Tugmilljóna mál skrifstofustjóra fer fyrir Hæstarétt Hæstiréttur hefur samþykkt beiðni íslenska ríkisins um áfrýjunarleyfi í máli Jóhanns Guðmundssonar, fyrrverandi skrifstofustjóra í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu. Jóhanni voru dæmdar 23,6 milljónir króna í skaða- og miskbætur vegna niðurlagningar ráðherra á embætti hans. Innlent 2. febrúar 2024 16:27
Borin út á börum eftir kynlíf en maðurinn sýknaður Karlmaður hefur verið sýknaður af ákæru um nauðgun og stórfellda líkamsárás, eftir að kona hlaut lífshættulega áverka eftir samfarir við manninn. Sonur konunnar gekk í skrokk á manninum síðar um nóttina í félagi við annan mann. Innlent 1. febrúar 2024 17:13
Ákærður fyrir að gabba lögregluna með sprengjuhótun: „Höfuð og hjörtu barna ykkar munu springa“ Karlmaður hefur verið ákærður fyrir að senda tvær sprengjuhótanir sem bárust með tæplega 25 mínútna millibili í gegnum tölvupóst seint á febrúarkvöldi 2023. Innlent 1. febrúar 2024 07:00
Þungur dómur Zuisma-bróður stendur Áfrýjunarbeiðni Einars Ágústssonar, sem kenndur hefur verið við Zuisma, til Hæstaréttar hefur verið hafnað. Þriggja ára fangelsisdómur sem hann hlaut í Landsrétti stendur. Innlent 31. janúar 2024 20:00
Dómur Brynjars stendur þó ekki sé fallist á að netbrot séu nauðgun Kynferðisbrot þar sem gerandi og þolandi eru fjarri hvoru öðru og brotin fara fram í gegnum samfélagsmiðla eða samskiptaforrit teljast ekki til nauðgunar að mati Hæstaréttar. Þetta kemur fram í dómi Hæstaréttar á hendur Brynjari Joensen Creed. Innlent 31. janúar 2024 15:45
Grunaður skotmaður í Silfratjörn segist hafa mátað hanska útataða púðri Maður hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 23. febrúar næstkomandi vegna skotárásarinnar sem framin var í Silfratjörn í Úlfarsárdal í byrjun nóvembermánaðar. Landsréttur hefur staðfest úrskurð héraðsdóms þess efnis og birt hann á vef sínum. Innlent 31. janúar 2024 09:43
Grunaður um að brjóta á táningsstúlku og greiða henni fyrir Karlmaður hefur verið ákærður fyrir kynferðisbrot á fjórtán ára gamalli stúlku og fyrir að kaupa af henni vændi. Innlent 31. janúar 2024 07:01
Neita að afhenda lúxusvillu og hafa greitt tugi milljóna í dagsektir Félag í eigu sonar Karls Wernerssonar hefur greitt þrotabúi Karls tæpar 45 milljónir króna í dagsektir. Félaginu var með dómi Landsréttar gert að afhenda þrotabúinu ellefu hundruð fermetra íbúðarhús Karls í nágrenni við Lucca á Ítalíu, ellegar greiða 150 þúsund króna dagsektir. Innlent 30. janúar 2024 17:01
Sló maka sinn með barnastól og fær sextíu daga skilorðsbundinn dóm Karlmaður hefur hlotið sextíu daga fangelsisdóm, skilorðsbundinn til tveggja ára, í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir brot í nánu sambandi sem áttu sér stað á heimili þeirra í síðastliðinn desember. Innlent 30. janúar 2024 16:30
Sex börn með sex konum, óskráð sambúð og fær ekki krónu með gati Karlmaður sem sagður er faðir sex barna með jafnmörgum konum fær ekki helming af söluverðmæti fasteignar kærustu sinnar til þrjátíu ára. Hann lagði lítið sem ekkert til heimilishaldsins á sambúðartímanum og vildi ekki vera á launaskrá verslunar konunnar því þá færu peningarnir í meðlag. Hann sagðist meðal annars hafa lagt lottóvinninga til sameiginlegs heimilishalds. Innlent 30. janúar 2024 07:00
Síbrotapar dældi ítrekað á bílinn án þess að borga Karlmaður og kona, sem eiga bæði langan sakaferil að baki, hafa verið dæmd til skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir að rækta kannabisplöntur og fjölda þjófnaða. Þau lögðu það í vana sinn að dæla eldsneyti á bíl og aka á brott án þess að greiða fyrir. Innlent 29. janúar 2024 15:27
Braut tennur konu sem sakaði frænda hennar um nauðgun Kona á fertugsaldri hefur verið dæmd til þriggja mánaða skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir líkamsárás, sem framin var á Götubarnum á Akureyri árið 2022. Sú sem fyrir árásinni varð hafði átt í útistöðum við mann í fylgd með konunni vegna meints kynferðisbrots hans gegn mágkonu brotaþola. Innlent 29. janúar 2024 12:07
Ástarsamband við lækni talið rýra framburð Karlmaður var á dögunum sýknaður af ákæru þess efnis að hafa tekið dreng hálstaki. Dómari í málinu leit til þess við ákvörðun sína að læknirinn hefði skrifað upp á áverkavottorð eftir mynd af áverkum sem ósannreynt var hvenær var tekin. Þá yrði ekki litið fram hjá því að réttargæslumaður drengsins og læknirinn ættu í ástarsambandi. Réttargæslumaðurinn er auk þess mjög góð vinkona móður drengsins til langs tíma. Innlent 29. janúar 2024 09:00
Þegar gerandinn er íslenska ríkið Það er 3. október 2021 og ég leita til neyðarmóttöku vegna nauðgana eftir að hafa verið beitt kynferðisofbeldi. Í mínu berskjaldaðasta og viðkvæmasta ástandi kem ég þarna inn, eftir að hafa verið byrlað og svo nauðgað á heimili mínu. Skoðun 29. janúar 2024 06:45
Þurfa ekki að greiða fyrrverandi starfsmanni fyrir notkun á uppfinningu Landsréttur hefur staðfest dóm Héraðsdóms Reykjaness þess efnis að Íslenskar orkurannsóknir, eða ÍSOR, þurfa ekki að greiða fyrrverandi starfsmanni sínum fyrir notkun á uppfinningum sem starfsmaðurinn fann upp á þegar hann var starfsmaður stofnunarinnar. Innlent 27. janúar 2024 10:26
Ákærður fyrir að leggja átta manns í lífshættu í ábataskyni Maður hefur verið ákærður fyrir láta útbúa búseturými í atvinnuhúsnæði án tilskilinna leyfa og án nauðsynlegra brunavarnaráðstafanna. Fram kemur í ákæru að maðurinn hafi leigt húsnæðið og leigt það út til annarra, en í að minnsta kosti átta menn bjuggu í því. Með því huga ekki að brunavörnum er hann sagður hafa stefnt lífi mannanna í hættu. Innlent 27. janúar 2024 07:00
Segist ekki vanhæf vegna „harla óvenjulegs“ tölvupósts Ómars Sigríður Hjaltested, dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur, þarf ekki víkja úr sæti úr dómsmáli líkt og Ómar R. Valdimarsson lögmaður krafðist. Hann vildi að Sigríður tæki mögulegt vanhæfi sitt til skoðunar vegna fyrri samskipta þeirra á milli, sem tengjast sakamáli sem hefur verið kennt við skemmtistaðinn Bankastræti Club. Innlent 26. janúar 2024 16:35
Ekki fallist á að fordómar gegn múslimum hafi verið ástæðan Lögreglustjórinn á Suðurnesjum braut ekki lög með því að endurnýja ekki ráðningu manns í starf landamæravarðar á Keflavíkurflugvelli sem taldi sig vera mismunað vegna trúar sinnar. Þetta er niðurstaða úrskurðarnefndar jafnréttismála. Innlent 26. janúar 2024 08:57
Fékk níu fíkniefnasendingar á örfáum mánuðum Karlmaður hefur fengið sextíu daga fangelsisdóm í Héraðsdómi Reykjavíkur, skilorðsbundin til tveggja ára, fyrir fíkniefnabrot. Á nokkrum mánuðum árið 2021 fékk hann níu sendingar erlendis frá sem innihéldu ýmis fíkniefni sem tollverðir fundu í póstmiðstöð í Reykjavík. Innlent 24. janúar 2024 11:38
Hjón segja pakkaferð hafa verið svindl og fá 60 þúsund endurgreitt Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa hefur gert ferðaskrifstofu að endurgreiða hjónum 60 þúsund krónur vegna pakkaferðar sem þau fóru í síðasta sumar. Þau greiddu samtals 272 þúsund krónur fyrir ferðina, sem var auglýst sem pakkaferð á fjögurra stjörnu hóteli þar sem allt væri innifalið fyrir 130 þúsund krónur á mann. Neytendur 24. janúar 2024 08:55
Vínylplötusending innihélt kókaín Karl og kona hafa verið ákærð fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot með því að gera tilraun til að taka við rúmu kílói af kókaíni. Innlent 24. janúar 2024 07:01
Ekki sannað að afsökunarbeiðni væri frá meintum geranda Karlmaður, sem var ákærður fyrir að nauðga frænku sinni á heimili sínu í júlí 2019, hefur verið sýknaður í Héraðsdómi Reykjavíkur. Hann var ákærður fyrir að hafa við hana samræði og önnur kynferðismök án hennar samþykkis, með því að notfæra sér að hún gæti ekki spornað við verknaðinum vegna áhrifa áfengis. Þá var honum gefið að sök að hafa beitt hana ólögmætri nauðung með því að nýta sér yfirburði sína og traust hennar sem frændi hennar. Innlent 23. janúar 2024 20:31
Þarf að greiða alla leiguna í glæsihýsi Magnúsar Ólafs Rúmlega fimmtug kona hefur verið dæmd til að greiða þrotabúi Magnúsar Ólafs Garðarssonar, fyrrverandi forstjóra United Silicon, rúmlega þrjár milljónir króna í vangoldna leigu á einbýlishúsi og húsgögnum. Viðskipti innlent 23. janúar 2024 18:59
Sýknaður þrátt fyrir játningu um að binda niður barn og kitla það Maður, sem var ákærður fyrir að brot á barnaverndarlögum með því að brjóta á tíu ára gömlum dreng, hefur verið sýknaður í Héraðsdómi Reykjaness. Atvikið sem málið varðar átti sér stað í desember 2021. Innlent 23. janúar 2024 15:52
Maðurinn í Bátavogi lést vegna köfnunar Dánarorsök mannsins sem lést í Bátavogi í september í fyrra liggur nú fyrir. Samkvæmt endanlegri niðurstöðu úr réttarkrufningu lést maðurinn af völdum köfnunar, og þá hafði innvortisblæðing spillandi áhrif á súrefnisnæringu til heilans sem var til þess fallið að stuðla enn frekar að köfnuninni. Innlent 23. janúar 2024 14:55
Með varanlega örorku eftir kylfuárás í Bankastræti Ungur karlmaður hefur verið ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás í Bankastræti í Reykjavík sem átti sér stað um nótt í október 2021. Innlent 23. janúar 2024 13:54
Ákærður fyrir 240 kynferðisleg skilaboð og 156 símhringingar Karlmaður hefur verið ákærður fyrir umsáturseinelti og kynferðislega áreitni með því að setja sig margítrekað í samband við konu gegn hennar vilja. Meint brot mannsins áttu sér stað árið 2022, nánar tiltekið frá aprílmánuði til desembermánaðar þess árs. Innlent 23. janúar 2024 10:44
Ekki refsað fyrir að stinga ungan mann við Breiðholtslaug Ungur karlmaður var í lok síðasta árs sakfelldur fyrir sérlega hættulega líkamsárás, með því að hafa stungið annan ungan mann við Breiðholtslaug árið 2021. Maðurinn krafðist sýknu á grundvelli neyðarvarnar en hvorki var fallist á að neyðarvörn hefði réttlætt stunguna né að hann hefði farið út fyrir leyfileg mörk neyðarvarnar vegna skelfingar eða hræðslu. Honum var þó ekki gerð refsing fyrir líkamsárásina. Innlent 22. janúar 2024 22:01
Stal fjórum greiðslukortum og tók út 760 þúsund úr hraðbanka Kona var sakfelld í Héraðsdómi Vesturlands í vikunni fyrir að hafa stolið greiðslukortum fjögurra einstaklinga og tekið af kortunum fjárhæðir sem námu um 760 þúsund krónum. Innlent 20. janúar 2024 00:04
Ofbeldishrina tveggja táningspilta: „Við erum að fara að drepa ykkur alla“ Tveir táningspiltar voru sakfelldir í Héraðsdómi Norðurlands eystra í desember á nýliðnu ári fyrir fjölda brota líkt og líkamsárásir og hótanir. Innlent 19. janúar 2024 22:01