Nýjum alþjóðaflugvelli á Grænlandi seinkar enn Kristján Már Unnarsson skrifar 30. maí 2024 13:05 Frá framkvæmdum við flugvöllinn í Ilulissat. Núverandi flugbraut sést fjær en sú nýja til hægri. Mittarfeqarfiit/Greenland Airports Flugvallayfirvöld á Grænlandi hafa tilkynnt um seinkun á opnun nýs alþjóðaflugvallar við bæinn Ilulissat við Diskó-flóa. Ný tímaáætlun gerir ráð fyrir að hægt verði að taka völlinn í notkun á fjórða ársfjórðungi 2026, eftir tvö og hálft ár.
Vonast hafði verið til að ný 2.200 metra flugbraut í Ilulissat yrði tilbúin á næsta ári, árið 2025. Skýringarnar sem flugvallafyrirtækið og verktakinn, Munck Group, gefa á seinkuninni eru nokkrar, þar á meðal skortur á vinnuafli, tækjaskortur og varahlutaskortur. Jafnframt segir að fjöldi verkefna hafi reynst umfangsmeiri en áætlað var. Teikning af nýja flugvellinum í Ilulissat.Grafík/Kalallit Airports. Upphaflega áttu nýir flugvellir í Ilulissat, Nuuk og Qaqortoq að fylgjast að og klárast allir á árinu 2023, það er í fyrra. Öllum verkunum hefur hins vegar ítrekað seinkað. Tilkynnt var fyrir síðustu áramót að opnunardagur 2.200 metra brautar í Nuuk verði þann 28. nóvember 2024, sem er eftir sex mánuði. Þá er núna gert ráð fyrir að nýr 1.500 metra flugvöllur í Qaqortoq verði tilbúinn árið 2026. Fyrirhuguð flugstöð í Ilulissat.Kalaallit Airports/Greenland Airports Þessar nýju dagsetningar snerta áætlanagerð Icelandair, sem heldur úti reglubundnu flugi á helstu staði Grænlands. Þar sem núverandi flugbrautir í Nuuk og Ilulissat eru mjög stuttar, 950 og 850 metra langar, hefur félagið eingöngu getað nýtt hinar 37 sæta Dash 8 Q200-vélar í flugi þangað. Nýju flugbrautirnar gefa félaginu færi á að nýta 76 sæta Q400-vélarnar og raunar einnig allar þotutegundirnar sem félagið rekur. Núverandi flugbraut í Ilulissat er aðeins 845 metra löng. Myndin er skjáskot úr þætti Stöðvar 2 frá árinu 2012 um Íslendinganýlenduna sem þar var. Það er tekið úr flugstjórnarklefa Dash 8 Q200-vélar Icelandair.Stöð 2/Egill Aðalsteinsson Með opnun flugvallar í Qaqortoq, stærsta bæ Suður-Grænlands, er gert ráð fyrir að vellinum í Narsarsuaq verði lokað en brautin þar er 1.830 metra löng. Viðbúið er að Icelandair muni þá færa Narsarsuaq-flug sitt yfir til Qaqortoq-flugvallar, sem einnig kemur til með að þjóna bænum Narsaq. Myndband sýnir hvernig nýi flugvöllurinn í Ilulissat mun líta út: Bærinn Ilulissat er sá þriðji stærsti á Grænlandi, með um 4.700 íbúa. Hann er talsvert norðan heimskautsbaugs, liggur á 69 breiddargráðu. Þar var stór Íslendinganýlenda um nokkurra ára skeið fyrir rúmum áratug þegar Ístak og íslenskir undirverktakar þess byggðu 22,5 megavatta vatnsaflsvirkjun á afskekktum slóðum um sextíu kílómetra norðan Ilulissat. Um 170 manns unnu að verkinu þegar mest var á árunum 2010 til 2013 þegar lægð var í íslenska byggingageiranum. Þetta var stærsta og flóknasta verkefni sem Ístak hafði ráðist í en virkjunin var sú fyrsta í heiminum sem byggð var neðanjarðar í sífrera. Vinnustaðurinn var í óbyggðum í sannkallaðri klakahöll og allir aðdrættir óvenju krefjandi. Þangað þurfti að sigla um hafís og aðeins fært yfir sumarið. Þrátt fyrir sérlega krefjandi aðstæður tókst íslensku verktökunum að skila virkjuninni tilbúinni á tilsettum tíma síðsumars 2013, sem fjallað var um hér: Stöð 2 heimsótti vinnustaðinn sumarið 2012 og gerði tvo sextán mínútna langa þætti um Íslendinganýlenduna afskekktu. Þættina má sjá hér:
Grænland Fréttir af flugi Norðurslóðir Tengdar fréttir Styttist í að Nuuk fái nýjan alþjóðaflugvöll Flugvallafélag Grænlands, Kalaallit Airports, hefur formlega gefið út opnunardag nýs alþjóðaflugvallar í Nuuk, höfuðstað Grænlands. Stóri dagurinn verður eftir átta mánuði, 28. nóvember 2024. Þetta er fimm árum eftir að flugvallargerðin hófst og meira en árs seinkun frá upphaflegri áætlun. 1. apríl 2024 07:27 Ný flugbraut kallaði á stærstu sprengingu í sögu Grænlands Gerð nýs aðalflugvallar fyrir Suður-Grænland virðist loksins komin á beinu brautina eftir langvarandi óvissu. Við flugbrautargerðina var hleypt af stærstu sprengingu í sögu Grænlands. 16. október 2023 22:11 Fyrsta sprenging í Ilulissat að nýjum alþjóðaflugvelli Grænlendingar eru byrjaðir á gerð 2.200 metra langrar flugbrautar við bæinn Ilulissat, sem verður alþjóðaflugvöllur númer tvö á eftir Nuuk í uppbyggingunni. 1. febrúar 2020 08:15 Íslendingar í klakahöll undir Grænlandsjökli Virkjun sem Ístak er að smíða á Grænlandi við Diskóflóa lengst norðan heimskautsbaugs er stærsta verkefni í fjörutíu ára sögu fyrirtækisins. Þar er sennilega sú Íslendinganýlenda sem fjærst er öðrum byggðum bólum í sannkallaðri klakahöll við bæinn Ilulissat. Fyrri reynsla Ístaksmanna af smíði virkjana á Grænlandi réð miklu þegar Orkustofnun Grænlands fól þeim einnig þetta tólf milljarða króna verk, þótt þeir ættu ekki lægsta boð. 10. september 2012 20:15 Virkjunin gæti breyst í ísklump Virkjanagöng, sem Ístaksmenn bora á Grænlandi langt norðan heimskautsbaugs, liggja í svo köldu bergi að það virkar eins og frystikista. Það er því raunveruleg hætta á því að virkjunin geti frosið og orðið að ísklumpi. Þetta kemur fram í þættinum Ísland í dag á Stöð 2 laust fyrir klukkan sjö í kvöld en þar verður fjallað um þær miklu áskoranir sem mæta íslenskum verktökum og verkfræðistofum við hönnun og smíði virkjunar skammt frá bænum Ilulissat við Diskóflóa. 11. september 2012 17:45 Mest lesið „En við getum aldrei talað um að hann sé að gera þetta fyrir vin sinn“ Viðskipti innlent KS við það að kaupa B. Jensen Viðskipti innlent Ætla að binda enda á skattaívilnun fyrir rafmagnsbíla Viðskipti erlent Skerðingum að hluta frestað þökk sé hlýindum Viðskipti innlent Sólrún, Brynjar og Aníta til Reita Viðskipti innlent Húsið sem keypt var á þrjár milljónir til sölu á 83 milljónir Viðskipti innlent Níu varðhundar neytenda sameinast á einum vef Neytendur Tugmilljarða viðsnúningur hjá Alvotech Viðskipti innlent Icelandair byrjar að fljúga til Istanbúl Viðskipti innlent „Pólitíkin er dugleg í þessu en einkageirinn kann þetta ekki nógu vel“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Ætla að binda enda á skattaívilnun fyrir rafmagnsbíla Mega ekki lengur skreyta sig með konunglegum fjöðrum Fá ekki að skrá svívirðingar um Rússa sem vörumerki Linkedin sektað um tugi milljarða Samkeppni eykst í Grænlandsflugi Sekta Google um meira en allan pening heimsins Adidas og Ye sættast Bjóða upp á veðmál um leiki barna og styrkja knattspyrnurisa Bein útsending: Hver hlýtur hagfræðiverðlaun sænska seðlabankans? United Airlines hefur flug milli New York og Nuuk Viðskiptavinir gjaldþrota rafmyntakauphallar endurheimta milljarða Samþykktu allt að 45 prósent toll á kínverska rafbíla Samið um lok umfangsmikils verkfalls hafnarverkamanna Sjá meira
Styttist í að Nuuk fái nýjan alþjóðaflugvöll Flugvallafélag Grænlands, Kalaallit Airports, hefur formlega gefið út opnunardag nýs alþjóðaflugvallar í Nuuk, höfuðstað Grænlands. Stóri dagurinn verður eftir átta mánuði, 28. nóvember 2024. Þetta er fimm árum eftir að flugvallargerðin hófst og meira en árs seinkun frá upphaflegri áætlun. 1. apríl 2024 07:27
Ný flugbraut kallaði á stærstu sprengingu í sögu Grænlands Gerð nýs aðalflugvallar fyrir Suður-Grænland virðist loksins komin á beinu brautina eftir langvarandi óvissu. Við flugbrautargerðina var hleypt af stærstu sprengingu í sögu Grænlands. 16. október 2023 22:11
Fyrsta sprenging í Ilulissat að nýjum alþjóðaflugvelli Grænlendingar eru byrjaðir á gerð 2.200 metra langrar flugbrautar við bæinn Ilulissat, sem verður alþjóðaflugvöllur númer tvö á eftir Nuuk í uppbyggingunni. 1. febrúar 2020 08:15
Íslendingar í klakahöll undir Grænlandsjökli Virkjun sem Ístak er að smíða á Grænlandi við Diskóflóa lengst norðan heimskautsbaugs er stærsta verkefni í fjörutíu ára sögu fyrirtækisins. Þar er sennilega sú Íslendinganýlenda sem fjærst er öðrum byggðum bólum í sannkallaðri klakahöll við bæinn Ilulissat. Fyrri reynsla Ístaksmanna af smíði virkjana á Grænlandi réð miklu þegar Orkustofnun Grænlands fól þeim einnig þetta tólf milljarða króna verk, þótt þeir ættu ekki lægsta boð. 10. september 2012 20:15
Virkjunin gæti breyst í ísklump Virkjanagöng, sem Ístaksmenn bora á Grænlandi langt norðan heimskautsbaugs, liggja í svo köldu bergi að það virkar eins og frystikista. Það er því raunveruleg hætta á því að virkjunin geti frosið og orðið að ísklumpi. Þetta kemur fram í þættinum Ísland í dag á Stöð 2 laust fyrir klukkan sjö í kvöld en þar verður fjallað um þær miklu áskoranir sem mæta íslenskum verktökum og verkfræðistofum við hönnun og smíði virkjunar skammt frá bænum Ilulissat við Diskóflóa. 11. september 2012 17:45