Vindur á niðurleið en næsta lægð nálgast úr suðvestri Atli Ísleifsson skrifar 10. desember 2024 07:13 Spáð er hita um eða undir frostmarki í dag. Vísir/Vilhelm Vindhraði á landinu er nú á niðurleið og verður hann orðinn hægur víðast hvar síðdegis. Það er léttskýjað á austanverðu landinu, en vestantil eru dálítil él á sveimi, en þeim fækkar eftir því sem líður á daginn.
Á vef Veðurstofunnar segir að það sé heldur að kólna og stefni í vægt frost eftir hádegið. „Í kvöld og nótt nálgast næsta lægð úr suðvestri. Hún veldur suðaustanátt á morgun, stinningskaldi eða allhvass vindur. Úrkomusvæði lægðarinnar fer yfir og því má víða um land búast við ringingu eða slyddu. Útlit er fyrir talsverða rigningu sunnan- og vestanlands um tíma eftir hádegi og þá hefur hlýnað vel yfir frostmark um mestallt land,“ segir á vef Veðurstofunnar. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á miðvikudag: Suðaustan 10-18 m/s og talsverð rigning eða slydda, en úrkomuminna á Norðausturlandi. Hlýnar í veðri, hiti 2 til 9 stig síðdegis. Á fimmtudag: Sunnan og suðvestan 8-15 og slydduél, en bjartviðri norðaustantil. Hiti 0 til 5 stig. Snýst í norðanátt með snjókomu norðvestanlands um kvöldið og kólnar. Á föstudag: Norðvestanátt og snjókoma eða él um landið norðanvert. Bjartviðri sunnanlands og síðar einnig vestantil á landinu. Frost 0 til 8 stig. Á laugardag: Sunnanátt með slyddu og síðar rigningu, hlýnar um tíma. Vestlægari og skúrir eða él vestantil um kvöldið. Á sunnudag: Suðvestanátt og él, en þurrt austanlands. Hiti um og undir frostmarki. Á mánudag: Breytileg og síðar norðlæg átt og víða él, en léttir til á sunnanverðu landinu. Herðir á frosti.
Veður Mest lesið Sæstrengur milli Eistlands og Finnlands rofinn Erlent Töldu að ævilöng vesælmennska biði „barnanna á mölinni“ Innlent Girnist Panama-skurðinn, Grænland og Kanada Erlent Erfiður tími þegar dóttirin kom út sem trans Innlent Þau kvöddu á árinu 2024 Erlent Dregur úr vindi en áfram vetrarveður Veður Jólakindin Djásn á Stokkseyri Innlent Standa vaktina á jóladag: „Þetta er bara eins og hina dagana“ Innlent Þak fauk nánast af hlöðu Innlent Um helmingur farþega komst lífs af Erlent Fleiri fréttir Dregur úr vindi en áfram vetrarveður Appelsínugular viðvaranir og vegir víða lokaðir Appelsínugular viðvaranir og heiðar lokaðar Lokað um Þrengsli og vegir víða á óvissustigi Ákveðin suðaustanátt og víða snjókoma Stíf norðanátt og frost í flestum landshlutum Köldu éljalofti beint til landsins Víða kaldi og él Lægð beinir vestlægri átt til landsins Hlýnar með skúrum og slydduéljum Stormur á Austfjörðum Allhvass vindur með skúrum eða éljum Útlit fyrir allhvassan vind með rigningu Vindur á niðurleið en næsta lægð nálgast úr suðvestri Góðar líkur á rauðum jólum í Reykjavík Dregur úr vindi og úrkomu með morgninum Köld norðanátt og víða él Stöku él og vaxandi norðaustanátt Skúrir eða él á víð og dreif Vaxandi lægð og gular viðvaranir víða um land Gular viðvaranir í borginni og víðar Viðvaranir komnar í gildi og orðið ófært sums staðar Frost fór víða yfir tuttugu stig í nótt Kaldri norðlægri átt beint til landsins Gul viðvörun á Vestfjörðum Yfirgnæfandi líkur á óveðri á kjördag og líklegt að vegir teppist Skúrir eða slyddu en þurrt austantil Hiti að sex stigum Norðanátt og éljalofti beint til landsins Áfram kalt og bætir í vind á morgun Sjá meira