Jól

Jóla­daga­tal Vísis: Besta lag Bagga­lúts er eftir ástralsk­ættaðan falsettu­hneggjara

Margrét Björk Jónsdóttir skrifar
Það er ekki annað hægt en að hrífast með og komast í gírinn þegar Baggalútur er annars vegar
Það er ekki annað hægt en að hrífast með og komast í gírinn þegar Baggalútur er annars vegar Aðsend

Að fara á tónleika með snillingunum í Baggalút er fyrir mörgum orðinn ómissandi partur af aðventunni. Því miður komast alltaf færri að en vilja en Vísir bætir það upp með þessu lagi í Jóladagatalinu.

Lag dagsins er Kósýheit Par exelens með Baggalút. Um er að ræða upptöku frá árinu 2010 þar sem strákarnir í sveitinni taka lagið Kósíheitr par exelans í þættinum Logi í beinni.

Laginu, sem kom út árið 2004, er á heimasíðu Baggalúts lýst sem sennilega besta lagi hljómsveitarinnar. „Og ætti það að duga ágætlega sem hressandi lystauki í byrjun aðventu og afbragðs forréttur jólalagsins sem kemur út í desember.“

Þar segir jafnframt að lagið sé eftir ástralskættaðan falsettuhneggjara sem gat sér gott orð á áttunda áratugnum fyrir smellnar diskólummur. „En það var upprunalega flutt af hinum grásprengda Kenny Rogers og hinni barmtroðnu Dolly Parton.“

Þá er ekkert annað í boði en að hækka duglega í græjunum! 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×