Enski boltinn

Tengda­sonur Keane skoraði fyrir enska lands­liðið

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Roy Keane er ekki alveg búinn að skrifa undir það að dóttir hans standi við það að giftast Taylor Harwood-Bellis.
Roy Keane er ekki alveg búinn að skrifa undir það að dóttir hans standi við það að giftast Taylor Harwood-Bellis. Getty/James Gill -

Taylor Harwood-Bellis opnaði markareikning sinn fyrir enska landsliðið í stórsigri á Írlandi í Þjóðadeildinni. Í ljós kom að verðandi tengdafaðir hans var í myndverinu hjá Sky Sports.

Harwood-Bellis er 22 ára miðvörður Southampton og var þarna að spila sinn fyrsta A-landsleik.

Hann hafði aldrei skorað í 26 leikjum fyrir enska 21 árs landsliðið en þarna tók hann aðeins sautján mínútur að opna markareikning sinn fyrir enska A-landsliðið.

Harwood-Bellis kom inn á sem varamaður fyrir Kyle Walker á 62. mínútu og skoraði síðan fimmta og síðasta mark enska landsliðsins á 79. mínútu. Markið skoraði hann með skalla eftir fyrirgjöf frá Jude Bellingham.

Það sem gerði þetta enn skemmtilegra var sú staðreynd að verðandi tengdafaðir hans er enginn annar en Roy Keane. Hann var líka í sjónvarpsútsendingunni að fjalla um leikinn á Sky Sports.

Harwood-Bellis er trúlofaður Leuh Keane, dóttir Keane.

Roy Keane varð hálfvandræðalegur þegar talið barst að þessu. Kannski vakti það enn meiri athygli að Keane er ekki pottþéttur á því að það verði af þessari boðuðu giftingu.

Keane er auðvitað Íri og að baki 67 landsleiki fyrir Íra og tengdasonurinn því að skora á móti hans landsliði.

„Þetta er nú súrsætt fyrir mig,“ sagði Roy Keane.

„Það er samt ekkert öruggt ennþá. Ég get nefnilega sagt ykkur það að hlutirnir geta oft breyst fljótt á Keane heimilinu,“ sagði Keane og glotti.

Leah Keane er ein af fimm börnum Keane og hann kallar hana vanalega númer fjögur á samfélagsmiðlum.

Hann er líkur duglegur að ýta undir þá mýtu að það sé ekkert grín að eiga Keane sem tengdaföður.

„Númer fjögur heldur kannski af því að hún býr í þrjú hundruð kílómetra fjarlægð að ég mæti ekki til hennar í tesopa. Alltaf að fylgjast með,“ skrifaði Roy Keane einu sinni á X-ið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×