Flúðu hörmungar í heimalandinu: „Stríðið hófst í raun og veru árið 2014“ Þrír Úkraínumenn sem hafa sest að hér á landi eftir að innrás Rússa hófst segja stöðuna í heimalandinu áfram erfiða. Þau þakka fyrir stuðning Íslendinga og segjast hafa fengið góðar móttökur, þó flóttinn hafi falið í sér ýmsar fórnir. Öll segjast þau elska heimalandið og eru fullviss um sigur Úkraínu en það muni taka tíma. Ein sem kom upprunalega frá Donbas bendir á að stríðið hafi í raun staðið yfir í níu ár. Innlent 24. febrúar 2023 23:01
Fyrstu Hlébarðarnir komnir til Úkraínu og Selenskí heitir sigri Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, hét því í morgun að Úkraína myndi bera sigur úr býtum gegn Rússum. Þetta sagði hann í ávarpi er hann markaði það að ár er liðið frá því innrás Rússa hófst en Selenskí sagði þetta ár vera ár sársauka, sorgar, trúar og samstöðu. Erlent 24. febrúar 2023 11:49
Bein útsending: 24. febrúar – Ár frá innrás Alþjóðamálastofun Háskóla Íslands stendur fyrir ráðstefnu í dag í tilefni af því að ár sé liðið frá innrás Rússlands í Úkraínu. Ráðstefnan er haldin í samstarfi við Úkraínuverkefni Háskóla Íslands og hefst klukkan 12. Innlent 24. febrúar 2023 11:21
Taka lítið mark á yfirlýsingu Rússa um innrás Úkraínumanna Ríkisstjórn Moldóvu gefur lítið fyrir ásakanir Varnarmálaráðuneytis Rússlands um að Úkraínumenn ætli sér að gera innrás í Transnistríu, hérað í Moldóvu þar sem rússneski herinn er með viðveru. Rússar hafa haldið því fram að úkraínskir hermenn, klæddir eins og Rússar, ætli að sviðsetja einhvers konar ögrun sem Úkraínumenn ætli að nota sem átyllu til innrásar. Erlent 24. febrúar 2023 10:48
Vilja að vesturveldi létti þrýstingi á Rússa til að lægja öldurnar Friðaráætlun sem kommúnistastjórnin í Kína lagði fram í dag kallar eftir því að vestræn ríki láti af refsiaðgerðum sínum gegn Rússlandi vegna innrásar þess í Úkraínu. Kínverjar taka undir ásakanir Rússa um að það hafi verið vesturveldunum að kenna að þeir réðust á nágranna sína fyrir ári. Erlent 24. febrúar 2023 08:54
„Barátta Úkraínu er okkar barátta. Úkraína verður að sigra“ „Í 365 daga hefur þetta óréttlætanlega, tilefnislausa og ólögmæta innrásarstríð valdið ómældum þjáningum, dauðsföllum og eyðileggingu af stærðargráðu sem ekki hefur sést í álfunni síðan í síðari heimsstyrjöld.“ Erlent 24. febrúar 2023 08:31
Bjöguð heimsmynd Pútíns Í dag er ár liðið frá innrás Vladimírs Pútíns í Úkraínu. Tæplega nítján þúsund almennra borgara hafa fallið.Yfir átta milljón flóttamanna eru á vergangi í Evrópu og heimili margra þeirra eru rústir einar.Breið samstaða Vesturlanda með Úkraínu er aðdáunarverð. Það er brýn nauðsyn að svara neyðarkalli úkraínsku þjóðarinnar. Engu að síður hefur ekki tekist að sannfæra alla um nauðsyn þess. Skoðun 24. febrúar 2023 07:00
Ár eyðileggingar og hörmunga Ár er liðið frá því Rússar hófu innrásina í Úkraínu. Á þessum degi í fyrra lýsti Vladimír Pútín, forseti Rússlands, því yfir að Rússar væru að hefja „sértæka hernaðaraðgerð í Úkraínu. Erlent 24. febrúar 2023 06:00
Fordæma innrásina einu ári síðar Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna greiddi í dag atkvæði um að fordæma innrás Rússa í Úkraínu. Ályktunin var samþykkt með afgerandi meirihluta. Kína var á meðal þjóða sem sat hjá. Erlent 23. febrúar 2023 23:00
Máluðu risastóran Úkraínufána við rússneska sendiráðið Fjórir voru handteknir í Lundúnum í dag fyrir að hafa málað úkraínska fánann á götu fyrir framan sendiráð Rússa í borginni. Erlent 23. febrúar 2023 19:53
Skoða að birta gögn um mögulega hernaðaraðstoð Kína Innan ríkisstjórnar Joes Bidens, forseta Bandaríkjanna, standa nú yfir umræður um það hvort opinbera eigi upplýsingar sem taldar eru sýna fram á að yfirvöld í Kína séu að íhuga að senda Rússum vopn og hergögn. Það yrði þá gert fyrir fund Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna á morgun sem marka mun það að ár er liðið frá því að innrás Rússa í Úkraínu hófst. Erlent 23. febrúar 2023 14:14
Björn Bjarnason hundskammar Moggamenn Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra Sjálfstæðisflokksins og ritstjórnarfulltrúi Morgunblaðsins, hundskammar Morgunblaðið fyrir að hafa birt athugasemdalaust grein eftir Mikhael Noskov, sendiherra Rússa sem Björn segir lygaþvætting. Innlent 23. febrúar 2023 14:14
Klitschko segir Bach spila leik við Rússa Bræðurnir Vitali og Vladimir Klitschko kalla eftir harðari aðgerðum Alþjóðaólympíunefndarinnar gegn Rússum. Sá fyrrnefndi hefur boðið forseta nefndarinnar, Thomasi Bach, í heimsókn til Kiev. Sport 23. febrúar 2023 11:01
Guterres fordæmir framferði Rússa Aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, António Guterres, hélt ræðu á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í nótt þar sem hann kallaði innrás Rússa í Úkraínu móðgun við sameiginlega samvisku heimsbyggðarinnar. Erlent 23. febrúar 2023 07:14
Pútín dásamaður á mikilli hyllingarsamkomu í Moskvu Biden Bandaríkjaforseti fundaði í dag í Varsjá með leiðtogum níu aðildarríkja NATO í austur Evrópu um varnir álfunnar og stuðning við Úkraínu. Pútín reyndi að fá Kínverja til liðs við sig og mætti síðan á hyllingarsamkomu með stuðningsmönnum sínum. Erlent 22. febrúar 2023 19:05
Alþingi ræðir ályktun um hungursneyðina í Úkraínu sem hópmorð Þingmenn allra flokka eru á þingsályktunartillögu sem rædd verður á Alþingi í dag um að hungursneyðin í Úkraínu í upphafi fjórða áratugar síðustu aldar hafi verið hópmorð. Milljónir manna í Úkraínu og Moldóvu létust úr hungri vegna aðgerða Jósefs Stalíns þáverandi einræðisherra Sovétríkjanna. Innlent 22. febrúar 2023 11:43
Sex látin í árásum Rússa í Kherson Sex létust og sextán særðust eftir stórskotaliðsárás sveita rússneska hersins á borgina Kherson í gærkvöldi og í nótt. Erlent 22. febrúar 2023 06:37
Putin segir Rússland fórnarlamb innrásar Vesturlanda Rússlandsforseti lýsir Rússlandi sem algjöru fórnarlambi stríðins í Úkraínu, þar sem íbúar væru gíslar stjórnar nýnasista og Vesturlanda sem hefðu byrjað stríðið í þeim tilgangi að eyða Rússlandi. Forseti Bandaríkjanna segir Vesturlönd hins vegar standa einhuga gegn einræðisöflum og þau muni styðja Úkraínu allt til sigurs. Erlent 21. febrúar 2023 20:00
„Rússar munu aldrei bera sigur úr býtum“ Þegar Rússar réðust inn í Úkraínu, reyndi það ekki eingöngu á Úkraínumenn. Það reyndi á allan heiminn. Þetta sagði Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, í ræðu sem hann hélt í Póllandi í dag en þar sagði hann Vesturlönd standa sameinuð gegn innrás Rússa í Úkraínu. Erlent 21. febrúar 2023 17:04
Xi sagður hyggja á ferð til Moskvu Xi Jinping, forseti Kína, er að undirbúa ferð til Moskvu þar sem hann mun funda með Vladimír Pútín, forseta Rússlands. Þessi ferð á að eiga sér stað á næstu mánuðum en ráðamenn á Vesturlöndum hafa áhyggjur af því að Kínverjar ætli að aðstoða Rússa með því að veita þeim hergögn. Erlent 21. febrúar 2023 16:21
Kokkur Pútíns sakar yfirmenn hersins um landráð Rússneski auðjöfurinn Yevgeny Prigozhin, sem gjarnan er kallaður „kokkur Pútíns“, sakaði Sergei Shoigu, varnarmálaráðherra, og Valery Gerasimov, formann herforingjaráðs Rússlands og yfirherforingja innrásarinnar í Úkraínu, um að reyna að gera út af málaliðahópinn Wagner Group. Prigozhin sagði Shoigu og Gerasimov vera seka um landráð. Erlent 21. febrúar 2023 13:02
Lítið sem kom á óvart í stefnuræðu Pútíns Vladimír Pútín, forseti Rússlands, hét því enn og aftur fram í morgun að Rússar bæru ekki ábyrgð á stríðinu í Úkraínu og að Vesturlönd væru að reyna að gera útaf við ríkið. Þetta sagði Pútín í stefnuræðu sinni sem hann hélt í dag. Ræðuna átti fyrst að halda í desember en henni var frestað vegna stríðsins í Úkraínu. Erlent 21. febrúar 2023 10:36
Ísland ein af 34 þjóðum sem segja nei Ísland er í hópi 34 þjóða sem hafa mótmælt því formlega að rússneskir og hvít-rússneskir íþróttamenn fái að taka þá í Ólympíuleikunum í París á næsta ári. Sport 21. febrúar 2023 10:31
Pútín Rússlandsforseti flytur stefnuræðu sína í dag Vladimír Pútín Rússlandsforseti mun í dag flytja árlega stefnuræðu sína til rússnesku þjóðarinnar. Til stóð að ræðan yrði flutt í desember síðastliðnum en henni var frestað vegna stríðsins í Úkraínu. Erlent 21. febrúar 2023 08:47
Biden í óvæntri heimsókn til Kænugarðs Joe Biden Bandaríkjaforseti er mættur í óvænta heimsókn til úkraínsku höfuðborgarinnar Kænugarðs. Hann fundaði með Vólódýmír Selenskí Úkraínuforseta í morgun. Erlent 20. febrúar 2023 10:26
Vilja aftur funda með Svíum um NATO-aðild Tyrknesk stjórnvöld hafa tilkynnt að til standi að halda fleiri fundi með fulltrúum sænskra og finnskra stjórnvalda um NATO-aðild þeirra. Mevlüt Cavusoglu, utanríkisráðherra Tyrklands, greindi frá þessu í morgun. Erlent 20. febrúar 2023 10:12
Aukinn stuðningur Kína við Rússa yrði dýru verði keyptur Bandarísk stjórnvöld telja ljóst að Kínverjar íhugi nú að veita Rússum beinan stuðning í innrásarstríði þeirra í Úkraínu í formi vopna. Sérfræðingur í alþjóðamálum telur að slíkur stuðningur yrði Kínverjum afar dýrkeyptur. Erlent 19. febrúar 2023 22:00
Saka Rússa um glæpi gegn mannkyninu Yfirvöld í Bandaríkjunum segja hersveitir Rússa hafa framið glæpi gegn mannkyninu í Úkraína. Kamala Harris, varaforseti Bandaríkjanna, opinberaði þetta í ræðu á öryggisráðstefnunni í München í dag og sagði nauðsynlegt að hinir seku yrðu dregnir til ábyrgðar fyrir glæpina. Erlent 18. febrúar 2023 18:51
„Davíð sigraði ekki Golíat með orðum“ Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, ávarpaði í dag öryggisráðstefnuna í München þar sem hann kallaði eftir því að Vesturlönd flýttu vopnasendingum til Úkraínu og útveguðu Úkraínumönnum þau vopn sem þeir þyrftu til að sigra Rússa. Erlent 17. febrúar 2023 15:43
Ítrekar að Úkraínumenn munu ekki gefa eftir land fyrir frið Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti segir útilokað að Úkraínumenn munu gefa eftir land til Rússa til að koma á friði. Að láta undan myndi aðeins gera það að verkum að Rússar kæmu aftur og vildu meira. Vopn frá Vesturlöndum færðu Úkraínu nær friði. Erlent 17. febrúar 2023 07:50