Innlent

Stór aur­skriða féll við Eyrarhlíð

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Eins og sjá má er um stóra skriðu að ræða.
Eins og sjá má er um stóra skriðu að ræða. Bjarni Kristjánsson

Aurskriða féll á veginn um Eyrarhlíð milli Ísafjarðar og Hnífsdals um þrjúleytið. Vegurinn er lokaður vegna þessa og verður um sinn. Staðan verður metin út frá aðstæðum að því er segir í tilkynningu frá Lögreglunni á Vestfjörðum.

Vegna skriðunnar er hvorki fært til Hnífsdals né Bolungarvíkur frá Ísafirði.

Lögreglan varaði fyrr í dag við því að fólk væri ekki á gangi í fjallshlíðum á meðan lækir og árfarvegir væru að skila niður úrkomu. Þá hafði verði tilkynnt um nokkrar litlar aurskriður úr hlíðum Skutlusfjarðar. Ræsi og holræsakerfi væru ekki að anna vatnsmagninu.

Vatn á Hnífsdalsvegi á leiðinni út af Ísafirði áleiðis inn í Hnífsdal.

„Vegagerð og starfsmenn sveitarfélaga eru í óðaönn að hreinsa aur og grjót sem hamlar rennslinu niðurföll og ræsi til að liðka til. Hvatt er til þess að vegfarendur sem leið eiga milli byggðakjarna á Vestfjörðum hafi varan á. En grjót og aur gætu runnið yfir veg í þessum aðstæðum,“ sagði í færslu lögreglunnar í hádeginu.

Eins og sjá má er vegurinn um Ísafjarðardjúp lokaður vegna aurskriða og yfirvofandi hættu á fleiri aurskriðum.Vegagerðin

Lokað var fyrir vatnið á Flateyri í dag vegna hreinsunar á vatnsbóli eftir skriðuföll næturinnar. Tilkynnt var að drægist lokunin á langinn yrði tankbíll með neysluvatni sendur yfir á Flateyri frá Ísafirði.

Vatn streymir niður hlíðina við Hnífsdalsveg í hádeginu.

Á vef Veðurstofunnar sagði í morgun að fjöldi skriða hefði fallið á Vestfjörðum í nótt, meðal annars á vegi í Dýrafirði við gangnamunna Dýrafjarðarganga, í Hestfirði, á Eyrarhlíð við Ísafjörð, á Dynjandisheiði og utan við Spilli við Súgandafjörð og vatnsból við Flateyri. Sömuleiðis flæddi vatn víða yfir vegi á Vestfjörðum. 


Áttu myndir eða hefurðu sögu að segja frá aðstæðum á Vestfjörðum? Sendu okkur línu á [email protected].


Tengdar fréttir

Ferðaðist frá Flateyri til Ísafjarðar til að fylla á vatnsflöskur

Skrúfað verður fyrir vatnið á Flateyri eftir skriðuföll næturinnar og eru íbúar í Bolungarvík hvattir til að sjóða vatn fyrir neyslu þar sem það er drullugt. Þá liggur matarvinnsla niðri á svæðinu. Íbúi á Flateyri greip til þess ráðs að fylla á vatnsflöskur á Ísafirði vegna vatnsskorts.Töluverð skriðuhætta er enn á Vestfjörðum. Elísabet Inga.

Neyslu­vatnið í Bolungar­vík drullugt og í ó­lagi

Íbúar í Bolungarvík hafa verið hvattir til að sjóða vatn til neyslu eftir að skriður féllu á vatnsbólið í Hlíðardal. Vatnið í bænum er því ekki gott, drullugt og óhæft til drykkjar þar sem allar síur hafi stíflast.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×