Milljarðatugir unnir úr frákastinu Vöxtur hliðargreina sjávarútvegsins hefur verið ævintýralegur á undanförnum árum. Hlutfallslegan vöxt sjávarklasans af vergri landsframleiðslu má meta í tugum milljarða. Velta í tækni fyrir vinnslu og veiðar, líftækni og fullvinnslu aukaafurða var 88 milljarðar króna 2012. Innlent 24. október 2013 11:28
Nærri 3.500 sitja í nefndum ríkisins Alls eru 565 nefndir starfandi á vegum ráðuneytanna eða stofnanna þeirra. Í þeim eiga alls 3.455 einstaklingar sæti. Fjöldinn er stappar nærri íbúafjölda Ísafjarðarbæjar og jafngildir því að einn af hverjum 60 landsmönnum á vinnualdri sitji í einhverri nefnd á vegum ríkisins. Innlent 24. október 2013 06:00
Feður taka síður fæðingarorlof Skerðing á hámarksgreiðslum til fólks í fæðingarorlofi virðist hafa leitt til þess að færri feður taka orlofið en áður. Ríkisstjórnin ætlar að bregðast við því með því að hækka hámarkið. Félagsmálaráðherra segir að það þurfi að forgangsraða og því verði orlofið ekki lengt í bili. Innlent 23. október 2013 08:58
Er sæstrengur ígildi olíufundar? Alþingi sest á næstunni yfir flókin álitamál er varða raforkusölu til Evrópu um sæstreng. Hvatt er til forrannsókna á næstu árum. Þó útiloka stjórnvöld ekki að hægja á frekari könnun verkefnisins. Bretar eru mjög áhugasamir og tilbúnir með mannskap og fjármagn. Innlent 19. október 2013 07:00
Risamarkaður handan við hornið Í Evrópu veltir markaður fyrir ráðstefnur, fundi og hvataferðir um 30.000 milljörðum íslenskra króna. Tuttugasti hluti úr prósenti af þeim markaði skilar Íslandi 16 milljörðum. Sérfræðingur segir að Reykjavík geti komist í hóp tíu vinsælustu ráðstefnuborg Viðskipti innlent 19. september 2013 07:00
Ferðaþjónusta hér á landi á krossgötum Ferðaþjónusta mun skila 400 milljörðum til samfélagsins, beint og óbeint, eftir áratug. Kjörfjöldi ferðamanna á Íslandi 1,2 til 1,5 milljónir. Forgangsatriði að einfalda stjórnsýslu ferðamála. Ráðherra boðar frumvarp um ferðaþjónustu á nýju ári. Innlent 11. september 2013 12:00
Alhliða fjárfestingu þarf í ferðaþjónustu Ef spár um fjölgun ferðamanna ganga eftir þarf stórtæka fjárfestingu einkaaðila og hins opinbera. Huga þarf að gistirými, samgöngum og afþreyingu. Innlent 10. september 2013 10:30
Gróðavon mikil á ónumdu svæði Drekasvæðið er í flokki áhættusömustu leitarsvæða í olíuvinnslu. Sterkar vísbendingar eru þó um að þar sé olíu að finna. Forstjóri Mannvits varar við gullæði. Enn á eftir að sannreyna að olía finnist. Fjárfesting á svæðinu gæti þó hlaupið á milljarðatugum Viðskipti innlent 6. september 2013 06:00
Rafmagnið ofar regnskóginum Belo Monte, þriðja stærsta vatnsaflsvirkjun heims, er á teikniborði stjórnvalda í Brasilíu. Verkefnið er gagnrýnt úr öllum heimshlutum. Undir mannvirkið fer risastór hluti Amason-regnskógarins og þúsundir frumbyggja missa land sitt undir vatn. Framtíð þeirra er umlukin óvissu sem og þúsunda dýrategunda sem fullyrt er að deyi út við missi heimkynna sinna. Innlent 5. september 2013 13:46
Margt græðist með gufulögninni Verði Hverahlíðarvirkjun ekki byggð verða sjónræn áhrif framkvæmda á Hellisheiði mun minni. Virkjunin er mikið mannvirki en hugsanlega má hylja gufulögn á milli Hverahlíðar og Hellisheiðarvirkjunar að nokkru leyti. Innlent 17. júní 2013 10:00
Fleiri megavött með nýrri tækni Fjölmargar spurningar hafa vaknað um Hellisheiðarvirkjun eftir að Orkuveita Reykjavíkur sagði frá því að bregðast yrði við minnkandi framleiðslu. Alþingismaður spyr um mat á umhverfisáhrifum virkjunarinnar og efast reyndar um að það hafi verið fullnægjandi. Innlent 14. júní 2013 06:00
Fórnarkostnaður fortíðarinnar Það væru mistök að byggja jafn margar samliggjandi félagslegar íbúðir í dag og gert var í Breiðholti, segir Óskar Dýrmundur Ólafsson, eini hverfisstjóri landsins. Innlent 11. júní 2013 17:30
Brýnt að rannsaka skipulagsmálin Guðrún Jónsdóttir arkitekt er 78 ára gömul og á að baki glæstan feril. Hún er ein þeirra sem áttu hvað mestan þátt í að skipuleggja Seljahverfið í Breiðholti og notaði til þess margar nýstárlegar aðferðir. Hún segir sárvanta rannsóknir á sviðum skipulagsm Innlent 10. júní 2013 06:00
Vinirnir þorðu ekki upp í Breiðholt Þegar Ingvar Sverrisson fór í MR smalaði hann bekkjarfélögum sínum í Tólfuna til að kynna Breiðholtið fyrir þeim. Mörg höfðu aldrei komið í hverfið. Hann segir að þótt vandamálin þar hafi verið meiri en annars staðar hafi hann ekki getað átt betri uppvaxt Innlent 8. júní 2013 07:00
Gengjastríðunum í Breiðholti er lokið Gengjamyndun í Breiðholti heyrir sögunni til og hefur lögreglan ekki haft afskipti af slíku síðan árið 2005. Afbrotatíðni í þessu næstfjölmennasta hverfi Reykjavíkurborgar heldur áfram að lækka á milli ára. Innlent 6. júní 2013 07:00
Þetta er leiðin sem Matthías Máni fór á flóttanum Við yfirheyrslu yfir Matthíasi Mána á Litla Hrauni í gær upplýsti hann um leiðir sínar eftir strokið frá Litla Hrauni. Matthías hefur ekki viljað segja frá hvernig hann komst út af fangelsislóðinni. Allt bendir til að hann hafi farið yfir girðingarnar tvær. Eftir að hann var kominn út hélt hann til austurs ofan við Stokkseyri með stefnu að Neistastöðum í Flóa þar sem hann komst inn í sumarbústað. Innlent 28. desember 2012 11:17
Eiga auðlindir að vera í þjóðareign? Önnur spurningin í þjóðaratkvæðagreiðslunni á laugardag lýtur að því hvort í stjórnarskrá eigi að vera ákvæði um að náttúruauðlindir sem ekki eru í einkaeign séu lýstar þjóðareign. Fréttablaðið leitaði röksemda með og á móti. Innlent 17. október 2012 06:00
Fordómarnir finnast líka í kerfinu Síðan samfélagsteymi LSH tók til starfa hefur tími geðsjúkra inni á stofnunum minnkað og innlögnum fækkað. Sveitarfélögin verða að taka sig á varðandi þjónustu við hópinn, að mati teymisstjóra. Fordómar finnast innan heilbrigðiskerfisins sem utan þess. Innlent 16. október 2012 08:00
Bankakerfið fimm sinnum minna Ísland fór sérstaka leið við endurreisn bankakerfisins eftir hrunið. Forgangi kröfuhafa var breytt og þannig var hægt að setja innstæður og góðar eignir í "nýja“ banka en skilja annað eftir í "gömlum“. Með því að semja síðar við kröfuhafa komst landið upp með þetta. Viðskipti innlent 16. október 2012 06:00
Sérstök gát vegna sjálfsvígshættu Fjórir karlar dvelja nú á réttargeðdeildinni á Kleppi. Elsti sjúklingurinn er 46 ára og sá yngsti 27 og hefur sá sem dvalið hefur lengst þar verið inni í tíu ár. Á deildina vistast þeir sem eru dæmdir ósakhæfir og ekki ábyrgir gjörða sinna á þeirri stund sem glæpur var framinn. Ofsóknargeðklofi (e. paranoid schizophrenia) er algengasti sjúkdómurinn meðal einstaklinganna. Innlent 15. október 2012 09:00
Fjórir af fimm fastir á Kleppi Um áttatíu prósent endurhæfðra sjúklinga á Kleppi sitja þar föst. Alvarlegur skortur á úrræðum fyrir hópinn hjá sveitarfélögunum. Skuldir vegna smálána sliga marga sjúklinga þegar þeir leggjast þar inn. Innlent 13. október 2012 06:00
Ísland alltaf verið töluvert á eftir Því fyrr sem meðferð vegna geðsjúkdóma hefst þeim mun minni líkur eru á langvarandi örorku. Eina sérhæfða meðferðarúrræðið fyrir ungt fólk í byrjandi geðrofi er á Laugarásvegi. Kynjahlutföll eru afar skökk. Neysla kannabisefna meðal hópsins hefur aukist. Innlent 12. október 2012 00:00
Geðveikt fólk er ekki alltaf brjálað Sjúklingur á geðdeild LSH segir nauðsynlegt að skilja fólk betur að inni á deildunum. Hún merkir mun á starfsfólkinu eftir niðurskurð síðustu ára og segir álagið ólíðandi. Hún finnur fyrir fordómum gagnvart geðsjúkum, bæði frá sjálfri sér og samfélaginu. Innlent 11. október 2012 00:00
Blandaðar deildir geta skapað hættu Brýn þörf er á meiri aðskilnaði milli sjúklinga á geðdeildum LSH við Hringbraut. Framkvæmdir vegna nýrrar geðgjörgæsludeildar standa til á næstu mánuðum. Um 400 manns eru á biðlista eftir meðferðarúrræðum á geðsviði. Biðtími er um fjórir mánuðir. Innlent 10. október 2012 00:00
Grasbændur ryðja sér til rúms Íslenskur landbúnaður hefur um nokkurt skeið verið einskonar olnbogabarn annarra atvinnugreina, í það minnsta í opinberri umræðu. Riðuveiki, gjaldþrot í fiski- og minkarækt, auk framleiðislustyrkja og tollamúra hafa löngum reynst bændum erfið. Nú virðist sem þetta gæti breyst og ný aukagrein sé að ryðja sér til rúms. Innlent 6. júlí 2005 00:01