Jól

Jóla­daga­tal Vísis: Ein­stök texta­smíð Emm­sjé Gauta

Margrét Björk Jónsdóttir skrifar
Emmsjé Gauti er flinkur með orðin.
Emmsjé Gauti er flinkur með orðin.

Við ætlum halda gleðinni áfram í jóladagatali Vísis. Nú er komið að klassík frá einum helsta rappara þjóðarinnar, okkar eina sanna Emmsjé Gauta sem hér er á ferðinni með einn af sínum þekktustu slögurum, Þetta má.

Stórkostleg textasmíð lagsins hefur að okkar mati ekki fengið þá athygli sem hún á skilið. Leyfum hér litlu dæmi að fylgja:

Er hellan ennþá heit? bíddu ég ætla að gá

Ofninn búinn að vera í botni í svona sirka 15 ár

Farðu niðrá Prik ef að þú þráir að sjá

Þá rekstu á mig eins og horn og litla tá

Ég er on this dumb shit, þó að ég sé klár

Eins og pláss í Kolaportinu því ég er fokkin bás

Þvílík snilld, við segjum ekki annað. „Ég er fokkin bás.“ Enginn nema Emmsjé Gauti kæmist upp með að segja þetta og vera enn álitinn kúl. Það er nokkuð ljóst.

Lag dagsins er Þetta má Með Emmsjé Gauta ft. Herra Hnetusmjör.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×