Jól

Jóla­daga­tal Vísis: Gæsa­húðar­flutningur Jóhönnu Guð­rúnar á laginu Vetrar­sól

Margrét Björk Jónsdóttir skrifar
Jóhanna Guðrún tekur lagið Vetrarnótt í Jóladagatali Vísis.
Jóhanna Guðrún tekur lagið Vetrarnótt í Jóladagatali Vísis. Stöð2

Það er óumflýjanleg staðreynd að Jóhanna Guðrún er ein allra færasta söngkona landsins og þótt víðar væri leitað. Hér er hún með gæsahúðarflutning á laginu Vetrarsól á jólatónleikum Fíladelfíu árið 2016.

Lagið er löngu orðið klassískt, en það kom út árið 1981 í flutningi Björgvins Halldórssonar. Lagið er eftir Gunnar Þórðarsson og Ólafur Haukur Símonarsson samdi textann.

Við mælum með því að þið gefið ykkur nokkrar mínútur til að njóta þessa magnaða flutnings þrátt fyrir amstur þessa síðustu daga fyrir jól. Þið þorum að ábyrgjast að þið sjáið ekki eftir því.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×