Golf

Anna Júlía Ís­lands­meistari í holukeppni

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Verðlaunahafarnir á Íslandsmótinu í holukeppni kvenna. Talið frá vinstri: Eva Kristinsdóttir, Anna Júlía Ólafsdóttir, Fjóla Margrét Viðarsdóttir.
Verðlaunahafarnir á Íslandsmótinu í holukeppni kvenna. Talið frá vinstri: Eva Kristinsdóttir, Anna Júlía Ólafsdóttir, Fjóla Margrét Viðarsdóttir. Golfsamband Íslands/[email protected]

Anna Júlía Ólafsdóttir úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar tryggði sér sigur á Íslandsmótinu í holukeppni í ár. Mótið fór fram á Hlíðavelli hjá Golfklúbbi Mosfellsbæjar og lauk í gær.

Anna Júlía vann Fjólu Margréti Viðarsdóttur úr Golfklúbbi Suðurnesja í úrslitaleiknum. Hún var sex holum yfir þegar fimm holur voru eftir og vann því titilinn á aðeins þrettán holum.

Þetta er fyrsti Íslandsmeistaratitill Önnu Júlíu á ferlinum í einstaklingskeppni en hún er 24 ára og var að ljúka námi í bandarískum háskóla, þar sem hún lék golf samhliða náminu.

Anna kláraði nám í grafískri hönnun og markaðsfræði í Purdue Fort Wayne í Indiana fylki.

Eva Kristinsdóttir úr Golfklúbbi Mosfellsbæjar vann Þóru Sigríði Sveinsdóttur úr GS, 3&2, í leiknum um þriðja sætið.

Mótið var það 36. í röðinni frá því að fyrst var keppt árið 1988.

Keppt verður í karlaflokki á Íslandsmótinu í holukeppni dagana 22.-24. júní á Garðavelli á Akranesi.

Í fyrri hluta Íslandsmótsins í holukeppni, sem fram fór föstudaginn 14. júní var leikinn 36 holu höggleikur án forgjafar, þar sem sextán efstu keppendurnir komust áfram í útsláttarkeppni.

Að höggleik loknum voru leiknar fjórar umferðir í holukeppni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×