„Allar reglur voru brotnar sem hægt var að brjóta“ Lögmaður Atla Rafns Sigurðssonar leikara segir að niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur í máli Atla Rafns gegn Borgarleikhúsinu sé ánægjuleg. Innlent 30. október 2019 14:38
Viðtal sem aldrei átti að fara í loftið kostaði sitt Jón Ársæll og RÚV þurfa að borga viðmælanda í þáttunum Paradís eina milljón króna. Innlent 30. október 2019 14:08
Borgarleikhúsið dæmt til að greiða Atla Rafni 5,5 milljónir í bætur Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi nú eftir hádegi Kristínu Eysteinsdóttur Borgarleikhússtjóra og Leikfélag Reykjavíkur til að greiða Atla Rafni 5,5 milljónir í bætur og eina milljón króna í málskostnað. Innlent 30. október 2019 13:50
Freyja „í skýjunum“ yfir dómi Hæstaréttar Í dómi Hæstaréttar var m.a. litið til þess að tilhögun mats á hæfni einstaklings til þess verða fósturforeldri væri um margt óljós. Innlent 30. október 2019 11:01
Freyja hafði betur gegn Barnaverndarstofu í Hæstarétti Dómurinn staðfesti dóm Landsréttar, sem dæmdi Freyju í vil. Innlent 30. október 2019 09:20
Lögreglumaður ákærður fyrir að finna ekki kannabis við húsleit Lögreglumaður á Suðurlandi hefur verið ákærður fyrir brot í opinberu starfi með því að hafa látið hjá líða að leggja hald á kannabisblandaðan vökva við húsleit í Hveragerði. Innlent 30. október 2019 08:41
Fær ekki milljónirnar eftir uppsögn hjá Wow í aðdraganda gjaldþrotsins Héraðsdómur Reykjavíkur hefur sýknað þrotabú flugfélagsins Wow air af kröfum flugvirkja sem sagt var upp störfum hjá flugfélaginu í desember síðastliðnum, skömmu áður en félagið var tekið til gjaldþrotaskipta eins og frægt er orðið. Viðskipti innlent 29. október 2019 15:45
Samherjamálið sent á Vestfirði vegna vanhæfis Sigríðar Bjarkar Sigríður Björk Guðjónsdóttir, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, lýsti sig vanhæfa í Samherjamálinu svokallaða og hefur erindi forsætisráðuneytisins í málinu því verið sent til lögreglustjórans á Vestfjörðum. Innlent 29. október 2019 14:35
Tómlæti, fyrning og fábreyttar innheimtutilraunir: Þarf ekki að greiða Landsbankanum tugi milljóna Lántakandi hjá Landsbankanum þarf ekki að greiða bankanum 36,4 milljónir króna vegna láns sem hann tók hjá bankanum til hlutabréfakaupa árið 2007. Viðskipti innlent 29. október 2019 11:15
Sveik tuttugu og tvo Íslendinga á skömmum tíma á sölusíðum á Facebook Jón Birkir Jónsson, karlmaður á fertugsaldri búsettur á Akureyri, hefur verið dæmdur í átján mánaða fangelsi fyrir alls tuttugu og tvö fjársvikabrot sem hann framdi á netinu. Innlent 29. október 2019 08:30
Milljónir streymdu inn á bankareikning grunaðra kókaínsmyglara Tveir 23 ára karlmenn og einn nýskriðinn yfir tvítugt hafa verið ákærðir af héraðssaksóknara fyrir peningaþvætti í tengslum við innflutning á sextán kílóum af kókaíni í maí síðastliðnum. Innlent 29. október 2019 08:00
Sveinn Margeirsson telur ákæruna og tildrög hin einkennilegustu Fyrrverandi forstjóri Matís ákærður fyrir að hafa brotið lög um slátrun. Innlent 28. október 2019 15:55
Sendi nemendum sínum skilaboðin: „Drullist til að lesa áðurnefnt, helvítis hálfvitarnir ykkar“ Fyrrverandi kennari við Kvennaskólann í Reykjavík hefur tapað máli sem hann höfðaði á hendur Hjalta Jóni Sveinssyni, skólastjóra Kvennaskólans. Innlent 28. október 2019 15:15
„Ljóst að téð húsleit var á vitorði margra“ Seðlabanki Íslands segir að ekkert liggi fyrir um það að upplýsingum um húsleit hjá Samherja hf. og tengdum aðilum í mars 2012 hafi verið lekið frá Seðlabankanum enda ljóst að téð húsleit var á vitorði margra, eins og segir í tilkynningu sem birt hefur verið á vef bankans. Viðskipti innlent 28. október 2019 14:37
Töldu rétt að upplýsa lögreglustjórann á höfuðborgarsvæðinu Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir ráðuneyti hennar ekki vera í neinni stöðu til að leggja mat á eða framkvæma rannsókn á meintum upplýsingaleka úr Seðlabankanum vegna Samherjamálsins. Það hafi aftur á móti verið talið rétt að upplýsa lögreglu um málið. Innlent 28. október 2019 13:02
Segir fráleitt að tala um Ríkisútvarpið sem geranda í Samherjamálinu Það er fráleitt að tala um Ríkisútvarpið sem geranda í máli seðlabankans gegn Samherja að sögn formanns blaðamannafélagsins, líkt og forstjóri Samherja hefur gert. Fréttastjóri Ríkisútvarpsins segir það beinlínis vera hlutverk fjölmiðla að fjalla um mál sem þessi. Innlent 28. október 2019 12:02
Sökuð um að hafa gengið í skrokk á móður meðan þrjú börn hennar horfðu á Karl og kona hafa verið ákærð fyrir ofbeldisbrot og brot gegn barnaverndarlögum gagnvart barnsmóður karlsins. Barnsmóðirin mátti þola spörk í höfuð þar sem hún lá liggjandi á jörðinni en þrjú börn hennar og sambýlismaður horfðu á Innlent 28. október 2019 09:00
Tafir á rannsókn barnaklámsmáls „óafsakanlegar“ Maður sem var tekinn með þúsundir barnaklámsmynda fékk tveggja mánaða skilorðsbundinn dóm, meðal annars vegna þess að ákæra var ekki gefin út fyrr en fjórum árum eftir að hann var handtekinn. Innlent 28. október 2019 07:30
Segir RÚV alltaf hafa verið þátttakanda í Samherjamálinu Forsætisráðherra vísaði mögulegum leka frá Seðlabankanum til RÚV um rannsókn á Samherja til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Viðskipti innlent 27. október 2019 20:45
Meintum leka Seðlabankans til RÚV vísað til lögreglu Forsætisráðherra hefur vísað máli vegna ætlaðs upplýsingaleka frá Seðlabankanum til RÚV í aðdraganda húsleitar hjá Samherja til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu þar sem lekinn kunni að fela í sér refsivert brot. Þetta kemur fram í bréfi forsætisráðuneytisins til lögreglunnar. Rannsókn innri endurskoðanda Seðlabankans leiddi í ljós að framkvæmdastjóri gjaldeyriseftirlits Seðlabankans var í tölvupóstsamskiptum við starfsmann RÚV í rúman mánuð áður en ráðist var í húsleitina 27. mars 2012. Frétta- og myndatökumenn RÚV voru mættir við skrifstofur Samherja áður en húsleitin hófst. Viðskipti innlent 27. október 2019 18:30
Lögreglumaður ákærður fyrir að reyna hindra framgang máls sonar hans Héraðssaksóknari hefur gefið út ákæru á hendur lögreglumanni fyrir að hafa reynt að hindra framgang máls þar sem sonur hans var kærður fyrir of hraðan akstur. Þá er hann einnig ákærður fyrir ólöglegar uppflettingar í LÖKE, upplýsingakerfi lögreglunnar. Ellefu lögreglumenn hafa verið ákærðir fyrir brot í starfi á fjórum árum. Innlent 26. október 2019 18:30
Þrír ákærðir fyrir brot í starfi árlega frá 2016 Ellefu lögreglumenn hafa verið ákærðir fyrir brot í starfi á fjórum árum. Fyrsti sýknudómurinn féll í síðustu viku. Átta hafa verið sakfelldir. Langflestum málum var vísað frá. Þyngsti dómurinn er 15 mánaða fangelsi. Innlent 26. október 2019 09:00
Kæra á hendur Sveini Andra felld niður Kæra Skúla Gunnars Sigfússonar, sem kenndur er við Subway, og viðskiptafélaga hans á hendur Sveini Andra Sveinssyni hæstaréttarlögmanni hefur verið felld niður af héraðssaksóknara. Innlent 26. október 2019 08:30
Keypti áfengi fyrir unglingsstúlkur og braut svo á þeim Karlmaður hefur verið dæmdur í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi til tveggja ára fyrir að hafa keypt áfengi fyrir táningsstúlkur og brotið á tveimur þeirra kynferðislega. Innlent 25. október 2019 21:13
Ekki alveg sami fullnaðarsigurinn gegn Skúla Landsréttur staðfesti í dag að hluta dóm héraðsdóms í máli Stemmu hf., fyrirtækis Skúla Gunnars Sigfússonar, gegn Sigmari Vilhjálmssyni og félaginu Sjarmi og garmi. Viðskipti innlent 25. október 2019 19:41
Isavia stefnir íslenska ríkinu og ALC Isavia hyggst á næstu dögum stefna íslenska ríkinu og flugvélaleigufélaginu Air Lease Corporation (ALC) fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. Innlent 25. október 2019 09:38
Átta mánaða fangelsi fyrir líkamsmeiðingar af gáleysi undir áhrifum lyfjakokteils Karlmaður á þrítugsaldri hefur verið dæmdur í átta mánaða skilorðsbundið fangelsi, meðal annars fyrir líkamsmeiðingar af gáleysi þegar hann olli umferðarslysi á Suðurlandsvegi í janúar 2018. Maðurinn var undir áhrifum slævandi lyfja sem hann hefði fengið ávísað frá lækni og eiturlyfja, er slysið varð. Innlent 25. október 2019 07:30
Krafa ríkisins óbreytt um sinn Fyrirtaka var í máli Guðjóns Skarphéðinssonar gegn íslenska ríkinu í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Innlent 25. október 2019 06:00
Maður grunaður um sleitulausa brotahrinu í gæsluvarðhald Landsréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðsdóms Suðurlands fyrir manni sem grunaður er um fjölmörg brot, þar með talið meintar hótanir, frelsissviptingu og vopnalagabrot. Lögreglan segir að brotahrina mannsins hafi verið sleitulaus á undanförnum vikum. Innlent 24. október 2019 18:32
Sakfelld fyrir að kýla lögreglumann með krepptum hnefa í gagnaugað Kona var í Héraðsdómi Reykjaness þann 18. september sakfelld fyrir brot gegn valdstjórninni þegar hún kýldi óeinkennisklæddan lögreglumann með krepptum hnefa í gagnaugað á tónlistarhátíðinni Secret Solstice í sumarið 2018. Innlent 24. október 2019 13:24