Íslenski boltinn

Jörundur Áki verður fram­kvæmda­stjóri meðan leitað er að eftir­manni Klöru

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Klara Bjartmarz hefur verið framkvæmdastjóri KSÍ síðan árið 2015. Jörundur Áki Sveinsson mun stíga inn í hennar stað meðan leitað er að eftirmanni.
Klara Bjartmarz hefur verið framkvæmdastjóri KSÍ síðan árið 2015. Jörundur Áki Sveinsson mun stíga inn í hennar stað meðan leitað er að eftirmanni.

Ný stjórn Knattspyrnusambands Íslands fundaði í dag og þar var rætt um stöðu framkvæmdastjóra en Klara Bjartmarz, sem hefur sinnt embættinu síðan 2015, lætur af störfum þann 1. mars. 

Þá samþykkti stjórn að Jörundur Áki Sveinsson sviðsstjóri knattspyrnusviðs taki tímabundið við stöðu framkvæmdastjóra og gegni því starfi með sérstöku stjórnendateymi sér við hlið - þeim Birki Sveinssyni mótastjóra, Bryndísi Einarsdóttur fjármálastjóra og Ómari Smárasyni samskiptastjóra. 

Klara Bjartmarz, fráfarandi framkvæmdastjóri KSÍ, verður stjórnendateyminu til ráðgjafar eins og þurfa þykir og við verður komið.

Starfið er laust og auglýst á heimasíðu KSÍ, áhugasamir hvattir til að sækja um. Ákveðið var á fundinum í dag að framlengja umsóknarfrest um eina viku, það er til miðvikudagsins 6. mars.

Framkvæmdastjóri KSÍ annast daglegan rekstur sambandsins, undirbúning verkefna og áætlanagerð og er yfirmaður starfsmanna sem ráðnir eru til KSÍ. Framkvæmdastjórinn framfylgir stefnu stjórnar KSÍ, skal uppfylla sömu hæfisskilyrði og stjórnarmenn, og skal haga störfum sínum í samræmi við ákvæði laga og reglugerða er varða starfsemi knattspyrnusambandsins.

Helstu hæfniskröfur sem ráðningarnefnd leitast eftir eru: 

  • Þekking á íslenskri knattspyrnu.
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
  • Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð, geta til að vinna undir álagi.
  • Leiðtogahæfileikar, reynsla af rekstri og stjórnun (mannaforráð) og hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Góð tölvukunnátta og þekking á helsta hugbúnaði.
  • Góð tungumálakunnátta.

Stjórnin samþykkti að framlengja umsóknarfrest um eina viku til að gefa svigrúm til að undirbúa ráðningarferlið sem best og skipaði stjórnin jafnframt ráðningarnefnd undir forystu formanns KSÍ til að meta allar umsóknir með hliðsjón af skorkorti. 

Ráðningarnefnd mun síðan hafa umsjón með viðtölum við umsækjendur og að lokum gera tillögu um ráðningu til stjórnar.

Umsóknir sendist á [email protected].




Fleiri fréttir

Sjá meira


×