Góð manneskja í djobbið Þá er orðið ljóst hverjir eru í framboði til forseta Íslands og spennandi kosningar fram undan. Ég deili ekki þeirri skoðun að forsetaembættið sé ekki til neins, en um það gildir eins og mörg hlutverk í okkar fámennissamfélagi, hvernig það gagnast fer mest eftir því hver tekur það að sér. Skoðun 29. apríl 2024 11:30
Viktor og Kári heltast úr lestinni Tvö framboð til embættis forseta Íslands voru úrskurðuð ógild á fundi Landskjörstjórnar í dag. Þeir Viktor Traustason og Kári Vilmundarson Hansen fá ekki pláss á kjörseðlinum þegar kosið verður til forseta þann 1. júní næstkomandi. Innlent 29. apríl 2024 11:17
Dramatík þegar tveimur var tilkynnt um ólögleg framboð Landskjörstjórn ætlar að úrskurða um gildi forsetaframboða á fundi í Þjóðminjasafni Íslands klukkan 11. Vísir verður í beinni útsendingu frá fundinum og fylgist með gangi mála í forsetavaktinni. Innlent 29. apríl 2024 10:29
Best ef forseti hefur ekki verið í stjórnmálastarfi Helga Þórisdóttir, forsetaframbjóðandi og forstjóri Persónuverndar, kaus gegn Icesave og telur mikilvægt að forseti Íslands sé hlutlaus og óháður. Betra sé að hann hafi ekki verið í stjórnmálastarfi. Hún segist munu beita málskotsrétti ef skýr vilji þjóðar er fyrir því. Innlent 29. apríl 2024 09:20
Halla Hrund fremst í nýrri könnun og Katrín dottin niður í þriðja sæti Halla Hrund Logadóttir mælist með 29 prósent fylgi í nýrri skoðanakönnun Prósents og Baldur Þórhallsson kemur þar á eftir með 25 prósent fylgi. Katrín Jakobsdóttir mælist aðeins með 18 prósent og Jón Gnarr með 16 prósent. Innlent 29. apríl 2024 06:34
Enga saltdreifara á Bessastaði takk Mér er mjög minnisstæð predikun gamals prests fyrir áratugum síðan, en hann lagði út af textanum "þér eruð salt jarðar", sem er bein tilvitnun í biblíuna. Klerkurinn brýndi fyrir okkur að fara vel með saltið og misnota það ekki, því ekkert væri verra en að hella salti í sár þeirra sem "óvígir lægju á vellinum" eins og hann orðaði það, og þá átti hann við þá sem orðið höfðu undir í lífsbaráttunni. Skoðun 28. apríl 2024 23:01
Hvernig forseta vilt þú? Leiðir okkar Höllu Tómasdóttur lágu snemma saman á Kársnesinu í Kópavogi þar sem við vorum saman í sunnudagaskóla, virkir þátttakendur í barnastúkunni Vinabandinu, spiluðum saman handbolta með Breiðabliki og vorum í kór hjá Tótu Björns. Skoðun 28. apríl 2024 17:01
Spurðu fólkið Gildir lýðræðið bara á fjögurra ára fresti? Eru kjósendur utan þjónustusvæðis þess á milli? Eftir fjármálahrunið 2008 leið mörgum eins og þeir væru leiksoppar ráðamanna, engu skipti hvað hinum „venjulega manni“ fyndist, hann væri ekki með á leikvellinum. Sjálfsmynd þjóðarinnar var brotin – eða hreinlega ekki til. Ekkert sameiningarafl. Enginn spegill að horfa í. Skoðun 28. apríl 2024 16:00
Fjölmennt í framboðsteiti Arnars Þórs í Iðnó Arnar Þór Jónsson, forsetaframbjóðandi og lögmaður, bauð stuðningsmönnum sínum í framboðsgleði í Iðnó á föstudagskvöld. Fjöldi fólks sótti viðburðinn. Lífið 28. apríl 2024 15:32
Landskjörsstjórn tilkynnir á morgun hvaða listar eru gildir Þau fjögur sem skorti meðmælendur á undirskriftalista til forseta Íslands segjast vera komin með viðunandi fjölda memælenda. Þrjú af fjórum vantaði undirskriftir í sunnlendingafjórðungi. Landskjörsstjórn gefur frest til fimm í dag að skila inn viðunandi fjölda. Innlent 28. apríl 2024 13:00
Arnar Þór vantaði sex meðmæli upp á Forsetaframbjóðandann Arnar Þór Jónsson vantaði sex meðmæli til þess að ná lágmarksfjölda undirskrifta eftir yfirferð Landskjörstjórnar í gær. Hann segist hafa leyst málið strax. Innlent 28. apríl 2024 10:00
Svakalegt að sjá fylgisaukningu Höllu Hrundar Baldur Héðinsson, stærðfræðingur og sérfræðingur í skoðanakönnunum, segir frambjóðendurna fjóra sem mælast með mest fylgi í könnunum alla eiga séns á því að komast á Bessastaði í sumar. Margt geti breyst á næstu fimm vikum. Innlent 27. apríl 2024 23:27
Helga lenti einnig í vandræðum Helga Þórisdóttir forsetaframbjóðandi fékk skilaboð frá kjörstjórn um að hana vantaði nokkrar undirskriftir til viðbótar eftir yfirferð. Hennar fólk var fljótt að bregðast við og náði hún lágmarkinu aftur „á núll einni“. Innlent 27. apríl 2024 19:59
Eiríkur og Ástþór fá frest til að bæta við undirskriftum Forsetaframbjóðendurnir Ástþór Magnússon og Eiríkur Ingi Jóhannsson fá báðir frest til klukkan fimm á morgun til þess að safna örfáum undirskriftum til viðbótar. Ástþór segir fleiri undirskriftir hafa dottið út hjá sér en venjulega. Innlent 27. apríl 2024 19:10
Uppgangur Höllu Hrundar fari fyrir brjóstið á „valdastéttinni“ Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, leikkona og forsetaframbjóðandi, segir að það sem hún kallar íslensku valdastéttina sé orðin örvæntingarfull vegna niðurstaðna skoðanakannana. Hið háa fylgi Höllu Hrundar samkvæmt nýjustu tölum hafi farið fyrir brjóstið á þessari valdastétt. Innlent 27. apríl 2024 16:07
Fylgi Höllu Hrundar ekki fast í hendi Prófessor í stjórnmálafræði segir ekkert enn fast í hendi um það hver taki forystu í forsetakapphlaupinu. Halla Hrund mælist nú með mest fylgi en það geti breyst á næstu vikum. Hann segir stefna í mjög spennandi kosningar. Það sé ágalli á kerfi að forseti geti verið kjörinn með lágu hlutfalli atkvæða. Innlent 27. apríl 2024 11:10
Er forsetaframbjóðendum umhugað um dýravernd? Ég hef það á tilfinningunni að public persons á Íslandi finnist það hallærislegt að tala opinberlega um dýravernd. Í henni gæti falist gagnrýni, sem er ekki til vinsælda fallin hjá stjórnvöldum og neytendum búfjárafurði. Það er fremur hallærisleg sjálfhverfa. Skoðun 27. apríl 2024 10:30
Veisluhöld forseta séu barns síns tíma Arnar Þór Jónsson forsetaframbjóðandi segir að upp séu runnir mjög alvarlegir tímar í sögu þjóðar. Sá tími sem forseti sé fyrst og fremst við veisluhöld sé liðinn. Innlent 26. apríl 2024 22:00
Mannasættir sem óttist ekki að standa í fæturna Halla Tómasdóttir forsetaframbjóðandi segir tilfinninguna mjög góða að skila inn framboði sínu til forseta Íslands. Hún sé þó rétt að koma út úr búningsherberginu og samtalið við þjóðina að hefjast. Innlent 26. apríl 2024 21:01
Vill skipa í ríkisstjórn eftir eigin höfði Eiríkur Ingi Jóhannsson sjómaður og forsetaframbjóðandi skilaði inn undirskriftum til landskjörstjórnar í Hörpu í dag. Lítið hefur farið fyrir Eiríki í baráttunni sem safnaði nær öllum undirskriftum í eigin persónu og hefur háleit markmið um að breyta stjórnskipan landsins. Innlent 26. apríl 2024 19:04
Halla Hrund mælist með mest fylgi allra frambjóðenda Halla Hrund Logadóttir mælist með mest fylgi forsetaframbjóðenda samkvæmt nýrri könnun Maskínu og bætir við sig tæpum sextán prósentum milli kannana. Ekki er þó marktækur munur á henni og næstu frambjóðendum á eftir, Katrínu Jakobsdóttur og Baldri Þórhallssyni. Innlent 26. apríl 2024 18:33
Ástþór sannfærður um að verða sjöundi forsetinn Ástþór Magnússon var í skýjunum með að fá númerið sjö þegar hann mætti til Hörpu í morgun að skila meðmælalistum framboðs síns. Verið væri að kjósa sjöunda forsetann og hann væri sannfærður um að ná kjöri. Innlent 26. apríl 2024 17:00
Ætlar í aðra undirskriftasöfnun Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir forsetaframbjóðandi ætlar að hefja undirskriftasöfnun vegna frumvarps til laga er varðar lagareldi. Hún vill koma í veg fyrir að auðlindir þjóðar verði gefnar endurgjaldslaust til framtíðar. Innlent 26. apríl 2024 16:31
Trúnaðarsamtöl við forsætisráðherra lykilatriði Baldur Þórhallsson segir mjög mikilvægt að forseti Íslands líti yfir öxlina á þingheimi til að tryggja að þingið fari ekki fram úr sér. Þar séu einkasamtöl forseta og forsætisráðherra lykilatriði. Innlent 26. apríl 2024 16:00
Sprakk úr hlátri Jón Gnarr segist ólíklegur til að beita málskotsréttinum nema í öfgatilfellum eins og ef lægi fyrir Alþingi að leiða dauðarefsingar í lög. Þá myndi hann mótmæla því sem forseti og leggja í hendur þjóðarinnar. Innlent 26. apríl 2024 15:01
„Ísdrottningin myndi bráðna ef hér kæmi kjarnorkusprengja“ Ásdís Rán Gunnarsdóttir, Ástþór Magnússon og Arnar Þór Jónsson eru gestir Pallborðsins sem sýnt var í beinni útsendingu á Vísi. Innlent 26. apríl 2024 14:37
Með hundruð sjálfboðaliða í liði sínu Halla Hrund Logadóttir vill með framboði sínu til forseta sá þeim fræjum að framtíðin verði ekki bara hennar kynslóðar heldur komandi kynslóða. Framtíðin eigi landið að. Innlent 26. apríl 2024 14:21
Verði ekki meðvirk frekar en Ólafur Ragnar Katrín Jakobsdóttir segir að bakgrunnur hennar sem stjórnmálamaður muni frekar reynast henni styrkleiki en veikleiki eins og sumir hafi nefnt. Hún verði ekki meðvirk með kunningjum sínum úr stjórnmálum frekar en fyrri forsetar. Innlent 26. apríl 2024 13:53
Rifjaði upp þegar forsetinn bjargaði landinu Helga Þórisdóttir forstjóri Persónuverndar sagðist öllu vön að mæta á tónleika í Hörpu en það væri öðruvísi að skila inn framboði til forseta. Stórkostleg stund, sagði Helga. Innlent 26. apríl 2024 13:34
Þrettánda nafnið bætist við Landskjörstjórn hefur tilkynnt að í ofanálag við þá tólf frambjóðendur til forseta, sem skiluðu meðmælalistum í Hörpu í dag, hafi sá þrettándi skilað með rafrænum hætti. Sá heitir Kári Vilmundarson Hansen. Innlent 26. apríl 2024 13:08