Jól

Jóla­daga­tal Vísis: Skíta­mórall meðal ferða­langa

Margrét Björk Jónsdóttir skrifar
Það var hálfgerður skítamórall í Leifsstöð í gær en við vonum að ferðalangar geti tekið gleði sína á ný í dag og flogið áfram.
Það var hálfgerður skítamórall í Leifsstöð í gær en við vonum að ferðalangar geti tekið gleði sína á ný í dag og flogið áfram. Mummi Lú

Upp er runninn 20. Desember. Óveðrið síðustu daga hefur líklega ekki farið fram hjá nokkrum landsmanni, en ein af afleiðingum þess var sú að fjölmargir sátu eftir með sárt ennið og komust ekki í flug. Spenntir strandaglópar sem þyrsti í sól og sumaril eiga hug okkar allan og lag dagsins í Jóladagatali Vísis er tileinkað þeim. Við vonum að veðurguðirnir veiti þeim vægð og allir komist á áfangastað.

Lagið er Fljúgum áfram með Skítamóral. Upptakan er síðan sveitin flutti lagið af miklum krafti í þættinum Logi í beinni árið 2010. Lagið kom út á plötunni Nákvæmlega árið 1998 og sló heldur betur í gegn. Lagið er líka viðeigandi af þeim sökum að tíminn flýgur sannarlega áfram og vert að minnast á það að aðeins eru fjórir dagar í jól!






Fleiri fréttir

Sjá meira


×