Jól

Jóla­daga­tal Vísis: Lang­stærsti smellur Þórunnar Antoníu

Margrét Björk Jónsdóttir skrifar
Við bíðum spennt eftir næsta smelli Þórunnar Antoníu.
Við bíðum spennt eftir næsta smelli Þórunnar Antoníu. Undireins

14. desember er runninn upp. Lag dagsins er stuðsmellur af bestu gerð, tilvalinn með jólatiltektinni eða til að létta lundina í bílnum í jólaumferðinni. 

Lag dagsins í Jóladagatali Vísis er Too Late með stórsöngkonunni Þórunni Antoníu. Óhætt er að segja að lagið sé það lang stærsta sem komið hefur úr smiðju Þórunnar og þrátt fyrir að tíu ár séu liðin frá útgáfu þess nýtur það ennþá mikilla vinsælda. 

Davíð Berndsen og Hermigervill unnu lagið með Þórunni Antoníu en leikstjóri myndbandsins er Ágúst Bent. 

Raunar hafði Hermigervill hugsað lagahugmyndina sem grunn að lagi fyrir Berndsen, og hafi verið svo seinn að senda á hann demó að hann nefndi skrána Too Late. Þórunn Antonía hafi svo samið sönglínuna og textann út frá því. Þessu greindi hann frá á Twitter í haust.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×