Umfjöllun og viðtal: Valur 0-3 Keflavík | Einum fleiri gengu Keflvíkingar á lagið Keflavík vann gríðarlega mikilvægan sigur á Valsmönnum að Hlíðarenda í kvöld, 0-3. Keflavík komst yfir í fyrri hálfleik úr vítaspyrnu sem kostaði heimamenn rautt spjald að auki. Gestirnir lokuðu leiknum svo í síðari hálfleik eftir mikla orrahríð að marki Vals. Íslenski boltinn 11. júlí 2022 21:30
Umfjöllun og viðtöl: Fram-FH 1-0 | FH-ingar sigraðir í Grafarholti Fram tók á móti FH í Bestu deild karla í fótbolta í kvöld. Fyrir leikinn voru liðin jöfn að stigum í 8. og 9. sæti deildarinnar með aðeins 10 stig að loknum 11 umferðum. Eina mark leiksins kom eftir 50 mínútna leik og var það Tiago Manuel Da Silva Fernandes á skotskónum fyrir Framara. Lokatölur 1-0. Fótbolti 11. júlí 2022 20:53
Arftaki Kristals Mána fundinn: „Glaður og spenntur, það eru orðin tvö“ Danijel Dejan Djuric er genginn í raðir Íslands- og bikarmeistara Víkings. Hann kemur úr unglingastarfi Midtjylland í Danmörku en þessi ungi leikmaður lék með Blikum áður en hann fór út í atvinnumennsku árið 2019. Íslenski boltinn 11. júlí 2022 16:01
Dagskráin: Golf og Besta-deildin Stöð 2 Sport er með fimm beinar útsendingar í dag. Opna breska mótaröðin í golfi og Besta-deild karla í fótbolta eru í aðalhlutverkum. Sport 11. júlí 2022 06:00
Valur bætir í flóruna af framherjum Karlalið Vals í fótbolta hefur fengið nýjan framherja til liðs við sig. Um að ræða danska leikmanninn Frederik Ihler en hann kemur frá AGF sem leikur í dönsku úrvalsdeildinni. Fótbolti 10. júlí 2022 11:20
Sjáðu öll sjö mörkin í endurkomusigri KA gegn ÍBV Eyjamenn voru grátlega nálægt sínum fyrsta sigri í Bestu-deildinni í gær en þeir komust tvívegis yfir gegn KA áður norðanmenn sneru leiknum við sér í hag. Fótbolti 10. júlí 2022 07:00
Sjáðu glæsimörk úr leik Víkings og ÍA Víkingur vann 3-2 sigur á ÍA í Bestu-deild karla í dag. Logi Tómasson, Viktor Örlygur Andrason og Erlingur Agnarsson skoruðu mörk Víkings en Ingi Þór Sigurðsson gerði bæði mörk ÍA. Fótbolti 9. júlí 2022 21:45
Umfjöllun og Viðtöl: Víkingur 3-2 ÍA | Íslandsmeistararnir hefndu fyrir tapið á Skaganum Íslands- og bikarmeistarar Víkings fengu Skagamenn í heimsókn í 12. umferð Bestu-deild karla í fótbolta. Eini sigurleikur Skagamanna hingað til í sumar kom gegn Víkingum í 2. umferð á Skipaskaga en meistararnir náðu að hefna fyrir það tap með 3-2 sigri í dag. Íslenski boltinn 9. júlí 2022 19:45
Kristall Máni: Ég reyndar held að þetta sé ekki minn síðasti leikur Víkingar unnu góðan 3-2 sigur á ÍA í Víkinni í dag. Kristall Máni, sem hefur verið frábær fyrir Víkinga í sumar, hvorki skoraði né lagði upp í þessum leik en átti þó góðan leik líkt og oftast, sérstaklega í upphafi leiks. Sport 9. júlí 2022 18:45
Umfjöllun: KA 4-3 ÍBV | Frábært sigurmark skilaði heimasigri í markaleik KA vann mikilvægan heimasigur á botnliði ÍBV á Akureyri í dag. Leikurinn var stórkostleg skemmtun og sjö mörk litu dagsins ljós en það var Elfar Árni Aðalsteinsson sem skoraði sigurmark heimamanna. Íslenski boltinn 9. júlí 2022 18:00
Emil Ásmundsson snýr aftur í Fylki Emil Ásmundsson, leikmaður KR, hefur verið lánaður til uppeldisfélags síns í Árbænum. Emil mun því leika með Fylki í Lengjudeildinni í sumar. Fótbolti 8. júlí 2022 20:31
Kristall Máni við það að skrifa undir hjá Rosenborg Kristall Máni Ingason, leikmaður Íslands- og bikarmeistara Víkings, er sagður á leið til Noregs þar sem hann mun ganga til liðs við stórliðið Rosenborg. Fótbolti 8. júlí 2022 10:15
Skaginn bætir við sig miðverði Karlalið ÍA í fótbolta hefur fengið til liðs við sig Tobias Stagaard á láni út yfirstandandi keppnitímabil frá danska félaginu AC Horsens. Fótbolti 8. júlí 2022 07:30
Óli Valur mögulega á leið til Svíþjóðar Sænska úrvalsdeildarfélagið Sirius hefur mikinn áhuga á Óla Val Ómarssyni, hægri bakverði Stjörnunnar og einni skærustu stjörnu Bestu deildar karla í fótbolta. Fótbolti 6. júlí 2022 14:01
Guðmundur Andri og Kaj Leo í skammarkróknum í tvo leiki Guðmundur Andri Tryggvason, leikmaður Vals, og Skagamaðurinn Kaj Leo i Bartalsstovu voru í dag úrskurðaðir í tveggja leikja bann af aga- og úrskurðarnefnd KSÍ. Fótbolti 5. júlí 2022 18:26
Náði góðum myndum af rauða spjaldi Guðmundar Andra Valsmenn misstu mann af velli í stöðunni 1-0 á móti KA í Bestu deildinni í gær og enduðu á því að fara bara með eitt stig suður til Reykjavíkur. Íslenski boltinn 5. júlí 2022 14:30
Loks vann Leiknir, Stjarnan bjargaði stigi líkt og KA Þrír leikir fóru fram í Bestu deild karla í fótbolta í gær. Hér að neðan má sjá mörkin úr leikjunum þremur. Íslenski boltinn 5. júlí 2022 10:31
Víkingar mæta til Malmö með sjálfstraustið í botni Íslands- og bikarmeistarar Víkings mæta Malmö ytra í undankeppni Meistaradeildar Evrópu í dag. Víkingar mæta fullir sjálfstrausts í leikinn, sem er sýndur beint á Stöð 2 Sport, eftir átta sigurleiki í röð. Íslenski boltinn 5. júlí 2022 08:01
Umfjöllun og viðtöl: Leiknir R.-ÍA 1-0 | 330 daga bið eftir deildarsigri Leiknis á enda Leiknir vann sinn fyrsta leik í Bestu-deildinni. Seinasti sigur Leiknis í deildinni kom þann 8. ágúst á síðasta ári gegn Val. 330 dögum síðar kom 1-0 sigur gegn ÍA þar sem Mikkel Elbæk Jakobsen reyndist hetja Breiðhyltinga. Íslenski boltinn 4. júlí 2022 22:38
„Í fyrra skoruðum við úr færunum en erum að spila betur í ár“ Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Leiknis var í skýjunum með fyrsta sigur Leiknis á tímabilinu. Leiknir vann ÍA 1-0 þar sem Mikkel Elbæk Jakobsen gerði sigurmark heimamanna. Sport 4. júlí 2022 22:14
Umfjöllun og viðtöl: FH-Stjarnan 1-1 | Enn eitt jafntefli liðanna eftir æsilegar lokamínútur FH og Stjarnan þurfa að deila stigunum sem voru í boði í dag eftir að hafa gert jafntefli 1-1 í Kaplakrika. Leikurinn var í hægara lagi og fá færi litu dagsins ljós þangað til í uppbótartíma en Stjarnan jafnaði metin þegar lítið var eftir og bæði lið hefðu getað skorað í uppbótartíma. FH komst tvisvar í góða skyndisókn og Stjarnan skaut í stöng. Íslenski boltinn 4. júlí 2022 22:00
Umfjöllun og viðtöl: KA-Valur 1-1 | KA og Valur skiptu stigunum á milli sín KA og Valur gerðu 1-1 jafntefli á Greifavellinum nú í kvöld þegar liðin mættust í 11. umferð Bestu deildar karla. Íslenski boltinn 4. júlí 2022 21:32
Matthías: Ég hef mikla trú á því að við verðum betri með tímanum Fyrirliði FH-inga var skiljanlega svekktur að fá á sig jöfnunarmark þegar þrjár mínútur voru eftir af leik liðsins á móti Stjörnunni í kvöld. Leikið var í Kaplakrika og var leikurinn hluti af 11. umferð Bestu deildar karla í fótbolta og endaði 1-1 en FH var betri aðilinn lengst af. Íslenski boltinn 4. júlí 2022 21:31
Heimir um markmannsstöðuna: Það má ekki nota orðið samkeppni í dag KA og Valur skildu jöfn, 1-1, á Greifavellinum á Akureyri nú í kvöld. Heimi Guðjónssyni, þjálfara Vals, fannst jafntefli vera sanngjörn niðurstaða . Íslenski boltinn 4. júlí 2022 20:55
Staðfesti leikskýrslu í Bestu deildinni en gleymdi að skrá mörkin Víkingar unnu 3-0 sigur á KR í fyrsta leik elleftu umferðar Bestu deildar karla á föstudagskvöldið. Nú hefur dómari leiksins skilað staðfestri leikskýrslu en hún er hins vegar meingölluð. Íslenski boltinn 4. júlí 2022 14:32
Sjáðu hvernig sjóðheitir Keflvíkingar kláruðu Framara í gær Keflvíkingar nálguðust efri hluta Bestu deildar karla með 3-1 heimasigri á Fram í gærkvöldi. Íslenski boltinn 4. júlí 2022 14:00
Mikill hiti er KR og Selfoss mættust fyrst allra í Besta þættinum Fyrsti þátturinn af Besta þættinum er kominn út en í þættinum eru leikmenn og stuðningsmenn liða í Bestu deildinni paraðir saman í keppni á móti öðru pari annars liðs. Íslenski boltinn 4. júlí 2022 13:16
Fram staðfestir kaupin á Brynjari Gauta Miðvörðurinn Brynjar Gauti Guðjónsson er orðinn leikmaður Fram í Bestu deild karla en félagið staðfesti félagsskiptin inn á miðlum sínum. Íslenski boltinn 4. júlí 2022 13:04
Almarr: Þeir áttu þetta skilið Almarr Ormarsson, leikmaður Fram, var að vonum ósáttur eftir tap liðsins gegn Keflavík í Bestu deild karla í kvöld en lokatölur leiksins voru 3-1. Íslenski boltinn 3. júlí 2022 22:00
Umfjöllun og viðtöl: Keflavík-Fram 3-1 | Öruggur sigur heimamanna Keflavík hafði betur gegn Fram í Bestu deild karla í knattspyrnu í kvöld, lokatölur 3-1. Bæði lið voru taplaus í síðustu þremur leikjum liðanna fyrir leikinn og því bæði lið búin að vera á góðu róli en það voru Keflvíkingar sem réðu ferðinni í þessum leik. Íslenski boltinn 3. júlí 2022 21:30