Innlent

Skaut hundinn sjálfur og fékk háa sekt

Árni Sæberg skrifar
Eigandinn fór með hundinn upp í sveit og skaut hann. Þessi hundur tengist fréttinni ekki með beinum hætti.
Eigandinn fór með hundinn upp í sveit og skaut hann. Þessi hundur tengist fréttinni ekki með beinum hætti. PK-Photos/getty

Eigandi hunds á höfuðborgarsvæðinu fór með hund upp í sveit og skaut hann. Eigandinn situr uppi með 230 þúsund króna sekt.

Í samantekt yfir stjórnvaldsákvarðanir á sviði eftirlits með dýravelferð og matvælaframleiðslu í september á vef Matvælastofnunar segir að eigandinn hafi ákveðið að aflífa veikan hund sinn sjálfur með byssuskoti. Það hafi verið gert úti á landi.

Dýralæknar megi einir aflífa

Dýralæknum einum sé heimilt að aflífa gæludýr nema í neyðartilfellum, sem hafi ekki átt við í tilfelli hundsins. Því hafi stjórnvaldssekt að upphæð 230 þúsund krónur verið lögð á eiganda hundsins.

Þá segir einnig frá því að dagsektir upp á tíu þúsund krónur hafi verið lagðar á eiganda hrossa á Norðurlandi eystra. Hann hafi ekki sinnt fyrirmælum MAST um að draga úr slysahættu fyrir hrossin og bæta hófhirðu.

Loks segir frá því að kúabú á Suðurlandi hafi verið svipt mjólkursöluleyfi vegna lélegra mjólkurgæða.

Veistu meira um málið? Fréttastofa tekur við ábendingum á netfangið [email protected]. Fullum trúnaði er heitið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×