Í beinni í dag: Handboltinn á sviðið Það verður mikið handboltafjör á Stöð 2 Sport í kvöld en þá er einn leikur í beinni útsendingu auk þess sem málin verða í kjölfarið rædd frá ýmsum hliðum í tveimur þáttum af Seinni bylgjunni. Sport 24. febrúar 2020 06:00
Leik lokið: ÍR - Valur 23-24 | Valsmenn áfram á sigurbraut eftir háspennu Valur styrkti stöðu sína á toppi Olís-deildar karla í handbolta í kvöld með 24-23 sigri á ÍR í Breiðholti. ÍR-ingar fengu tækifæri til að jafna metin í lokasókninni en nýttu það illa. Handbolti 23. febrúar 2020 21:15
Umfjöllun og viðtöl: HK - FH 20-34 | FH rúllaði yfir HK eftir rólega byrjun FH vann fjórtán marka sigur á HK í Kórnum í dag, 20-34 í 19. umferð Olís-deild karla í dag. Handbolti 23. febrúar 2020 21:00
Rut með Esbjerg í 8-liða úrslit Meistaradeildar | Súrrealískt, segir þjálfarinn „Það liggur við að ég segi að við höfum spilað yfir getu, því við höfum náð algjöru hámarki stiga sem við áttum möguleika á. Þetta er eiginlega súrrealískt,“ sagði þjálfari Rutar Jónsdóttur hjá danska handboltafélaginu Esbjerg, Jesper Jensen, í dag. Handbolti 23. febrúar 2020 20:30
Breki: Ólíklegt að ég fari í Grillið Breki Dagsson hefur átt frábært tímabil í Olís deildinni með Fjölni en nú er ljóst að liðið leikur ekki í deild þeirra bestu á næstu leiktíð Handbolti 23. febrúar 2020 18:50
Aron flaug með Barcelona beint í 8-liða úrslit Aron Pálmarsson var næstmarkahæstur hjá Barcelona þegar liðið tryggði sér sæti í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í handbolta í dag. Handbolti 23. febrúar 2020 17:48
Umfjöllun og viðtöl: Fjölnir - ÍBV 25-38| Fjölnir fallinn úr efstu deild ÍBV fór illa með Fjölni á heimavelli þegar liðið féll úr efstu deild. Fjölnir situr á botni deildarinnar með 5 stig þegar þrjár umferðir eru eftir. Handbolti 23. febrúar 2020 17:15
Halldór: Frábært lið og frábær umgjörð á Selfossi Verðandi þjálfari Selfoss segir að umhverfið og umgjörðin þar á bæ sé heillandi. Handbolti 23. febrúar 2020 17:00
Halldór tekur við Selfossi í sumar Íslandsmeistarar hafa fundið sér nýjan þjálfara. Handbolti 23. febrúar 2020 16:46
Löwen vann fyrsta leikinn eftir að Kristján var látinn fara Rhein-Neckar Löwen er í afar góðri stöðu í B-riðli EHF-bikarsins í handbolta. Handbolti 23. febrúar 2020 13:21
Í beinni í dag: Handbolti, golf, ítalski og spænski boltinn Þrjú af fjórum efstu liðum ítölsku A-deildarinnar í fótbolta verða í beinni útsendingu á íþróttarásum Stöðvar 2 í dag. Þar verður einnig golf, íslenskur handbolti og spænskur fótbolti. Sport 23. febrúar 2020 06:00
Umfjöllun og viðtöl: Haukar - Afturelding 22-24 | Langþráður sigur Mosfellinga Afturelding vann sinn fyrsta leik frá því í desember í Olís-deild karla í handbolta í kvöld þegar liðið vann Hauka á Ásvöllum, 24-22. Haukar tóku við sér á lokakaflanum en það var of seint. Handbolti 22. febrúar 2020 22:00
Umfjöllun og viðtöl: KA - Fram 20-21 | Naumur sigur Framara Fram hafði betur gegn KA þegar liðin mættust í KA heimilinu fyrir norðan í dag, 21-20, í Olís-deild karla í handbolta. Handbolti 22. febrúar 2020 21:45
Umfjöllun og viðtöl: Haukar - Valur 20-29 | Valskonur rúlluðu yfir Hauka Valur vann afar öruggan sigur á Haukum, 29-20, á Ásvöllum í dag í Olís-deild kvenna í handbolta. Valur er því með 29 stig, þremur stigum á eftir toppliði Fram. Haukar eru með 12 stig í næstneðsta sæti. Handbolti 22. febrúar 2020 19:00
Sjö mörk Janusar ekki nóg | Guðjón og Sigvaldi mættust Guðjón Valur Sigurðsson og Sigvaldi Björn Guðjónsson voru á ferðinni þegar PSG tók á móti Elverum í A-riðli Meistaradeildar Evrópu í handbolta í dag. Janus Daði Smárason skoraði sjö mörk fyrir Aalborg í Zagreb í sama riðli. Handbolti 22. febrúar 2020 17:51
Ágúst Elí og Þráinn Orri í sigurliðum gegn löndum sínum Bjerringbro-Silkeborg skapaði sér fjögurra stiga forskot á Skjern með 28-25 sigri þegar þessi tvö Íslendingalið mættust í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag. Í Svíþjóð fagnaði Ágúst Elí Björgvinsson í Íslendingaslag. Handbolti 22. febrúar 2020 16:53
ÍBV og KA/Þór sprengdu upp baráttuna um úrslitakeppnissæti ÍBV vann Stjörnuna 27-25 og KA/Þór hafði betur gegn HK, 33-31, í mikilvægum leikjum í baráttunni um sæti í fjögurra liða úrslitakeppni Olís-deildar kvenna í handbolta í dag. Fram jók forskot sitt á toppnum með sigri á Aftureldingu, 35-11. Handbolti 22. febrúar 2020 16:10
Kristján rekinn frá Löwen Rhein-Neckar Löwen er í þjálfaraleit eftir að hafa sagt Kristjáni Andréssyni upp störfum í dag. Handbolti 22. febrúar 2020 14:56
Þórsarar komnir upp í Olís-deildina Á næsta tímabili leikur Þór í fyrsta sinn undir eigin merkjum í efstu deild frá tímabilinu 2005-06. Handbolti 22. febrúar 2020 10:15
Í beinni í dag: Handboltatvíhöfði í Hafnarfirði og frumraun nýja Barcelona-mannsins? Það verða þrír leikir í spænska boltanum, bestu kylfingar heims, handboltatvíhöfði á Ásvöllum, ítalskur og enskur bolti í beinni útsendingu á íþróttarásum Stöðvar 2 í dag. Sport 22. febrúar 2020 06:00
Rúnar með tíu mörk gegn Ólafi og Árna Rúnar Kárason lét mikið til sín taka þegar lið hans Ribe-Esbjerg gerði 26-26 jafntefli við Kolding í slag Íslendingaliða í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. Handbolti 21. febrúar 2020 20:06
Körfuknattleiksdeild Stjörnunnar vill ekki deila Ásgarði með handboltanum Handknattleiksdeild Stjörnunnar vill komast inn í Ásgarð með heimaleiki sína á næstu leiktíð en körfuknattleiksdeild félagsins er ekki hrifin af því. Körfubolti 21. febrúar 2020 13:18
Ólafur á förum frá Kolding | Árni Bragi gæti líka farið Handknattleikskappinn Ólafur Gústafsson er í leit að nýju félagi en það er nú ljóst að hann verður ekki áfram í herbúðum danska liðsins KIF Kolding. Handbolti 21. febrúar 2020 09:56
Arnar Freyr sterkur í miklum Íslendingaslag Arnar Freyr Arnarsson skoraði fimm mörk úr jafnmörgum skotum þegar lið hans GOG vann SönderjyskE í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld, 33-26, á útivelli. Handbolti 20. febrúar 2020 20:48
Bjarki bætti tíu mörkum í sarpinn í jafntefli við Löwen Bjarki Már Elísson bætti í forskot sitt sem markahæsti leikmaður þýsku 1. deildarinnar í handbolta þegar Lemgo náði í stig á útivelli gegn Rhein-Neckar Löwen í kvöld, 29-29. Handbolti 20. febrúar 2020 19:47
Snorri segir að Halden hafi „klárlega verið óskamótherjinn“ Snorri Steinn Guðjónsson, þjálfari Vals, var ánægður með að dragast gegn norska liðinu Halden í 8-liða úrslitum Áskorendabikars Evrópu. Dregið var í gær. Handbolti 20. febrúar 2020 18:00
Sportpakkinn: Valsmenn hafa hækkað sig um tíu sæti síðan í október Valsmenn héldu sigurgöngu sinni áfram í gærkvöldi og eru komnir upp í toppsæti Olís deildar karla eftir ellefu sigra í síðustu tólf deildarleikjum. Arnar Björnsson skoðaði sigurinn í gær og uppgang Hlíðarendaliðsins í töflunni frá því að liðið sat í 11. sætinu í október. Handbolti 20. febrúar 2020 15:00
Formaður hkd. Stjörnunnar: Nú er boltinn hjá bænum Það voru spilaðir úrvalsdeildarleikir í handbolta í Ásgarði um síðustu helgi. Þeir fyrstu í um fimmtán ár fyrir utan einn leik árið 2018. Ánægja er hjá handknattleiksdeild Stjörnunnar hvernig til tókst. Handbolti 20. febrúar 2020 13:30
Fimm ára þjálfaratíð Gunnars í Víkinni endar í vor Gunnar Gunnarsson hættir sem þjálfari karlaliðs Víkinga í handbolta eftir tímabilið. Handbolti 20. febrúar 2020 11:22
Umfjöllun og viðtöl: Valur - Fjölnir 33-23 | Valsmenn á toppinn Valur er komið á toppinn í Olís deildinni eftir stórsigur á Fjölni á Hlíðarenda í kvöld. Handbolti 19. febrúar 2020 22:30