Að verja botninn Samtök atvinnulífsins létu frá sér yfirlýsingu í gær, 24. febrúar, til stuðnings starfsmannaleigunni Menn í vinnu og matreiðslufyrirtækinu Eldum rétt. Skoðun 25. febrúar 2021 11:30
Þriggja ára dómur fyrir nauðgun á kvennasalerni í Reykjavík Reebar Abdi Mohammed, 34 ára karlmaður frá Kúrdistan sem látið hefur að sér kveða í starfi Pírata, hefur verið dæmdur í þriggja ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir nauðgun á kvennasalernisbás skemmtistaðar í Reykjavík í febrúar 2019. Innlent 25. febrúar 2021 10:46
Efling styður rúmenska félagsmenn í áfrýjun til Landsréttar Efling - stéttarfélag ætlar að styðja fjóra rúmenska félagsmenn sína til að skjóta til Landsréttar dómi Héraðsdóms Reykjavíkur sem féll í gær í máli þeirra gegn starfsmannaleigunni Menn í vinnu, forsvarsmönnum starfsmannaleigunnar og matsölufyrirtækinu Eldum rétt. Fyrirtækin voru þar sýknuð eða málunum vísað frá dómi. Viðskipti innlent 25. febrúar 2021 07:49
Máli Eflingar gegn Mönnum í vinnu og Eldum rétt vísað frá Kröfum Eflingar á hendur starfsmannaleigunnar MIV, sem áður hét Menn í vinnu, forsvarsmönnum hennar, og fyrirtækisins Eldum rétt hefur verið vísað frá dómi. Eflingu hefur verið gert að greiða fjórar milljónir í málskostnað vegna lögsóknarinnar. Innlent 24. febrúar 2021 15:38
Blóðsonur Tryggva Rúnars fær engar bætur af því að hann var ættleiddur Sonur Tryggva Rúnars Leifssonar, sem ættleiddur var tólf ára, fær ekki bætur frá íslenska ríkinu vegna ólögmætrar frelsissviptingar föður síns í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu. Héraðsdómur Reykjavíkur komst að þessari niðurstöðu í gær en sonurinn hafði krafið ríkið um 85 milljónir króna. Innlent 23. febrúar 2021 17:57
Tónleikaferð til Marseille endaði með heimilisofbeldi Tuttugu og átta ára karlmaður hefur verið dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi fyrir að ráðast á sambýliskonu sína á hótelherbergi í Marseille í Frakklandi þann 17. júní árið 2018. Karlmaðurinn afplánar sem stendur sex ára dóm sem hann hlaut sumarið 2019 fyrir tilraun til manndráps. Innlent 23. febrúar 2021 15:41
Þarf að greiða 35 milljóna sekt fyrir stórfelld skattsvik Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann í sjö mánaða fangelsi og greiðslu 35 milljóna króna sektar fyrir stórfelld skattsvik og peningaþvætti. Viðskipti innlent 22. febrúar 2021 13:33
DNA-sýni lykilgagn í nauðgunarmáli Sindri Örn Garðarsson hefur verið dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir nauðgun árið 2017. Landsréttur þyngdi þar með dóm sem féll í Héraðsdómi Norðurlands eystra frá 2019 en þá var hann dæmdur í tveggja ára fangelsi. Innlent 19. febrúar 2021 16:31
Farbann meints barnaníðings staðfest Erlendur ríkisborgari hefur verið kyrrsettur á Íslandi til fimmtudags 6. maí á þessu ári vegna gruns um kynferðisbrots gegn barni. Innlent 19. febrúar 2021 15:42
Dómar í Bitcoin-málinu mildaðir allir sem einn Landsréttur mildaði í dag dóma yfir fimm mönnum sem sakfelldir voru í svokölluðu Bitcoin-máli í héraðsdómi. Sindri Þór Stefánsson, sem saksóknari taldi höfuðpaur í málinu, var dæmdur í 3,5 árs fangelsi í dag en hafði hlotið 4,5 árs fangelsi í héraði. Refsing hinna fjögurra var stytt um meira en helming. Innlent 19. febrúar 2021 14:20
Sakaður um að brjóta á konu sem var undir áhrifum svefnlyfja Karlmaður nokkur sætir ákæru héraðssaksóknara fyrir húsbrot og nauðgun með því að hafa aðfaranótt föstudagsins 20. apríl 2018 ruðst í heimildarleysi inn í íbúð konu í Reykjavík og haft við hana önnur kynferðismök en samræði án hennar samþykkis. Málið var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur á dögunum. Innlent 19. febrúar 2021 13:30
Hrottaleg árás samstarfsmanna sem sögðust ekki þekkjast Tveir karlmenn, annar íslenskur og hinn rúmenskur, hafa verið dæmdir í átta og tíu mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir fyrirvaralausa árás á par í Laugardalnum í maí 2016. Parið sat í bíl fyrir utan húsið sitt þegar árásin var gerð en árásarmennirnir notuðu hamar við verkið. Innlent 18. febrúar 2021 17:02
Þórhallur miðill í átján mánaða fangelsi fyrir kynferðisbrot Þórhallur Guðmundsson, betur þekktur sem Þórhallur miðill, hefur verið dæmdur í átján mánaða fangelsi. Hæstiréttur kvað upp dóm sinn í dag og staðfesti þar með dóm Landsréttar frá því í júní í fyrra. Þórhallur var dæmdur fyrir að hafa brotið kynferðislega á ungum karlmanni sem kom til hans í heilunarmeðferð fyrir tíu árum. Innlent 18. febrúar 2021 16:19
Dæmdir í fangelsi og greiðslu alls 211 milljóna króna sektar fyrir stórfelld skattsvik Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt tvo menn – framkvæmdastjóra og bókara einkahlutafélags sem var með flutningaþjónustu og rekstur sendibíla – í fangelsi og greiðslu alls 211 milljóna króna sektar fyrir stórfelld skattsvik. Viðskipti innlent 18. febrúar 2021 09:39
Saksóknari fann fleiri milljónir Zuism-bræðra í Bandaríkjunum Héraðssaksóknari hefur gert þá kröfu að fleiri eignir Einars Ágústssonar, annars fyrirsvarsmanna trúfélagsins Zuism, verði gerðar upptækar. Um er að ræða allar eignir Einars á reikningum hjá breska verðbréfafyrirtækinu Interactive Brokers í London. Um er að ræða samanlagt rúmlega 16 þúsund dollara eða andvirði rúmlega tveggja milljóna íslenskra króna. Viðskipti innlent 17. febrúar 2021 06:16
„Eitt svona mál er bara einu máli of mikið” Eltihrellar gætu átt von á allt að fjögurra ára fangelsisvist, nú eftir að Alþingi hefur samþykkt sérstök lög um umsáturseinelti. Um sex prósent landsmanna varð fyrir barðinu á eltihrelli árið 2019. Dómsmálaráðherra segir það hafa verið mikilvægt að grípa til aðgerða. Hvert mál sé máli of mikið. Innlent 15. febrúar 2021 15:08
Átakanleg réttarhöld í máli Jóns Baldvins gegn Aldísi og Sigmari Meint sifjaspell, barnaníð og ólögleg nauðungarvistun á geðdeild var meðal þess sem var á dagskrá í Héraðsdómi Reykjavíkur á miðvikudaginn. Innlent 14. febrúar 2021 13:01
Dæmdur í tveggja ára fangelsi og til að greiða brotaþola 1,8 milljónir eftir nauðgun Landsréttur staðfesti í dag dóm Héraðsdóms Austurlands um að Wiktor Tomasz W. Tómasson skyldi sæta tveggja ára fangelsisvist vegna kynferðislegrar áreitni og nauðgunar auk þess sem hann skyldi greiða brotaþola 1,8 milljónir króna í miskabætur. Innlent 12. febrúar 2021 21:58
Tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir að nauðga vinkonu fyrrverandi Landsréttur hefur staðfest tveggja og hálfs árs dóm yfir karlmanni fyrir að nauðga vinkonu sinni í janúar fyrir þremur árum. Var karlmaðurinn dæmdur fyrir nauðgun með því að hafa haft samræði án samþykkis við konuna. Innlent 12. febrúar 2021 16:08
Áfangasigur 203 íslenskra kvenna í Frakklandi Áfrýjunardómstóll í Frakklandi hefur staðfest bótaskyldu þýska eftirlitsfyrirtæksins TÜV Rheinland í máli 203 íslenskra kvenna og fleiri í PIP-sílikonmálinu svokallaða. Alls eru um níu þúsund konur hluti af tveimur málsóknum en konurnar krefjast skaðabóta fyrir heilsutjón sem þær telja púðana hafa valdið sér. Innlent 12. febrúar 2021 13:20
Heróínsmyglari kannaðist ekkert við fimmtán ára vinskap Michal Okapiec, þrítugur karlmaður búsettur í Reykjanesbæ, hefur verið dæmdur í tveggja ára fangelsi, að mestu skilorðsbundið, fyrir smygl á fíkniefnum og lyfjum, brot á vopnalögum og peningaþvætti. Félagi hans sem lögregla telur að hafi verið burðardýr í smyglinu fékk nýlega sex mánaða dóm fyrir sinn þátt. Innlent 12. febrúar 2021 11:44
Fangi dæmdur fyrir hótanir og árás á samfanga á Litla-Hrauni Héraðsdómur Suðurlands hefur dæmt fanga í tólf mánaða óskilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa ráðist á samfanga sinn í eldhúsi á Litla-Hrauni og sömuleiðis fyrir að hafa hótað öðrum manni ofbeldi. Innlent 11. febrúar 2021 14:14
Saksóknari fær gögn KPMG um Samherja eftir allt saman Hæstiréttur hefur vísað frá kæru útgerðarfélagsins Samherja sem barist hefur fyrir dómstólum gegn því að endurskoðunarfyrirtækið KMPG þurfi að afhenda héraðssaksóknara gögn varðandi bókhald og reikningsskil Samherja hf og Samherja holding undanfarinn áratug. Viðskipti innlent 10. febrúar 2021 16:18
Ungur ekkill og fjögur börn fá 35 milljónir í bætur vegna læknamistaka Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í gær kvensjúkdómalækni og tryggingafélagið VÍS til að greiða manni og fjórum börnum hans rúmar 35 milljónir króna í bætur vegna læknamistaka. Eiginkona mannsins og móðir barnanna lést úr leghálskrabbameini árið 2017 en dómurinn taldi lækninn hafa sýnt af sér „stórfellt gáleysi“ við eftirfylgni á konunni, sem kom til skoðunar hjá lækninum í mars 2015 en greindist ekki með krabbamein fyrr en níu mánuðum síðar. Innlent 10. febrúar 2021 15:00
Allir búnir að gleyma ofbeldismáli í Eyjum Karlmaður í Vestmannaeyjum hefur verið sýknaður af ákæru um að hafa veist að tveimur konum á heimili þeirra í Heimaey árið 2018. Konurnar lýstu báðar líkamsárás af hálfu karlmannsins á vettvangi og hjá lögreglu umrædda nótt. Sömuleiðis ýtti framburður karlmanns sem mætti á vettvang undir að karlmaðurinn hefði ráðist á konurnar. Innlent 10. febrúar 2021 13:01
Fjölskylduharmleikur við Lækjartorg Aðalmeðferð er hafin í meiðyrðamáli Jóns Baldvins Hannibalssonar, fyrrverandi sendiherra og ráðherra, gegn Aldísi Schram dóttur hans, Sigmari Guðmundssyni fréttamanni og Ríkisútvarpinu. Reiknað er með því að aðalmeðferðinni ljúki á föstudaginn með málflutningi lögmanna aðila. Innlent 10. febrúar 2021 09:44
Bauð sér sjálfur inn í bílinn og áreitti tónlistarnema Rúmenskur karlmaður hefur verið dæmdur í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi og til að greiða konu sem hann áreitti kynferðislega í maí 2019 400 þúsund krónur í miskabætur. Þetta er niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur. Innlent 9. febrúar 2021 16:38
Jón Baldvin vill fá 2,5 milljónir frá Sigmari Guðmundssyni Á morgun verður tekið fyrir í héraði mál Jóns Baldvins Hannibalssonar á hendur þeim Sigmari Guðmundssyni og Aldísi Schram dóttur hans. Aðalmeðferð í málinu fer fram við Héraðsdóm Reykjavíkur. Innlent 9. febrúar 2021 14:11
Ekki innistæða fyrir 121 milljóna króna bótakröfu Barkar Héraðsdómur Reykjavíkur hefur sýknað íslenska ríkið af miskabótakröfu Barkar Birgissonar vegna vistunar hans á öryggisgangi á Litla-Hrauni í hálft annað ár. Börkur fór fram á tæplega 121 milljóna króna í bætur. Innlent 9. febrúar 2021 13:45
Þekkti ekki dómaframkvæmd Jón Steinar Gunnlaugsson ber saman meiðyrðamál hans á hendur Þorvaldi Gylfasyni og mál Benedikts Bogasonar á hendur honum sjálfum. Og kemst að þeirri niðurstöðu að Benedikt hafi vaðið áfram hugsunarlaust eins og bolakálfur. Skoðun 9. febrúar 2021 08:38