Skoðun

Þeir sem þurfa ekki að takast á við af­leiðingar gjörða sinna

Davíð Már Sigurðsson skrifar

Nú eru verkföll skollin á og allt hnút í kjaraviðræðum kennara og hins opinbera. Snemma var sú hugmynd viðruð að kennarar þyrftu einfaldlega að kenna meira, eins og Inga Rún kom svo einlæglega til skila í Kastljósi. Þannig mætti sko auka verðmæti sitt. Ég skil það alveg, flestir vilja fá sem mest fyrir sem minnst, þess vegna verslar fólk við Temu.

Þetta snýst þó í grunninn ekki um launin. Það er einfaldlega verið að fara fram á að staðið sé við samkomulagið frá 2016. Það er ekki spennandi að gera samninga við aðila sem ganga á bak orða sinna. Þá eru forsendur brostnar og ekki líklegt að hægt sé að semja um eitthvað annað í góðri trú. Á almenna markaðnum rifta menn einfaldlega samningum eða höfða mál þegar ekki er staðið við gerða samninga.

Kannski hlupu menn á sig hjá hinu opinbera þegar þeir sögðu að hægt væri að jafna launamuninn á móti skerðingu lífeyrisréttinda. Sömdu af sér, ef svo má segja. Það tók þó ekki nema ár að láta það ganga upp í hina áttina þ.e. að skerða lífeyrisréttindin.

Það er svo sem ekkert nýtt við að hið opinbera baki sér skaðabótaskyldu gagnvart þegnum með afleitum ákvörðunum. Með því að láta hluti sitja á hakanum hafa sparast einhverjir fjármunir, en mig grunar að það verði þá þeim mun dýrara að standa við gefin fyrirheit með hverju árinu sem líður. Ef þú byggir hús en sinnir ekki viðhaldi kostar alltaf meira að laga þegar allt er komið í skrúfuna. Líkt og er að gerast með skólahúsnæði í dag og síðustu ár.

Ráðamenn eru gjarnir á að klappa sér á bakið fyrir að „leysa” vandamál með ákvörðunum sem þeir þurfa ekki að takast á við afleiðingarnar af. Gera sér ekki grein fyrir afleiddum áhrifum.

Ráðamenn fyrri ára prísa sig þá líkalega sæla að hafa náð einhverju aðhaldi í fjármálum hins opinbera þessi átta ár sem samkomulagið hefur verið hunsað. En nú eru afleiddu áhrifin heldur betur komin á skrið.

Nú dugar ekki lengur að láta hlutina sitja á hakanum.

Höfundur er kennari.




Skoðun

Sjá meira


×