Eigandi Nýju vínbúðarinnar ákærður fyrir skattsvik Sverrir Einar Eiríksson, eigandi Nýju vínbúðarinnar sem komið hefur að alls kyns athyglisverðum rekstri undanfarin ár, hefur verið ákærður af héraðssaksóknara fyrir skattsvik og peningaþvætti í rekstri þriggja einkahlutafélaga sem öll hafa orðið gjaldþrota og verið afskráð. Málið verður þingfest í mars. Viðskipti innlent 18. janúar 2022 07:01
Meintir tilhæfulausir reikningar SÁÁ metnir saknæmir Svo virðist sem SÁÁ hafi reynt að beita Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) stórfelldum blekkingum og undanbrögðum vegna tilhæfulausa reikninga sem samtökin sendu SÍ. Innlent 17. janúar 2022 18:27
Sótti brotaþola í nuddið: „Ég var ekki til staðar fyrir hana“ Vinkona ungrar konu sem segir Jóhannes Tryggva Sveinbjörnsson hafa brotið á sér í meðferðartíma á stofu hans segist hafa brugðist vinkonu sinni. Hún sótti hana í tímann en segist ekki hafa vitað hvernig ætti að bregðast við. Eftir á að hyggja hefði átt að tilkynna málið til lögreglu. Innlent 17. janúar 2022 15:00
Áfram í varðhaldi eftir að hafa gengið í gildru lögreglu Kona sem er annar helmingur pars sem gekk í gildu lögreglu eftir að hafa verið grunað um stórfellt fíkniefnabrot mun sitja áfram í gæsluvarðhaldi fram í næsta mánuð. Innlent 17. janúar 2022 11:08
Ríkið ekki skaðabótaskylt vegna djammbanns Hið opinbera er ekki skaðabótaskylt vegna lokunar skemmtistaða og bara hér á landi sökum faraldurs kórónuveirunnar. Það er niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur sem opinberuð var í dag en í úrskurðinum segir meðal annars að smit þrjú þúsund þeirra sextán þúsund sem smituðust í fjórðu bylgjunni hafi mátt rekja til eins skemmtistaðar. Innlent 14. janúar 2022 22:42
Lýsti upplifun sinni af nuddtímunum í sögulegu þinghaldi Fjöldi vitna var kallaður til við aðalmeðferð í sakamáli á hendur meðhöndlaranum Jóhannesi Tryggva Sveinbjörnssyni í dag og í gær. Jóhannes hefur verið sakfelldur fyrir fjórar nauðganir en aðalmeðferð í fimmta málinu á hendur honum hófst í Héraðsdómi Reykjaness í gær. Jóhannes neitaði sök fyrir dómi en vildi annars lítið tjá sig og vísaði til lögregluskýrslu sem tekin var af honum vegna málsins. Þinghald í málinu var opið, sem er óvenjulegt fyrir kynferðisbrotamál. Innlent 14. janúar 2022 11:03
Teitur dæmdur fyrir skattsvik Teitur Guðmundsson, forstjóri Heilsuverndar, hefur hlotið fjögurra mánaða skilorðsbundinn fangelsisdóm fyrir skattsvik. Honum ber einnig að greiða rúmlega fimmtán milljón króna sekt innan fjögurra vikna, ella fara í fangelsi. Héraðsdómur Reykjaness kvað upp dóm í málinu í gær. Viðskipti innlent 13. janúar 2022 22:55
Neitar að hafa snert brjóst eða kynfæri á óviðeigandi hátt Jóhannes Tryggvi Sveinbjörnsson segist hvorki hafa komið á óviðeigandi hátt við brjóst eða kynfæri ungrar konu sem sætti meðferð hjá honum á meðferðarstofu hans árið 2012. Hann vildi lítið tjá sig fyrir dómi í morgun um ásakanir sem bornar eru á hann, umfram það sem hann hefur áður tjáð sig í skýrslutöku hjá lögreglu. Innlent 13. janúar 2022 10:25
Fallist á endurupptöku í tveimur málum vegna Landsréttarmálsins Endurupptökudómur hefur heimilað endurupptöku tveggja sakamála sem dæmd voru í Landsrétti. Grundvöllur endurupptöku er dómur Mannréttindardómstóls Evrópu í Landsréttarmálinu. Innlent 12. janúar 2022 15:46
Hélt því fram að fjölskyldan væri bara með veiruna en ekki Covid-19 Sóttvarnalæknir gekk ekki lengra en nauðsyn krefur til að aftra útbreiðslu Covid-19 faraldursins þegar einn af fjölskyldumeðlimum fjölskyldu, sem smitaðist nær öll af Covid-19, var skikkaður í sóttkví. Lögmaður fjölskyldunnar hélt því fram að þeir fjölskyldumeðlimir sem hafi smitast hafi ekki verið með Covid-19 sjúkdóminn, heldur einungis með veiruna sem geti valdið slíkum sjúkdómi. Innlent 10. janúar 2022 15:59
Hæstiréttur tekur mál Arion banka gegn þrotabúi WOW air ekki fyrir Hæstiréttur féllst ekki á málskotsbeiðni Arion banka sem vildi fá að áfrýja deilu við þrotabú flugfélagsins um fjármuni sem lagðir voru inn á reikning Wow air eftir að flugfélagið varð gjaldþrota. Viðskipti innlent 10. janúar 2022 14:24
Átján mánaða fangelsi fyrir ítrekað ofbeldi gegn fjórum dætrum sínum Karlmaður var á föstudag dæmdur í átján mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness fyrir ofbeldi og illa meðferð á fjórum dætrum sínum síðustu ár. Kona hans og móðir stúlknanna var dæmd í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi. Innlent 9. janúar 2022 14:20
Grýtti grilli að lögregluþjónum og hlaut fimmtán mánaða dóm Karlmaður var á miðvikudag dæmdur til fimmtán mánaða fangelsisvistar fyrir fjölmörg brot, þar á meðal að hafa grýtt gasgrilli í átt að lögreglumönnum og innflutning á amfetamíni. Innlent 9. janúar 2022 11:52
Leita til Hæstaréttar og starfa áfram í greiðsluskjóli Allrahanda GL, sem rekur ferðaþjónustufyrirtækið Gray Line, hyggst leggja fram beiðni um kæruleyfi til Hæstaréttar eftir að Landsréttur staðfesti úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um að hafna staðfestingu nauðasamnings félagsins. Á meðan á því ferli stendur frestast rétttaráhrif úrskurðar Landsréttar og heldur Allrahanda GL því áfram rekstri í greiðsluskjóli. Viðskipti innlent 7. janúar 2022 08:44
„Gæsluvarðhald nauðsynlegt til þess að verja líf og limi samborgara“ Landsréttur hefur staðfest úrskurð héraðsdóms um að maður skuli sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi vegna sex ætlaðra alvarlegra ofbeldisbrota. Maðurinn var nýlega handtekinn vopnaður haglabyssu og sveðju á Höfða í Reykjavík. Innlent 6. janúar 2022 22:05
Vill að Sindra verði gert að birta dóminn á Twitter Ingólfur Þórarinsson, betur þekktur sem Ingó Veðurguð, vill að forsendur dóms í máli gegn Sindra Þór Sigríðarssyni Hilmarssyni verði birtar á Twitter. Málið varðar meint ærumeiðandi ummæli Sindra um tónlistarmanninn en aðalmeðferð fer fram þann 18. janúar næstkomandi. Innlent 6. janúar 2022 19:03
Stjórnvöld ætla ekki að áfrýja Íslensk stjórnvöld ætla ekki að áfrýja ógildingu Héraðsdóms Reykjavíkur á úrskurði endurupptökunefndar í máli Erlu Bolladóttur. Það þýðir að hún geti farið með sitt mál fyrir nýjan endurupptökudómstól og þaðan í Hæstarétt. Innlent 6. janúar 2022 14:02
„Saman munum við mæta þessari stefnu Ingólfs af hörku“ Fyrsta meiðyrðamálið sem Ingólfur Þórarinsson tónlistarmaður hefur höfðað er á dagskrá Héraðsdóms Reykjavíkur þann 18. janúar næstkomandi. Málið er höfðað gegn Sindra Þór Sigríðarsyni Hilmarssyni sem birti færslu um efnið á Twitter-síðu sinni fyrr í dag. Þar kvaðst hann ætla að mæta Ingólfi af hörku. Innlent 5. janúar 2022 20:07
Kærir úrskurð um rúmlega þrjátíu daga sóttkví til Landsréttar Úrskurður í máli manns sem verið hefur í sóttkví síðan 11. desember síðastliðinn féll í Héraðsdómi Reykjaness í gær. Héraðsdómari taldi sóttkvína standast, en lögmaður mannsins segir að til standi að kæra úrskurðinn til Landsréttar. Innlent 5. janúar 2022 19:15
Fyrsta meiðyrðamál Ingólfs á dagskrá dómstóla Fyrsta meiðyrðamálið, sem Ingólfur Þórarinsson hefur höfðað vegna ummæla sem féllu um hann á samfélagsmiðlum síðasta sumar, er á dagskrá Héraðsdóms Reykjavíkur 18. janúar næstkomandi. Innlent 5. janúar 2022 11:47
Sýknaður af mismunun gegn transkonu á Hverfisbarnum Fyrrverandi dyravörður á Hverfisbarnum var sýknaður af mismunun. Maðurinn var ákærður fyrir að hafa vísað Sæborgu Ninju Urðardóttur, transkonu, af skemmtistaðnum vegna kynvitundar hennar. Innlent 4. janúar 2022 10:28
Erla Bolla vann orrustu: „Ég fer ekki að hætta núna“ Héraðsdómur Reykjavíkur felldi rétt í þessu úr gildi úrskurð endurupptökunefndar sem hafnaði beiðni Erlu Bolladóttur um endurupptöku máls hennar árið 2017. Erla Bolladóttir kallaði „yes!“ þegar niðurstaðan var kunngjörð í dómsal í morgun. Svo streymdu tárin. Innlent 4. janúar 2022 10:22
Gripinn með gríðarlegt magn barnakláms sem uppgötvaðist fyrir tilviljun Karlmaður búsettur á höfuðborgarsvæðinu hefur verið dæmdur í átján mánaða fangelsi, þar af fimmtán mánuði skilorðsbundna, fyrir að hafa 132 þúsund ljósmyndir og rúmlega fimm þúsund kvikmyndir sem sýndu börn á kynferðislegan og klámfengin hátt í vörslum sínum. Innlent 3. janúar 2022 20:50
Þríbólusettur og í 23 daga sóttkví gefst ekki upp fyrir dómstólum Þríbólusettur einstaklingur sem þarf samkvæmt úrskurði héraðsdóms að sæta sóttkví í 23 daga hefur kært niðurstöðuna til Landsréttar. Viðkomandi segist hafa verið útsettur fyrir smiti á heimili sínu frá 10. desember án þess að smitast. Það staðfesti fjölmörg PCR-próf sem hann hafi farið í. Innlent 29. desember 2021 15:15
Héraðsdómur staðfesti ákvörðun sóttvarnalæknis um einangrun Héraðsdómari hefur staðfest ákvörðun sóttvarnalæknis um tíu daga einangrun í tilfelli fimm einstaklinga sem greinst hafa með kórónuveiruna. Lögmaður fólksins segir það verða skoðað hvort farið verði með málið lengra. Innlent 29. desember 2021 09:34
Ómíkron kalli á breytingar á einangrun Fimm hafa kært ákvörðun sóttvarnalæknis um að skikka þá í einangrun vegna Covid-19. Aðalmeðferð í málum þeirra fer fram í dag en niðurstaðan gæti orðið til þess að endurskoða þyrfti alla nálgun á sóttvarnatakmarkanir á Íslandi. Innlent 27. desember 2021 12:08
Vilja ákvarðanir um einangrun felldar úr gildi: „Það er nauðsynlegt að það sé látið á þetta reyna“ Fimm einstaklingar hafa kært ákvörðun sóttvarnarlæknis til að láta reyna á lögmæti þess að fólk sem smitað er af kórónuveirunni sé skikkað í einangrun. Aðalmeðferð í málunum fimm fer fram á morgun. Innlent 26. desember 2021 18:38
Milljarða tjón vegna saknæmrar háttsemi dómara Íslenska ríkið og bandaríska flugvélaleigan ALC hafa verið dæmt til að greiða Isavia 2,5 milljarða króna í tengslum við deilu Isavia og ALC um yfirráð yfir flugvél flugfélagsins sáluga Wow air. Héraðsdómur Reykjavíkur telur að dómari við Héraðsdóm Reykjanes hafi komist að rangri niðurstöðu með saknæmum hætti í deilunni. Viðskipti innlent 23. desember 2021 13:31
Finnur ekki eiginkonuna og krefst skilnaðar Íslenskur karlmaður segist ekki hafa hitt eiginkonu sína í sextán ár og krefst því skilnaðar. Stefnan var nýlega birt í Lögbirtingablaðinu enda hefur manninum ekki tekist að hafa uppi á eiginkonunni til að birta henni stefnuna með hefðbundnum hætti. Innlent 22. desember 2021 18:42
Brúneggjamálinu vísað frá dómi Héraðsdómur Reykjavíkur hefur vísað máli tveggja helstu hluthafa í Brúnegg ehf gegn Ríkisútvarpinu og MAST frá dómi. Innlent 22. desember 2021 16:13