlent 31. maí 2022 13:11
Vaktin: Rússar að endurtaka fyrri mistök Hersveitir Rússa stjórna orðið um sjötíu prósentum af borginni Severodonetsk í Luhansk-héraði. Harðir bardagar geysa í borginni og ríkisstjóri Luhansk segir að sigur Rússa þar gæti reynst þeim mikilvægur táknrænn sigur, þó að hernám Severodonetsk þjóni ekki miklum taktískum tilgangi. Erlent 31. maí 2022 06:39
Líður eins og hún hafi svikið fjölskyldu sína með því að flýja Úkraínu Úkraínsk kona sem kom hingað til lands á miðvikudag á flótta frá heimalandi sínu segist óttast það að heimsbyggðin missi áhugann á stríðinu í Úkraínu. Þá líður henni eins og hún hafi svikið fjölskyldu sína með því að flýja stríðið. Innlent 30. maí 2022 20:56
Verðlaunagripurinn seldur og ágóðinn notaður til að kaupa þrjá dróna Hljómsveitin Kalush Orchestra, sem sigraði í Eurovision fyrir hönd Úkraínu, er sögð hafa selt verðlaunagripinn fyrir 116 milljónir króna. Fénu verður varið til kaupa á þremur drónum fyrir úkraínska herinn. Erlent 30. maí 2022 07:43
Vaktin: Sprengjum rignir jafnt dag sem nótt Rússar leggja mikið kapp á að sigra síðustu úkraínsku hermennina í Luhansk. Harðir bardagar geysa í héraðinu og víðar í Austur-Úkraínu og segja sérfræðingar að Rússar virðist vera að drífa sig. Erlent 30. maí 2022 06:47
Útlendingastofnun vísar frásögn flóttakonu frá Úkraínu á bug Útlendingastofnun hafnar frásögn úkraínskrar konu sem flúði hingað til lands vegna innrásar Rússa og hefur gagnrýnt móttöku stjórnvalda. Innlent 29. maí 2022 15:28
Vaktin: Þvertekur fyrir orðróm um að Pútín sé veikur Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, sagði í kvöldávarpi sínu í gær að aðstæður í Donbas væru „ólýsanlega erfiðar“ og þakkaði úkraínskum hermönnum sem reyni áfram að verjast harðari árásum Rússa. Erlent 29. maí 2022 08:11
Hundrað tonn af sælgæti á mánuði frá Helga í Góu Helgi Vilhjálmsson í Góu er ekki að baki dottinn þó hann sé orðinn áttræður því hann framleiðir hundrað tonn af sælgæti á hverjum mánuði og hefur varla undan að framleiða ofan í landsmenn. Þá hefur hann byrgt lagerinn sinn upp vegna ástandsins í heiminum. Innlent 28. maí 2022 16:30
Roman þakkar fyrir sig: „Heiður að vera hluti af þessu félagi“ „Það eru næstum þrír mánuðir síðan ég tilkynnti áform mín um að selja Chelsea,“ segir í upphafi tilkynningar Roman Abramovich á vefsíðu Chelsea. Auðjöfurinn er að kveðja þar sem loks er búið að finna nýja eigendur. Enski boltinn 28. maí 2022 13:31
Vaktin: Hópfjármögnuðu kaup á dróna fyrir Úkraínumenn Héraðsstjóri Luhanskhéraðs í Donbas sagði í gærkvöldi að Rússar myndu ekki ná stjórn á héraðinu á næstu dögum líkt og spáð hefur verið. Hins vegar gætu Úkraínumenn þurft að horfa frá borgunum Sievierodonets og Lysychansk. Rússum gengur vel í herferð sinni í Donbas-héruðunum. Erlent 28. maí 2022 07:36
Segja Rússa vera að fremja þjóðarmorð á Úkraínumönnum Næg sönnunargögn liggja fyrir til að draga þá ályktun að Rússar séu að fremja þjóðarmorð í Úkraínu, segja þrjátíu lögspekingar og sérfræðingar í þjóðarmorðum. Erlent 27. maí 2022 12:54
Vaktin: Segir Rússa hafa komist hjá flestum þvingunaraðgerðum Bandaríkjamenn hafa samþykkt að senda langdræg vopn til Úkraínu en segjast á sama tíma óttast stigmögnun átaka og hafa átt samtöl við Úkraínumenn um hættuna af því að gera árásir á skotmörk langt inni í Rússlandi. Erlent 27. maí 2022 06:41