Golf

Ís­lenskum kylfingum fjölgaði um tvö þúsund

Sindri Sverrisson skrifar
Kylfingum fjölgar á öllum aldursbilum.
Kylfingum fjölgar á öllum aldursbilum. [email protected]

Kylfingar á Íslandi hafa aldrei verið fleiri en nú og fjölgaði þeim um 2.000 frá síðasta ári, samkvæmt nýjustu tölum golfklúbbanna.

Þetta kemur fram á golf.is þar sem segir að um 9% fjölgun kylfinga sé að ræða. Golfsambandið hefur spáð fyrir um 2% fjölgun og því ljóst að fjölgunin er framar björtustu vonum.

Þann 1. júlí síðastliðinn voru alls 26.349 félagsmenn skráðir í golfklúbba á Íslandi. Árið 2019 voru skráðir kylfingar um 17.900 talsins, og hefur þeim því fjölgað um 47% á aðeins fimm árum. Árið 2000 voru um 8.500 skráðir félagsmenn í golfklúbbum landsins.

Ungum kylfingum er sömuleiðis að fjölga því 11% fleiri kylfingar á aldrinum 15 ára og yngri eru nú skráðir í golfklúbba, miðað við í fyrra, 16% fleiri í hópi 16-19 ára og 20% fleiri í hópi 20-29 ára.

Kylfingum fjölgaði minnst á aldursbilinu 40-49 ára en þó um 4%, og í hópi 80 ára og eldri fjölgaði kylfingum um 14%.

Yfir sex þúsund kylfingar undir þrítugu

Fjölmennasti aldursflokkur kylfinga er á aldrinum 60-69 ára eða 5.339 manns, og næstfjölmennasti hópurinn er á aldrinum 50-59 ára eða 5.182 manns. Alls 6.061 kylfingur er yngri en 30 ára en voru 5.249 í fyrra.

Golfsamband Íslands er næstfjölmennasta íþróttasambandið innan ÍSÍ en Knattspyrnusambandið er fjölmennast með um 29.000 iðkendur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×