Fá eldri skriðdreka en fá þá fyrr Yfirvöld í Bandaríkjunum ætla að flýta skriðdrekasendingum til Úkraínu. Í stað þess að senda nýja M1A2 Abrams skriðdreka, sem mun taka allt að tvö ár, stendur til að gera upp og senda eldri týpur. Erlent 21. mars 2023 17:09
Stóra spurningin hvort kínversk stjórnvöld muni selja Rússum vopn Forsetar Kína og Rússlands segjast hafa áþekk markmið og vilja dýpka samvinnu sín á milli. Forsetarnir munu funda áfram í Rússlandi í dag, meðal annars um stríðið í Úkraínu. Prófessor í stjórnmálafræði segir stóru spurninguna vera hvort kínversk stjórnvöld muni ákveða selja Rússum vopn. Innlent 21. mars 2023 12:57
Íslenskir sprengjusérfræðingar þjálfa úkraínska hermenn Íslenskir sérfræðingar á sviði sprengjuleitar og sprengjueyðingar frá Landhelgisgæslu Íslands eru um þessar mundir að þjálfa úkraínska hermenn í Litáen. Það er liður í samstarfsverkefni Norðurlandanna og Litáen en litáískir, norskir, sænskir og íslenskir sprengjusérfræðingar koma að þjálfuninni. Innlent 21. mars 2023 12:01
Funduðu í fjóra og hálfan tíma Xi Jinping og Vladimír Pútín, forsetar Kína og Rússlands og tveir valdamestu einvaldar heimsins, ræddu saman í einrúmi í fjóra og hálfan tíma eftir að Xi lenti í Moskvu í gær. Fyrir fundinn í gær lofuðu forsetarnir vinasamband ríkjanna tveggja og hvorn annan. Erlent 21. mars 2023 10:26
Xi lentur í Moskvu Xi Jinping, forseti Kína, er lentur í Moskvu. Hann mun eiga óformlegan fund með Vladimir Pútín Rússlandsforseta í dag og í kvöld munu þeir snæða saman kvöldverð. Erlent 20. mars 2023 11:14
Munu eiga óformlegan fund í dag og snæða saman í kvöld Xi Jinping, forseti Kína, er væntanlegur til Moskvu eftir hádegi í dag þar sem hann mun eiga óformlegan fund með Vladimir Pútín Rússlandsforseta og snæða með honum kvöldverð. Erlent 20. mars 2023 06:52
Pútín fór óvænt til Maríupól í nótt Vladimír Pútín, forseti Rússlands, fór í óvænta heimsókn til Maríupól í Úkraínu í nótt. Þetta er í fyrsta sinn sem Pútín heimsækir nýlega hernumin svæði í Úkraínu, en hann ferðaðist til Krímskaga í gær. Erlent 19. mars 2023 08:05
Pútin heldur upp á ólöglega innlimun Krímskaga Vladimír Pútín, forseti Rússlands, lenti óvænt á Krímskaga í dag. Þangað ku hann vera mættur til að halda upp á að níu ár eru frá „endursameiningu“ Krímskaga og Rússlands. Erlent 18. mars 2023 14:56
Biden segir augljóst að Pútín sé sekur um stríðsglæpi Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, fagnar því að dómarar Alþjóðlega sakamáladómstólsins (ICC) hafi í gær gefið út handtökuskipun á hendur Vladimír Pútín, forseta Rússlands, fyrir stríðsglæpi í Úkraínu. Pútín er sakaður um að bera ábyrgð á því að fjöldi barna hafi verið flutt frá Úkraínu til Rússlands en Biden sagði augljóst að svo væri. Erlent 18. mars 2023 09:57
Gefa út handtökuskipun á hendur Pútín Dómarar Alþjóðlega sakamáladómstólsins (ICC) hafa gefið út handtökuskipun á hendur Vladimír Pútín, forseta Rússlands, fyrir stríðsglæpi í Úkraínu. Handtökuskipunin er gefin út vegna fjölda úkraínska barna sem rænt hefur verið til Rússlands. Erlent 17. mars 2023 15:23
Ætla að granda herþotum sem sendar verða til Úkraínu Ráðamenn í Rússlandi segjast ætla að granda herþotum sem bakhjarlar Úkraínu gefa Úkraínumönnum. Pólverjar tilkynntu í gær að þeir ætluðu að senda minnst ellefu gamlar MiG-29 orrustuþotur til Úkraínu og ríkisstjórn Slóvakíu tilkynnti svo í dag að þaðan yrðu sendar þrettán þotur af sömu gerð. Erlent 17. mars 2023 14:29
Málaliðar Wagner lýsa hryllilegum átökum við Bakhmut Ráðamenn á Vesturlöndum segja þúsundir rússneskra fanga, sem ráðnir hafa verið úr fangelsum landsins til að berjast fyrir málaliðahópinn Wagner Group, hafa fallið í átökum í Úkraínu. Föngunum var boðið frelsi í skiptum fyrir sex mánaða þjónustu og hefur fjölda fanga verið sleppt. Erlent 17. mars 2023 12:08
Afstaða annarra óbreytt þrátt fyrir ákvörðun Pólverja Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, sagði í samtali við TV2 í gær að samræður ættu sér stað milli stjórnvalda á Vesturlöndum um þann möguleika að sjá Úkraínumönnum fyrir orrustuþotum. Erlent 17. mars 2023 07:58
Xi heimsækir Pútín eftir helgi Xi Jinping Kínaforseti mun halda í opinbera heimsókn til Rússlands í næstu viku þar sem hann mun meðal annars eiga fundi með Vladimír Pútín Rússlandsforseta. Erlent 17. mars 2023 07:45
Pólverjar fyrstir til að senda orrustuþotur til Úkraínu Andrzej Duda, forseti Póllands, tilkynnti í dag að minnst ellefu MiG-29 orrustuþotur frá tímum Sovétríkjanna yrðu sendar til Úkraínu og að fjórar þeirra yrðu sendar á næstu dögum. Pólland varð þar með fyrsta aðildarríki Atlantshafsbandalagsins til að senda Úkraínumönnum orrustuþotur. Erlent 16. mars 2023 16:19
Birtu myndband af þotunni lenda á drónanum Varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna hefur birt myndband sem sýnir þegar rússneskri herþotu var flogið á bandarískan dróna yfir Svartahafi. Myndbandið sýnir rússneska flugmenn reyna að varpa eldsneyti á drónann og í annarri tilrauninni lendir ein herþotan utan í drónanum svo hreyfill hans skemmist. Erlent 16. mars 2023 10:08
Rússar sagðir komnir á staðinn þar sem dróninn brotlenti Rússar eru mættir á staðinn þar sem flygyldi Bandaríkjamanna brotlenti á Svartahafi. Mark Milley, formaður herforingjaráðs Bandaríkjanna, segir drónann líklega á töluverðu dýpi og að erfitt verði að ná honum upp. Erlent 16. mars 2023 07:51
Tyrkir sagðir ætla að samþykkja umsókn Finna Útlit er fyrir að yfirvöld í Tyrklandi ætli að samþykkja aðildarumsókn Finna í Atlantshafsbandalagið á næstu vikum en forseti Finnlands mun fara til Tyrklands á morgun. Tyrkir ætla þó ekki að samþykkja umsókn Svía að svo stöddu. Erlent 15. mars 2023 16:48
Rússar ætla að sækja drónann í Svartahaf Rússar ætla að reyna að sækja brak bandaríska drónans sem brotlenti í Svartahafi í gær. Bandaríkjamenn segja drónann hafa lent í hafinu eftir að rússneskri herþotu hafi verið flogið utan í hann. Erlent 15. mars 2023 15:00
Sendiherra Rússa í Bandaríkjunum kallar uppákomuna „ögrun“ Anatoly Antonov, sendiherra Rússlands í Bandaríkjunum, sagði í samtali við ríkisfréttastofuna RIA í gær að atvik sem átti sér stað í gær þegar rússneskar herþotur höfðu afskipti af bandarískum dróna hefði falið í sér ögrun. Erlent 15. mars 2023 06:40
Lýsir innrásinni í Úkraínu sem „deilu um landsvæði“ Helsti áskorandi Donalds Trump um að verða forsetaefni Repúblikanaflokksins á næsta ári lýsir innrás Rússa í Úkraínu sem deilu um landsvæði. Hann telur það ekki brýna hagsmuni Bandaríkjanna að verja Úkraínu. Erlent 14. mars 2023 19:58
Zelensky þakkar Íslendingum fyrir stuðninginn allt frá upphafi innrásar Úkraínuforseti þakkaði Íslendingum fyrir stuðning þeirra við Úkraínu allt frá upphafi innrásar Rússa á sameiginlegum fundi með forsætis- og utanríkisráðherra ytra í dag. Forsætisráðherra segir mikilvægt að sjá afleiðingar stríðsins með eigin augum og undirbúa leiðtogafund í Reykjavík í maí um málefni Úkraínu. Innlent 14. mars 2023 19:10
Rússar þvinguðu bandarískan dróna til nauðlendingar Bandaríski flugherinn sakar Rússa um glannaskap þegar rússnesk herþota þvingaði bandarískan eftirlitsdróna til þess að nauðlenda í Svartahafi í dag. Atvikið er það fyrsta á milli ríkjanna tveggja frá því að stríðið í Úkraínu hófst. Erlent 14. mars 2023 17:33
Fundi Katrínar og Zelenskys lokið Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Volodymyr Zelensky forseti Úkraínu áttu um klukkustundar fund í Kænugarði í dag. Þar ræddu þau meðal annars um væntanlegan leiðtogafund Evrópuráðsins í Reykjavík í maí þar sem Úkraína verður aðal dagskrárefnið. Innlent 14. mars 2023 15:23
Rússum boðið á mót í Asíu þrátt fyrir bönn UEFA og FIFA Rússneska karlalandsliðinu í fótbolta hefur verið boðið að taka þátt í nýju móti knattspyrnusambands Mið-Asíu sem fram fer í júní. Fótbolti 14. mars 2023 14:01
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Af hverju vilja Úkraínumenn halda Bakhmut? Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir að framtíð Úkraínumanna muni ráðast á víglínunum í austurhluta landsins. Hann segir stöðuna þar vera mjög erfiða en það þurfi að gera út af við hernaðarmátt Rússa og það muni Úkraínumenn gera. Erlent 14. mars 2023 14:01
Katrín segir sláandi að sjá afleiðingar innrásar Rússa Forsætisráðherra segir sláandi að sjá ummerkin eftir innrás Rússa í Úkraínu og hitta íbúana sem urðu vitni af hryllingnum á fyrstu dögum innrásarinnar. Hún og utanríkisráðherra funda með forseta, forsætisráðherra Úkraínu og fleirum í Kænugarði í dag. Innlent 14. mars 2023 11:26
Katrín og Þórdís Kolbrún virða fyrir sér eyðilegginguna í Bucha Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir utanríkisráðherra eru þessa stundina í bænum Bucha í Úkraínu til að kynna sér aðstæður. Rússneskar hersveitir frömdu fjöldamorð á óbreyttum borgurum í upphafi innrásarinnar í febrúar og mars í fyrra. Innlent 14. mars 2023 09:20
Katrín og Þórdís Kolbrún á leið til Bucha Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir utanríkisráðherra eru komnar til Úkraínu eftir um sólarhrings ferðalag frá Íslandi. Þær og fylgdarlið þeirra komu með næturlest til ótilgreinda staðar snemma í morgun. Innlent 14. mars 2023 07:55
Sagðir ætla að höfða mál gegn Rússum fyrir stríðsglæpi Saksóknarar Alþjóðlega sakamáladómstólsins (ICC) ætla að höfða tvö mál gegn Rússum vegna ódæða þeirra í Úkraínu. Saksóknarar vilja leggja fram nokkrar handtökuskipanir vegna stríðsglæpa en rannsakendur dómstólsins hafa um mánaða skeið verið að störfum í Úkraínu. Erlent 13. mars 2023 15:23