Innlent

Kvöld­fréttir Stöðvar 2 í opinni dag­skrá á ný

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Fréttastofa Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar er spennt að segja landsmönnum fréttir í opinni dagskrá á ný.
Fréttastofa Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar er spennt að segja landsmönnum fréttir í opinni dagskrá á ný. vísir/vilhelm

Frá og með mánudeginum 15. apríl munu allir landsmenn hafa greiðan aðgang að kvöldfréttum Stöðvar 2 í opinni dagskrá, alla daga ársins klukkan 18:30. Opinn fréttagluggi mun ná yfir fréttir, sportpakkann og Ísland í dag.

Erla Björg Gunnarsdóttir ritstjóri fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar fagnar opnun fréttatímans.

„Það er mikilvægt að landsmenn hafi greiðan aðgang að fleiri en einum sjónvarpsfréttatíma. Það hafa síðustu misseri sýnt okkur þar sem náttúruhamfarir, væntanlegar forsetakosningar og hrókeringar í ríkisstjórn hafa verið meðal fréttamála. Fréttateymið okkar er öflugt, með faglega og líflega nálgun á fréttamál dagsins og við hlökkum til að verða aftur fastur liður í heimilislífi þjóðarinnar. Við leggjum mikla áherslu á að efla samtalið við fólkið í landinu og viljum heyra sem mest í því – þannig að ég minni á að það er hægt að senda okkur ábendingar af öllum toga á [email protected],“ segir Erla Björg.

Kvöldfréttir verða eftir sem áður á sínum stað á Bylgjunni auk þess að vera í beinni útsendingu á Vísi.

Eva Georgs Ásudóttir er sjónvarpsstjóri Stöðvar 2.Eyþór

„Við erum gríðarlega stolt af kvöldfréttum Stöðvar 2 og fréttamönnum okkar sem hafa undanfarna áratugi sýnt mikinn styrk í framleiðslu á fréttatengdu efni. Rekstarumhverfi einkarekinna fjölmiðla á Íslandi er krefjandi og við höfum þurft að laga okkur að breyttum aðstæðum hverju sinni. Nú hefur skapast tækifæri til að gera sjónvarpsfréttirnar aftur aðgengilegar landsmönnum sem er sérlega ánægjulegt,“ segir Eva Georgs Ásudóttir, sjónvarpsstjóri Stöðvar 2.

Stöð 2 hefur markvisst aukið við framleiðslu á íslensku efni síðustu ár. Á efnisveitunni Stöð 2+ eru 257 íslenskar þáttaraðir og á fimmta tug talsettra barnaþáttaraða í bland við úrval af erlendu gæðaefni og hundruð kvikmynda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×