Lögreglan reif niður fána Óskabarna ógæfunnar Töldu um brot á fánalögum að ræða. Leikstjórinn segir lögregluna vaða villu og svíma. Innlent 28. október 2019 13:20
Lykilatriði að stefna Íslandsbanka hreyfi ekki við ritstjórnarlegu sjálfstæði Lilja Dögg Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra segir að tryggt þurfi að vera að stefna Íslandsbanka að auglýsa ekki hjá fjölmiðlum með afgerandi kynjahalla hafi ekki áhrif á ritstjórnarlegt frelsi fjölmiðla. Innlent 28. október 2019 09:12
Loftslagsmálin til umræðu á þingi Norðurlandaráðsins Þing Norðurlandaráðs, hið 71. í röðinni, fer fram í Stokkhólmi í vikunni en þar koma saman þingmenn og ráðherrar frá öllum Norðurlöndunum. Loftslagsmál, sjálfbærni og þátttaka ungs fólks í mótun markmiða eru áberandi á dagskránni. Ísland fer með formennsku í ráðinu á næsta ári. Innlent 28. október 2019 07:00
Kanna þurfi lögmæti kirkjusamnings Undirnefnd sem fjárlaganefnd skipaði vegna nýs samnings ríkisins við Þjóðkirkjuna telur að óska þurfi eftir ítarlegum upplýsingum frá fjármálaráðuneyti um samninginn. Ríkisendurskoðun meti hvort samningurinn er í samræmi við lög um opinber fjármál. Innlent 28. október 2019 06:15
BÍ fordæmir aðgerðir Íslandsbanka fortakslaust í harðorðri ályktun Stjórn Blaðamannafélags Íslands telur Íslandsbanka á miklum villigötum varðandi viðskiptaþvinganir á hendur fjölmiðlum. Innlent 25. október 2019 14:32
Forseti Alþingis íhugar heimboð forseta rússnesku Dúmunnar Steingrímur segir mikilvægt að halda samskiptaleiðum við Rússland opnum en ætlar að ráðfæra sig við íslensk stjórnvöld áður en hann tekur afstöðu til heimboðsins. Innlent 25. október 2019 12:01
Háar fjárhæðir árlega frá ríkinu vegna ORRA Gríðarlegur kostnaður fer í viðhald og rekstur bókhaldskerfis ríkisins. Kerfið er í eigu Oracle og Advania. Fyrirtækin fá hundruð milljóna árlega frá ríkinu vegna kerfisins. Fjármála- og efnahagsráðherra telur rétt að skoða málið. Innlent 25. október 2019 06:00
Vill göng undir Tröllaskaga Varaþingmaður Framsóknarflokksins hefur lagt fram þingsályktunartillögu um að samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra láti hefja vinnu við frumhönnun og mat á hagkvæmni á gerð jarðganga á Tröllaskaga. Innlent 25. október 2019 06:00
Tal um veikingu eftirlits með samkeppni sé ósannfærandi Sérfræðingur í samkeppnisrétti segir að allt tal um að nýtt frumvarp muni veikja Samkeppniseftirlitið sé ósannfærandi. Fyrirhugaðar breytingar varðveiti markmið samkeppnislaga og feli ekki í sér neinn slaka. Viðskipti innlent 25. október 2019 06:00
Mælti fyrir frumvarpi um nýja stjórnarskrá Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, mælti í dag fyrir frumvarpi til stjórnskipunarlaga um stjórnarskrá íslenska lýðveldisins. Logi segist í samtali við Vísi vera hóflega bjartsýnn á að málið nái fram að ganga. Innlent 24. október 2019 17:10
Sökuðu hvor annan um hringlandahátt Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnaráðherra, svaraði þingmanni Pírata fullum hálsi sem sagði hringlandahátt ríkja í stefnu stjórnvalda um veggjöld. Sigurður Ingi sakaði Pírata á móti um hringlandahátt í sinni stefnu. Innlent 24. október 2019 13:30
Funduðu um jafnréttismál á kvennafrídeginum Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, boðaði í dag til fundar í ráðherranefnd um jafnréttismál. Innlent 24. október 2019 12:11
„Ekki krúttlegur friðarklúbbur“ Alþingi samþykkti í morgun þingsályktunartillögu utanríkisráðherra um aðild Norður-Makedóníu að NATO með 32 atkvæðum en 11 sátu hjá. Þeirra á meðal voru allir þingmenn Vinstri grænna en flokkurinn hefur alla tíð verið andvígur aðild Íslands að NATO. Innlent 24. október 2019 11:44
Útspil Íslandsbanka kemur fjármálaráðherra spánskt fyrir sjónir Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra veltir fyrir sér hvar Íslandsbanki ætli að draga mörkin þegar komi að jafnréttismálum. Bankinn, sem er í eigu ríkisins, ætlar að beina viðskiptum sínum frá karlægum fyrirtækjum og hætta að kaupa auglýsingar hjá fjölmiðlum "sem bjóða upp á afgerandi kynjahalla.“ Viðskipti innlent 24. október 2019 11:30
Þorsteinn studdi ekki tillögu um frumkvæðisathugun á verklagi ráðherra Þorsteinn Sæmundsson, þingmaður Miðflokksins, segist ekki hafa stutt tillögu um að hefja frumkvæðisathugun á verklagi ráðherra í tengslum við aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka þar sem ekki lægi nægilega ljóst fyrir hvernig ætti að framkvæma slíka athugun Innlent 23. október 2019 20:47
Ekki megi stilla upp aðferðum við kolefnisbindingu sem andstæðum Margvísleg mistök voru gerð við framræslu votlendis á Íslandi að sögn þingmanns Framsóknarflokksins. Gæta þurfi að því að falla ekki í sömu gryfjuna við endurheimt þess. Innlent 23. október 2019 20:00
Gengur gegn hagsmunum barns að fangelsa foreldri Það gengur beinlínis gegn hagsmunum barna að fangelsa foreldri fyrir tálmun á umgengni, líkt og frumvarp sem liggur fyrir Alþingi gerir ráð fyrir. Þetta segir framkvæmdastjóri Mannréttindaskrifstofu Íslands sem mælir harðlega gegn því að frumvarpið verði samþykkt. Innlent 23. október 2019 18:30
Helmingur landsmanna með litlar áhyggjur af þriðja orkupakkanum Eins við mátti búast reyndist stuðningsfólk Viðreisnar (83%) og Samfylkingar (82%) líklegra en stuðningsfólk annarra flokka til að segjast hafa litlar áhyggjur af áhrifum þriðja orkupakkans. Innlent 23. október 2019 14:35
Allir nema einn samþykktu að hefja frumkvæðisrannsókn Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd samþykkti á fundi sínum í dag að hefja frumkvæðisrannsókn á verklagi ráðherra í tengslum við aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Tillagan var samþykkt með öllum atkvæðum nefndarmanna nema einu. Innlent 23. október 2019 12:03
Þorsteinn og Þorsteinn Þingmaður Vinstri grænna skrifar um málflutning þingmanns Viðreisnar. Skoðun 23. október 2019 07:14
Óli Björn segir Samfylkingu og Viðreisn vilja einangra Ísland í „fyrirmyndarríkinu ESB“ Formaður efnahags- og viðskiptanefndar vill að unnið verði að fríverslunarsvæði ríkja við norður Atlantshaf. Innlent 22. október 2019 19:15
Katrín segist til í að hitta Klúbbmenn Þá hafi þeir þegar fengið bætur og afsökunarbeiðni. Innlent 22. október 2019 18:14
Segir enga sátt ríkja um frumvarp um þjóðarsjóð Oddný G. Harðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar segir ljóst að engin sátt ríki um frumvarp um þjóðarsjóð í ljósi þess að fjögur nefndarálit voru gefin út þegar málið var afgreitt úr efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis í vor. Innlent 22. október 2019 17:33
„Dálítið ófyrirsjáanlegt og ógagnsætt” Fjármálaráðherra segir ferlið við ákvörðun um grálistun FATF-hópsins, sem vaktar varnir ríkja gegn peningaþvætti, vera ógagnsætt. Innlent 22. október 2019 11:41
Segir engar vísbendingar um veruleg áhrif af veru Íslands á gráum lista Engar vísbendingar eru um það að vera Íslands á gráum lista FATF-hópsins hafi haft veruleg áhrif á íslenskt efnahagslíf til þessa. Þetta hafi þó í för með sér óvissuþætti. Þetta kom fram í máli Bjarna Benediktssonar, fjármála- og efnahagsráðherra. Innlent 22. október 2019 10:38
Bein útsending: Áslaug Arna og Bjarni svara fyrir veru Íslands á gráa listanum Opinn fundur efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis þar sem fjalla á um veru Íslands á gráum lista samtakanna Financial Action Task Force (FATF) yfir ríki sem hafa ekki nægar varnir gegn peningaþvætti hefst klukkan níu. Innlent 22. október 2019 08:30
Skattahækkanir ríkisstjórnarinnar Ekkert er öruggt í þessu lífi nema dauðinn og skattar Skoðun 22. október 2019 07:00
Eru fyrst og fremst að taka til Ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra boða aðgerðir til að einfalda regluverk. Binda vonir við að önnur ráðuneyti og sveitarfélög grípi til sömu aðgerða. Innlent 22. október 2019 06:00
„Nú eigum við að flýta okkur hægt“ Ekki liggur fyrir hvernig best verður gætt að heildarhagsmunum ríkisins við sölu á eignarhlutum þess í bönkunum. Þetta segir Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra. Innlent 21. október 2019 23:30
Vísar því á bug að fjárfestingaleið Seðlabankans hafi verið opinbert peningaþvætti Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra gerir athugasemdir við ummæli sem látin hafa verið falla um að Seðlabanki Íslands hafi beinlínis staðið fyrir peningaþvætti með fjárfestingaleið bankans. Innlent 21. október 2019 17:19