Féll í myndlist en fann sig sem myndlistarmaður Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 18. desember 2024 07:00 Bergur Nordal er búsettur í Vínarborg en var að opna sýna fyrstu einkasýningu hérlendis. Hann á ekki langt að sækja myndlistarhæfileikana. Brynley Odu Davies „Ég verð að segja að mamma og pabbi höfðu rétt fyrir sér, ég fíla mig feitt í myndlist og sé ekkert eftir því vali,“ segir myndlistarmaðurinn Bergur Nordal sem var að opna sína fyrstu einkasýningu hérlendis síðastliðna helgi á Kontórnum, Hverfisgötu. Bergur hefur verið búsettur í Vínarborg undanfarin ár þar sem hann stundar nám við Listaakademíuna og hefur meðal annars sýnt í frægu listgalleríi í Berlín.
Morguntímarnir unnu ekki með honum Það má segja að skrifað hafi verið í stjörnurnar hver framtíð Bergs yrði. „Þegar ég var barn var ég alltaf sendur í Myndlistarskólann í Reykjavík og ég sótti þar aragrúa af námskeiðum alveg frá bernsku. Ég hef aldrei fílað að gera línuteikningar eða í raun blýantsteikningu og eini áfanginn sem ég hef fallið á ævinni er myndlist í MH. Ég held að það hafi verið blanda af því að sá áfangi var mikið um fjarpunkta og svo var hann líka alltaf í fyrsta tíma á morgnana. Eftir MH þá var lagt fyrir mig að annað hvort tæki ég eitt ár í Myndlistarskólanum á Sjónlistarbraut eða ég ætti að flytja að heiman. Svo ég gerði það, sótti reyndar um í fornleifafræði en ákvað frekar að gera eins og mér var sagt. Eftir það komst ég inn í myndlist í LHÍ svo ég gerði það bara líka og ég verð að segja að mamma og pabbi höfðu rétt fyrir sér, ég fíla mig feitt í myndlist og sé ekkert eftir því vali,“ segir Bergur en foreldrar hans eru listamennirnir Ólöf Nordal og Gunnar Karlsson. Bergur fetaði í fótspor foreldra sinna veg listarinnar.Árni Einar Marselíusarson Myndlist sem er aðgengileg öllum Bergur hefur farið nokkuð óvanalega leið í sínu fígúratífa málverki og vakið athygli safnara þó almenningur á Íslandi hafi ekki kynnst honum mikið, enda ungur að árum og aldrei haldið sýningu hér áður. „Pabbi er málari og mamma er er skúlptúristi svo ég fékk alltaf þessa hvatningu í það að skapa. Ég var líka tekinn með á ótal sýningar þegar ég var barn og það hefur haft þau áhrif á mig að ég reyni að gera myndlist sem er aðgengileg fyrir alla. Ég mála fígúratíf málverk sem er í rauninni í nokkurri andstöðu við póstmódernismann sem var ráðandi í þegar ég var barn.“ Verk Bergs eru fígúratíf.Árni Einar Marselíusarson Bergur kláraði námið í Listaháskóla Íslands sem hann segir að hafi verið mikið byggt á konsept list. „Mig langaði svo að hella mér yfir í málverk af alvöru. Ég fann þennan skóla úti, Listaakademíuna í Vín, sem byggist á öðru módeli en master/bachelor prógrömm. Þar er miklu meiri áhersla á að ná verklegri færni á myndlistinni heldur en að einblýna endilega á konseptið. Mér finnst þessi blanda sem ég fékk, bæði hér í LHÍ og úti, vera ómetanleg.“ Bergur málar alla daga, alltaf.Árni Einar Marselíusarson Málar alla daga, alltaf Aðspurður hvort hann finni mun á listsenunni hérlendis miðað við úti segir Bergur: „Já, senan hérna heima er náttúrulega minni en mér finnst hún vera mjög frjáls líka. Það eru fáar sýningar sem reyna á nokkurn hátt að spila leik kapítalismans hér heima sem gerir það að verkum að fólk fær tækifæri til að tjá sig í gegnum myndlist á mismunandi vegu.“ Þrátt fyrir að þetta sé fyrsta einkasýning hans hérlendis er þetta hans fimmta yfir höfuð. „Þetta er sömuleiðis önnur sýningin sem ég vinn fyrir yfirlýst gallerí en ekki svokallað „project space“. Undirbúningurinn hófst þannig lagað löngu áður en Burkni og Skúli hjá Kontór höfðu samband við mig í vor. Ég fer í stúdíó og mála alla daga, alltaf, og ég var nýbúinn að tæma lagerinn minn í fyrra fyrir sýningu svo ég vissi að ég þyrfti að eiga einhver verk inni. Síðan heyrði ég frá þeim núna í vor, fékk að sjá rýmið, og gat byrjað að setja saman heildstæða sýningu.“ View this post on Instagram A post shared by Bergur Nordal (@bergurnordal) Undirliggjandi ólga og óáþreifanleg hætta Hann segir að innblásturinn geti komið til hans frá mörgum áttum. „Hann getur sprottið úr náttúrunni, gömlum minningum, samskiptum eða jafnvel úr hversdagslegum hlutum sem vekja hjá mér tilfinningar. Ég fer samt aldrei inn í verk með einhverja fastmótaða stefnu heldur leyfi ég verkinu alltaf að ráða förinni. Í þessari sýningu er undirliggjandi ólga og vá í myndunum þó hún leynist kannski bak við fjallið eða handan við myndflötinn. Hættan er til staðar en hún er ekki enn komin hingað.“ Bergur segir sömuleiðis skemmtilegt að geta hleypt sýningargestum inn í hugarheim hans á sýningu sem þessari. „Þetta er augnablik þar sem öll vinna mín verður opinber og hægt að upplifa hana á þá vegu sem hverjum og einum sýnist. Það er ákveðin frelsistilfinning en líka mikil berskjöldun, því maður setur brot af sjálfum sér í hverju verki. Að sýna verk sem maður hefur unnið af ástríðu er eins og að opna dyr inn í eigin hugsanir og tilfinningar. Það getur verið ógnvekjandi að vita að hver og einn gestur les verkin á sinn hátt. En einmitt til þess vill maður vera að þessu, til að sjá þetta samspil milli málverkanna og áhorfandans.“ View this post on Instagram A post shared by Bergur Nordal (@bergurnordal) Þakklátur fyrir gesti í desember veðrinu Opnunin gekk vonum framar og einkenndist að sögn Bergs af stuði. „Það var fullt af fólki sem kom og mér fannst allir bara verða nokkuð hressir með sýninguna. Ég er ógeðslega þakklátur þeim fyrir að mæta þrátt fyrir desember veður.“ Spurður að lokum hvað sé á döfinni segir hann: „Útskrift í vor og svo bara restin af ævinni minni eftir það.“ Burkni J. Óskarsson, Skúli Gunnlaugsson og Bergur Nordal á opnuninni.Aðsend
Sýningar á Íslandi Myndlist Menning Íslendingar erlendis Mest lesið Jólagjafir íslenskra vinnustaða Lífið Jólagjöf ársins er stóllinn sem getur allt nema flogið Lífið Brostnar væntingar á Frostrósum Gagnrýni Besta jólagjöfin að sjá bata foreldranna Lífið Áreittar í sundi fyrir það að vera hinsegin Menning Guðmundur „ofpeppaðist“ og reif sig á kassann Lífið „Í stórgróða“ að eyða jólunum á Tene Lífið Frægir fjölguðu sér árið 2024 Lífið Ellen Margrét og Arnmundur orðin hjón Lífið Smakkaði skötu í fyrsta sinn undir eftirliti sérfræðinga Lífið Fleiri fréttir Áreittar í sundi fyrir það að vera hinsegin Arnaldur tók sér frí frá glæpum en ekki toppnum Jói Pé og Króli skrifa söngleik Féll í myndlist en fann sig sem myndlistarmaður Bestu vinkonur sameinast í listinni Bjarni og Sigurður verði ekki myrtir í bók Borgarleikhúsið setur upp Moulin Rouge 250 sýningar af Elly: „Án hennar væri Íslandssagan öðruvísi“ Heitustu stjörnur listarinnar saman í Ásmundarsal Snorri skein skært í hátíðarbrókinni Engin sé uppskeran ef kartöflurnar eru ekki settar niður Verður ýmist í leyfi eða hlutastarfi á listamannalaunum Þessi fá listamannalaun 2025 Gleðilegir gestir í hátíðarskapi á safninu „Spurning um að fara að sækja réttu kokteilboðin“ Geir og Arnaldur í fangbrögðum á toppnum Í beinni: Dagur íslenskrar tónlistar Reykjavík samdi til þriggja ára við Borgarleikhúsið Bróðir Díönu Prinsessu naut sín í Reykjavík Leikstjóri Forrest Gump mættur til Reykjavíkur 52 ár á milli þeirra og þrjár bækur Ballettdansarinn Vladimir Shklyarov látinn Einar og Sigga á Grund gerð að heiðurslistamönnum Skaðlegt geðheilsunni að reyna að geðjast öðrum Leikfélag Hafnarfjarðar lagt niður Víkingur Heiðar tilnefndur til Grammy-verðlauna Frambjóðendur, sjónvarpsstjörnur og gamlir félagar fögnuðu með Geir Setja upp árekstur og hefja saman rekstur „Þetta eru mjög vondir samningar við Storytel“ Varpa ljósi á mikilvægi og gæði íslenskrar hönnunar Sjá meira