Neytendur

Inn­kalla súkkulaðihúðaða banana sem blönduðust valhnetum

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Fólk með hnetuofnæmi ætti að hafa varann á.
Fólk með hnetuofnæmi ætti að hafa varann á.

Nathan & Olsen, að höfðu samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, hefur innkallað frá neytendum Til hamingju Súkkulaðihúðaða banana. Ástæða innköllunar er sú að við framleiðslu á vörunni hafa blandast saman við hana súkkulaðihúðaðar valhnetur.

Valhnetur eru á lista yfir ofnæmis- eða óþolsvalda. Neysla vörunnar getur verið óörugg fyrir neytendur sem hafa ofnæmi- eða óþol fyrir valhnetum.

Nánar upplýsingar um vöru sem innköllunin einskorðast við má lesa að neðan.


Vörumerki: Til hamingju

Vöruheiti: Súkkulaðihúðaðir bananar

Geymsluþol: Best fyrir Dagsetning: 04.12.2024

Nettómagn: 140 g

Strikamerki: 5690595096806

Framleiðandi (pökkunaraðili): Nathan & Olsen, Klettagörðum 19, 104 Reykjavík

Heiti og heimilisfang fyrirtækis sem innkallar vöru:

Nathan & Olsen, Klettagörðum 19, 104 Reykjavík.

Dreifing:

Verslanir Krónunnar, Fjarðarkaup, verslanir Samkaupa, Kaupfélag Skagfirðinga og Skaftárskáli (Systrakaffi ehf.).

Leiðbeiningar til neytenda:

Neytendur sem eiga umrædda vöru og hafa ofnæmi- eða óþol fyrir valhnetum eru beðnir um að neyta hennar ekki og farga en einnig er hægt að skila henni til Nathan & Olsen.

Nánari upplýsingar um innköllun:

Nánari upplýsingar veitir gæðastjóri Nathan & Olsen í síma 847 9573 eða í gegnum netfangið [email protected].






Fleiri fréttir

Sjá meira


×