Hjartasjúklingi aftur dæmdir tugir milljóna í héraði Íslenska ríkið hefur verið dæmt til að greiða hjartasjúklingi 27,5 milljónir í bætur vegna galla í leiðslu bjargráðs sem græddur var í hann. Ríkið hafði áður verið dæmt til að greiða manninum sambærilega upphæð en Landsréttur ómerkti þann dóm og sendi aftur í hérað, þar sem dómur var kveðinn upp í gær. Innlent 22. desember 2020 19:45
Jóhann Hlíðar segir samning RÚV við Guðmund Spartakus mikla sneypu Jóhann Hlíðar Harðarson segir mikið fagnaðarefni fyrir blaða- og fréttamenn að Mannréttindadómstóll Evrópu hafi nú hent máli Guðmundar Spartakusar í ruslið. Jafnframt og því miður sé málið háðung fyrir Ríkisútvarpið. Innlent 22. desember 2020 16:54
Fá milljarð frá Kópavogi vegna eignarnáms á Vatnsenda Kópavogsbær hefur verið dæmdur til að greiða dánarbúi Sigurðar K. Hjaltested 968 milljónir vegna eignarnáms Kópavogsbæjar í landi Vatnsenda árið 2007. Dómur var kveðinn upp í gær. Vextir frá árinu 2010 bætast við fyrrnefnda upphæð. Viðskipti innlent 22. desember 2020 13:41
Yfirdeildin staðfesti að ríkið hefði ekki brotið á Gesti og Ragnari Íslenska ríkið braut hvorki gegn Gesti Jónssyni né Ragnari Hall þegar lögmennirnir voru sektaðir um eina milljón króna hvor fyrir að segja sig frá málsvörn í Al-Thani málinu árið 2013. Yfirdeild Mannréttindadómstóls Evrópu staðfesti í morgun fyrri dóm dómstólsins í málinu. Innlent 22. desember 2020 10:24
Máli Guðmundar Spartakusar vísað frá MDE Mannréttindadómstóll Evrópu hefur vísað frá máli Guðmundar Spartakusar Ómarssonar gegn íslenska ríkinu og hafnað að taka málið til efnislegrar meðferðar. Innlent 22. desember 2020 07:27
Zuism nýtti sér þekkta veikleika á lögum um trúfélög Ríkislögreglustjóri varaði við því að ófullnægjandi lög um trú- og lífsskoðunarfélög sköpuðu hættu á að þau væru misnotuð í þágu brotastarfsemi meira en ári áður en stjórnendur Zuism voru ákærðir fyrir fjársvik og peningaþvætti. Innlent 21. desember 2020 09:01
Borgarleikhúsið og Kristín sýknuð af kröfu Atla Rafns í Landsrétti Landsréttur sýknaði í dag Leikfélag Reykjavíkur og Kristínu Eysteinsdóttur fyrrverandi Borgarleikhússtjóra af kröfu Atla Rafns Sigurðssonar leikara. Héraðsdómur dæmdi stjórn leikfélagsins og Kristínu í fyrra til að greiða Atla Rafni 5,5 milljónir króna í bætur vegna ólögmætrar uppsagnar og ærumeiðingar. Innlent 18. desember 2020 15:05
Gert að selja íbúðina: Lögregla kölluð til 27 sinnum á níu mánuðum Héraðsdómur Reykjavíkur kvað í gær upp þann dóm að konu bæri að flytja úr íbúð sinni innan mánaðar og selja hana innan þriggja, vegna grófra og ítrekaðra brota á skyldum sínum gagnvart öðrum íbúum í umræddu fjölbýlishúsi. Innlent 18. desember 2020 11:12
Ríkið sýknað af skaðabótakröfu vegna afleiðinga svínaflensusprautu Íslenska ríkið var í gær sýknað af skaðabótakröfu vegna drómasýki sem stefnandi taldi sig hafa fengið í kjölfar bólusetningar með lyfinu Pandemrix gegn svínaflensunni árið 2009. Einkenni fóru að gera vart við sig í kjölfar sprautunnar og var það niðurstaða sérfræðings í taugalækningum að hann hefði fengið drómasýki og slekjuköst í kjölfar bólusetningarinnar. Innlent 18. desember 2020 10:49
Meiðyrðamál smálánarisa gegn Neytendasamtökunum fyrir dómstóla Munnlegur málflutningur í meiðyrðamáli smálánafyrirtækisins eCommerce gegn Breka Karlssyni og Neytendasamtökunum fer fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Þau ummæli sem deilt er um voru sett fram í tölvupóstsamskiptum og alls fjögur talsins. Viðskipti innlent 18. desember 2020 08:26
Fyrrverandi ritstjóri DV greiðir knattspyrnu- og lögreglumanni bætur Lilja Katrín Gunnarsdóttir, fyrrverandi ritstjóri DV, var í dag dæmd í Héraðsdómi Reykjaness til að greiða fimm hundruð þúsund krónur í miskabætur og 1,7 milljónir króna í málskostnað. Það var vegna fréttar sem miðillinn birti um lögreglumann sem sakaður var um að hafa við embættisstörf slasað ungan mann í febrúar síðastliðnum. Innlent 17. desember 2020 21:00
Hafnaði því að hafa vísvitandi leynt góðkynja æxli og fær tíu milljónir Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í byrjun desember tryggingafélagið Líftryggingamiðstöðina, sem heyrir undir TM, til að greiða konu tíu milljónir króna úr sjúkdómatryggingu sem hún var með hjá félaginu. Innlent 16. desember 2020 11:27
Mildaðir nauðgunardómar séu afleiðing manneklu Það gerist reglulega að dómar í kynferðisbrotamálum eru mildaðir í Landsrétti vegna dráttar á málsmeðferð. Þingmaður Viðreisnar segir ástæðuna vera aukinn málafjölda og skort á starfsfólki hjá ákæruvaldinu. Innlent 15. desember 2020 19:45
Landsréttur staðfestir frávísun milljarðakröfu Jóns Ásgeirs og Ingibjargar Landsréttur hefur staðfest niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur um að vísa frá milljarðakröfu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, Ingibjargar Stefaníu Pálmadóttur og 365 miðla hf. gegn Sýn hf., forstjóra þess Heiðari Guðjónssyni og öllum stjórnarmönnum. Viðskipti innlent 15. desember 2020 18:26
Dæmdur fyrir 200 þúsund barnaklámsmyndir eftir brot gegn fötluðum skjólstæðingi Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í síðustu viku karlmann í sex mánaða fangelsi fyrir vörslu á miklu magni barnaníðsefnis. Maðurinn var í júní á þessu ári dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn alvarlega fötluðum skjólstæðingi sínum. Innlent 15. desember 2020 16:09
Fær ekki bætur eftir að hann datt ofan í 1,7 metra djúpa gryfju Vátryggingafélag Íslands var í dag sýknað í Héraðsdómi Reykjavíkur af kröfum manns sem hafði í október 2016 runnið ofan í 173 sentímetra djúpa viðgerðargryfju í húsnæði Frumherja, sem hann starfaði hjá, og hlotið af því talsverðan skaða. Innlent 14. desember 2020 21:58
Má greiða 6,7 milljóna skuld með 149 stólum Bitter ehf., rekstraraðila verslunarinnar Parka, er heimilt að greiða andvirði 6,7 milljóna króna skuldar, sem rekja má til stólakaupa Skelfiskmarkaðarins, með því að skila umræddum stólum til þrotabús veitingastaðarins. Viðskipti innlent 14. desember 2020 14:12
Ágúst og Einar neituðu sök og krefjast frávísunar Bræðurnir Ágúst Arnar og Einar Ágústssynir sem stýra trúfélaginu Zuism neituðu sök í máli héraðssaksóknara gegn þeim við þingfestingu málsins í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Ágúst Arnar og Einar sæta ákæru fyrir fjársvik og peningaþvætti. Innlent 14. desember 2020 10:42
Trúði ekki augum og eyrum við uppsögn eftir 38 ára starf Fyrrverandi sviðsstjóri veiðiráðgjafarsviðs hjá Hafrannsóknarstofnun segir forstjóra stofnunarinnar hafa framið mannorðsmorð á sér í uppsögnum hjá Hafró í nóvember í fyrra. Hann átti erfitt með að meðtaka uppsögn og framkvæmd hennar eftir tæplega fjörutíu ára starf. Innlent 12. desember 2020 20:01
Dómari á launaskrá hjá málsaðila Synjun Hæstaréttar um áfrýjunarbeiðni Kristins Sigurjónssonar fyrrverandi lektors við Háskólann í Reykjavík hefur verið felld úr gildi. Það var gert vegna þess að einn dómaranna sem afgreiddi synjuninna er einnig kennari við HR. Innlent 12. desember 2020 18:18
Notfærði sér fákunnáttu aldraðrar frænku til að ná út 30 milljónum í reiðufé Landsréttur hefur staðfest dóm yfir konu sem var í héraði fundin sek um að hafa notfært sér einfeldni og fákunnáttu aldraðrar frænku sinnar til að verða sér úti um tugi milljóna króna. Konan hlaut í Héraðsdómi Norðurlands eystra fjögurra mánaða skilorðsbundinn fangelsisdóm í fyrra sem Landsréttur hefur nú staðfest. Innlent 12. desember 2020 13:08
Nauðgunardómur mildaður úr tveimur árum í átján mánuði Landsréttur mildaði í dag dóm yfir manni sem sakfelldur hafði verið í Héraðsdómi Reykjaness í mars 2019 fyrir nauðgun, hótanir og annað ofbeldi. Maðurinn hafði verið dæmdur til tveggja ára fangelsisvistar en mildaði Landsréttur dóminn í átján mánuði. Innlent 11. desember 2020 17:26
Landsréttur sneri við sjö ára dómi fyrir barnaníð Karlmaður á sextugsaldri sem dæmdur var í sjö ára fangelsi fyrir brot á syni sínum yfir margra ára tímabil hefur verið sýknaður í Landsrétti. Dómur var kveðinn upp í dag og taldi Landsréttur að ákæruvaldinu hefði ekki tekist að færa sönnur á sekt karlmannsins gegn eindreginni neitun hans. Innlent 11. desember 2020 16:47
Landsréttur staðfestir að símtal Lilju til Ágústu var nóg Landsréttur hefur staðfest sýknudóm yfir íslenska ríkinu varðandi skólameistara á Akranesi sem sagt var upp störfum. Ágústa Elín Ingþórsdóttir, skólastjóri Fjölbrautarskóla Vesturlands, taldi að skipunartími hennar hefði framlengst sjálfkrafa til fimm ára þar sem henni hefði ekki verið tilkynnt innan nauðsynlegs fyrirvara að starfið yrði auglýst. Innlent 11. desember 2020 16:26
ÍR áfrýjar máli Sigurðar til Landsréttar Körfuknattleiksdeild ÍR hefur áfrýjað úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur í málinu gegn Sigurði Gunnari Þorsteinssyni til Landsréttar. Körfubolti 11. desember 2020 15:03
Dómar styttir yfir mönnum sem nauðguðu unglingsstúlku Landsréttur hefur mildað dóm yfir tveimur Pólverjum á fertugsaldri sem sakfelldir voru fyrir að hafa nauðgað unglingsstúlku í Reykjavík í febrúar 2017. Lukasz Soliwoda og Tomasz Walkowski fengu tveggja ára fangelsisdóm en höfðu hlotið þriggja ára dóm í héraði. Innlent 11. desember 2020 15:02
Áslaug Thelma áfrýjar málinu gegn Orku náttúrunnar Áslaug Thelma Einarsdóttir hefur áfrýjað dómi héraðsdóms í máli hennar gegn Orku náttúrunnar en það var niðurstaða dómsins að sýkna ON af ásökunum Áslaugar um ólögmæta uppsögn og kynbundinn launamun. Innlent 11. desember 2020 14:46
Leynileg upptaka af ólögráða stelpum í Mosfellsbæ Einstaklingur búsettur í Mosfellsbæ hefur verið ákærður af héraðssaksóknara fyrir brot gegn blygðunarsemi og barnaverndarlögum. Er honum gefið að sök að hafa að kvöldi föstudags í maí í fyrra á heimili sínu í Mosfellsbæ stillt farsíma sínum upp inni á baðherbergi. Innlent 11. desember 2020 07:01
Arnfríður þarf ekki að víkja sæti í málum Vilhjálms Arnfríður Einarsdóttir landsréttardómari þarf ekki að víkja sæti þegar Landsréttur tekur fyrir tvö meiðyrðamál vegna Hlíðamálsins svokallaða, þrátt fyrir að svo kunni að vera að eiginmaður hennar og mágur hafi lýst yfir neikvæðri afstöðu til Vilhjálms H. Vilhjálmsonar, lögmanns mannanna tveggja sem krefjast skaðabóta frá tveimur konum vegna ummæla þeirra í tengslum við Hlíðamálið. Innlent 10. desember 2020 10:42
Tveir eigendur og verkstjóri Plastgerðarinnar ákærðir vegna banaslyss Þrír menn sem starfa sem yfirmenn í Plastgerð Suðurnesja hafa verið ákærðir af héraðssaksóknara fyrir manndráp af gáleysi eða hlutdeild í manndrápi af gáleysi eftir að undirmaður þeirra lést í vinnuslysi í Plastgerðinni í júlí 2017. Innlent 9. desember 2020 17:10