Níu látnir og sjö særðir eftir skotárás í skóla í Belgrad Hólmfríður Gísladóttir skrifar 3. maí 2023 09:25 Vopnuð lögregla umkringdi skólann. AP/Darko Vojinovic Fjórtán ára drengur skaut á kennara sinn, samnemendur og öryggisverði í Vladislav Ribnikar-grunnskólanum í Belgrad í Serbíu í morgun. Níu eru látnir, átta nemendur og öryggisvörður.
Kennarinn og sex börn voru flutt á sjúkrahús. Reuters hefur eftir Milan Milosevic, föður nemanda í skólanum að dóttir hans hafi verið í skólastofunni þegar árásin hófst. „Henni tókst að flýja. [Drengurinn] byrjaði á því að skjóta á kennara og hóf svo að skjóta af handahófi,“ sagði Milosevic í samtali við miðilinn N1. „Ég sá öryggisvörðinn liggja undir borðinu. Ég sá tvær stúlkur í blóðugum bolum. Þau segja [árásarmanninn] hafa verið þöglan og góðan nemanda. Hann var nýr í bekknum,“ segir Milosevic, sem flýtti sér á vettvang þegar hann heyrði af árásinni. Skotárásir af þessu tagi eru fátíðar í Serbíu, þar sem skotvopnalöggjöfin er mjög ströng. Mikill fjöldi ólöglegra skotvopna er hins vegar í landinu í kjölfar stríðsátaka undir lok síðustu aldar. Fréttin var uppfærð með fjölda látinna.
Serbía Mest lesið Jón Guðmundsson fasteignasali er látinn Innlent Vill ekki að talað sé um íslenska garðyrkju í þátíð Innlent Úkraínumönnum heimilt að beita langdrægum eldflaugum Erlent „Hvers konar hrokasvar er þetta?“ Innlent Börðust við eldinn klukkustundum saman í sex stiga frosti Innlent Alvarlegt bílslys við Þrastarlund og þrír fluttir með þyrlunni Innlent Upplifir mikið vonleysi og gengur á sumarfrísdagana Innlent Segir verkföll ekki mismuna börnum Innlent „Eins og við séum gleymd, bara einhver skóli úti á landi“ Innlent Brynjar verður ekki í stjórn Mannréttindastofnunar Innlent Fleiri fréttir Úkraínumönnum heimilt að beita langdrægum eldflaugum Felldu talsmann Hezbollah í miðborg Beirút Stefna lögreglu og leyniþjónustu vegna morðsins á Malcolm X Norsku skipagöngin á leið í útboðsferli Einar umfangsmestu loftárásir Rússa á orkuvinnviði Úkraínu Viss um að stríðinu muni ljúka fyrr en ella vegna kjörs Trump Tíu ungbörn létust og sextán særðust í eldsvoða á nýburadeild Rússar segja til hver annars líkt og á tímum Stalíns Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Næstu mánuðir skipta sköpum Neitar að segja ef sér þrátt fyrir hávær áköll Töluðu saman í fyrsta sinn í tvö ár Þrýst á Scholz að víkja fyrir vinsælasta stjórnmálamanni landsins Sprengdu upp leynilega kjarnorkuvopnarannsóknarstöð í Íran Fangelsaðar fyrir að gagnrýna forsetann og klæðaburð Musk sagður hafa átt fund með sendiherra Íran Segja loftslagsráðstefnurnar ekki lengur þjóna tilgangi sínum Leita óprúttins aðila sem kveikti í kjörkössum Trump setur Kennedy í heilbrigðismálin Ætla ekki að aðstoða hundruð manna í lokaðri námu The Onion kaupir InfoWars Vill sýna þinginu hver ræður Sprengdi sig upp fyrir utan hæstarétt Brasilíu Um 800 milljónir manna í heiminum með sykursýki Vilja svipta Le Pen frelsinu og kjörgengi í fimm ár Tilnefning Gaetz sem dómsmálaráðherra vekur furðu og reiði Repúblikanar með Hvíta húsið og allt þingið undir sinni stjórn „Valdaskiptin munu ganga svo smurt fyrir sig“ Melania Trump afþakkaði boð Jill Biden Stefnir í hreinsanir innan Pentagon Ætlar að hætta áður en Trump rekur hann Sjá meira