Golf

Hulda Clara kórónaði frá­bært sumar með sigri í Hval­eyrar­bikarnum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Hulda Clara Gestsdóttir fagnar sigri í Hvaleyrarbikarnum í gær.
Hulda Clara Gestsdóttir fagnar sigri í Hvaleyrarbikarnum í gær. GSÍmyndir/[email protected]

Hulda Clara Gestsdóttir úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar og Tómas Eiríksson Hjaltested úr Golfklúbbi Reykjavíkur fögnuðu sigri í Hvaleyrarbikarnum í golfi um helgina en mótið var lokamótið á stigamótaröð GSÍ 2024.

Hulda Clara kórónaði þar með glæsilegt sumar hjá sér því hún varð einnig Íslandsmeistari í síðasta mánuði og sigurinn í Hvaleyrarbikarnum tryggði henni einnig stigameistaratitilinn. Hún var einnig að vinna Hvaleyrarbikarinn annað árið í röð.

Hulda lék hringina þrjá á 76, 73 og 76 höggum. Hún tók forystuna á öðrum keppnisdegi og sigraði með fimm högga mun þegar uppi var staðið. Mosfellingarnir Eva Kristinsdóttir og Berglind Erla Baldursdóttir komu næstar.

Berglind Björnsdóttir úr GR fór holu í höggi í mótinu. Sló hún draumahöggið á tólftu holunni á öðrum keppnisdegi.

Tómas byrjaði mótið frábærlega þegar hann setti vallarmet á fyrsta degi með því að spila á 65 höggum. Forskotið minnkaði þegar leið á mótið en Tómas hélt velli og sigraði með eins höggs mund. Hann lék samtals á fimm höggum undir pari og hringina þrjá á 65, 71 og 75 höggum.

Breki Gunnarsson Arndal úr GKG og Jóhann Frank Halldórsson úr GR komu næstir.

Stigameistari karla varð Aron Snær Júlíusson úr GKG sem einnig er Íslandsmeistari og varð hann stigameistari í annað sinn.

Aron Snær Júlíusson og Hulda Clara Gestsdóttir, bæði úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar, urðu stigameistarar GSÍ 2024.gsímyndir/[email protected]



Fleiri fréttir

Sjá meira


×