Jól

Jóla­daga­tal Vísis: Tryllt syrpa með Frikka Dór og Steinda

Margrét Björk Jónsdóttir skrifar
Friðrik Dór hélt tónleikana til að fagna þá nýútkominni plötu og þrítugsafmæli sínu.
Friðrik Dór hélt tónleikana til að fagna þá nýútkominni plötu og þrítugsafmæli sínu. hlynur holm

Kæru lesendur. Það er kominn 16.desember og ekki lengur hægt að loka augunum fyrir þeirri staðreynd að jólin eru á næsta leiti. Það er föstudagur og þess vegna erum við ekki með eitt lag í Jóladagatali Vísis í dag, ekki tvö, heldur þrjú!

Hér má sjá félagana Friðrik Dór og Steinda trylla lýðinn á stórtónleikum þess fyrrnefnda, Í síðasta skipti, sem haldnir voru í Kaplakrika árið 2019. Þeir tóku lögin Geðveikt fínn gaur, Til í allt og Alveg sama (Til í allt II). Tónleikarnir voru sýndir á Stöð 2.

Ef þetta er ekki föstudags þá vitum við ekki hvað.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×