Besti árangur sem Íslendingur hefur náð á Vetrarólympíuleikum
Snorri Einarsson endaði í 23. sæti í 30 km skíðagöngu karla með frjálsri aðferð á Vetrarólympíuleikunum í Pekíng í morgun, en það er besti árangur sem íslenskur skíðagöngumaður hefur náð á Ólympíuleikum.