Skoðun

Mikil­væg „ófemínísk“ til­laga og fleira gott

Hildur Sverrisdóttir skrifar

Vörðurnar á lífsins leið eru margar. Ein sú stærsta, foreldrahlutverkið, er hvorki gefins né sjálfsögð. Það getur verið krefjandi að hefja nýtt líf og stofna fjölskyldu.

Sjálfstæðisflokkurinn ætlar að létta róður barnafólks með stuðningi sem skiptir máli. Ekki aðeins fyrir þau sem þegar eiga börn heldur líka þau sem vilja það gjarnan en hafa átt erfitt með.

150 þúsund króna skattaafsláttur

Meðal annars ætlum við að tryggja að hækkun fæðingarorlofsgreiðslna skili sér til allra í fæðingarorlofi og auka frelsi foreldra til að ráðstafa fæðingarorlofinu eins og þeim hentar best. Við ætlum að létta undir með fjölskyldum yngstu barnanna og veita þeim árlegan 150 þúsund króna skattaafslátt með hverju barni að þriggja ára aldri.

Forgangsröðun í þágu fólks í tæknifrjóvgunum

Mig langar sérstaklega að draga fram mál sem er mér hugleikið og ég hef talað fyrir sem þingmaður. Sjálfstæðisflokkurinn ætlar styðja enn frekar við fólk á vegferð sinni að foreldrahlutverkinu með auknum stuðningi við fólk sem undirgengst tæknifrjóvganir. Það gladdi mig mikið að sú tillaga mín er nú eitt af kosningastefnumálum Sjálfstæðisflokksins.

Sjálfstæðisflokkurinn hefur nefnilega ekki lagt það í vana sinn að lofa upp í ermina á sér gulli og grænum skógum eins og margir freistast til þegar kosningaskjálftinn gerir vart við sig. Það má því treysta því að þessi tillaga verði að veruleika fáum við til þess umboð.

Ég enda ætla að leyfa mér að segja að þessi tillaga er stórgóð. Með henni aðstoðum við fólk í þeirri erfiðu stöðu að þurfa að leita sér aðstoðar tæknifrjóvgana með þann þunga reikning sem henni fylgja. Hún verður fjármögnuð með því að hætta að niðurgreiða að fullu valkvæðar ófrjósemisaðgerðir sem í daglegu tali kallast herraklippingar. Það finnst mér sanngjörn og skynsöm forgangsröðun opinberra fjármuna.

Verkefnið á hinum pólitíska vettvangi verður oftar að vera mikilvægisröð verkefna í stað þess að sækja alltaf meira fé til vinnandi fólks því pólitíkusar treysta sér ekki til að forgangsraða.

„Ófemínísk“

Þegar ég flutti þetta mál mitt fyrst á Alþingi sagði þingmaður VG í þingræðu sinni í pontu að fjármögnunarhlið tillögunnar væri „ófemínísk“. Sami þingmaður varð svo formaður Velferðarnefndar hvar málið hefði átt að fá þinglega meðferð. Ég vissi þá að málið myndi aldrei komast neitt áfram.

Heill hugur og efndir

Ég ræddi því við heilbrigðisráðherra um aðstoð, sem hafði áður tekið mér vel þegar ég kom bónleiðina til hans um breytingar á lögum í þágu þeirra sem þurfa að njóta liðsinnis tæknifrjóvgana. Hann tók því aftur vel og segir mér nú að þetta sé í skoðun í ráðuneytinu. Ef ráðherra gerir breytingar á þessu fyrir kosningar mun ég fagna því gríðarlega - en annars er þetta að finna í kosningaloforðum Sjálfstæðisflokksins og ég veit að þeim orðum fylgir bæði heill hugur og efndir. Í þágu þeirra sem ég veit að þetta þurfa, þá gleður það mig mjög mikið.

Höfundur er þingflokksformaður og í 2. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík suður




Skoðun

Sjá meira


×