Enski boltinn

United gæti skorið niður fram­lög til fatlaðra stuðnings­manna

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Sir Jim Ratcliffe hefur brýnt niðurskurðarhnífinn hjá Manchester United.
Sir Jim Ratcliffe hefur brýnt niðurskurðarhnífinn hjá Manchester United. getty/Plumb Images

Sir Jim Ratcliffe og félagar í INEOS leita nú allra leiða til að spara pening hjá Manchester United. Nýjasta útspil þeirra gæti þó mælst misvel fyrir.

Daily Mail greinir frá því að Ratcliffe og félagar íhugi nú að skera framlög til félags fatlaðra stuðningsmanna United, MUDSA, niður um helming.

United greiðir MUDSA fjörutíu þúsund pund á ári en sú upphæð gæti farið niður í tuttugu þúsund.

Engin ákvörðun hefur enn verið tekin um að skera niður framlög til MUDSA en ljóst er að Ratcliffe og félagar eru óhræddir við að munda niðurskurðarhnífinn. Sjálfur Sir Alex Ferguson slapp ekki undan honum eins og frægt er orðið.

MUDSA er eitt elsta stuðningsmannafélag fatlaðra á Englandi. Framlög United til félagsins fara meðal annars til að greiða niður miða á jólaskemmtun sem leikmenn United mæta jafnan á. Jólaskemmtunin hefur verið haldin á hverju ári síðan 1989 fyrir utan árin í kórónuveirufaraldrinum.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×