Íslenska landsliðið fer á HM eftir sigur gegn Ítölum Íslenska landsliðið í handbolta, skipað leikmönnum 20 ára og yngri vann 11 marka stórsigur á Ítalíu í lokaleik sínum á Evrópumóti yngri landsliða fyrr í dag, 45-34. Handbolti 16. júlí 2022 23:30
ÍBV dregur umdeilda ákvörðun til baka Íþróttabandalag Vestmannaeyja mun falla frá þeirri ákvörðun frá 15. mars sl. um tekjuskiptingu milli knattspyrnu- og handknattleiksdeildar félagsins. Sport 16. júlí 2022 16:30
Krísa hjá ÍBV | Vinnubrögð leitt til vantrausts Aðalstjórn ÍBV þarf að fara að leysa hnúta sem myndast hafa innan félagsins vegna umdeildrar ákvörðunar sem hún tók vegna skiptingar fjármagns til íþróttadeilda innan ÍBV. Sport 16. júlí 2022 12:00
Ísland tapaði gegn Slóveníu í vítakeppni Íslenska U-20 ára landslið karla í handbolta tapaði fyrir Slóvenum á Evrópumóti 20 ára landsliða í handbolta rétt í þessu, 37-35. Leikurinn fór alla leið í vítakeppni. Handbolti 15. júlí 2022 17:45
EM í dag: „Við verðum að fá þessi þrjú stig, við verðum að klára þetta“ „Það eru allir orðnir aðeins stressaðir. Það er alveg ástæða fyrir því, af því við gerðum jafntefli í fyrsta leiknum þá vitum við hvað þessi leikur þýðir,“ sagði Helena Ólafsdóttir, sérlegur sérfræðingur Stöðvar 2 og Vísis, um leik Íslands og Ítalíu á EM. Fótbolti 14. júlí 2022 10:55
Ítalir tóku toppsætið og Ísland mætir Slóvenum Ítalir tryggðu sér toppsæti neðri milliriðils tvö, riðli okkar Íslendinga, með fimm marka sigri gegn Svartfellingum í dag á EM U20 ára landsliða í handbolta í dag, 31-26. Íslenska liðið hafnar því í öðru sæti riðilsins og mætir Slóvenum í leik sem ákvarðar hvort liðið leikur um 9. eða 11. sæti mótsins. Handbolti 13. júlí 2022 15:17
Íslensku strákarnir upp úr milliriðili eftir risasigur Íslenska U20 ára landsliðið í handbolta vann afar öruggan 13 marka sigur er liðið mætti Króatíu í seinni leik milliriðilsins á EM sem fram fer í Portúgal. Lokatölur 33-20, en sigurinn þýðir að íslenska liðið mun leika um 9.-12. sæti mótsins. Handbolti 13. júlí 2022 12:28
Tvö Íslendingalið fá sæti á HM félagsliða í handbolta Ómar Ingi Magnússon, Gísli Þorgeir Kristjánsson og Haukur Þrastarson munu allir taka þátt með liðum sínum í heimsmeistaramóti félagsliða í handbolta sem fram fer í október á þessu ári. Handbolti 13. júlí 2022 10:30
Berta Rut söðlar um til Danmerkur Handboltakonan Berta Rut Harðardóttir hefur samið við danska félagið Holstebro Håndbold um að leika með liðinu á næstu leiktíð. Handbolti 12. júlí 2022 22:07
Dagur Sigurðsson á lausu Samkvæmt heimildum Vísis er handboltamaðurinn Dagur Sigurðsson nú orðinn einhleypur. Lífið 12. júlí 2022 20:27
ÍBV hefur leik í fyrstu umferð en KA og Haukar fara beint í aðra umferð ÍBV, Haukar og KA eru þau þrjú íslensku lið sem skráð eru til leiks í Evrópubikarkeppni karla í handbolta. ÍBV verður í pottinum þegar dregið verður í fyrstu umferð, en Haukar og KA mæta til leiks í aðra umferð. Handbolti 12. júlí 2022 14:31
Valur fær sæti í riðlakeppni Evrópudeildarinnar: „Hefði verið galið að sleppa þessu“ Valur hefur fengið úthlutað sæti í riðlakeppni Evrópudeildarinnar í handbolta og mun því ekki þurfa að leika í undankeppni um laust sæti í riðlakeppninni. Handbolti 12. júlí 2022 12:44
Íslensku strákarnir ekki í vandræðum með Svartfellinga Íslenska landsliðið í handbolta skipað leikmönnum 20 ára og yngri vann öruggan 13 marka sigur gegn Svartfellingum, 41-28, í fyrri leik liðsins í neðri milliriðli EM sem haldið er í Portúgal. Handbolti 12. júlí 2022 12:30
Íslendingar töpuðu fyrir Þjóðverjum með átta mörkum Íslenska U20 landslið karla í handbolta tapaði með átta mörkum gegn Þjóðverjum á Evrópumótinu í Portó fyrr í dag, 35-27. Handbolti 10. júlí 2022 22:00
Framarar fá liðsstyrk frá Selfossi Selfyssingurinn Alexander Már Egan mun leika með Fram á næsta tímabili í Olís-deildinni í handbolta. Alexander skrifar undir tveggja ára samning í Grafarholtinu. Handbolti 8. júlí 2022 21:45
Stór Belgíufundur á dagskrá hjá stelpunum í kastalanum í kvöld Fyrsti mótherji íslensku stelpnanna á EM í Englandi er lið Belgíu og nú eru bara tveir dagar í leikinn. Fótbolti 8. júlí 2022 16:16
Ítalía tryggði sér sigur gegn Íslandi með seinasta skoti leiksins Íslenska U20 ára landsliðið í handbolta þurfti að sætta sig við súrt eins marks tap er liðið mætti Ítalíu á EM U20 ára landsliða í Portúgal í dag. Lokatölur 27-26, en Ítalir skoruðu sigurmarkið á lokasekúndum leiksins eftir að íslenska liðið hafði unnið upp sex marka forskot. Handbolti 8. júlí 2022 12:35
Holstebro staðfestir komu Halldórs Jóhanns Handknattleiksþjálfarinn Halldór Jóhann Sigfússon hefur verið ráðinn til starfa sem aðstoðarþjálfari danska úrvalsdeildarfélaginu TTH Holstebro. Handbolti 8. júlí 2022 10:31
Þórir Ólafsson tekur við Selfyssingum Handknattleiksdeild Selfoss hefur samið við Þóri Ólafsson um að stýra karlaliði félagsins á komandi tímabili í Olís-deild karla. Handbolti 8. júlí 2022 07:05
Íslenska liðið náði í jafntefli gegn Serbum Íslenska U-20 ára landsliðið í handbolta karla hóf í dag leik í lokakeppni Evrópumótsins þegar liðið mætti Serbíu í Porto. Handbolti 7. júlí 2022 17:55
Færeyingar höfðu betur gegn Dönum í fyrsta skipti í sögunni Færeyingar gerðu sér lítið fyrir og unnu sögulegan sigur gegn Dönum er liðin mættust á Evrópumeistaramóti U20 ára landsliða í handbolta í dag. Lokatölur 33-32, en Færeyskt landslið hefur aldrei áður unnið sigur gegn dönsku landsliði í keppnisleik. Handbolti 7. júlí 2022 13:02
Ætlum okkur stóra hluti en auðvitað þurfum við að spila mjög vel til að ná því „Ég skal alveg játa það að þetta er ógnarsterkur riðill. Það er kannski helst að við fáum úr þriðja styrkleikaflokki – Ungverjar í okkar tilfelli – sem eru ógnarsterkt lið. Það svona gerir þennan riðil mjög erfiðan,“ sagði Guðmundur Guðmundsson, landsliðsþjálfari Íslands, er hann var spurður út í riðil Íslands á HM í handbolta. Handbolti 7. júlí 2022 10:01
Nýliðarnir fá sænskan markvörð Sænski markvörðurinn Cornelia Hermansson hefur samþykkt að ganga til liðs við nýliða Selfoss í Olís-deild kvenna í handbolta og leika með liðinu næstu tvö árin. Handbolti 6. júlí 2022 16:00
Halldór Jóhann að yfirgefa Selfyssinga Samkvæmt öruggum heimildum Vísis er handknattleiksþjálfarinn Halldór Jóhann Sigfússon að yfirgefa herbúðir Selfyssinga. Handbolti 6. júlí 2022 13:00
Sagosen þarf að fara í aðra aðgerð eftir hræðilegt ökklabrot Norðmaðurinn Sandor Sagosen var borinn af velli vegna ökklabrots í leik Kiel og Hamburg í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í síðasta mánuði. Hann þarf að fara í aðra aðgerð vegna meiðslanna og gæti misst af HM í janúar næstkomandi. Handbolti 3. júlí 2022 22:31
Ólík hlutskipti gestgjafanna á HM í handbolta Í dag var dregið í riðla fyrir HM í handbolta sem fram fer í Svíþjóð og Póllandi í janúar á næsta ári. Það má með sanni segja að hlutskipti gestgjafanna séu mjög ólík en Svíar eiga sigur í sínum riðli næsta vísan. Handbolti 2. júlí 2022 19:30
Ísland með Ungverjalandi í riðli á HM í handbolta Dregið var í riðla fyrir HM í handbolta sem fram fer í Póllandi og Svíþjóð í janúar á næsta ári. Íslendingar lentu meðal annars í riðli með Ungverjum þegar mótið verður haldið í 28. sinn. Handbolti 2. júlí 2022 16:25
Hedin kom bandaríska handboltalandsliðinu á HM Bandaríska handboltalandsliðið tryggði sér sæti á HM í handbolta í gær en því hafði liðið ekki afrekað í tvo áratugi. Handbolti 1. júlí 2022 12:31
Íslendingaslagir í B-riðli og Magdeburg berst við PSG og Veszprém Dregið var í riðla í Meistaradeild Evrópu í handbolta í morgun og framundar eru margar áhugaverðar viðureignir. Handbolti 1. júlí 2022 10:29
Frábær fyrri hálfleikur hjá strákunum í flottum sigri á Dönum Íslenska tuttugu ára landslið karla í handbolta var í miklu stuði í morgunsárið og vann fimm marka sigur á Dönum, 30-25, í lokaleik sínum á Opna Norðurlandamótinu í Noregi. Handbolti 30. júní 2022 09:30