Gummi Kíró leggur línurnar fyrir sumartískuna í ár Elma Rut Valtýsdóttir skrifar 26. apríl 2023 13:54 Gummi Kíró veit hvað hann syngur þegar kemur að tísku. instagram Guðmundur Birkir Pálmason, betur þekktur sem Gummi Kíró, er mikill fagurkeri og eru fáir jafn mikið með puttann á púlsinum þegar kemur að tísku. Gummi mætti í Brennsluna á FM957 þar sem hann fór yfir helstu strauma sumartískunnar í ár. „
Þetta útvíða er búið að ná hápunkti. Við erum að fara aftur í meira klæðilegt. Það sem við eigum að hugsa núna með þetta víða snið er að vera í einu víðu. Vertu í víðri peysu en buxurnar ekki eins víðar, þannig þú sért ekki allur hangandi. Það verður að vera kontrast. Þetta „oversized“ lúkk er búið að ná hámarki sínu,“ segir hann og nefnir að víðar buxur paraðar með þröngri gollu séu til dæmis töff samsetning. „Ekki vera í neinu innanundir. Láttu bara brjóstkassann sjást svolítið. Vertu með kannski keðju eða svona klút. Það lúkkar vel því þá ertu með smá svona kontrast,“ útskýrir hann. View this post on Instagram A post shared by G U M M I - K Í R Ó (@gummikiro) „Fast fashion“ ekki málið Gummi segir klassískar, tímalausar og vandaðar flíkur vera það allra heitasta um þessar mundir. Svokölluð „fast fashion“ sé liðin tíð. „Fast fashion er það sem er búið að vera rosalega mikið, að fara inn á Shein eða eitthvað svoleiðis og kaupa 10 kíló af fötum sem þú notar aldrei, sem verða ónýt eftir korter. Það er ekki töff, það er ekki gott fyrir umhverfið. Það er enginn sem fýlar það lengur,“ segir Gummi. „Þú átt að vera að endurnýta og þú átt að vera að kaupa notað. Það er bara miklu meira töff í dag heldur en það hefur verið.“ Endurnýting á fötum er trend sem er komið er til að vera.Getty Leðurjakkinn sjóðheitur Gummi segir að jarðlitir, á borð við brúnan, ólífugrænan og drapplitaðan, verði heitir í sumar. Æpandi litir séu aftur á móti ekki alveg málið. „Ímyndaðu þér að þú sért kannski í beige buxum, hvítum bol og ólífugrænum bomber jakka. Það er ótrúlega töff og trendy. Bomber jakkinn er ennþá inni og mun vera það allt árið og pottþétt á næsta ári líka. Leðurjakkinn er að detta inn alveg grjótharður líka,“ segir hann. View this post on Instagram A post shared by G U M M I - K Í R Ó (@gummikiro) Skyrtujakkar sjúklega „trendy“ Gummi telur jafnframt að hnésíðar stuttbuxum, hörefni og skyrtujakkar eigi eftir að vera áberandi í sumar. „Skyrtujakkar eru sjúklega trendy fyrir sumarið. Þú ert bara annað hvort í hlýrabol eða þröngum hvítum bol innan undir. Þú þarft ekki að fara í jakka. Þú ert bara í gallabuxum, khaki buxum eða cargo buxum, það er mjög töff. Ekki hafa þær of síðar, hafa þær pínu loose og stuttar. Svo ertu kannski í skyrtujakka við, það er mjög töff.“ View this post on Instagram A post shared by G U M M I - K Í R Ó (@gummikiro) Ættum að skipta um ilm að vori Góður ilmur getur verið mikilvægur hluti af heildarútliti okkar. Að mati Gumma ætti þó að skipta þungum ilmum út fyrir léttari ilmi með hækkandi sól. „Það er komið vor og það er að koma sumar. Ekki vera með þessa þungu ilmi, verið með eitthvað létt og gott. Prada eru með rosalega flotta ilmi sem eru léttir og góðir, Oceans er til dæmis rosalega góður. Ralph Lauren var koma með nýjan ilm sem heitir Red Perfume, hann er sjúklega ferskur og góður. Armani ilmirnir eru allir mjög góðir líka,“ segir hann. Viðtalið er að finna í spilaranum hér fyrir neðan.
Brennslan Tíska og hönnun Tengdar fréttir Sat fyrir á nærbuxunum eftir að hafa lagt kolvetnin til hliðar Guðmundur Birkir Pálmason, betur þekktur sem Gummi kíró, birti myndir af sér úr kynþokkafullri myndatöku á nærbuxum einum klæða á samfélagsmiðlum. 18. apríl 2023 20:01 „Tíska er oft sett í samhengi við snobb og hégóma, ég er ekki þannig“ „Maður er alveg með svona x-ray sjón, eins og í Terminator myndunum. Fólk þarf ekki annað en að labba í átt til mín og þá sé ég oft nákvæmlega hvað þarf að gera,“ segir Guðmundur Birkir Pálmason, betur þekktur sem Gummi kíró, í viðtali í Bakaríinu síðasta laugardag. 26. janúar 2023 12:25 Gummi Kíró og Lína Birgitta trúlofuð Kírópraktorinn Guðmundur Birkir Pálmason, eða Gummi Kíró, áhrifavaldurinn Lína Birgitta Sigurðardóttir trúlofuðust í París í dag. 10. október 2022 18:44 Það heitasta í haust að mati Gumma kíró Gummi kíró fór yfir hausttískuna í Brennslunni á FM957 í dag. Kírópraktorinn er orðinn þekktur fyrir dýran fatasmekk, en hann spáir einstaklega mikið í fötum og því helsta sem er að gerast í tískuheiminum. 28. september 2022 14:01 Mest lesið Tengdadóttir forsætisráðherra í innsta koppi Loftssystkina Lífið Tengdó hringdi og vildi vita hvort Sunnu Dís hefði í alvöru liðið svona Lífið „Getur líka fengið Óskarsverðlaun fyrir besta leik í aukahlutverki“ Lífið Bannað að hlæja: Stressið allsráðandi í upphafi kvöldsins Lífið Heitir og hýrir flugþjónar í suðrænni stemningu Lífið Katrín og Markus orðin tveggja barna foreldrar Lífið Benedikt og Sunneva Einars selja slotið Lífið Emilíana Torrini einhleyp Lífið Heitasti plötusnúður í heimi í Melabúðinni Lífið Vestfjarðaglæpasaga sem kemur á óvart Lífið samstarf Fleiri fréttir Hönnunarverðlaunin 2024: Verðlaunuð fyrir Smiðju Stappað á sjóðheitri tískusýningu hönnuða framtíðarinnar Galvaskar Gucci gellur á galakvöldi Líf og fjör hjá Íslendingum á virtri hátíð í Berlín Fagurfræði: Það sem flestir hræðast þegar kemur að förðun Laufey glæsileg í 400 þúsund króna kjól Bestu hrekkjavökubúningar stjarnanna Lítið um litadýrð en glamúrinn í hávegum hafður Kynntust í Mílanó og urðu sálarsystur í tískunni Nærfatamódelin sneru aftur eftir sex ára hlé Heitustu skvísur landsins skáluðu fyrir Ástrós Skelltu sér í rússíbana með James Franco á tískusýningu ársins Hvernig náum við fram okkar bestu andlitsdráttum? „Mér leið eins og alvöru prinsessu“ Sjá meira
Sat fyrir á nærbuxunum eftir að hafa lagt kolvetnin til hliðar Guðmundur Birkir Pálmason, betur þekktur sem Gummi kíró, birti myndir af sér úr kynþokkafullri myndatöku á nærbuxum einum klæða á samfélagsmiðlum. 18. apríl 2023 20:01
„Tíska er oft sett í samhengi við snobb og hégóma, ég er ekki þannig“ „Maður er alveg með svona x-ray sjón, eins og í Terminator myndunum. Fólk þarf ekki annað en að labba í átt til mín og þá sé ég oft nákvæmlega hvað þarf að gera,“ segir Guðmundur Birkir Pálmason, betur þekktur sem Gummi kíró, í viðtali í Bakaríinu síðasta laugardag. 26. janúar 2023 12:25
Gummi Kíró og Lína Birgitta trúlofuð Kírópraktorinn Guðmundur Birkir Pálmason, eða Gummi Kíró, áhrifavaldurinn Lína Birgitta Sigurðardóttir trúlofuðust í París í dag. 10. október 2022 18:44
Það heitasta í haust að mati Gumma kíró Gummi kíró fór yfir hausttískuna í Brennslunni á FM957 í dag. Kírópraktorinn er orðinn þekktur fyrir dýran fatasmekk, en hann spáir einstaklega mikið í fötum og því helsta sem er að gerast í tískuheiminum. 28. september 2022 14:01